13.02.1975
Efri deild: 44. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1800 í B-deild Alþingistíðinda. (1453)
159. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Það má segja, að skammt, sé stórra högga á milli í okkar virðulegu litlu krónu og leggist nú lítið fyrir sterka ríkisstj. að þurfa að saxa af henni enn nokkurn skerf og gera hana minni en áður var, og þótti mörgum langt gengið í því efni. Það var á sumarþinginu fjallað um sams konar frv. og minnti ég þá á að þær ráðstafanir, eins og þau voru settar fram mundu ekki duga lengi, spá mín var sú að innan skamms mátti eiga von á annarri gengisbreytingu, og ég spurði: Verður þetta innan hálfs árs, verður þetta innan árs eða verður tíminn eilítið lengri? Nú sjá menn hvað skeð hefur, því miður, vil ég segja.
Ég hélt því fram þá og held því fram enn, að gengisfelling sem slík sé ekkert allsherjarúrræði, og kannske hefur enginn dæmt það út af fyrir sig. En hvers vegna erum við þá alltaf að gripa til gengisfellingar og þorum ekki að takast á við vandann með öðrum hætti? Ég held að það sé fyrst og fremst framkvæmdin sem valdi því, hvað það er þægilegt, ef svo má segja, að gera ráðstafanir fljótlega og skjótlega með því að breyta genginu og blása þannig nýjum fjörkipp í atvinnulífið með þessari ráðstöfun, þó að haldið sé niður brekkuna og hopað að einhverju leyti undan vandanum og honum ýtt á undan sér.
Gengisfelling sem slík er ekki og verður aldrei neitt allsherjarúrræði. Henni þurfa að fylgja mörg önnur frv., það hlýtur að vera forsenda fyrir heilbrigðri og skynsamlegri gengisfellingu, og þá hlýtur að vera bráðnauðsynlegt að hafa gert sér grein fyrir því hvað þarf að fylgja með. Eftir því sem fram kom á hinum sameiginlega nefndarfundi í morgun, upplýst af einum stuðningsmanni stjórnarinnar, verð ég að ganga út frá að ekkert slíkt hefði verið rætt, a.m.k. ekki í Sjálfstfl. Þetta vakti mjög mikla furðu hjá mér, ef menn hafa hugleitt eitthvað fram í tímann hvað þyrfti að fylgja með.
Við höfum heyrt drepið á að það eigi að hækka söluskattinn um 1 stig, fara úr 19 í 20. Eitt stig, hvað er það, hvað munar um einn sláturkepp í sláturtíðinni? segja menn. Það skiptir sáralitlu máli. — En er það lausnin á að hefta verðbólgu? Er það lausnin á að draga úr erfiðleikum sjávarútvegsins? Er það lausnin á því að hafa launþegasamtökin jákvæð í því að stuðla að minni eyðslu í þjóðfélaginu? Ég held alls ekki. Miklu heilbrigðara væri að geta byrjað hraustlega að að ráðast á margslungið skattkerfi og alls konar álögur sem eru, held ég, að færa okkur í kaf að ýmsu leyti. Má þar nefna eitt dæmi sem er næsta undarlegt, að geta ekki létt á sveitarfélögum, en þeim er gert að greiða söluskatt af því að moka snjó af götum bæjanna, svo að menn komist um göturnar. Ég veit ekki betur en að það kosti t.d. Akureyrarbæ sennilega hátt í millj., eða jafnvel meira, bara söluskattur af snjómokstri. Þetta hlýtur að vera fáránleg skattalöggjöf. Hún hlýtur að vera alveg fáránleg og okkur öllum til háðungar og dreg ég mig ekkert þar undan.
Við búum til skrifstofubákn, við búum til pappírsvinnu og búum til kerfi sem er að kaffæra okkur. Sífelld millifærsla, sífellt bákn þar sem við kiknum undan, þar sem framleiðslukerfið er að kikna undan þessum gífurlega þungu, sem er búið að hlaða á okkur. Ég drap á þetta hér í haust og ég verð enn að vekja athygli á því, það er óhjákvæmilegt. Ég ætla ekki að fara að lesa upp úr ræðu minni um það, það gerði ég hér í haust, og enn heldur áfram og enn á að auka. Ég er víss um það að almennt, erum við allir á því að hér sé komið meira en nóg. En hví ekki að staldra við? Hví ekki að staldra við þegar svona uppgötvun er gerð? Hví þarf að hækka erlendan gjaldeyri hátt í 60–70% á rúmu ári? Hví er ekki hægt að mæta þessum erfiðleikum með einhverjum öðrum hætti? Ég trúi því ekki að þetta sé eina leiðin, þótt hún sé handhægari en margt annað, af því að hún er orðin gamalkunn og þekkt og allir flokkar hafa tekið þátt í henni, þó með mismunandi geði, eins og vel er kunnugt.
