13.02.1975
Neðri deild: 44. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1774 í B-deild Alþingistíðinda. (1441)
7. mál, Framkvæmdasjóður Suðurnesja
Frsm. (Ólafur G. Einarsson):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur rætt frv. það til l. um Framkvæmdasjóð Suðurnesja sem hér er til 2. umr. N. hefur orðið sammála um að leggja til að frv. verði vísað til ríkisstj.
Ýmis rök mætti nefna sem urðu til þess að móta þessa afstöðu n. til þessa frv. og skal ég geta nokkurra. Áður vil ég þó geta þess að hinn 4. des. s.l. var ákveðið á fundi n. að senda frv. til umsagnar til þeirra aðila sem málið virtist einkum snerta, þ.e. Samtaka sveitarfélaga í Reykjanesumdæmi, Samstarfsnefndar sveitarfélaga á Suðurnesjum og Framkvæmdastofnunar ríkisins, og var frestur veittur til 15. jan. til þess að skila umsögnum. Frá tveim hinum fyrr töldu barst engin umsögn. Framkvæmdastofnun ríkisins sendi hins vegar allítarlega umsögn sem ég sé þó ekki ástæðu til að rekja, en niðurstaðan í þeirri umsögn er sú að ekki var mælt með samþykkt frv.
Vart verður talið skynsamlegt að fjölga fjárfestingarsjóðum, og enn síður getur það talist skynsamlegt að kljúfa stofnlánasjóði upp eftir landshlutum eða héruðum og mundi við slíkt koma upp nokkuð undarlegur flötur á byggðastefnunni svonefndu. Lánakerfið virðist nægilega flókið fyrir þótt svo sé ekki gert, og slíkir sjóðir eru ekki líklegir til að ráða við fjármagnsþörf hinna einstöku fyrirtækja í hinum einstöku héruðum.
Í frv. er gert ráð fyrir að einn af tekjustofnum sjóðsins sé ákveðin skattlagning á starfsemi sem tengd er varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Það er rétt að benda á í því sambandi að varnarsamningurinn setur nokkrar skorður við slíkri skattlagningu. Annar tekjustofn er hluti af aðstöðugjöldum sveitarfélaga á svæðinu, en það þýðir í raun að viðkomandi sveitarfélög eru þar með svipt hluta af sínum tekjustofnum sem aftur önnur sveitarfélög njóta. Slíkt veldur ósamræmi. Þriðji tekjustofninn er svo gjald af ríkisfyrirtækjum á Keflavíkurflugvelli, — ríkisfyrirtækjum, sem nú eru skattfrjáls. Það verður að teljast í meira lagi vafasamt að skattleggja ríkisfyrirtæki á einu svæði, en ekki öðru, og þarf vart að rökstyðja það nánar.
Þau atriði, sem ég hef hér nefnt og mótað hafa afstöðu n., ættu kannske að nægja til þess að n. legði til að frv. yrði fellt. N. hefur þó valið þann kostinn að leggja til að frv. verði vísað til ríkisstj., og má skilja þá afstöðu n. sem vísbendingu um það að ástæða sé til að taka málefni Suðurnesja til sérstakrar athugunar að því er varðar afstöðu fjárfestingarsjóða til lánveitinga á þessu svæði.