13.02.1975
Neðri deild: 43. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í B-deild Alþingistíðinda. (1436)
159. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu
Ólafur Þ. Þórðarson:
Hæstv. forseti. Ágæti þingheimur. Við, sem komum hér inn og dveljum stutta stund, horfum gjarnan á það, sem hér fer fram, e.t.v. í öðru ljósi en þeir sem sitja hér að staðaldri. Við metum það kannske með meiri spurn hvort mönnum sé alvara eða hvort þeim sé ekki alvara, hvað þeir telji sig gera vegna pólitískrar nauðsynjar um stuðning og áhrif og áróður og hvað þeir telji sig gera af því að það sé nauðsyn fyrir þjóðina.
Nú er það svo, að öll þjóðin hlustar að sjálfsögðu á það hvað hv. 2. þm. Austf., Lúðvík Jósepsson, segir um þessi mál. Þau eru honum það skyld að slíkt hlýtur að teljast eðlilegt. Á sínum valdaferli tók hv. 2. þm. Austf. eina mjög örlagaríka ákvörðun, — ákvörðun sem átti eftir að vara mun lengur en valdaseta hans sjálfs. Það var skipun manns sem bankastjóra við Seðlabanka Íslands. Ég held að þegar slíkir hlutir koma upp eins og nú, þá sé eðlilegt, þegar menn meta það hvenær hv. 2. þm. Austf. er alvara og hvenær ekki, að þeir horfi á það hvernig sá maður, sem hann taldi öðrum hæfari til þess að meta á hverjum tíma m.a. hvort gengi íslenskrar krónu væri rétt, með því að skipa hann í þessa stöðu — ég held að menn hljóti að meta það hvort hans ákvörðun þar hafi verið röng eða rétt og hvort við þá ákvörðun hafi raunverulega komið fram skoðun hv. 2. þm. Austf., Lúðvíks Jósepssonar. Ég fyrir mitt leyti hlustaði alveg sérstaklega eftir því í útvarpinu í gær hver afstaða þessa manns hefði verið. Það var ekkert sératkv. sem þar kom fram. Hann studdi það sem ábyrgur maður í sinni stöðu að fella gengið, vegna þess hvernig komið var víðskiptakjörum þessarar þjóðar. Ég vona að hv. 2. þm. Austf. geri sér einnig grein fyrir því að það er ekki gamantafl eins eða neins að fyrirskipa það að hörfa — því að gengisfelling er ekki yfirlýsing um neitt annað en að hörfa að næstu vígstöð. Það höfum við íslendingar verið að gera þau ár sem ég man eftir með gengi þessarar krónu, við höfum verið að hörfa, yfirleitt vegna breytingar á mörkuðum erlendis og stundum jafnframt og í þessu tilfelli einnig í dag vegna mikillar verðbólgu innanlands.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð mín fleiri, en vona að þetta nægi til þess að þeir, sem orð mín hafa heyrt, geri sér grein fyrir því að ég held að íslenska þjóðin taki tillit til fleira en þess sem menn segja hér í pontunni. Það er líka fylgst með því hvað er að gerast á öðrum stöðum í tengslum við þetta.