12.02.1975
Neðri deild: 42. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1754 í B-deild Alþingistíðinda. (1412)

159. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu

Magnús Kjartansson:

Hæstv. forseti. Aðeins fáein orð. Það var alveg óþarfi af hæstv. viðskrh. að gefa það í skyn að okkur greindi eitthvað á um það að allir ættu að hafa frelsi til þess að birta skoðanir sínar í blöðum. Ég hygg að hann viti það fullvel að þar hef ég nákvæmlega sömu skoðanir og hann, enda var ég ekki að gagnrýna það. Ég var hins vegar að vekja athygli á grein sem er birt í Morgunblaðinu í mjög merkum félagsskap. Það eru 4 menn sem er leitað álits hjá: Bragi Hannesson bankastjóri Iðnaðarbankans, titlaður svo í Morgunblaðinu, Davíð Scheving Thorsteinsson formaður Félags ísl. iðnrekenda, Gunnar Guðbjartsson formaður Stéttarsambands bænda og Þorvarður Elíasson framkvæmdastjóri Verslunarráðsins. Þeir eru beðnir að lýsa skoðunum sínum vegna þess að þeir eru í svo mikilvægum stöðum, og þeir eru að lýsa sínum persónulegu skoðunum að sjálfsögðu. Þeir eru ekki að vitna í neina samþykkt fyrir þessum skoðunum en þeir eru engu að síður kallaðir til vegna þess að þeir eru í þessum stöðum.

Hæstv. viðskrh., formaður Framsfl., hefur oft sagt hér á þingi að skoðanir, sem hann hefur gert grein fyrir, væru haus persónulegu skoðanir, og mér finnst það ákaflega eðlilegt og sjálfsagt. Hins vegar hygg ég að menn í Framsfl. þekki viðhorf Ólafs Jóhannessonar það vel að þeir hafi treyst honum til þess að verða formaður flokksins vegna þess að þeir vita að einnig persónulegar skoðanir hans, sem hann hefur enga flokkssamþykkt fyrir, verða ekki til þess að varpa skugga á þann flokk, sem hann er í. En ég er hræddur um að þessar skoðanir Gunnars Guðbjartssonar komi ákaflega mörgum á óvart, bæði framsóknarmönnum og bændum, og ég held að það sé nauðsynlegt fyrir þá, sem taldir eru nánir samverkamenn Gunnars að gera hreint fyrir sínum dyrum um afstöðu sína til þeirra kenninga sem hann er að boða í Morgunblaðinu í dag.

Ég gagnrýndi hæstv. viðskrh. fyrir það að hann hefði látið reka á reiðanum að því er gjaldeyrismálin snertir allt til loka, og hann nánast tók undir þetta, hann viðurkenndi þetta. En þetta er í sjálfu sér ákaflega alvarlegt mál. Þegar hæstv. ráðh. tók við störfum greindi hann frá því að hann og sérfræðingar hans áætluðu að viðskiptahallinn á árinu 1974 yrði 12.5 milljarðar. Þessi halli varð yfir 16 milljarða, 4 milljarðar umfram það sem spáð var í sept. Auðvitað hefur jafnnákvæmur og vinnusamur maður og hæstv. viðskrh. fylgst með þessu dag frá degi. Auðvitað bar honum skylda til að taka í taumana miklu fyrr en gert var. Það hefði verið miklu hægara að eiga við þennan vanda ef við hefðum ekki verið komnir í þessa furðulegu sjálfheldu að gjaldeyrisbankar þjóðarinnar væru að afgreiða neyslulán. Ef það hefði verið tekið á þessu, meðan enn þá var dálítil eign eftir í gjaldeyrisvarasjóðnum, og farið að fjalla um vandann þá, hefði verið auðveldara við hann að eiga. Þetta er ákaflega mikið andvaraleysi og ólíkt þessum hæstv. ráðh. að láta þannig reka á reiðanum. Og ég segi það eins og er, að ég þekki þennan ráðh. ekki sem sama mann og þann sem ég vann með í vinstri stjórninni, því að þar vildi hann sannarlega ekki halda á hlutunum á þennan hátt.

Hæstv. ráðh. ætlaði um skeið að víkja sér undan því að svara því sem ég spurði hann fyrst og fremst um, að hann gerði grein fyrir því hvers vegna Framsfl. hefði látið beygja sig til þess að fallast á þessa gengislækkunarleið enda þótt öllum væri ljóst þangað til fyrir tiltölulega stuttum tíma að hæstv. viðskrh. beitti sér fyrir allt annarri leið. Hæstv. ráðh. segir nú að hann hafi komist að þeirri niðurstöðu — og ég skal ekki vefengja það — að sú millifærsluleið sem hann beitti sér fyrir, hafi verið of erfið, þunglamaleg, hann hafi ekki treyst sér til að fylgja henni til enda og þess vegna hafi hann fallist á þessa gengislækkun. En hann tók sérstaklega fram, að gengislækkunin væri aðeins hluti af lausninni. Og þá virðist mér að við séum að koma að því sem hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason vék að í ræðu fyrr í kvöld, að þessi efnahagslausn virðist vera ný helmingaskipti. Það er hluti af lausn Sjálfstfl, og hluti af lausn Framsfl. Ég verð að segja það, að á grautargerð af þessu tagi hef ég nú ekki mikla trú. Ég held að menn verði að vita hvert þeir eru að stefna til þess að geta tekið réttar ákvarðanir. En að ætla jafnvel að stefna í tvær gagnstæðar áttir í senn, það verður til þess að menn komast ekkert úr sporunum.

Hæstv. ráðh. sagði að gengislækkunin mundi t.d. ekki duga til þess að ráða við vandann í gjaldeyrismálum. Það virðist eiga að grípa til einhverra annarra ráðstafana til þess að hafa tök á þeim vanda. Ég ætlast ekki til þess, að hæstv. ráðh. fari að gefa skýrslu um það hér núna. Hann hefur því miður gert of mikið að því að tala þannig að menn tóku það sem boðun aðgerða og reyndu að gera ráðstafanir til að vernda sig gegn þeim, eins og ég vék að áðan og hæstv. ráðh. minntist ekki á.

Ekki ætla ég að fara út í það að svara fyrir hv. þm. Karvel Pálmason, hann er fullfær til þess. Hins vegar vil ég þó láta þess getið að það er rétt sem hæstv. viðskrh. sagði að það var tekin ákvörðun um það í þingflokki Framsfl. á mánudag að gefa ráðh. flokksins fullt umboð til þess að semja um þrjá valkosti. Þeir fengu fullt umboð til þess að semja um þrjá valkosti, og það voru býsna margir þm. Framsfl. sem komu til mín í dag og spurðu mig að því hvaða valkost ráðh. Framsfl. hefðu valið, og ég gat sagt þeim það.