12.02.1975
Neðri deild: 42. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (1404)
159. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Frú forseti. Hinn 11. febr. s.l. tilkynnti ríkisstj. að hún teldi, að höfðu samráði við bankastjóra Seðlabankans, óhjákvæmilegt að tekin yrði ákvörðun um breytt gengi íslensku krónunnar. Í kjölfar þess var felld niður gengisskráning erlends gjaldeyris frá og með deginum í dag. Ríkisstj. hefur nú í dag fallist á till. Seðlabankans, að gengisskráning verði tekin upp að nýju n.k. föstudag eða þegar að lokinni afgreiðslu þess frv., sem hér er á dagskrá, og verði þá markaðsgengi ísl. krónunnar ákveðið sem næst 20% lægra en það gengi var er gilti áður en gengisskráningu var hætt í dag. Verður þá kaupgengi dollars 149.20 kr. og sölugengi 149.60 kr., en gengi annarra mynta í samræmi við það. Jafnframt hefur verið ákveðið að gullgildi krónu, þar sem það er enn notað í samningum á grundvelli sérstakra lagaheimilda, muni framvegis verða byggt á daglegu miðmarkaðsgengi í stað stofngengis.
Frv. þetta er flutt vegna þessarar ákvörðunar. Frv. hefur að geyma ákvæði um tollmeðferð innflutnings og ráðstöfun á gengismun á útflutningsvörubirgðum og ógreiddum útflutningi sjávarafurða. Ákvæði frv. eru svipuð þeim sem áður hafa verið sett í lög vegna breytinga á gengi krónunnar.
Genginsbreyting þessi er einn meginþátturinn í efnahagsráðstöfunum sem ríkisstj. beitir sér fyrir. Samkv. frv. er gert ráð fyrir sérstakri ráðstöfun á gengismun til lausnar brýnni fjárhagsvandamála innan sjávarútvegsins. Af þessum ástæðum er nauðsynlegt að lögfesta ákvæði þau sem till. eru um í frv.
Áður en ég fjalla um frv. sjálft eða einstakar gr. þess, mun ég fara nokkrum orðum um tilefni þess, þ.e. hina breyttu gengisskráningu.
Efnahagsvandi sá, sem við blasir, er í höfuðatriðum tvíþættur: halli í rekstri sjávarútvegs annars vegar og gjaldeyrisstaðan hins vegar, þegar gjaldeyrisvarasjóður landsmanna er nú þrotinn. Gengisbreytingin, sem ákveðin hefur verið, hefur þann megintilgang að bæta rekstrargreiðslustöðu þjóðarbúsins gagnvart útlöndum og tryggja rekstrargrundvöll atvinnuveganna
Gengi krónunnar var síðast breytt í byrjun sept. s.l. og voru þá jafnframt gerðar viðtækar hliðarráðstafanir. Stóðu vonir til þess að þær aðgerðir ásamt frekara aðhaldi í fjármálum og peningamálum nægðu til þess að rétta við hag útflutningsatvinnuveganna og koma á þolanlegum greiðslujöfnuði við útlönd. Reyndin hefur þó orðið önnur. Ör rýrnun viðskiptakjara síðustu mánuði ásamt söluerfiðleikum á ýmsum mörkuðum hefur gjörbreytt rekstrarstöðu útflutningsatvinnuveganna og greiðslujafnaðarhorfum. Eru viðskiptakjörin nú um fjórðungi lakara en á árinu 1973 og 14% lakari en á s.l. sumri.
Eins og þm. er kunnugt af yfirlitsskýrslu þeirri sem þjóðhagsstofnunin hefur tekið saman um efnahagshorfur á þessu ári, er nú við stórfellda erfiðleika að etja í efnahagsmálum. Helstu niðurstöður áætlana Þjóðhagsstofnunar fyrir árið 1975 eru þær, að aukning þjóðarframleiðslu verði lítil sem engin, að vegna versnandi viðskiptakjara muni raunverulegar þjóðartekjur minnka um 3–5% í heild eða um 5–7% á mann, að við blasi að öllu óbreyttu mikill halli í viðskiptum við útlönd eða 14–17 milljarðar kr., að jafnvel þótt reiknað sé með ítrustu lántöku erlendis virðist ókleift að jafna viðskiptahallann með þeim hætti.