Og svo kemur þetta gamalkunna viðkvæði: Það er verið að bjarga útgerðinni. Þess vegna var gengisfellingin. Mikið ætti að vera búið að draga í land og draga hátt til björgunar ef allt hefði verið satt sem um það er sagt. En svo skeði það undarlega í gær, að talsmaður framleiðsluþáttarins, þ.e.a.s. útgerðarþáttarins, við verðákvörðun telur að þessi gengisbreyting sé engra bóta leið, alls ekki nein. Og nú eftir nokkrar mínútur komu þeir saman til fundar, þeir aðilar sem er verið að bjarga og draga á land svo að þeir drukkni ekki, og það verður gaman að vita hvað þeir álykta að fundi sínum loknum. Það verður gaman að vita það. Mér kemur ekkert á óvart að þeir álíti að þetta sé engra meina bót og séu ekki bætur til bjargar. Það stafar af því að í fjármögnun togaraflotans núna er það mikið af erlendum lánum, launakjörin eru bundin og rekstrarliðirnir hafa hækkað svo gífurlega að það er engin leið að ná saman endum með því bara að lækka gengi krónunnar stanslaust. Það er engin leið eins og uppbyggingu togaraflotans hefur verið háttað undanfarið, ekki nokkur leið. Og það ætti mönnum að vera mætavel kunnugt um. Erlendar skuldir á þessum flota eru rúmlega 10 milljarðar og jafnvel yfir 11 milljarða og nú hækka þessar skuldir um fjórðung. Við síðustu gengisfellingu hækkuðu þær um rúmlega 3 milljarða og núna á fimmta milljarð, þ.e.a.s. á áttunda milljarð hafa þessar skuldir hækkað núna á hálfu ári. Það eru engar smávegis álögur sem þetta eru fyrir þennan þátt framleiðslunnar, og vaxtabyrði af þessu nemur mörgum hundruðum millj. aukningu.
Einn stór vandi í þessu sambandi er að stofnfjársjóðirnir hafa ekki getað veitt eðlileg stofnlán. Í ræðu hæstv. forsrh. kom fram áðan að það á að draga úr útlánum fjárfestingarlánasjóðanna. Það var ekkert meira sagt. En hér er mjög óljóst talað. Ég vil fá að vita úr hvaða fjárfestingarlánasjóðum. Það skiptir meginmáli. Fiskveiðasjóður á enn ósvarað, en hefur þó lofað lánum um 1.6 milljarð og ég vil hafa það á hreinu. Á að stöðva það eða skera niður um fjórðung, þegar erlend aðföng varðandi þann þátt hækka um fjórðung? Þá sjá menn það gap sem þar myndast. Það er gersamlega óviðráðanlegt fyrir skipasmíðastöðvarnar að halda áfram eða halda uppi eðlilegri atvinnuuppbyggingu í landinu varðandi sjávarútveginn. En það eru margir aðrir fjárfestingarlánasjóðir sem eru mikilvægir. Iðnlánasjóður hefur ekki getað svarað eftirspurn eftir lánum þar um margra ára bil og vantar 100 millj. Sumir segja að það sé þegar of mikið af trésmíðaverkstæðum í landinu og ýmiss konar öðrum vélum. Það getur vel verið að það megi stöðva og setja núll við á yfirstandandi ári. Ég legg engan dóm á það. Síðan eru enn aðrir fjárfestingarlánasjóðir sem við þurfum að fá upplýsingar um og meta og vega hvort fært er að skera niður fjárfestingarlán þeirra. En á sama tíma er því haldið fram að það sé forsenda að hafa jafna og trygga atvinnu, og er það vel ef það er markmið sem má taka eitthvert mark á.
Það var merkilegt viðtal, sem kom fram bæði í sjónvarpinu og mikið hefur verið rætt um, og einnig framsöguræða hæstv. viðskrh. á fundi Framsóknarfélagsins hér í Reykjavík fyrir hálfum mánuði. Það má deila um það hvort menn, bæði hæstv. fjmrh. og hæstv. viðskrh., hafi látið teyma sig um of út í að tala um ástandið hreint og beint eða ekki En þegar menn vita það, og það vita þessir ágætu menn manna best, að þróun okkar efnahagsmála hafi eitthvað átt að fara niður á við, fyrst og fremst vegna mikillar eyðslu, þá eru menn oft neyddir til að láta satt kyrrt liggja. En hæstv, fjmrh. sagði aðspurður um gengisfellingu: Jú, það er vitað að krónan nú er minni en hún var í haust. Þegar fréttamaður spyr: Verður gengisfelling? — hefði hann einfaldlega átt að segja: Um það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun á þessu stigi. — Vegna þess að þessi maður sagði þessi orð var eftirspurnaraukning slík eftir alls konar vörum að þær runnu út og umsóknir um gjaldeyri voru miklu meiri, þótt þær hafi ekki fengist afgreiddar. Og nú liggja fyrir óafgreiddar umsóknir frá gjaldeyrisdeildum bankanna, rúmlega 2 milljarðar. Á sama tíma heimtar fjmrn., hæstv. fjmrh., að uppboð sé gert á vörum sem menn fá ekki að borga, til að ná inn tolltekjum. Það er samræmi í hlutunum eða hitt þó heldur!
