13.02.1975
Efri deild: 43. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1762 í B-deild Alþingistíðinda. (1422)

152. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Flm. (Geir Gunnarsson):

Herra forseti. Á þskj. 279 flyt ég frv. til l. um breyt á l. um tekjustofna sveitarfélaga, þess efnis að persónufrádrætti við álagningu útsvara verði hækkaðir til samræmis við breytingar á almennum launatekjum frá því að þeir voru ákveðnir við setningu laga sem komu fyrst til framkvæmda við álagningu 1972. Þá er í frv. lagt til að persónufrádrættir við álagningu útsvara breytist eftirleiðis í samræmi við skattvísitölu.

Útsvör eru samkv. núgildandi lögum brúttóskattur. Ákveðinn hundraðshluti, allt að 11%, eftir ákvörðun sveitarstjórnar, af svo til öllum brúttótekjum gjaldenda fellur til sveitarsjóðs sem útsvar. En frá þeirri upphæð dregst ákveðin krónutala, sem ræðst af fjölskyldustærð gjaldenda. Af útsvörum hjóna og einstæðra foreldra, sem hafa fyrir heimili að sjá, dragast nú 7000 kr., frá útsvari einhleypings 5000 kr. og fyrir hvert barn, sem gjaldandi hefur á framfæri sínu, skal lækka útsvar hans um 1000 kr. Hafi gjaldandi fleiri en 3 börn innan 16 ára aldurs á framfæri sínu, skal enn fremur lækka útsvar hans um 2000 kr. fyrir hvert barn umfram 8. Þessar tölur eru fastbundnar í lögum og breytast ekki í samræmi við verðlags- og launaþenslu í þjóðfélaginu, andstætt því sem gildir um álagningu tekjuskatta, þar sem persónufrádrættir, þ.e.a.s. skattfrjálsar tekjur miðað við fjölskyldustærð, svo og bil skattstiga og síðan sérstakur skattafsláttur eftir fjölskyldustærð breytist allt í réttu hlutfalli við breytingar á meðaltekjum á tekjuárinu.

Þær föstu krónutöluupphæðir, sem gilda sem persónufrádráttur við útsvarsálagningu, hafa verið óbreyttar frá því að útsvör voru fyrst lögð á samkv. núgildandi lögum, þ.e. frá árinu 1972. Meðallaun munu á s.l. ári hafa verið um 170 þús. hærri en á því tekjuári sem var grundvöllur álagningar 1972, hækkun á árinu 1972 var um 30%, 1973 37%, 1974 51%. Þegar svo örar breytingar verða á tekjuupphæðum er ljóst, að fastbundinn persónufrádráttur að krónutölu til jöfnunar milli gjaldenda vegna mismunandi framfærslubyrði missir að verulegu leyti gildi sitt. Segja má að byrði gjaldenda vegna álagningar útsvara, sem miðuð eru við ákveðna prósentu brúttólauna á undangengnu ári, hafi um síðustu ár örra launabreytinga milli ára verið léttari en lögin gerðu ráð fyrir, þar sem gjaldendur greiddu á gjaldárinu ekki raunverulega 10% tekna sinna í útsvar. Þegar laun hækka t.d. um 50% á einu ári, eins og á s.l. ári, þýðir 10% tekjuálagning ársins á undan í raun um 6.7% greiðslu af tekjum gjaldársins í stað 10% ef launin hefðu verið óhreytt. Gildi persónufrádráttarins til jöfnunar hefur eigi að síður rýrnað. En þörfin á leiðréttingu hans til samræmis við krónutölubreytingar launa er þó brýnust nú og óhjákvæmileg þegar svo er komið að í mestu óðaverðbólgu, sem hér hefur átt sér stað, hafa verðbætur á laun verið stöðvaðar að undanteknum smávegis láglaunabótum og kaupmáttur launa minnkað með degi hverjum og veruleg hætta er á að tekjur ýmissa gjaldenda lækki jafnvel að krónutölu vegna minnkandi atvinnu. Er því ljóst, að álagningin 10% brúttóskatts af óbreyttum eða lægri tekjum á gjaldári en tekjuári er í raun veruleg hækkun útsvarsbyrði, og er þá að heyra að sveitarfélögum almennt hafi jafnvel verið gefið fyrirheit um heimild til álagningar 1% aukaálags eða álagningu 11% skatts á brúttótekjur í stað 10%, sem var hámarksálagning í fyrra. Brúttótekjur til útsvarsálagningar á þessu ári, tekjur frá árinu 1974, munu vera um 31 þús. millj. kr. hærri en við síðustu álagningu, en lækkun útsvara vegna persónufrádráttar nam í fyrra um 600 millj. kr. og mun að óbreyttum lögum ekki hækka nema sem svarar til fjölgunar gjaldenda. Með 10% skatti má því áætla að útsvarsálagning hækki um 3000 millj. kr. á árinu, en samkv. þessu frv. ættu persónufrádrættir að hækka um ríflega 1000 millj. kr. Þess má einnig geta, að fasteignaskattar eru á þessu ári miðaðir við 100% álag á fasteignamati í stað 45% í fyrra.