Í frumdrögum Seðlabankans var spá um fjármagnshreyfingar til og frá útlöndum og er þar gert ráð fyrir að unnt verði að afla erlendra lána í þeim mæli að fjármagnsjöfnuðurinn skili í mesta lagi 91/2 milljarði kr. til að mæta viðskiptahalla. Þar með væri nú stefnt í versnun gjaldeyrisstöðunnar um 5–8 milljarða á ári, en um þessar mundir er gjaldeyriseignin þegar þorrin.
Grundvallarmisvægið milli heildarframboðs og eftirspurnar í hagkerfinu birtist inn á við í ýmsum myndum: rekstrarhalla sjávarútvegs, fjárhagshalla hins opinbera og fjárvöntun til fyrirhugaðra framkvæmda og útlána.
Engum vafa er undirorpið að þróun, eins og nú er í stefnt, fær ekki staðist. Möguleikarnir til þess að halda uppi þjóðarútgjöldum umfram tekjur mega heita tæmdir. Ef öllu fer fram sem horfir hlyti að draga til þess að hægði á starfsemi í hagkerfinu þegar fjármögnunarmöguleikar tæmast, og jafnvel gæti farið að gæta skorts á innfluttum nauðsynjum. Þessi hvörf í hagsveiflunni heima fyrir gætu orðið hastarleg.
Þetta segir í áliti Þjóðhagsstofnunarinnar. Nýlegar áætlanir Þjóðhagsstofnunarinnar, sem þm. hafa fengið í hendur um afkomu sjávarútvegsins við rekstrarskilyrði um s.l. áramót, segja svo að ekki verður um villst að mjög alvarlega horfir um rekstur mikilvægustu greina útflutningsframleiðslunnar. Eins og þm. er kunnugt, sýndu áætlanir þessar að við blasti alvarlegur rekstrarhalli sjávarútvegs og sjóðakerfis hans. Einkum væri séð fram á mikinn taprekstur báta- og togaraflotans svo og frystihúsa, en staða söltunar og herslu væri betri, en rekstur annarra vinnslugreina stæði tæplega í járnum.
Niðurstöður rekstraráætlana báta- og togaraflotans sýndu um 1750–2550 millj. kr. árshalla og fer það eftir mati á aflahorfum sérstaklega, en væri í stað afskrifta og vaxta í rekstraráætlunum miðað við áætlaða þekkta greiðslubyrði afborgana og vaxta stofnlána til opinberra sjóða lækkaði þessi halli í mesta lagi um 700–800 millj. kr. Hér stæði þó enn eftir verulegur rekstrarhalli auk þess að ekki er tekið tillit til skulda við einkaaðila vegna skipakaupa eða eigin fjármagns fyrirtækja.
Hér er einnig ótalinn olíukostnaður og halli á sjóðum sjávarútvegs, svo sem Tryggingarsjóðs að upphæð samtals um 1000–1200 millj. kr. Frystiiðnaðurinn er nú talinn rekinn með 2500 millj. kr. halla á ársgrundvelli. Þessi halli og fiskverðshækkun verður ekki uppi borin af gengisbreytingunni einni saman, heldur verður að nýta Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins að einhverju leyti, enda er það í samræmi við tilgang hans að draga úr þörf á gengisbreytingu.
Gengisbreyting sú, sem nú hefur verið ákveðin, færir að vísu sjávarútveginum í heild mikla tekjuaukningu, en af henni hlýst jafnframt talsverð aukning tilkostnaðar, einkum fyrir útgerðina. Þessi tekjuskiptingarvandi í kjölfar gengisbreytingar er gamalkunnur hér á landi. En nú hefur vandamálið ágerst vegna þeirrar stórkostlegu hækkunar á mikilvægum kostnaðarliðum, einkum olíu og veiðarfærum og stofnkostnaði nýrra skipa.
Mikilvægt er að leysa þennan vanda nú með hagkvæmum hætti. Hér er ekki aðeins um kostnaðarvanda útgerðar að ræða, heldur einnig hvort við þessum vanda verður snúist með þeim hætti að öflugt aðhald sé veitt. Við notkun þessara rándýru innfluttu aðfanga í núgildandi kerfi, þar sem útgerðin borgar lítinn og minnkandi hluta þessa kostnaðar, felst sennilega þjóðhagsleg sóun sem ekki fær staðist til lengdar. Það er ekki eðlilegt að hver rekstrareining greiði kr. 5.80 á olíulítrann þegar hann kostar á milli 16 og 17 kr. í raun. Slíkur verðmunur og slík niðurgreiðsla eru ekki til þess fallin að koma á sparnaði á olíu eða draga úr olíuinnflutningi til landsins.
