13.02.1975
Efri deild: 45. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1820 í B-deild Alþingistíðinda. (1460)
159. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu
Frsm. 1. minni hl. (Hannes Baldvinsson):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. Ed. hefur fjallað um það frv. sem hér liggjum fyrir til afgreiðslu. Hún hefur, eins og frsm. meiri hl. tók fram, ekki orðið sammála og skilar því áliti frá minni hl. og meiri hl. og minni hl. í tvennu lagi. En ég verð að segja eftir þá ræðu, sem hv. 5. þm. Austf. flutti hér áðan, að ég leyfi mér stórlega að draga í efa, að þegar allt kemur til alls sé um nokkurn meiri hl. að ræða í fjh.- og viðskn. Ed. varðandi þetta mál. A.m.k. tveir af þeim hv. þm., sem undirrita meirihlutaálitið, hafa látið í ljós djúpstæðan efa um það að þær aðgerðir, sem frv. raunverulega fjallar um og er afleiðing af, þjóni þeim tilgangi sem flm. og talsmenn þess vilja vera láta. Og ég er þeim fyllilega sammála. Þær efasemdir eru vissulega á rökum reistar. Það er athyglisvert að þarna er um að ræða þm. úr báðum stjórnarflokkunum. Þeir eru óánægðir, þeir vilja ekki gengisfellingu. En það eru flokksböndin sem halda í þessu tilviki.
Ég skal ekki lengja umr. um það frv. sem hér liggur fyrir til afgreiðslu. Afstaða mín í minni hl. fjh.- og viðskn. er skýr og ég vil með leyfi forseta — leyfa mér að lesa hana, eins og hún liggur fyrir hér á þskj.:
„Frv. það, sem hér liggur fyrir til afgreiðslu, er eins konar staðfesting í formi laga á gengisfellingunni sem nú er komin til framkvæmda. Þar sem Alþb. er andvígt þessari gengisfellingu legg ég til að frv. verði fellt.“