24.02.1975
Neðri deild: 45. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1843 í B-deild Alþingistíðinda. (1478)

84. mál, útvarpslög

Magnús T. Ólafsson:

Hæstv. forseti. Þetta fyrirferðarlitla mál, sem hér liggur enn fyrir, hefur vakið umr. sem að umfangi eru í öfugu hlutfalli við lengd frv. Ástæðan liggur í augum uppi. Hún er sú, að menn gera sér ljóst hversu miklu skiptir um þá dagskrárstefnu, sem rekin er í Ríkisútvarpinu, og þær aðstæður, sem yfirstjórn dagskrárinnar, útvarpsráð, býr við í starfi sínu.

Það var einróma Alþ. sem samþ. núgildandi skipan um aukið sjálfstæði Ríkisútvarps og endanlegt úrskurðarvald útvarpsráðs um dagskrárefni. Fastákveðið kjörtímabil útvarpsráðs var talið ómissandi þáttur í þessari stefnumótun. Tilefni þess, að útvarpslögunum var breytt á þennan hátt fer ekki heldur milli mála. Það var almenn dánægja sem ríkti um áberandi dæmi þess að tilteknum skoðunum og mönnum var með íhlutun stjórnvalda bægt frá því að koma fram í útvarpi og sjónvarpi.

Nú rökstyðja flestir stuðningsmenn frv., sem til máls hafa tekið, afstöðu sina með því, að núv. útvarpsráð hafi brugðist óhlutdrægnisskyldu sinni, að vísu ekki með því að útiloka skoðanir, heldur með því að gera skoðunum, sem þessum hv. þm. gest ekki að ótilhlýðilega hátt undir höfði. Um meðalhófið í gæslu óhlutdrægni má að sjálfsögðu lengi deila. En sé grannt skoðað er óánægja með hlutföll í útvarpsefni af þessu tagi engin ástæða til að raska reglu um kjörtímabil útvarpsráðs. Breyting og leiðrétting, ef menn vilja kalla það svo, fæst með því að kosið verður nýtt útvarpsráð að liðnu kjörtímabili þess sem frá fer.

Menn ættu við yfirvegun að geta gert sér grein fyrir því, að með afnámi fasts kjörtímabils eru störf útvarpsráðs ekki einungis torvelduð með því að baka því sífellda óvissu um starfstíma, heldur er einnig útvarpsráð gert ósjálfstæðara gagnvart öllum breyt. á stjórnmálahlutföllum á Alþ. Föst skipan á kjörtímabili útvarpsráðs getur ekki, þegar til lengdar lætur, orðið einni né neinni stjórnmálastefnu eða stjórnmálaflokki í bag, því að hið eina, sem ég býst við að við getum öll orðið sammála um að sé öldungis víst og fyrirsjáanlegt í íslenskum stjórnmálum, er að kjósendur muni hér eftir sem hingað til veita flokkum og stefnum brautargengi á víxl eftir því sem þeim tekst að ávinna sér tiltrú eða fyrirgera henni.

Flutningur þessa frv. er því skaðlegur samfelldum og skipulegum vinnubrögðum við dagskrárgerð Ríkisútvarpsins og ber að mínum dómi vott um bráðræði sem á sér ekki gilda ástæðu. Það eru ekki traustvekjandi vinnubrögð að hrinda skipun, sem Alþ. hefur sett einróma að vandlega athuguðu máli, í því einu skyni að veita nýjum þingmeirihluta tækifæri til að breyta skipan útvarpsráðs einu missiri fyrr en til slíks kæmi hvort eð er að óbreyttum lögum.

Ég hef fyrr vakið athygli hv. d. á því, að hæstv. menntmrh. vill með engu móti gangast við röksemdafærslu og málflutningi áköfustu stuðningsmanna frv. sem hann flytur. Hæstv. ráðh. kveðst einungis hafa skipt um skoðun frá því 1971, þegar hann greiddi núgildandi skipan atkv. Frv. sé af sinni hálfu á engan hátt beint gegn meiri hluta núv. útvarpsráðs né verkum hans.

Nú er mér spurn: Finnst hæstv. ráðh. að það sé viðunandi, að þetta mál hans verði afgreitt hér á Alþ. á forsendum sem hann fyrir sitt leyti hefur lýst yfir að hann telji falskar?

Geri hæstv. ráðh. þetta, ómerkir hann í rauninni allan málflutning sjálfs sín í þessu máli. Ég sé í rauninni ekki, að hæstv. ráðh. eigi annað ráð, ef hann vill láta taka alvarlega að fyrir honum vaki skipulagsbreyt. um kjörtímabil útvarpsráðs hrein og skær, alls ekkert annað en það að taka frv. aftur á þessu þingi, en flytja það á ný að hausti þegar hvort eð er ber að kjósa nýtt útvarpsráð. Þá á Alþ. þess kost að fjalla um skipulagsbreyt. eina án þess að henni blandist þau persónulegu og flokkspólitísku sjónarmið sem vaðið hafa uppi í þessum umr., en hæstv. ráðh. kveðst vilja vísa frá sér af þvílíkum ákafa, að helst minnir á afneitunina frægu í helgri bók: „Vík frá mér, Satan“.

En til þess að afneitun hafi gildi, jafnt í sáluhjálparefnum og í stjórnmálum þarf að sjást að henni fylgi kraftur. Þegar frelsarinn ávarpaði höfðingja myrkranna hrapaði skrattinn fram af musterisburstinni í Jerúsalem og sá í iljar honum, þar sem hann steyptist í undirdjúpin. Þótt fúslega skuli viðurkennt að hér sé ólíku saman jafnað, hef ég bent hæstv. ráðh. á úrræði sem honum dugir til að sýna að hugur fylgir máli varðandi frv. sem hér er til umr.

Því skora ég á hæstv. menntmrh. að reka af sér allt slyðruorð um að afneitun hans sé kraftlaus með því að taka margumrætt frv. aftur þangað til Alþ. getur um það fjallað án þess að í meðferð þingsins blandist nokkuð annað en sú breyt. á kjörtímabili útvarpsráðs, sem hæstv. ráðh. segir sitt eina og hreina markmið með flutningi málsins.