Það verður að breyta þessu fyrirkomulagi. Kostnaðurinn verður helst að koma fram hjá þeim sem nota verðmætin þótt með öðrum hætti sé séð fyrir tekjum til þess að standa undir þeim kostnaði. Þennan vanda verðum við að leysa á næstunni.
Á fundi yfirnefndar Verðlagsráðsins í dag náðist samkomulag með fulltrúum sjómanna og öðrum fulltrúum kaupenda um öll meginatriði ákvörðunar lágmarksverðs þeirra fisktegunda, sem venjulega fara saman við ákvörðun almenns fiskverðs, fyrir tímabilið 1. jan. 1975 til 31. maí 1975. Fiskverðsákvörðunin felur að þessu sinni í sér verulega breytingu á stærðarflokkun fisks til verðs og á verðhlutföllum milli stærðarflokka og fisktegunda. Þessar breytingar miðast í senn við breyttar aðstæður á fiskmarkaði erlendis og breytingar í tilkostnaði í sjávarútvegi hér á landi, auk þess sem þær ættu að vera til þess fallnar að beina sókninni í meira mæli að arðgæfari fisktegundum og að stórfiski sem fellur saman við sjónarmið skynsamlegrar nýtingar fiskstofnanna við landið eða verndunarsjónarmið.
Vegna þess, hve breytingar þessar eru umfangsmiklar, verður endanlegum frágangi verðs einstakra fisktegunda hvað gæði og stærðarflokka varðar ekki lokið fyrr en í fyrsta lagi á morgun. Með þessari ákvörðun er leitast við að tryggja að tekjur sjómanna standist eðlilegan samjöfnuð við tekjur annarra stétta, enda er það nú mikilvægara en oftast áður að sjósókn verði öflug. Erfitt er að meta niðurstöður til einnar tölu, en vert er að hafa í huga að sjómenn og útvegsmenn hafa þurft að þola verulega tekjuskerðingu vegna verðlækkana á loðnu. Enginn þarf því að líta á fiskverðsbreytinguna sem fordæmi fyrir kjarabreytingum annarra stétta. Hana ber að skoða sem nauðsynlegan þátt í því að bæta rekstrarstöðu sjávarútvegsins í heild.
Nú liggur fyrir að greiðslujöfnuðurinn við útlönd hefur versnað gífurlega á árinu 1974 og mun meira en gert var ráð fyrir á s.l. hausti. Þannig er ljóst að viðskiptahallinn við útlönd hefur numið um 16.300 millj. kr. á s.l. ári eða sem svarar til um 12% af þjóðarframleiðslunni, en árið 1973 var viðskiptahallinn nálægt 3% af þjóðarframleiðslu þess árs. Jafnframt hefur gjaldeyrisstaðan versnað um 4/5 á árinu 1974, og jafngilti gjaldeyrisvarasjóðurinn aðeins um 2 vikna innflutningi í árslok.
Útgjaldafyrirætlanir þjóðarbúsins stefna í þá átt að hallinn á viðskiptajöfnuði verði svipaður og á s.l. ári, sem er langt umfram það sem greiðslugeta þjóðarinnar leyfir. Nú í byrjun febr. var gjaldeyrisforðinn, eins og áður er sagt, uppurinn. Erlend skuldaaukning af stærðargráðunni 15–17 þús. millj. kr., sem slíkur viðskiptahalli kallar á, væri langt umfram þörf mögulegrar atvinnuuppbyggingar, þannig að tilgangurinn væri sá einn að fjármagna neyslu yfirstandandi árs á kostnað næstu ára. Erlend afborgana- og vaxtabyrði var um 11.3% af útflutningstekjum á árinu 1974 og mun hækka í um 14.5% á þessu ári. Áætlanir sýna jafnframt að greiðslubyrðin muni fara vaxandi næstu árin vegna mikillar skuldasöfnunar á undanförnum árum, og hefur þá ekki verið gert ráð fyrir erlendum lántökum 1975 af slíkri stærð sem ég gat um áðan. Auk þess er vert að hafa í huga að lánstraust þjóðarinnar út á við hlýtur að þrjóta áður en langt um líður, ef framvinda utanríkisviðskipta verður slík sem hér hefur verið lýst.
