19.11.1974
Sameinað þing: 10. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í B-deild Alþingistíðinda. (150)

2. mál, þyrlukaup

Flm. (Helgi F. Seljan):

Herra forseti. Till. sú til þál., sem hér liggur frammi til umr., var flutt á síðasta þingi einnig, en það síðla að hún kom ekki til umr. Auk mín var þá eins og nú flm.till. hv. 5. þm. Vestf., Karvel Pálmason, og hæstv. núv. menntmrh., sem fyrir embættissakir getur ekki verið meðflm. nú, þó að ég viti hinn sama hug hans til þessarar tillögugerðar nú sem þá. Till. er svo hljóðandi:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að beita sér fyrir kaupum á þyrlum, sem staðfestar yrðu á Austurlandi og Vestfjörðum. Þyrlurnar yrðu keyptar í samráði við Slysavarnafélag Íslands, slysavarnadeildirnar á Austurlandi og Vestfjörðum og Landhelgisgæsluna, enda fyrst og fremst ætlaðar til nota í þágu þessara aðila.“

Óþarft mun að hafa hér uppi langt mál til rökstuðnings þessari till. Hún fjallar um eitt þeirra verkefna sem íslenska þjóðin hefur sett hvað efst á blað nauðsynjamála sinna, eflingu sem virkasta og öruggastra slysavarna og sem allra víðast. Stórtæk áform hafa orðið að veruleika, öflug átök verið gerð, enda mikið í húfi, en þó svo ótalmargt ógert, ný tækni, aukinn hraði, breyttar lífsvenjur, allt kallar þetta og ótalmargt fleira á stöðuga árvekni í öllum slysavarnamálum, sífellt ný og aukin verkefni, sem kalla á úrlausn á ýmsan veg.

Eitt þeirra tækja, sem hvað oftast heyrast nefnd nú, þegar óvænt slys eða ófarir ber að höndum, eru þyrlurnar. Notagildi þeirra við íslenskar aðstæður er ótvírætt, kostir þeirra sem öryggistækis margir og miklir. Þá sögu þarf ekki að rekja fyrir alþm., svo kunn er hún. Alhliða efling slysavarna og aukið öryggi í þeim efnum þarf að ná sem víðast til landsins alls.

Þeir landshlutar, sem hér er að vikið, eru um margt með nokkra sérstöðu. Fjarlægðin frá Reykjavík með sitt þó fullkomna öryggiskerfi á okkar mælikvarða segir sína sögu, samgönguvandi fjölmargra byggðarlaga og það hve mörg þeirra eru afskekkt, staðreynd sem knýr á um það að meira og betur þurfi að hlúa að hvers konar öryggi en nú er gert. Þetta hafa íbúarnir gleggst séð, framtak þeirra að þessu beinst, m.a. því sem hér er beinlínis að stefnt, þyrlukaupum. Lengi hafa austfirðingar t.d. keppt að því marki að eignast björgunartæki og hafa unnið ötullega að því með framlögum og fjársöfnun, en verðbólgan gert hlut þessa framtaks óverulegan miðað við raungildi þess á hverjum tíma.

Fyrsta og helsta verkefni þessara öryggistækja hlyti vitanlega að vera sú brýna hjálp í neyðartilfellum ýmiss konar sem nú er því miður ekki til staðar í þessum landshlutum að neinu marki. Fyrstu viðbrögðin, þau sem skjótust og öruggust eru, ráða oftlega um úrslit slíkra tilfella, skera úr um líf eða dauða, hvað eina sem þar gæti veitt lífi liðstyrk, létt mein og veitt hjálp við erfiðar aðstæður hlýtur að vera okkur öllum kappsmál, og svo ótvírætt hefur þyrlan sannað gildi sitt í hinum örðugustu tilfellum við ýmsar aðstæður að við hljótum að gera þá kröfu fyrir hönd þeirra, sem hér búa við mest öryggisleysi í einangrun og oftlega mikilli fjarlægð frá læknisaðstoð, að slíkt tæki sé tekið í notkun þeim til aukins öryggis í hvívetna.