Frægt var það þegar hæstv. viðskrh. spurði: Á ekki ráðh. að segja satt? Spurningin er raunverulega út í hött við ríkjandi aðstæður. Spurningin er um það, hvernig ráðh. beri að meta ástand og haga orðum sínum til þess að áhrif orða hans sjálfs verði þjóðarbúinu fyrir bestu. Hann þarf ekki að blekkja einn eða neinn. En hann getur hagað orðum sínum það gætilega að ekki stafi af aukinn vandi, þegar allir viðurkenna að hann er geysilega mikill.
Því miður hafa orð þessara tveggja ágætu manna stuðlað að því að þjóðin reynir að eyða mun meiru en hún hefði annars gert í jafnvægi. Menn gera ráð fyrir því að þessi gengisfelling verði til þess að menn dragi úr eyðslu. En gleyma þessir ágætu menn þá ekki því að sparifé landsmanna er um 30 milljarðar, lífeyrissjóðirnir, sem eru að vísu verulega bundið fé, rúmir 13 milljarðar, og hvað gerir fólkið? Ef þessir ágætu menn gengju nú í stærstu verslanir hér og heyrðu í verslunarstjórunum, heyrðu í fólkinu, þá mundu þeir sannreyna það á staðnum að það rífur út vörurnar. Það rífur út sparifé sitt og það rífur út vörurnar af því að það hefur ekki trú á okkur lengur, að við getum ráðið við vandann í þjóðfélaginu. Menn reyna að selja víxla í dag í bönkunum og á sama tíma er verið að bjóða út happdrættisskuldabréf og á sama tíma vantar atvinnulífið svo yfirþyrmandi mikið rekstrarfé að það nemur hundruðum millj., ef ekki mikið á annan milljarð, þegar í stað, frumframleiðsluna, bæði sjávarútveg, iðnað og landbúnað.
Hvernig á þá að koma dæminu saman? Á að hvetja til aukinnar eyðslu á sama tíma og við erum allir sammála um það að við stöndum svona bágt, einmitt vegna þess að þjóðin hefur lifað um efni fram, eins og kom fram í viðtali við hæstv. viðskrh. og hann hefur ítrekað hér, almennt talað, eins og hann segir.
Nei, því miður er gengisfelling neyðaúrræði og svo algert neyðarúrræði að það er ótrúlegt að menn skuli ekki koma auga á aðra leið heppilegri, a.m.k. samræmdar aðgerðir samtímis og þetta er tilkynnt, þannig að fólk sjái í heild að hverju er stefnt. En það er nú öðru nær. Það er boðað að ýmislegt eigi að fylgja hér, en það hefur ekki verið rætt einu sinni enn, a.m.k. ekki í öðrum stjórnarflokknum, eftir því sem einn þm. þar upplýsti á nefndarfundi í morgun, — ekki einu sinni veríð rætt. Það er ekki langt síðan fjárl. voru afgreidd, 11/2 mánuður. Þá fengum við margvíslegar áætlanir og þar var gert ráð fyrir þessu og hinu. Það allt virðist meira og minna hrunið og þær forsendur allar brostnar, svo að nú virðist óhjákvæmilegt að stokka þar allt upp og fara yfir að nýju. En hvar á þá að hamla á móti?
Ég get nefnt það sem ég tel rökréttast að gera þegar í stað. Það er að hamla á móti í vegagerð. Ef ég man rétt er það hátt í 3. milljarð sem á að setja í vegagerð á landinu, og það er tiltölulega mikið fjármagn á hvern mann sem þar hefur vinnu. Þess vegna er eðlilegt, við svona þröngar aðstæður, að sá þáttur mætti helst bíða, því að vissulega lifir þjóðin það af þó að við förum okkur nokkru hægar þar. Vissulega lifir hún það af. Vissulega mundi hún lifa það af þó að við hefðum ekki brú yfir Borgarfjörð í gangi á komandi sumri. En það fer að þyngja í æðivíða ef atvinnulífið úti um landið og þeir ágætu togarar, sem menn bundu miklar vonir við, snúast ekki mikið. Og af því að það eru kornöx fyrrv. ríkisstj. í hlöðunni, þá mætti ég rétt skjóta því hér inn, sem hæstv. viðskrh. nefndi ekki þegar hann var að tala um togarana á sínum tíma hér í Sþ., að ég veit ekki betur en vissir stofnfjársjóðir eða aðrir lánasjóðir hafi orðið að rétta Skagaströnd svo að nemur mörgum millj., jafnvel á 2. tug milljóna, með skyndilánveitingum svo að togarinn kæmi og landaði á staðnum. Þetta er bara lítið dæmi um þá erfiðleika sem a.m.k. vissir staðir eiga við að etja, og fjármagnið er ekki ótæmandi.
