24.02.1975
Neðri deild: 45. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1832 í B-deild Alþingistíðinda. (1469)
Umræður utan dagskrár
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Hæstv. forseti. Þeir hv. tveir fyrirspyrjendur, sem hér hafa komið í ræðustól utan dagskrár út af steinbitsverði, virðast vera mjög mikið niðri fyrir og hafa, sérstaklega sá síðari, reiknað töluvert mikið yfir helgina. Ég gæti leiðrétt með hægu móti allmikið af þessum reikningi.
Fyrri spyrjandinn spurði mig m.a. um það, hvort ég hefði staðfest verð Verðlagsráðs sjávarútvegsins (KP: Samþykkt.) Staðfest var orðalagið. Það er hvorki um að ræða fyrir sjútvrh. að staðfesta eða samþykkja ákvarðanir Verðlagsráðs sjávarútvegsins. Ég hélt að þessi hv. þm., sem virðist hafa mikinn áhuga á sjávarútvegsmálum, læsi löggjöf eins og lög um Verðlagsráð sjávarútvegsins og vissi þar af leiðandi hvað þar er um að ræða. Í 6. gr. þeirra 1. segir, að aðalverkefni Verðlagsráðs séu:
„1. Að ákveða lágmarksverð á öllum tegundum þess sjávarafla, úrgangsfiski og fiskúrgangi, sem seldur er til vinnslu hér á landi eða selja skal í skip eða annað flutningstæki til útflutnings óunnin.
2. Að fylgjast með markaðsverði sjávarafurða á erlendum mörkuðum á hverjum tíma.
3. Að safna gögnum um framleiðslukostnað hinna ýmsu framleiðslugreina sjávarútvegsins svo og að safna öðrum þeim gögnum, sem ákvarðandi kunna að vera um verð á sjávarafla.“
Í 12. gr. l. um verðlagsráðið segir:
„Ákvarðanir Verðlagsráðs eru bindandi sem lágmarksverð og má enginn selja sjávarafla undir því verði, sem ákveðið hefur verið skv. ákvæðum þessara laga.“
Verðlagsráð sjávarútvegsins lét frá sér fara skýringu á þessari ákvörðun um steinbítinn í jan.- og febr.- mánuði. Sú skýring er ákaflega stutt og er svo hljóðandi:
„Í tilefni af blaðaskrifum um ákvörðun lágmarksverðs á steinbit á tímabilinu 1, jan. — 28. febr. óskar yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins að taka fram:
Á tímabilinu frá nóv. til febr. er steinbítur venjulega svo magur að nokkur hluti hans er ekki mannamatur og er fleygt frá í vinnslu. Nýting í vinnslu getur farið niður fyrir helming af því, sem eðlilegt er. Það sem nýtanlegt telst af steinbítnum er þó ekki notað nema í verðminni vöru.
Í þessu sambandi er rétt að minna á, að í síðustu málsgr. 5. gr. reglugerðar nr. 393 frá 31. des. 1974 segir:
„Þá skal óheimilt á tímabilinu 1. nóv. — 1. mars að landa steinbít sem nemur meir en 6% af afla skips í hverri veiðiferð.“
Samkvæmt upplýsingum Fiskifélags Íslands var steinbítur ekki nema 2.5% af bátaafla á Vestfjörðum í jan. og febr. árin 1972 og 1973, en það eru síðustu árin sem upplýsingar liggja fyrir um. Steinbítur hefur því haft óverulega þýðingu fyrir bátaútgerð á Vestfjörðum í jan. og febr. síðustu árin. Ekki varð ágreiningur í yfirnefnd Verðlagsráðs um að steinbít bæri að verðleggja hærra verði eftir 1, mars en fyrir þann tíma.“
Í nál. nefndar, sem fyrrv. sjútvrh. skipaði og í áttu sæti fulltrúar rn., fulltrúar fiskvinnslu, fiskseljenda og sömuleiðis fulltrúar frá samtökum sjómanna og fulltrúar frá Hafrannsóknastofnuninni segir um möskvastærðir botnvörpu- og þorskfiskneta svo og um lágmarksstærðir fisktegunda:
„Um tvær hinna síðastnefndu tegundir, steinbít og karfa, eru nú engar reglur til um lágmarksstærðir, en n. leggur til að auk 40 cm. lágmarksstærðar á steinbít verði ákveðið að á tímabilinu 1. nóv. til 15. mars megi steinbítur ekki nema meiru en 5% af afla skips í hverri veiðiferð, enn fremur að þrátt fyrir 500 gramma lágmarksstærð á karfa megi þó 5% af karfaafla hverrar veiðiferðar vera undir þessu marki.“
Í samræmi við þetta nál. gaf fyrrv. sjútvrh. út reglugerð um möskvastærðir botnvörpu og flotvörpu og um lágmarksstærðir fisktegunda. Í þeirri reglugerð er tekið orðrétt þetta álit þessarar n. og það gildir til 15. mars.
