24.02.1975
Neðri deild: 45. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1829 í B-deild Alþingistíðinda. (1467)
Umræður utan dagskrár
Karvel Pálmason:
Virðulegi forseti. Ég hef kvatt mér hér hljóðs utan dagskrár til þess að gera að umræðuefni hina mjög svo umdeildu ákvörðun Verðlagsráðs sjávarútvegsins að því er varðar fiskverð, sem nú nýlega birtist. Það er ekki að ófyrirsynju að mikillar óánægju gætir með þessa verðákvörðun, sem nú hefur leitt til þess að allflestir starfandi sjómenn á vestfirska línubátaflotanum hafa tilkynnt uppsögn úr starfi sínu og allt útlit fyrir að floti vestfirðinga, sem stundar línu, muni innan vikutíma stöðvast verði ekkert að gert. Það, sem valdið hefur þessari ákvörðun vestfirskra sjómanna, er hin furðulega ákvörðun Verðlagsráðs sjávarútvegsins um beina lækkun á steinbítsverði úr kr. 16.85 í kr. 10.60, tímabilið jan.– febr., þ.e.a.s. til 1. mars. Að því er best er vitað eftir yfirlýsingu Verðlagsráðs sjávarútvegsins sjálfs grundvallast þessi ákvörðun á því, hafi ég heyrt rétt í tilkynningu frá Verðlagsráðinu, að steinbítur veiddur á þessum árstíma á Vestfjarðamiðum sé ekki mannamatur, í öðru lagi að reglugerð sé í gildi um bann við veiðum á þessari fisktegund til 1. mars að því leyti að ekki sé heimilt að steinbítsafli sé nema 5% af heildaraflamagni, í þriðja lagi að á undanförnum árum hafi steinbítsafli Vestfjarðabáta á þessum árstíma aðeins verið liðlega 2% af heildaraflanum.
Steinbítsafli á Vestfjarðamiðum er nú miklum mun meiri á þessum tíma en áður hefur verið eða um 80–90% af heildaraflaverðmæti sem verið hefur núna t.d. í febrúar. Eftir því sem ég best veit hefur sú fullyrðing Verðlagsráðs sjávarútvegsins að steinbítur sé á þessum árstíma óhæfur til manneldis, ekki við rök að styðjast, a.m.k. ekki eins og málin nú standa. Ég tel furðulegt að slík ákvörðun skuli tekin eftir að viðkomandi sjómenn eru búnir að róa í einn og hálfan mánuð, að sjálfsögðu í trausti þess að fiskverð hækki, a.m.k. standi í stað, en lækki ekki stórlega frá því sem áður var. Hér er því vissulega um að ræða alvarlegt málefni sem kemur annars til af því, að ákvörðun um fiskverð dregst svo lengi sem raun ber vitni nú og hefur raunar gert áður líka. Það verður að teljast ámælisvert, a.m.k. af minni hálfu, að þannig skuli staðið að verðákvörðun að það skuli ekki liggja fyrir í vertíðarbyrjun, þannig að menn viti út á hvað þeir eru að róa og hvað þeir komi til með að fá fyrir sina vinnu. Einnig kemur í ljós að fulltrúi sjómanna í Verðlagsráði, sem mér skilst þó að hafi staðið að þessari ákvörðun, lýsir furðu sinni á því að slík ákvörðun skyldi taka gildi á þessum tíma.
Ég vil því spyrja hæstv. sjútvrh., hvort honum hafi ekki verið um það kunnugt áður en tekin var endanleg ákvörðun að því er þetta varðar, verð á steinbíti í jan.–febr., — hvort honum hafi ekki verið um slíka ákvörðun kunnugt áður en hún var endanlega tekin. Ef svo er ekki, sem mér þykir ólíklegt, að hæstv, ráðh. hafi ekki vitað hvert verðið átti að verða, þá vil ég spyrja hæstv. ráðh. í öðru lagi: Er hann samþykkur þessari lækkun á steinbítsverði á tilteknum tíma? Og í þriðja lagi, sé svo ekki, hvort hæstv. ráðh. hyggist þá gera einhverjar þær ráðstafanir sem koma til með að leiðrétta þessa gífurlegu lækkun á fiskverði og þar með kjörum vestfirskra sjómanna á þessu tímabili og þar með koma í veg fyrir að bátaflotinn verði bundinn við bryggju á Vestf jörðum að viku liðinni eða kannske innan skemmri tíma. Ég satt að segja er undrandi á því, ef hæstv. ráðh. hefur staðfest þessa ákvörðun, ekki síst með tilliti til þess að honum er kannske manna kunnugast um það hvernig málum er háttað á þeim stað, sem hér er fyrst og fremst um að ræða, þ.e. Vestfjörðum, hefur þar að auki um áraraðir staðið að útgerð á þessum stað og ætti því að vera manna kunnugastur hvernig þessum málum er og hefur verið háttað.
Mér finnst þetta það mikið mál að því er vestfirska sjómenn varðar, að það sé ástæða til þess að fá um það skýr svör hvort hæstv. ráðh. hefur með samþykki sínu ákvarðað fiskverð að þessu leyti eða ekki og hvort hann treystir sér ekki eða ríkisstj. í heild til þess að grípa til aðgerða, sem koma í veg fyrir að bátaflotinn á Vestfjörðum stöðvist vegna þessarar furðulegu ákvörðunar Verðlagsráðs.