25.02.1975
Sameinað þing: 42. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1852 í B-deild Alþingistíðinda. (1492)

98. mál, kostnaðarhlutur sveitarfélaga varðandi stofnun og starfrækslu fræðsluskrifstofanna

Fyrirspyrjandi (Sighvatur Björgvinsson):

Herra forseti. Á þskj. 111 hef ég leyft mér að flytja fsp. í tveimur tölul. til hæstv. menntmrh. um kostnaðarhlut sveitarfélaga varðandi stofnun og starfrækslu fræðsluskrifstofu í fræðsluumdæmum. Það er orðið nokkuð langt síðan þessi fsp. var borin fram og því vonandi ástæða til þess að ætla að hæstv. ráðh. sé búinn að taka það mál til úrlausnar sem hér er spurt um.

Eins og hv. þm. er kunnugt er í nýsamþykktum grunnskólalögum gert ráð fyrir því að skipta landinu í fræðsluumdæmi. Í hverju fræðsluumdæmi á að starfrækja fræðsluskrifstofu og eiga þessi umdæmi að hljóta nokkra sjálfstjórn í fræðslumálum, þannig að fræðsluskrifstofurnar séu nokkurs konar fulltrúar menntmrn. á þessum stöðum.

Nú hefur komið í ljós um þetta eins og svo fjölmargt annað, þegar á að dreifa valdi út um landsbyggðina, að gert er ráð fyrir því að fólkið í fræðsluumdæmunum leggi í talsverðan kostnað til þess að fá þessa þjónustu, þó að ekki sé vitað til þess t.d. að reykvíkingar hafi þurft að greiða sérstaklega fyrir þau forréttindi — skulum við e.t.v. segja — að hafa helstu stjórnsýslumiðstöðvar landsins staðsettar í Reykjavík. Er það raunar furðuleg framkvæmd á byggðastefnu ef svo á að vera, að sé verið að bjóða fólki í hinum dreifðu byggðum landsins að fá til sín ákveðnar stjórnsýslumiðstöðvar gegn því að senda þeim reikning jafnhliða, þar sem þeim er gert að borga stórfé til þess að halda þessum skrifstofum uppi.

Þetta mál var töluvert mikið rætt á þingi Fjórðungssambands vestfirðinga á s.l. hausti, og skömmu eftir að það þing var haldið fóru forráðamenn sambandsins suður til Reykjavikur til þess að kanna frekar þetta mál og spurðust m.a. fyrir um það, hvort menntmrn. væri búið að gera einhverja útreikninga á rekstrarkostnaði og stofnkostnaði við þessar skrifstofur. Þá mun í ljós hafa komið, eftir því sem mér er sagt, að það hafi ekki legið fyrir af menntmrn. hálfu. Eftir þær fregnir gerði stjórn Fjórðungssambands vestfirðinga sjálf áætlun um rekstrarkostnað og stofnkostnað við fræðsluskrifstofuna í Vestfjarðaumdæmi, og þar kom í ljós að samtals nemur árlegur rekstrarkostnaður og kaupverð innbús 6 millj. 67 þús. kr. samkv. áætlun stjórnar Fjórðungssambandsins, þar af er vestfirskum sveitarfélögum ætlað að greiða 2.8 millj.

Mér er kunnugt um það, að Fjórðungssamband vestfirðinga hafði ekki á þingi sínu í haust gert ráð fyrir því að þurfa að greiða svo mikið fé fyrir þessa skrifstofu, og raunar hefur Fjórðungssambandið ekki yfir slíkum fjármunum að ráða. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðh. hvort hann og ríkisstj. hafi tekið þetta mál til sérstakrar umfjöllunar og hvort tilgangurinn kunni að vera sá að tryggja sveitarfélögunum nýja eða aukna tekjustofna í því skyni að standa undir þessum kostnaðarhluta sveitarfélaganna við framkvæmd grunnskólalaganna.