Einn stærsti útgerðaraðili á Vestfjörðum sendi mér bréf rétt fyrir áramótin og benti á að það gæti verið gagnvart línubátum hættulegt að láta þetta ákvæði gilda til 15. mars og taldi rétt að það gilti aðeins til mánaðamóta febr.–mars. Í bréfinu, sem ég fékk í hendur rétt fyrir jólin, en er dagsett 15. des., segir þessi aðili:
„Mér sýnist að þetta ákvæði gæti komið illa við línubátana hér vestra. Á síðustu vertíð var um 5% af afla línubátanna í mars annar fiskur en steinbítur og á tímabilinu 1.–15. mars komu margir togararnir með 25–30% af steinbít. Ég held að það sé alveg ljóst, að þetta ákvæði verður víða þverbrotið ef því verður ekki breytt í tíma.“
Ég hygg að mér sé óhætt að fullyrða, að þegar fyrrv. sjútvrh. setti þessa reglugerð hefur hann farið eftir áliti þessarar n. og þá sérstaklega hvað snertir togsteinbít, sem við köllum, vestfirðingar, annars staðar á landinu. Hins vegar, við að fá þessa ábendingu, breytti ég tímamörkum þessarar reglugerðar í 1. mars. Það er nokkuð viðkvæmt mál hvað snertir steinbít af öðrum skipum og annars staðar á landinu. Hins vegar óskaði ég eftir upplýsingum um hvað steinbítsveiðin væri í raun og veru mikils virði á síðustu árum.
Þá kem ég að því, sem hv. þm. Kjartan Ólafsson gerði að umræðuefni, hvað sjómenn töpuðu miklu. Ég held að þá reikni hann bæði jan.- og febr.mánuð. Þá skulum við líta aðeins á hve mikill steinbítsafli er í janúarmánuði, og þá skulum við líta á upplýsingar Fiskifélags Íslands í þessum efnum, sem ég óskaði eftir að fá þegar þessari reglugerð var breytt á þann veg að stytta þetta tímabil um 15 daga. Þar segir að steinbítsafli báta í Vestfirðingafjórðungi í jan. og febr. undanfarin ár hafi verið sem hér segir í lestum: Þorskafli alls í jan. 4125 lestir 1972, þar af steinbitsafli 30 lestir, langt innan við 1%. Þorskafli 1973 4 459 lestir, þar af steinbítur 33 lestir, einnig langt innan við 1%. 1974 er áætluð tala, en það má segja að það megi fara mjög nærri, þar er þorskafli talinn 3 300 lestir og þar af steinbítur 35 lestir eða aðeins yfir 1%. 1975 áætla trúnaðarmenn Fiskifélagsins að þorskaflinn sé í janúarmánuði 3150 lestir, þar af steinbítur ca. 30–40 lestir. Þetta er áætluð tala og fiskimálastjóri sagði mér að það gæti ekki munað mjög miklu hvað þetta snerti. Afli skuttogara er ekki talinn með í þessum tölum, en tölurnar um steinbítsaflann bæði 1974 og 1975 eru áætlaðar, eins og ég sagði áðan, í janúarmánuði. Í febrúarmánuði 1975 fór fyrst að bera á steinbit í aflanum, rétt um það bil 10. febr., og hann hefur verið mikill hjá línubátum síðan.
Eins og fram kemur í þessum upplýsingum hefur nær enginn steinbítur borist á land í febrúarmánuði á árunum 1972–1974. Samkvæmt upplýsingum trúnaðarmanna Fiskifélagsins er fremur óalgengt að steinbítur veiðist í jan. og febr., þá alveg sérstaklega fyrri hluta febrúarmánaðar, en þó koma fyrir ár, eins og t.d. nú í ár, sem steinbítsveiði verður mikil um miðjan febrúarmánuð. Og ég man eftir þeim árum frá þeim tímum sem ég gerði út á línuveiðar frá Djúpi.