Við verðum að velja á milli alveg rólegir og yfirvegað, það er ekki hægt að gera allt í einu við ríkjandi aðstæður. Þó að fjárl. séu ung að tíma til, stutt síðan við afgreiddum þau, þá verðum við að byrja að skera niður og fá að vita það þegar við erum að taka afstöðu til eins mikilvægra mála og hér liggja fyrir. Með gengisbreytingunni í haust var fært á milli 1600 og 1800 millj. kr. innbyrðis í sjávarútveginum. Það var ekki ein einasta ný króna úr ríkissjóði í því sambandi. Nú vitum við ekkert, hvernig á að ráðstafa þessum gengishagnaði. Það er aðeins boðað, að frv. komi hér um það, en við vitum ekkert meira. Ríkissjóður tekur kannske engan þátt aftur í því að hjálpa togaraútgerðinni og þjóðinni í heild, nema þá gagnvart gengisfellingunni sem slíkri, og þarf enn að leggja á sjómennina sem slíka einungis. Hér held ég að sé ansi djarft leikið og mætti vel spyrna við fótum og athuga aðeins sinn gang í því efni. Ef mönnum sýnist að sjómenn, sem á togaraflotanum eru, hafi óeðlilega miklar tekjur þá ættu menn að þora að segja það hreint út og vera ekkert feimnir við það. En það mætti þá um leið taka það til rækilegrar yfirvegunar hvernig útgjaldaliðir togarans skiptast og taka eins og 10–15 útgerðarfyrirtæki til rækilegrar athugunar og birta nákvæmlega alla eyðslu gersamlega alveg í botn og draga þar ekkert undan. Ég held að við ættum heimtingu á því hér á Alþ. að fá slíka skýrslu.
Markmið þessarar gengisfellingar er, eins og fram hefur verið tekið, að koma útflutningsatvinnuvegunum aftur á réttan kjöl og hvetja til minni gjaldeyriseyðslu, gera gjaldeyrinn það dýran að menn hafi ekki áhuga á honum og jafnvel svo að sparnaður aukist aftur, og þetta er gott út af fyrir sig. En þegar við vitum ekki meira, þá getur maður ekki verið trúaður á að þetta takist, því miður. Reynslan sannar það. Almenningur í landinu mun ekki vera trúaður á að þetta sé nema bráðabirgðaráðstöfun þegar hann sér ekki hvað fylgir á eftir, og það mun fara á kreik fullt af alls konar vangaveltum og sögum um hvað sé fram undan, ýmiss konar álögur og viðbótarskattar, sbr. söguna um 1% söluskatt og jafnvel fleira, og það mun stuðla að aukinni eyðslu og gera hlutina enn verri, gagnstætt því sem tilgangur þessa frv. og þessara aðgerða er.
Ég skil ekki hvaða óhemjustjórnleysi það má vera að vera búinn að hafa óvenjulega langt þingfrí, nær út allan janúar og svo þetta af febrúar, og hafa ekki getað mótað sér ákveðna stefnu í heild um stöðu þjóðarbúsins og hvernig við á að bregðast. Það er alveg furðulegt. En þetta kemur einmitt glögglega fram í fréttum um ýmsa niðurstöðu á greiðslujöfnuði okkar við útlönd og margt fleira, en þær tölur breytast næstum viku eftir viku. Við fengum fyrst, ef ég man rétt, í fjvn. áætlun um 12.5 milljarða, svo fer hann upp í rúma 14, svo er hann 15.3 svo 16 og nú um 17 milljarðar, og margt fleira eftir þessu. Þetta er mjög undarlegt og sýnir að einhvern veginn er ekki eðlilega að þessu staðið og unnið, og maður er reyndar hissa á þessu, svona geysilega miklum talnabreytingum, á svo stuttum tíma, jafnvel þó að viðskiptakjör okkar hafi versnað mjög skyndilega. Það hefur verið stöðugt gengissig undanfarið og gjaldeyririnn hefur hækkað núna á tiltölulega stuttu tímabili um 70–75%. Það er engin smáverðrýrnun á sparifé þegar slíkt á sér stað og sparifé landsmanna er um 30 milljarðar. Þetta er slík ofsaleg blóðtaka gagnvart gamla fólkinu og mörgum öðrum, sem eiga sparifé, að hún er raunverulega forkastanleg að öllu leyti. Eitt af frumskilyrðum til þess að menn komi á aftur heilbrigðum sparnaði og jafnvægi í eftirspurn er að viðurkenna sparnaðinn og setja ákveðna vísitölu á útlán. Ef við þorum ekki að byrja á því hér á Alþ. að koma með löggjöf um slíkt, og það er raunverulega mál hæstv. ríkisstj. að gera slíkt, þá mun illa fara aftur og stutt í næstu gengisfellingu.
