10.02.1975
Neðri deild: 40. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1611 í B-deild Alþingistíðinda. (1360)

143. mál, fæðingarorlof kvenna og fæðingarstyrkur

Flm. (Bjarnfríður Leósdóttir):

Virðulegi forseti. Ég hef leyft mér að flytja till. til þál, um fæðingarorlof kvenna og fæðingarstyrk. Nú þegar ákveðið er, að almannatryggingar skuli endurskoðaðar, er ekki úr vegi að flytja þáltill. sem þessa. Þetta er eitt af þeim málum sem konur hafa barist fyrir og reynt að færa til meira réttlætis. Sumar konur, sem vinna utan heimilis, fá nú þegar allt að þriggja mánaða fæðingarorlof, aðrar 10–14 daga og sumar ekkert.

Það er almennt álitið, a.m.k. í orði, að æskilegt sé, ef ekki nauðsynlegt, að konur annist börn sín fyrstu vikur eða mánuði eftir fæðingu. Alltaf eru uppi raddir um það, að konur eigi ekki að vinna úti, þær eigi að vera heima og hugsa um börn og buru, faðirinn, þá væntanlega eiginmaður, eigi að sjá heimilinu farborða. En þessi verkaskipting er þverrandi eins og aukin þátttaka kvenna í atvinnulífinu sannar.

Það eru fleiri en ein ástæða, sem liggja að því að konur vinna utan heimilis. Fyrst skulum við nefna þá ástæðu, að konur hafi enga fyrirvinnu, ógiftar mæður með börn. Hagskýrslur segja, að 34% fæddra barna á Íslandi 1973 séu óskilgetin. Ég veit að þessi tala segir ekki allan sannleikann um þessa tölu, því að eins og einhver sagði við mig um daginn, þá giftir fólk sig kannske ekki fyrr en það er nauðbeygt til þess. En hvað um það, við verðum að álykta, að flest þessara óskilgetnu barna séu einvörðungu á framfæri móður. Ég hygg að flestir geri sér nokkra grein fyrir því að afkomuhorfur kvenna, sem ekki fá nema 10–14 daga greidda vegna barnsburðar, séu mjög slæmar. Það tekur sinn tíma að fá úrskurðað meðlag, og margar þessar mæður eru ungar og allslausar. Hvort slíkt ástand er börnum þeirra holt til að feta fyrstu dagana á lífsleiðinni eða gerir mæðurnar færari að annast þau þessa fyrstu daga læt ég hvern og einn um að svara.

Í öðru lagi vilja margar konur vinna utan heimills. Eigum við ekki að telja það næga ástæðu í lýðfrjálsu landi, hvort sem það er vegna þess að þær þurfa þess, af fjárhagsástæðum, eða vegna þess að þær hafa kosið sér starf sem þær hafa áhuga á og jafnvel hlotið menntun til að sinna og þær vilja halda því áfram, hvort sem þær verða mæður eða ekki, rétt eins og karlmennirnir, sem velja sér sjaldan starf eftir því hvort þeir verða feður eður ei? Það þykir sjálfsagt að sem flestir, helst allir, eignist sítt eigið húsnæði. En hvernig skyldi það ganga fyrir t.d. mann sem vinnur á 2. taxta Dagsbrúnar og hafði 419 þús. kr. í dagvinnutekjur á s.l. ári, að eignast eigið húsnæði, ef hann er einn um tekjuöflun fyrir heimilið? Og hvernig skyldi velferðarþjóðfélaginu vegna, ef kaupmáttur heimilanna færi alls staðar eftir launum heimilisföður? Skyldi ekki ríkissjóði og kaupsýslumönnum bregða í brún? Þá kem ég að því þriðja: Hvað yrði um nútímaþjóðfélag okkar íslendinga ef allar konur, sem eru mæður, legðu niður vinnu? Hvað yrði um fiskiðnað og alls konar annan iðnað? Í mörgum frystihúsum eru nær eingöngu konur, og ég held að þannig sé það á mörgum öðrum vinnustöðum.

Fyrir nokkrum árum sat ég hér á þingi, sem varamaður Jónasar Árnasonar rétt eins og núna. Þá buðu iðnrekendur hópi þm. að skoða nokkur iðnfyrirtæki og ég fékk að fljóta með. Við komum á nokkra vinnustaði, þ. á m. saumastofu, sem á voru nær eingöngu konur. En svo komum við í Hampiðjuna. Þar vorn margar konur við vinnu. Þá spurði einn þm. framkvæmdastjórann um það, hvort konur væru ekki óstöðugur vinnukraftur hjá fyrirtækinu. „Nei, það er nú öðru nær,“ var svar framkvæmdastjórans, það var fullorðinn maður og hann var gamall sjómaður. „Konur eru stöðugasti vinnukrafturinn hér. Karlarnir eru alltaf að fara, enda getum við ekki greitt þeim eins hátt kaup og þeir geta fengið annars staðar.“ En þetta er nú önnur saga. Og hvernig ætli færi einnig um þjónustustofnanir, svo sem sjúkrahús og elliheimili, og hvernig færi með skólana, hvernig yrðu þeir settir og margar aðrar stofnanir?