Að því er snertir þá deilu, sem nú er uppi um steinbítsverð, þá má varpa fram þeirri spurningu hvort sú aðferð Verðlagsráðs að ákveða verð á steinbít eftir tímabilum sé æskileg, hvort ekki sé betri lausn að verðleggja eftir gæðum fyrir alla vertíðina. Þá ætti ferskfiskmatið að setja steinbit, sem veiðist snemma, í lægri gæðaflokk ef gæði hans til frystingar gefa tilefni til þess. Ég fyrir mitt leyti er mótfallinn þessari breyt., sem gerð var af Verðlagsráði sjávarútvegsins, að gefa út sérstakt verð á steinbít fyrstu tvo mánuði ársins. Ég tel að það sé miklu eðlilegra í alla staði að hafa það form á að gefa út verðið yfir verðtímabilið allt, en bæta við: „steinbítur hæfur til frystingar“. Það er mín skoðun.
Ég ræddi þetta mál við oddamanninn í Verðlagsráði, sem er fulltrúi ríkisvaldsins, og þá kom þetta vandamál upp sem fram kom í þeirri reglugerð sem ég minntist á og var sett á s.l. ári. Hann var, að mér virtist, mjög inni á þessu sama sjónarmiði og ég. Við ræddum ekki um verðhækkanir á hverri fisktegund fyrir sig, en hins vegar Ræddum við margoft um þá höfuðbreytingu sem nú var gerð varðandi stærðarflokka á fiski, og ég tel að ég hafi átt þar mikinn hlut að máli, að hækka stærsta fiskinn mest í verði og millifiskinn, en ekki smáfiskinn. Vakti það þá fyrir mér að það ætti að vera einn liðurinn af mörgum öðrum til þess að draga úr smáfiskadrápi. Ég tel það líka sterkt í sambandi við framhald þeirra aðgerða, sem víð komum til með að gera í landhelgismálinu, að fara þannig að.
Ég hygg að ég hafi svarað þessum spurningum, en ég ætla að koma inn á annað sem skiptir höfuðmáli hvað þetta snertir. Í fyrsta lagi er hér um að ræða lágmarksverð á fiski, og þótt svona hafi tekist til, að allir aðilar Verðlagsráðsins hafi verið sammála um þetta, bæði fulltrúar sjómanna, útgerðar, fiskvinnslu og oddamaðurinn hafi fallist á þessa breytingu, þá breytir það ekki þeirri staðreynd að fyrir fiskkaupendur, ef þeir fá vinnsluhæfan steinbít á þessum tveimur mánuðum, er ekkert verra að greiða það verð fyrir steinbítinn þessa mánuði. Þegar hann er vinnsluhæfur, eins og ég veit að hann er núna samkv. öruggum heimildum sem ég hef fengið víðast hvar af Vestfjörðum, þá er þeim ekki neitt úr lófa lagið að greiða sama verð fyrir steinbítinn í febrúar og þeir eiga að greiða eftir 1. mars. Hann er jafnmikils virði fyrir þá, ef hann er á annað borð vinnsluhæfur.