Hvað segir verslunin núna? Hvernig á hún að mæta þessari verðbólguþróun? Hvernig geta verslunarmenn haft eðlilegar vörubirgðir og eðlilega þjónustu miðað við þá yfirlýsingu sem hæstv. viðskrh. gaf við umr. í Nd. og ég hlýddi á í gærkvöldi, og þá sýndist mér að þar muni þrengja mjög viða að — þrengja mjög að. Það getur líka verið nauðsynlegt að þrengja um marga þætti verslunarinnar. En ég á von á að mörg kaupfélögin kvarti nú þegar yfir afar þröngum kosti og telji ekki fært að ganga lengra en þegar er komið vegna þeirrar þjónustuverslunar sem þau þurfi að annast út um allt land. Mér leikur því nokkur forvitni á að vita hvernig á að beita því sem hæstv. ráðh. lýsti yfir í gær. Eins og ég skildi það, þá á að þrengja kosti verslunar enn mjög verulega. Það getur vel verið að sumir segi að verslunin hafi það allt of gott, ég legg engan dóm á það. En hinu er ég vel kunnugur að a.m.k. viss kaupfélög eru svo illa sett að þau urðu að borga margar millj. kr. og nærri tug milljóna í yfirdrátt á s.l. ári, og allur ávinningur þeirrar verslunar er rokinn út í veður og vind vegna yfirdráttar- og refsivaxta. Ég starfaði alllengi við kaupfélag og sá um alla vöruútvegun og innkaup fyrir neytendur þar, bændur sem aðra, og mér er mætavel kunnugt um það hvað vörubirgðir slíkra fyrirtækja þurfa að vera fjölbreytilegar og menn skilja ekki ef ekki er hægt að útvega hluti og hafa eðlilega varahlutaþjónustu fyrir hendi og margt annað. Menn skilja ekki að það skuli ekki vera eðlilegt að hafa fjármagn til slíkra hluta, þegar það er lífsnauðsynlegt fyrir viðkomandi svæði. Ég dreg mjög í efa að það sé hægt að ákveða með einu bréfi, eins og hæstv. ráðh. tilkynnti, að hann hafi gert, að allt skuli verða þrengt til muna. Ég dreg það mjög í efa að það sé framkvæmanlegt öðruvísi en að skapa stórvandræði á viðkomandi svæðum, því að það kostar bóndann ekkert litið að engir varahlutir séu til hjá kaupfélaginu og þurfi að sækja þá til Englands, Bandaríkjanna eða Tékkóslóvakíu. Það er ekkert smááfall ef þurrkur stendur yfir.
Sama mætti segja um iðnaðinn, hér á Reykjavíkursvæðinu sérstaklega, en hann á nú þegar útistandandi, fyrst og fremst hjá útgerð og fiskvinnslu, nærri milljarð, og aðspurðir sögðu báðir bankastjórar Seðlabankans í morgun á sameiginlegum nefndarfundi að engin ákvörðun um aukningu útlána hefði verið tekin enn þá og það yrði beitt harðri bankapólitík. En það skiptir náttúrlega meginmáli, hvort við erum að beita harðri bankapólitík gagnvart þessum fyrirtækjum eða fyrirtækjum sem versla með kjóla, snyrtivörur, sportvörur eða vélsleða. Það skiptir meginmáli. Við viljum nefnilega gjarnan heyra það, þegar við erum að fjalla um mál eins og þetta, hvað er lagt til, til þess að tryggja að gengisfellingin beri árangur. Annars getur maður ekki fylgt svona ráðstöfun, það er algerlega vonlaust. Það er ekki nóg að segja, að það komi á sínum tíma eitthvað og eitthvað. Það er ekki einu sinni byrjað að ræða það, eins og ég hef drepið á hér áðan, hjá öðrum stjórnarflokknum.
Menn hafa oft velt fyrir sér mismunandi leiðum. Menn hafa talað um niðurfærsluleið; jafnvel aukna skattheimtuleið og margt fleira og jafnan hafa menn staðnæmst við gengisfellinguna. Hún hefur oftast verið gerð. Eins og ég sagði áðan hafa allir flokkar tekið þátt í gengis.fellingum. En ég held að það sé fyrst og fremst vegna þess að hún er þægilegri í framkvæmd en margt annað, og svo er hitt að verkalýðshreyfingin er alltaf tortryggin á það að niðurfærsluleið komi sanngjarnt niður og þá eiga menn eftir að borga skatta og margt annað. Menn hafa staðið í húsbyggingum, menn hafa tekið lán og það er ósköp þægilegt að fá að borga þetta allt með verðminni krónum og þá hugsar hver gagnvart sjálfum sér. En það er ekkert grín, hvernig Ísland er að verða kynnt erlendis í stjórnspeki. Það var áður en það uppgötvaðist að verðbólgan fór hér yfir 50%, en þá birtist mynd af hundrað króna seðlinum í viðlesnu blaði og þar var hann rifinn að 40 hundraðshlutum og með stóru upphrópunarmerki: Verðbólga á Íslandi á einu ári 40% — og seðillinn er rifinn samkv. því í tvennt. En nú getum við séð næstu mynd, þar sem hann er enn betur skaddaður og við orðnir heimsfrægir fyrir og jafnvel setjum algert met í því efni og lengra en Suður-Ameríkuríkin hafa gert. Þetta er nú kynningin á Íslandi. Og þetta er kynningin á stjórnvisku ágætra manna sem sitja á Alþ. í dag og herskörum sérfræðinga. Þetta er ánægjulegt eða hitt þó heldur! Samt viljum við telja okkur í fararbroddi menningarþjóðanna og finnst ömurlegt ef hallað er á eitthvað hér á landi í erlendum blöðum. En bara svona ein lítil mynd með viðeigandi aths. gerir okkur meira ógagn en margt annað, og ættu menn að hugleiða hvert orðspor fer af okkur hér eftir erlendis.
