24.02.1975
Neðri deild: 45. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1836 í B-deild Alþingistíðinda. (1471)

Umræður utan dagskrár

Lúðvík Jósepsson:

Hæstv, forseti. Ég skal ekki eyða hér löngum tíma, en ég verð samt að mótmæla því fyrir mitt leyti, að umr. utan dagskrár af því tagi sem hér fara fram eigi að miðast við þann ræðutíma sem ákveðinn er í þingsköpum um skriflegar fyrirspurnir. Ég hef mótmælt því áður og geri það enn og tel að það eigi ekki að taka upp þessa reglu. Hitt er eðlilegt og sjálfsagt, að forseti reyni að stytta umr. eins og tök eru á.

Þær athugasemdir, sem ég vildi gera við það sem hér hefur komið fram, eru einkum varðandi þá reglugerð sem hér hefur verið minnst á. Ég tók eftir því, að hæstv. .sjútvrh. nefndi það nokkrum sinnum að fyrrv. sjútvrh. hefði sett reglugerð, og það lágu helst orð að því hjá honum að það væri þessi reglugerð, sem hefði að einhverju leyti valdið því sem hér hefur gerst varðandi þá verðlagningu sem nú er verið að ræða. Í sambandi við þessa reglugerð vil ég segja það, að það er rétt að í minni tíð var skipuð nefnd hagsmunaaðila til þess að gera till. um möskvastærð og um stærð á þeim fiski sem leyfilegt er að veiða. Og það er eflaust rétt hjá honum, sem hann tilgreinir, að í sambandi við þær reglur, sem voru settar samkv. áliti þessarar n., hafi í þeirri reglugerð einnig verið komið eitthvað inn á veiði á steinbít. En ég vil taka það fram, að við mig hefur aldrei verið rætt um það mál að setja einhverjar reglur um veiði á steinbít. Mér kemur gjörsamlega á óvart að heyra að í þessu nál. hafi eitthvað verið um þetta atriði fjallað, enda er mér alveg ljóst að það hefur ekki getað haft áhrif á þessa ákvörðun á einn eða neinn hátt. Hæstv. ráðh. tók það líka fram, að hann hafi síðan breytt þessum ákvæðum og stytt þann tíma sem þar hafði verið gengið út frá.

Aðalatriði þess máls, sem hér er um að ræða, að mínum dómi og það sem ég vildi fyrst og fremst segja er það, að verðlagningin að þessu sinni fór fram með mjög sérstökum hætti, þar sem lögin um Verðlagsráð sjávarútvegsins voru í rauninni þverbrotin. Verðlagningin fór ekki fram fyrr en komið var fram undir miðjan febrúarmánuð, en átti að eiga sér stað áður en vertíð hófst eða um áramót. Slík frestun er vitanlega óeðlileg og getur í rauninni ekki átt sér stað nema með leyfi ráðh. — Já, hæstv. forseti, ég er rétt að Sjúka við mál mitt. — En vegna þess að verðlagningin á sér stað með þessum hætti er auðvitað mjög hæpið að láta það verð, sem í gildi hafði verið og menn höfðu fulla ástæðu til þess að trúa að mundi standa áfram, ef ekki hækka, lækka á þann hátt sem nú er gert. Það er aðalatriði málsins að mínum dómi að þarna er farið óvenjulega að, og því á að breyta þessu. Ég vil líka segja það, að það hefur verið föst regla að fulltrúi ríkisstj. í yfirnefnd Verðlagsráðs hefur alltaf haft náið samstarf við ráðh. um störf sín og leitað gjarnan samþykkis ráðh. um öll þau atriði sem meiri háttar má telja. Ég taldi mér það skylt sem yfirmaður Verðlagsráðsins þann tíma sem ég var sjútvrh. að fylgjast með störfum ráðsins í einu og öllu, og yfirmaður hafði alltaf samráð við mig þegar teknar voru ákvarðanir, t.d. varðandi lækkun á fiskverði þegar slíkt kom til greina. Ég álft því að hæstv. sjútvrh. hljóti að standa ábyrgur fyrir því, að þetta hafi verið gert nú. Vegna þess að hann er mótfallinn þeirri ákvörðun, sem hefur verið tekin, eins og hann hefur hér sagt, þá álít ég að hann eigi að beita sér fyrir því að kippa þessu til baka og setja verðákvörðun á þann hátt sem hann sagði, að sé um vinnsluhæfan fisk að ræða til frystingar, þá gildi það verð sem átti að taka við 1. mars. Ég held að það sé langeinlægast að fá þessa leiðréttingin fram, því að ég trúi ekki öðru en að það væri hægt að fá þessa breytingu fram við Verðlagsráð, ef hæstv. ráðh. færi eftir því sem hann hefur hér tekið fram að sé hans skoðun.