Það misvægi í hagsveiflunni, sem þjóðarbúið hefur búið við að undanförnu, hefur annars vegar birst í vaxandi rekstrarhalla sjávarútvegsins og hins vegar í auknum greiðsluhalla ríkisins og ríkisfyrirtækja og aukinni fjárvöntun til framkvæmda og útlána fjárfestingarlánasjóða, en hvort tveggja þetta hlýtur að hafa áhrif á þróun greiðslustöðunnar út á við.
Það fer ekki á milli mála að útgjaldaáform þjóðarinnar stefna, eins og horfir í heild, verulega fram úr raunverulegum þjóðartekjum. Það virðist því auðsýnt að nauðsynlegt muni reynast að leysa þann fjárhagsvanda sem af þessu leiðir, annars vegar með auknu aðhaldi í útgjöldum, m.a. með því að draga úr fyrirhuguðum framkvæmdum, og hins vegar með því að auka tekjur opinberra aðila. Í slíkri aðgerð felst hins vegar sá vandi að viðhalda eðlilegri atvinnustarfsemi í samræmi við framleiðslugetu þjóðarinnar. Megináhersla verður því á það lögð að beina innlendum sparnaði í ríkara mæli til atvinnuveganna til þess að tryggja aukna framleiðslugetu og atvinnu. Í þessu sambandi virðist eðlilegt að haldið verði áfram á þeirri braut að beina sparnaði landsmanna hjá lífeyrissjóðum enn meira til atvinnuveganna.
Ríkisstj. hefur unnið að endurskoðun á útgjalda og framkvæmdaáformum ríkisaðila og útgjaldaáformum fjárfestingarlánasjóða með það að markmiði að halda útgjalda- og lánaáformum innan fjárhagsgetu þessara aðila, jafnframt því sem mótuð verði stefna um forgang opinberra framkvæmda og atvinnuuppbyggingu. Sömu stefnu er nauðsynlegt að fylgja í útlánum bankakerfisins.
Ég sé ekki ástæðu til þess að fjalla hér um frv. það til l., sem hér er til umr., í einstökum atriðum. Vegna gengisbreytingarinnar er nauðsynlegt að setja í lög ákvæði svipuð þeim sem áður hefur verið gert í sambandi við gengisbreyt., svo sem um tollmeðferð á innflutningi, meðferð gengismunar hjá einstökum bönkum og loks ráðstöfun á gengismun sem fram kemur vegna birgða útflutningsafurða sjávarútvegsins. Ég tel ekki ástæðu til að rekja athugasemdir við lagafrv. þetta en vil aðeins taka tvö atriði fram.
Það fyrra, sem ég sé ástæðu til að nefna, eru ákvæði 3. gr. sem heimila sjútvrn. að ákveða hækkun á magngjaldi af útfluttum sjávarafurðum, sem ákveðið var með 5. gr. l. nr. 106 frá 31. des. 1974, í samræmi við þessa gengisbreytingu. Hér er um eðlilega ákvörðun að ræða. Hitt atriðið, sem ég vildi gera að umtalsefni, er að með vilja er ekki í þessu frv. kveðið á um það hvernig ráðstafa skuli gengishagnaðarsjóðnum í einstökum atriðum. Verður um það flutt sérstakt frv. En ég sé ástæðu til þess að láta það koma hér fram, að auk þess sem ætla má að þeim gengishagnaðarsjóði verði ekki síst varið til þess að mæta erlendum tilkostnaðarhækkunum útgerðarinnar, þá verði sett til hliðar upphæð, 75 millj. kr., í sérstökum tilgangi. Ríkisstj. mun beita sér fyrir því að 76 millj. kr. af þessu fé verði varið til eflingar lífeyrissjóða sjómanna, einkum til að styrkja getu þeirra til að greiða lífeyri þeim sjómönnum sem lífeyrisgreiðslna eiga að njóta á þessu ári og næstu árum og til annarra umbóta á lífeyrisrétti sjómannastéttarinnar.
Því er ekki að leyna, að óneitanlega fylgir gengislækkun jafnan verðbólguhætta. Og að vissu leyti er hér hopað í því viðnámi gegn verðbólgu sem nauðsynlegt er. Við getum ekki gert okkur vonir um að ná því takmarki, sem við áður settum okkur, að ná verðbólguvextinum í lok yfirstandandi árs niður á það stig sem gerist hjá nágrannaþjóðum okkar. En við megum samt sem áður ekki missa sjónar á þessu markmiði þótt það sé lengra undan. Við höfum vitandi vits valið hér milli kosta til þess að tryggja fyrst og fremst fulla atvinnu. Það, sem ræður valinu, er einkum þrennt.