Íslendingar eru löngu þekktir fyrir það að vera erfiðir í viðskiptum og eru löngu þekktir fyrir það að gera miklar kröfur út á við, en vera seinir til að borga. Þetta er slæmt því að það er mikilvægt fyrir okkur, sérstaklega á þeim tíma þegar verðsveiflur eru að geta náð góðum viðskiptum og hafa traust og góð sambönd erlendis. Þetta þekkja allir sem í viðskiptalífinu hafa staðið, hvort sem þeir eru við sjávarútveg eða aðra verslun. En fari svo fram sem nú hefur verið undanfarið munu áhrifa bara þessa þáttar eins hafa mikið að segja fyrir atvinnulíf á Íslandi, þar sem við munum alls ekki njóta sömu viðskiptakjara og þæginda í milliríkjaverslun og annars hefði verið, og mættu menn hugleiða það einnig í leiðinni.
Þessi aðgerð er sögð stafa af því að það hefur verið mikill aflabrestur, það hefur verið verðfall á vörunni og svo olíuvandræðin. Afli hefur minnkað varðandi bolfisk, en er svipaður af öðrum fisktegundum, en verulegt verðfall varð á loðnuafurðum fyrir rúmu ári, sérstaklega mjölinu, og gildir það auðvitað um aðrar tegundir mjöls úr öðrum fiski. Það háttaði svo til fyrir rúmu ári að allir töldu loðnuna geta bjargað hverju sem vera skal og menn voru svo gullslegnir af þeim tölum sem hún skapaði þá, að enginn maður hlustaði á eitt eða neitt í því efni að fara varlega. Hélt ég hér þá nokkra tölu úr þessum ræðustóli og hvatti til þess að við létum nú ekki blindast af þeim ávinningi, sem virtist fram undan, áður en loðnan var veidd, áður en hún var seld, og ég bað núv. hæstv. forsrh. þá að ljá þessum orðum mínum nokkurt eyra og skoraði á hann að gera það, en hann daufheyrðist við og taldi slíkt mikið afturhald hjá mér. En nú hefði hann sannarlega átt við minni vanda að etja, ef hann hefði aðeins hlustað á þetta andartak. Það má aldrei fara varlega og hóflega í íslenskum efnahagsmálum, því að þeir, sem það vilja, eru hrópaðir niður. Ég taldi einnig þegar togaraflotinn var hvað mest á döfinni og þáv. ríkisstj., viðreisnarstjórnin, var með fyrsta frv. um togarakaup, að við ættum að taka ákveðna áfanga og reyna í rekstri og síðan að taka stærra stökk miðað við þá reynslu sem þá lægi fyrir, eftir um það bil ársútgerð, en var einnig hrópaður þá niður.
Það er ágætt að vera bjartsýnn, en maður verður að vera raunsær um leið. Það er ekki hægt að ganga fram hjá því. Og einhverjir verða að borga fyrr eða síðar þær skyssur, sem gerðar eru af stjórnvöldum. Og nú verða sparifjáreigendur að borga. Nú verða þeir, sem eru eignalitlir, og raunar hinn almenni borgari, sem á ekki neitt, að taka á sig enn meiri kvaðir til þess að þola millífærslu varðandi gengisbreytinguna, sem er gífurleg við svona gengisbreytingu. Og þeir, sem eiga miklar eignir, og þeim, sem skulda mikið, eru færðir milljarðar á silfurfati á þessum dögum með slíkum aðgerðum. Og það er ekki hægt að ætlast til þess undir neinum kringumstæðum að við náum jafnvægi í þjóðarbúskap okkar ef þessari stefnu heldur svona áfram. Það er algerlega vonlaust. Því gagnrýni ég þetta enn einu sinni mjög ákveðið, að við skulum ekki sjá nein önnur úrræði.
Það má ekkert spara hér á Alþ., það má hvergi spara neitt í ríkisrekstrinum.a.m.k. hefur það ekki komið fram enn þá. Það er ekki einu sinni haft svo mikið við hér við útgjaldaaukningu Alþingis, að venjulegum þm. sé tilkynnt um hvað til standi, og það er ekki gert af fullskipaðri þingfararkaupsnefnd, hún er ekki einu sinni fullskipuð, þegar útgjaldaaukning er tekin sem nemur mörgum millj. og flokkarnir ekki látnir vita af því. Það er mikið ósamræmi í svona vinnubrögðum. Það er mikið ósamræmi hér á hv. Alþ.
Við eigum von á lögum um ráðstöfun á gengishagnaði. Við eigum von á mörgum fleiri lögum sem eiga að tryggja hin jákvæðu áhríf af gengisbreytingunni. En við vitum ekkert meira. Þess er vænst að sparnaður verði aukinn að nýju svo að atvinnulífið fái rekstrarfé. En er nokkur minnsta von til þess að menn fari að spara að nýju, meðan menn hafa ekki hugmynd um hver stefna hæstv. ríkisstj. er? Ég get ekki ætlað nokkrum manni það á þessu stigi. Það hefur verið býsnast yfir því að hér lægju um 2000 bílar innfluttir umfram eðlilega eftirspurn frá síðasta ári. Ég veit ekki, hvað mönnum tókst að losa út núna eftir að þessar fregnir fóru af stað, að til stæði að fella gengi eða setja á sérstaka skatta, en mikil var eftirspurnin víða eftir þessum bílakosti og sýndi það enn einu sinni svo glöggt sem verða má, að fólk er reiðubúið til að fórna sparifé sínu strax í eyðslu af ótta við enn meiri rýrnun en verið hefur á undanförnum árum, jafnvel þótt það hafi ekki beina þörf fyrir hlutina. Og þetta segja menn í mörgum öðrum verslunargreinum. Í húsgagnaþættinum og í hljómburðartækjakaupum og mörgu öðru kemur þessi aukna eftirspurn fram vegna óvissunnar, vegna orðrómsins um það hvað fram undan er.