Þegar haft er í huga, hve gildi hins fastbundna persónufrádráttar við álagningu útsvara hefur rýrnað við 170% hækkun á tekjutölum frá því að lögin komu fyrst til framkvæmda, og þær aðstæður, sem nú blasa við, minnkandi kaupmáttur, stöðvun og jafnvel hækkun heildarlauna, þá er að mínum dómi óhjákvæmilegt að persónufrádrættir við útsvarsálagningu verði nú leiðréttir og færðir til samræmis við þær breytingar, sem orðið hafa á krónutölu launa frá því, að lögin voru sett.

Það er ljóst, að hafi stjórnvöld vilja til þess að koma til móts við óskir verkalýðshreyfingarinnar um minnkun skattbyrði, þá ættu úrbætur fremur að beinast að útsvörum en tekjuskatti, þar sem skattbyrði hinna lægst launuðu og verst settu kemur ekki fram í tekjuskatti. Verulegum breytingum á útsvarsbyrði hlytu að sjálfsögðu að fylgja tilfærslur til sveitarfélaga í staðinn.

Í því frv., sem hér er til umr., hef ég þó einungis gert till. um óhjákvæmilegar breytingar á persónufrádrætti í beinu samræmi við breytingar á tekjutölum síðan lögin tóku gildi, þ.e. að persónufrádrættir verði jafngildir og þeir voru 1972. Það er að vísu mín skoðun að persónufrádrættir hafi verið ákveðnir of lágir, þegar lögin voru sett, sérstaklega hafi skort á að nægilegt tillit hafi verið tekið til framfærslubyrði vegna barna, og sama eigi sér stað um frádrætti við álagningu tekjuskatts. En ég tel að í dag sé þetta vanmat á framfærslukostnaði vegna barna við skattlagningu enn tilfinnanlegra þegar haft er í huga, að brýnustu matvæli hafa hækkað meira en aðrar vörutegundir. Ég hef þó ekki kosið að miða þetta frv. um breytingar á persónufrádrætti við útsvarsálagningu við önnur hlutföll en fyrir eru í lögunum, heldur er einungis lagt til að hækkun persónufrádráttar verði í beinu hlutfalli við breytingar á krónutölu launa á tímabilinu síðan lögin tóku gildi, í von um að meiri líkur séu á framgangi málsins. En ég vil beina því sérstaklega til þeirrar hv. n. sem fær frv. væntanlega til meðferðar, félmn., að hún kanni hvort samstaða geti náðst um að aukinn verði enn fremur frádráttur vegna barna. Ég hef einnig talið rétt að leggja til, að eftirleiðis fylgi persónufrádráttur við álagningu útsvars þeim breytingum sem verða á skattvísitölunni.

Ég legg svo til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. félmn.