Það, sem hefur skeð, er það, að fiskvinnslustöðvarnar á norðanverðum Vestfjörðum, sem taka við þessum fiski, á Ísafirði, Bolungarvík, Súgandafirði, Flateyri og Þingeyri, þær hafa samþ. fyrir sitt leyti, að greiða það verð sem var að haustinu, svo að útreikningar hv. þm. Kjartans Ólafssonar eru algjörlega út í hött. Verðið á s.l. hausti var 19.05 kr. fyrir slægðan steinbit með haus og fyrir óslægðan 16.80 kr. Verðið á árinu 1974 var aftur 17.15 kr. fyrir slægðan steinbit frá áramótum og 15.15 kr. af óslægðu frá áramótum og til 31. ágúst, en hækkaði þegar nýja ríkisstj. tók við um 11%, í 19.05 og 16.80 kr., eins og ég sagði áðan. Auk þessa kemur uppbót á línufisk allan, þar með steinbit. Þessi uppbót á línufisk var á árinu 1974 til 31. ágúst 75 aurar greiddir af fiskvinnslustöðvum og 40 aurar greiddir úr ríkissjóði. Frá 1. sept. til áramóta hækkaði þetta framlag frá fiskvinnslustöðvum um 10 aura eða úr 75 aurum í 85 aura, en ríkishlutinn var óbreyttur 40 aurar. Frá áramótum breytist þetta framlag á þann veg, að hluti fiskvinnslunnar er nú kominn í eina krónu, hækkar úr 85 aurum í 1 kr., en hlutur ríkissjóðs hækkar úr 40 aurum í 60 aura eða um 50%. Þetta verður líka að taka með í reikninginn. (Forseti: Hæstv. ráðh. hefur nú talað í 19 mínútur og ég vek athygli á ákvæðum þingskapa um ræðutíma um fyrirspurnir.) Ja, hæstv. forseti, þegar tveim fyrirspyrjendum er hleypt á einn ráðh. með löngu máli sem þarf margra útskýringa við, þá ætla ég ekki að svara fyrirspurnum ef ég ekki fæ þann tíma sem ég þarf til þess að svara. Ég hef ekki farið út fyrir mitt málefni. (Forseti: Ég vil vekja athygli hæstv. ráðh. á því að hann hefur fengið næstum tvöfaldan tíma. Það vantar raunar 2 mínútur upp á.) Hér hefur verið um miklu fleiri en eina eða tvær fyrirspurnir að ræða og langar ræður frá tveimur fyrirspyrjendum. (Forseti: Hvor fyrirspurn var 5 mínútur, eins og vera ber eftir þingsköpum. Hæstv. ráðh. á eftir sömu grein þingskapa 10 mínútur og hefur, eins og ég sagði áðan, talað 19 mínútur. Ég mun ekki finna að því þó að hann fylli mál sitt með frekari upplýsingum, en æski þess að hann verði mjög stuttorður.) Ég þakka forseta fyrir, en ég ætla ekki að svara fyrirspurnum með þessu móti, nema það sé um einfalda eða eina ákveðna fyrirspurn að ræða, því að ég ætla ekki að koma hér fram í ræðustól upp á annað en að skýra það viðkvæma mál sem hér er um að ræða.
Það er engin deila um það, hvert fiskverðið verður eftir 1. mars. En það, sem ég hef mestar áhyggjur af, er hvað verðið á steinbít er lágt, en ekki þetta sem hér er um að ræða, því að þetta er auðvelt að brúa á margan hátt. Ég hef haft til athugunar núna undanfarna daga að breytt verði lögunum um útflutningsgjaldið á þann veg, að magnkvótinn af steinbít í útflutningi fari í sama flokk og af karfa vegna þess verðhruns sem orðið hefur á steinbít, eins og gert var þegar var breytt um karfa- og ufsaflök.
Ég vil benda á það, að í verðlagningu Verðlagsráðsins getum við ekki ásakað Verðlagsráðið, því að það hefur gengið eins langt og það hefur mögulega getað samkv. lögunum. Ég vil benda á það, að verð á steinbítsblokk er 48 cent í Bandaríkjunum, verð á þorski er 53 cent, 10x5 pakkningar af steinbít eru 76.90 cent pundið, 10x5 af þorski eru 86 cent pundið. Nýting hráefnis á þorski er allt upp í 37%, en nýting hráefnis á steinbít er frá 26–30%. Þetta er mesta vandamálið.
Ég hef skrifað margar greinar í blöð um steinbítsvandamálið hér fyrr á árum. Þar hef ég bent á, að eðlilegasta leiðin sé að fisksölusamtökin í landinu verðbæti á milli tegunda. En mér er ekki grunlaust um að fyrir mörgum árum, þegar steinbitsverðið fór fram úr þorskverðinu, hafi verið tekið af steinbít til þess að bæta þorsk. Slíkt hefur ekki verið gert. Verðlagsráð sjávarútvegsins verður ekki sakað um þessa verðlagningu að öðru leyti en því, sem ég er ósammála því um, að það átti aldrei að setja þessa tvo mánuði á, heldur aðeins að setja „steinbítur sem er hæfur til frystingar“.
Ég ætla, þó að ég hefði viljað tala mun lengra mál en ég hef gert, að verða við ósk hæstv. forseta til þess að tefja ekki mikilvæg þingstörf.