Ef hæstv. ríkisstj. vill raunverulega stuðla að því jafnvægi í búskapnum sem hún talar svo mikið um að hún vilji, þá ætti hún að láta eitthvað koma fram sem gæfi fólki vísbendingu um hvað til stæði, svo að það væri ekki að gera sér sjálft ýmsar hugmyndir um hlutina og sögur um margs konar álögur gengju ekki á milli fólksins og hvettu fólkið aðeins til meiri eyðslu en nauðsyn er á.
Hæstv. forsrh. undirstrikaði það mjög ákveðið að haldið væri fast við fríverslunina. Hæstv. viðskrh. tilkynnti að hann hafi nú ritað gjaldeyrisdeildum bankanna bréf þar sem hann fyrirskipar þeim að fara rólega, og því liggja nú fyrir beiðnir sem eru yfir 2 milljarða. Þessar beiðnir eru óafgreiddar hjá viðskiptabönkunum eða gjaldeyrisdeildum þessara banka. Það má kalla þetta frjálsræði en það er þá bara á pappírnum. Það er ekki nema í orði kveðnu. Það getur vel verið að það sé nauðsynlegt að setja hér harðar og miklar reglur varðandi innflutning, sérstaklega á vissum vöruflokkum. En þá á bara að hafa það á hreinu og menn eiga að vita það mjög glöggt hvernig þær reglur eru. En þetta eru ekki eðlilegir viðskiptahættir, engan veginn, og skapa aðeins aukin vandræði fyrir alla aðila, seljendur og innflytjendur og neytendur. Það er miklu betra að hafa það á hreinu með hvaða hætti menn geta fengið yfirfærslu strax og hitt liggi í láginni ef þarf að spara á þeim þáttum.
Það hafa birst margar skemmtilegar fyrirsagnir í blöðunum undanfarið þar sem sagt er að eigi að taka hraustlega á og ekkert að draga úr skynsamlegum aðgerðum. Enn bólar samt ekkert á því. Í Morgunblaðinu föstudaginn 24. jan. stendur í leiðarafyrirsögn: „Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.“ Nú eru að verða 3 vikur síðan þetta var skrifað. Og næstu viku mun ekkert gerast hér á hv. Alþ. vegna þings Norðurlandaráðs, þannig að það verður nærri kominn mánuður frá því að þessi leiðari var skrifaður, sem hefst á því að minna á hve viðskilnaður vinstri stjórnarinnar var ömurlegur og hve þessi hæstv. ríkisstj. ætlar að vera hress í bragði og taka hraustlega til höndunum. En hægt er farið af stað og kannske af gát. En bara að það skaði ekki meira, vegna þess að menn eru svo málglaðir að það hefur skapað stórvandræði, eins og ég drap á áðan, með ræðum bæði hæstv. viðskrh. og hæstv. fjmrh.
Þann 11. febr. segir í leiðara Morgunblaðsins: „Nú þarf afgerandi aðgerðir.“ Er það tíundað þar vel sem gera þarf. En við sjáum ekkert meira en þessa einu gengisfellingu. Við sjáum ekkert meira. Það er boðað að margt annað komi, við vitum ekkert meira. Og þegar það er boðað þá fara af stað ýmsar sögusagnir sem auka á vandann vegna ráðleysisins. Og eyðslan verður meiri og sparnaðurinn minni, þvert ofan í það sem hæstv. forsrh. drap á að nauðsyn væri að ætti sér stað.
Tvær bæjarstjórnir hafa ályktað nú undanfarið, bæði á Akranesi og í Keflavík, að vandræði útgerðarinnar væru gífurleg og stöðvun væri fram undan hjá fiskvinnslustöðvunum og togaraflotanum á báðum þessum svæðum ef ekki væri gripið strax til raunhæfra aðgerða. Því miður ályktar fulltrúi þessara aðila, útgerðaraðila í verðlagsráði, að það sem gerst hefur með verðlagningu og gerst með gengisbreytingunni sé engan veginn til að koma þessum atvinnugreinum út úr þeim vanda sem þær eiga við að etja. Ég hef ekki þau gögn í höndunum, að ég geti dæmt um réttmæti þessarar aths., en ég vænti þess þó að okkur verði gefinn kostur á því að fá þau gögn svo að við megum sjálfir um þau fjalla. Forsvarsmenn togaraútgerðarinnar hafa látið mjög ákveðið í ljós að svona gengisfelling væri engan veginn lausnin á vandamálinu. Og formaður félagsskapar togaraútgerðarmanna, Valdimar Indriðason á Akranesi, segir afdráttarlaust í viðtali við Alþýðublaðið 4. febr. s.l. að gengisfellingin geti ekki leyst þennan vanda, og veit ég ekki annað en hann sé einn af dyggustu stuðningsmönnum hæstv. ríkisstj. þrátt fyrir það. Hann ætti að tala af reynslu, maður sem er búinn að fást við togaraútgerð í mörg ár og veit hvernig fjárhagur hennar er og hvernig fjármögnun hefur átt sér stað og við hvaða erfiðleika er að etja. En sérfræðingarnir og áhrif þeirra eru sterk og þeir eru sterkir, og þess vegna er gripið til þess ráðs, af því að þeir telja það ugglaust, að þetta sé besta og heppilegasta leiðin.