Ég held að störf kvenna séu svo snar þáttur í atvinnulífi þjóðarinnar, að ekki verði snúið við. Menntun kvenna til ýmissa starfa er orðin svo almenn, að það hlyti að vera sóun á verðmætum að nýta ekki krafta þeirra til þeirra starfa sem þær hafa menntun til, það að þær verði mæður.

En aukin þátttaka kvenna í atvinnulífinu kallar á ýmsar félagslegar aðgerðir til að mæta þessum þörfum og þessu hefur ekki verið nægjanlega sinnt til þessa. Mikið vantar t.d. á að hægt sé að bjóða börnum jafnan rétt til dvalar á dagvistunarheimilum eða nægilegt tillit sé tekið til þess almennt, að aukin útivinna foreldra útheimtir stofnanir sem sinnt geta uppeldi barnanna og tekið að nokkru við hlutverki því, sem móðir gegnir á heimilinu.

Eitt af því, sem veldur talsverðum mismun milli kynjanna og gerir bæði afkomu og atvinnu konunnar ótryggari en karlmanna, er að við barnsburð nýtur kona allajafna ekki launa, nema þá í mjög skamman tíma, 10–14 daga þegar best lætur. Frá þessu eru þó veigamiklar undantekningar, því að þær konur, sem starfa hjá ríki og bæjarfélögum, njóta 3 mánaða barnsburðarorlofs á fullum launum.

En nú hugsar kannske einhver: Hvers vegna á ríkið að borga þetta? Er ekki eðlilegast að atvinnurekendur greiði þetta? Því er til að svara, að þær konur, sem enn þá hafa aðeins 10–14 daga fæðingarorlof, hafa undanfarin ár verið að reyna að ná meiri réttindum í samningum við atvinnurekendur, en það hefur gengið sorglega seint og það hefur gengið misjafnlega að fá þessa daga greidda þrátt fyrir samninga. Þeir eru með alls konar vífilengjur, og ef bryddir á atvinnuleysi, er einmitt reynt að forðast þessar konur á vinnumarkaði. Í öðru lagi kemur þetta mjög misjafnlega niður á fyrirtækjum. Sum fyrirtæki hafa nær eingöngu konur í vinnu, önnur aðeins karlmenn, a.m.k. enn sem komið er, t.d. eins og járnsmiðir og trésmiðir, svo að eitthvað sé nefnt. Þessi fyrirtæki losna því alveg við að greiða skatt af þessu vinnutapi. Annars hefur þetta ekki verið mjög þung byrði á fyrirtækjum. Í nýjustu skýrslum frá kjararannsóknarnefnd er allt tíundað sem atvinnurekendur greiða, það sem þeir kalla álögur á kauptaxta. Álögur á kauptaxta Iðju hér í Rvík vegna fæðingarorlofs kvenna eru eftir þessari skýrslu 20 aurar á klst., svo það virðist ekki vera mjög tilfinnanlegt, ef miðað er við það sem atvinnurekendur greiða til Félags ísl. iðnrekenda sem álögur á laun verkafólks, en það eru 2.56 kr. á klst. Ef þessir aðilar greiddu konum 90 daga í staðinn fyrir 14 mundi það vera eftir núverandi kauptöxtum 1.21 kr. á klst.

Ég hef ekki í huga með þessari þáltill. að leggja til að atvinnurekendur losni við að greiða þetta, þvert á móti. En ég tel að þetta eigi að leggja á alla atvinnurekendur, líka þá sem hafa eingöngu karlmenn í vinnu, því að væntanlega eiga þeir börn líka, þó þeir þurfi ekki að öllum jafnaði að leggja niður vinnu vegna barnsburðar. Ef þessi skattur verður lagður á öll fyrirtæki, held ég að hann verði ekki tilfinnanlegur og þá fellur þessi deila um hann niður. Ég tel æskilegast að konur fái þessi laun greidd af almannatryggingum, en tryggingarnar innheimti þetta fé hjá atvinnurekendum.

Með till. þessari er lagt til að eitt verði yfir allar konur látið ganga í þessum efnum og ríkisstj. verði falið að gera þær breyt. á 1. um almannatryggingar, að þar verði konum tryggð þessi réttindi. Þá er í þessari till. lagt til, að fæðingarstyrkur skv. 16. gr. laga um almannatryggingar verði látinn ganga til móðurinnar eins og það var í fyrstu til þess að létta undir með þeim kostnaði sem óneitanlega hlýtur að vera samfara barnsburði, en að dvöl á fæðingarstofnunum verði ókeypis, eins og hver önnur sjúkrahúsvist.

Ég tel ekki ástæðu til að rökstyðja þetta frekar. Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu og legg til að till. verði vísað til hæstv. heilbr.- og trn.