Í fyrsta lagi áhersla á fulla atvinnu sem meginmarkmið efnahagsstefnunnar og nauðsyn þess, ef hún á að haldast til frambúðar, að staða þjóðarbúsins út á við sé tryggð.
Í öðru lagi veldur gengislækkun almennri hækkun tekna útflutningsgreina án mismunar, en mismunun er fylgifiskur flestra annarra leiða. Jafnframt bætir gengislækkun samkeppnisstöðu allrar innlendrar atvinnustarfsemi gagnvart innflutningi, örvar innlenda framleiðslu og dregur úr innflutningi.
Í þriðja lagi felur valið í sér, að við viljum að við höldum fast við þá fríverslunarstefnu sem þessi ríkisstj. hefur fylgt og vill fylgja og er ein meginforsenda álits okkar og lánstrausts á alþjóðavettvangi. Við hljótum því að hafna haftastefnu og freista þess að leysa efnahagsjafnvægisvandann með almennum aðgerðum. Þetta mundi, er til lengdar lætur, reynast farsælasta lausnin.
Frú forseti. Samhliða breyttri gengisskráningu og ákvörðun fiskverðs mun ríkisstj. beita sér fyrir ýmsum hliðarráðstöfunum til þess að tryggja svo sem verða má að gengisbreytingin nái tilgangi sínum. Flutt verður sérstakt frv. til l. um hvernig ráðstafa skuli gengishagnaðarsjóði þeim sem stofnað er til með frv. því sem hér er til umr. Skal ég ekki á þessu stigi rekja fyrirhugað efni frv., að öðru leyti en því, að leitast verður við að létta að einhverju leyti erlendar kostnaðarhækkanir fiskiskipaflotans og ríkisstj. mun, eins og áður er sagt, beita sér fyrir því að 75 millj. kr. verði varið til eflingar lífeyrissjóða sjómanna.
Þá verður unnið að því eins og unnt er í samráði við aðila að leysa tekjuskiptingarvandamálin innan sjávarútvegsins í þeim tilgangi að koma á hagkvæmara fyrirkomulagi til að standa undir hækkuðum tryggingakostnaði, olíukostnaði og erlendum verðhækkunum fiskiflotans eftir að kjör sjómanna hafa verið tryggð.
Lögð verður áhersla á við aðila vinnumarkaðarins að vísitölukerfi launagreiðslna verði tekið til endurskoðunar og mun ríkisstj. fyrir sitt leyti beita sér fyrir breyttu fyrirkomulagi í þessum efnum.
Í samræmi við fyrri yfirlýsingar ríkisstj. munu launajöfnunarbætur verða teknar til endurskoðunar í þeim tilgangi að auðvelda þeim, er lágar tekjur hafa, að standa undir hækkuðum framfærslukostnaði sem fram er kominn og leiðir af gengisbreytingunni. Með sama hætti verða tryggingabætur til þeirra, sem litlar eða engar aðrar tekjur hafa, teknar til endurskoðunar. Þá verður og verðlagskerfi búvöru tekið til endurskoðunar svo og verðlagsmálin í heild.
Vegna rýrnunar þjóðartekna og erfiðrar greiðslustöðu út á við telur ríkisstj. nauðsynlegt að gera ráðstafanir til að tryggja hagstæðan jöfnuð í fjármálum opinberra aðila, en forðast jafnframt óhóflega aukningu erlendra skulda. Til að ná þessu markmiði mun hún beita sér fyrir því að dregið verði úr útlánafyrirætlunum fjárfestingarlánasjóða og útgjaldaáformum hins opinbera, en fyrir aukinni innlendri fjáröflun að því leyti sem þetta hrekkur ekki til.
Gengislækkun sú, sem nú hefur verið ákveðin, ásamt þeim hliðarráðstöfunum, sem ég hef rakið, stefnir að óhjákvæmilegri leiðréttingu á stöðu útflutningsframleiðslunnar og takmörkun á gjaldeyrisnotkun. Hér er um það að tefla að þjóðin bregðist með sameiginlegu átaki við óvæntu og þungu efnahagslegu áfalli. Þess vegna skiptir meginmáli að almennur skilningur allra stétta og hagsmunahópa náist á nauðsyn þessara ráðstafana og um leiðir til að tryggja sem réttlátasta skiptingu þeirra byrða sem þeim hljóta að fylgja.
Ég vil leyfa mér að leggja til að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.