Það getur vel verið að það takist að sannfæra okkur um það með þeim frumvörpum, sem síðar eiga eftir að koma í ljós, að hér sé vel af stað farið. En á þessu stigi getum við ekki séð þess nein merki. Í báðum stjórnarblöðunum, bæði Morgunblaðinu og Tímanum, er æ ofan í æ nú undanfarið talað um þennan mikla efnahagsvanda og að þjóðin verði að taka á sig almenna kjaraskerðingu. Við hefðum því mátt vænta þess að með frv. um gengisfellingu væru okkur sýnd einhver frv. sem styddu að því að hér væri búið að gera sér grein fyrir heildarvandamálinu í þjóðfélaginu. En svo er alls ekki að sjá.
Í Morgunblaðinu í gær eða fyrradag birtist merkilegt viðtal við 4 menn, þ. á m. formann Stéttarsambands bænda, og þeir láta, þessir 4 ágætu menn sem eru forsvarsmenn á mismunandi sviðum í atvinnulífinu, sína persónulegu skoðun í ljós. En sú skoðun, sem þar kemur fram, er einstök að mínu mati og ætla ég ekki að fara að rekja hana því hv. þm. geta lesið sér mætavel til um hana. En ef þetta er einhver samnefnari fyrir ríkjandi skoðanir í Framsfl. í dag, þá er ekki von á góðu. Og ef menn ætlast svo til þess, að launþegasamtökin í landinu geti verið róleg þegar forsvarsmenn bænda tala með slíkum hroka sem þar kemur fram og þau mega eiga von á því að eitthvað slíkt eigi sér stað eða þróist að þeirri stefnu sem hann boðar, þá er alls ekki von á neinu jafnvægi í þjóðfélaginu né neinum friði um efnahagsmálin, um lífskjörin og launakjörin í landinu. Það er alveg útilokað. Ég hefði gjarnan viljað vita hvort þessi maður væri algerlega einn á báti og á eyðiskeri með þessa skoðun, vegna þess að hann er í slíkri stöðu að menn hlusta á þegar hann talar, þar sem hann hefur æ ofan í æ komið fram fyrir hönd bændasamtakanna og varið kjör þeirra og varið það kerfi sem er í verðlagningu landbúnaðarafurða, niðurgreiðslur, og þar fram eftir götunum, og hann ætlast til þess að almenningur hlusti á það sem hann segir. Hann hefur ætlast til þess hingað til. Auðvitað eru menn frjálsir að því að hafa hvaða skoðanir um efnahagsmál og þjóðfélagsmál sem menn vilja. Auðvitað eru allir frjálsir að því. En séu margir að sameinast um þessa skoðun innan Framsfl., þá vil ég fá það tímanlega í ljós. Það er nauðsynlegt þegar við erum að ræða um slíkar aðgerðir sem hér eru á dagskrá.
Herra forseti. Ég skal ekki tefja tímann lengur við vangaveltur í sambandi við þau úrræði sem fram undan eru. Í sjálfu sér er frv. meira tækniatriði heldur en að gefa í skyn einhverja heildarlausn á þjóðmálunum og venjulegt form um staðfestingu á gengisfellingu og því nauðsynlega sem henni fylgir, svo að í sjálfu sér geta umr. um þetta sérstaka frv. verið stuttar. En þar sem margt annað hefur verið boðað í kjölfar þessarar gengisbreytingar er ekki hægt annað en vera með nokkrar vangaveltur um það sem boðað hefur verið, þótt það hafi ekki verið rætt að verulegu leyti og líklega að engu leyti í öðrum stjórnarflokknum, þeim flokki er forsrh. stýrir, og er það mjög merkilegt að heyra slíkt á nefndarfundi. Það er afar merkilegt. Því hef ég verið með nokkrar vangaveltur frá mér og mínum flokki um þessi vinnubrögð, sem ég tel alveg einstæð og eru því miður ekki til þess fallin að skapa það jafnvægi sem leitast er við að túlka með þessari gengisfellingu að nást eigi og að þjóðin dragi úr eyðslu og hafi trú á þeim efnahagsráðstöfunum sem fram undan eru. En það hlýtur jafnan að vera tilgangur hverrar ríkisstj. að skapa trú meðal almennings á þeim efnahagsaðgerðum sem hún er að leitast við að gera, þrátt fyrir það að allir viti að efnahagsaðgerðir eru aldrei varanlegar, þær eru aldrei endanlegar. Við búum við síbreytileg skilyrði, versnandi og batnandi, og þar með breytileg lífskjör. En engu að síður hjálpar það alls ekki til, að fólkið hafi ekki í upphafi trú á því, sem reynt er að gera.