12.02.1975
Neðri deild: 41. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1706 í B-deild Alþingistíðinda. (1391)

84. mál, útvarpslög

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Í tilefni af orðum hv. þm. vil ég geta þess, að ég get út af fyrir sig fallist á að það er ekki sama efni í báðum þessum málsgr. Hins vegar fannst mér orðalag brtt. vera þannig að eðlilegt væri að bera hana upp í einni heild. Ég hef hins vegar leitað umsagnar frá starfsmönnum skrifstofu Alþ. um þetta atríði, sem getur fljótt á lítið verið nokkurt vafaatriði, og þeir telja að unnt sé að bera þennan málslið upp sérstaklega og mun það verða gert.