12.02.1975
Neðri deild: 41. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1709 í B-deild Alþingistíðinda. (1401)

153. mál, menntunarleyfi launþega

Karvel Pálmason:

Hv. forseti. Það eru aðeins örfá orð varðandi það mál sem hér liggur fyrir. Í mínum augum er það vissulega mikið réttlætismál sem hér er um að ræða. Og það er meira en það, það er að mínu áliti mjög mikils um vert, ekki bara fyrir viðkomandi einstaklinga sem kæmi til greina að njóta slíkrar menntunar, framhaldsmenntunar eða þjálfunar, það er ekki síður nauðsyn á því eins og hv. 2. flm. þessa frumvarps gat um áðan og mun koma í ljós, verði horfið að því að framkvæma eða lögfesta slíka löggjöf, að sá atvinnurekstur, sem kæmi til með að nota eða nýta þann vinnukraft og auknu þekkingu sem viðkomandi einstaklingar yrðu aðnjótandi gegnum slíka löggjöf, og þjóðarbúið í heild mundu að mínu áliti vera miklum mun betur sett eftir en áður.

Vel má vera að ýmsum kunni að finnast hér um umtalsverða fjárupphæð að ræða í öllu því sparnaðartali, sem uppi hefur verið nú síðustu daga, og að vart sé bætandi útgjöldum á atvinnureksturinn. Þó að ég hafi ekki um það neinar tölulegar upplýsingar eða hafi í reynd getað myndað mér um það ákveðna skoðun hvaða fjárútlát slík löggjöf hefði í för með sér, þá held ég eigi að síður að það, sem til væri kostað við slíka endurmenntun launþega, mundi skila sér, kannske margfaldlega, í aukinni þekkingu, menntun og auknu starfi hjá þeim atvinnugreinum, sem viðkomandi einstaklingar mundu nýtast betur við ef af þessu yrði. Ég á vart von á öðru en að þm. almennt, hvar í pólitískum flokki sem þeir standa, hljóti að vera sammála um, að það er full þörf og nauðsyn á slíkum ákvæðum að því er varðar launþega og það er ekki siður nauðsyn á því að þeir, sem eru í framleiðslugreinunum, eigi þess kost áð halda þekkingu sinni við og auka hana, alveg á sama hátt og talin er nauðsyn á því — og það mikil — að einstaklingar í ýmsum öðrum starfsgreinum þjóðfélagsins eigi þess kost að auka menntun sína frá því sem var þegar þeir luku prófi á sínum tíma. Ég held þess vegna eða a.m.k. vona að þm. almennt geti orðið um það sammála að hér sé hreyft mjög merkilegu máli og að menn verði um það sammála að nauðsyn til þess sé það rík, að mál þetta fái fljóta og jákvæða afgreiðslu hér á þingi þannig að það geti orðið að lögum áður en þingi lýkur nú á vordögum.