Það er rétt, að fjár er þörf hvarvetna til hinna margvíslegu verkefna samfélagsins. Hér þarf einnig til að koma fjármagn til kaupa og til rekstrar þessa öryggistækis. Við flm, teljum, að hér sé um þarfa og nauðsynlega fjárfestingu að ræða sem óþarfi sé að rökstyðja nánar frá því, svo sem það liggur í augum uppi. Við leggjum að sjálfsögðu á það áherslu, að þau þyrlukaup, sem hér er ráð fyrir gert, verði gerð í samráði við þau félagasamtök, sem ötullegast hafa að hvers kyns björgunarmálum unnið, Slysavarnafélag Íslands og félagsdeildir þess í umræddum landshlutum, og að sjálfsögðu verða það þessir aðilar sem á ýmsan veg bera hita og þunga af rekstri þyrlanna hvað björgunarstörf snertir, eins og slysavarnadeildirnar gera í öðrum greinum björgunarmála. Og þyrlan mun verða þeim hinn kærkomnasti liðstyrkur sem hugsast getur. Svo vel hafa þessi samtök unnið að réttlát umbun samfélagsins hlýtur það að vera að tryggja þeim sem bestan tækjakost til síns mikilvæga hlutverks.

Við höfum einnig bent á þörf Landhelgisgæslunnar fyrir sem fjölbreyttastan tækjakost til sinna margþættu verkefna. Einn þáttur þeirra er auðvitað aðstoð í ýmsum neyðartilfellum á sjó, svo sem þegar slys ber að höndum og á skjótri aðstoð þarf að halda. Við þetta mikilsverðasta hlutverk hafa þyrlurnar sannað gildi sitt ótvírætt. En án efa yrði þetta ekki eina verkefnið sem Landhelgisgæslan gæti haft fyrir þessi þörfu tæki ef hún sinnir vel öllum sínum fjölþættu skyldum. Það er von okkar flm., að í framtíðinni verði varðskip Landhelgisgæslunnar beinlínis gerð út frá þessum landshlutum, eigi þar heimahöfn og Landhelgisgæslan þar með fast aðsetur úti á landsbyggðinni einnig. Þyrla í landshlutum samtengist vissulega þessu framtíðaráformi sem ber að hrinda í framkvæmd sem fyrst.

Það þykir e.t.v. illa hæfa, en ég get ekki stillt mig um að hafa hér uppi smávegis útúrdúr, en ég vona, að það skaði ekki gott málefni. Tilefni þessa útúrdúrs er reyndar ærið og varla um málið fjallað í heild án þess að inn á hann sé farið. Ég get ekki stillt mig um að minna á það hve þessi þörfu björgunartæki hafa oft samtengst svokölluðu varnarliði ameríkumanna hér. Ekki ætla ég að fullyrða að viljandi hafi verið látið líta svo út að einn þáttur í ómissandi tilveru erlends hers hér væri þessi þáttur björgunarmála og þá það um leið að hér værum við upp á erlenda náð og miskunn komin, en oft hefur hér verið einkennilega að vikið og allur áróður þess eðlis er visvítandi ósannur og jafnframt hættulegur, — ósannur vegna þess, að á okkar íslenska mælikvarða, þótt smár sé, er sæmilegur tækjabúnaður á þessu sviði ekkert stórafrek, jafnvel þótt sú þjónusta miðist við fjærstu landshluta, — hættulegur vegna þess að e.t.v. slævir hann vilja okkar og eigið framtak til fullkominnar þjónustu af eigin rammleik.

Tillöguflutningur okkar er m.a. hugsaður sem bein mótrök gegn þessum áróðri, af því að við trúum og vitum, að þetta verkefni er okkur ekki ofraun. Svo sannarlega höfum við og erum sífellt að gera meiri átök á fjölmörgum sviðum. Þetta verkefni er aðeins svo nátengt mannlegu lífi og öryggi þess, að það ætti að hafa forgang eins og björgunarmálin í heild hafa reyndar haft. Hér er á engan hátt verið að leggja neikvæðan dóm á tiltekin björgunarstörf og aðstoð þeim samfara. Aðeins er þetta enn frekari undirstrikun þess að hér eigum við sjálfir að búa sem best, eins og tillöguflutningur okkar miðar að.

Margvíslegt notagildi þyrlanna mætti rekja utan þessara verkefna, sem ég hef áður minnst á. Fyrir skömmu greindu fjölmiðlar frá raflínubilunum á Austurlandi og þá hafði þar verið þyrla í öðru verkefni og til hennar hafði verið gripið góðu heilli með hinum ágætasta árangri. Framkvæmdastjóri rafveitnanna á Austurlandi kvað þyrluna sannkallaða lífsnauðsyn til að veita rafveitunum möguleika á því að lagfæra sem fyrst það sem úr skorðum gengi í illviðrum, því að ekki væri ævinlega auðkomist á þann áfangastað þar sem bilunarinnar væri að leita. Svo mikil undirstaða í mannlegu lífi er rafmagnið í dag, ylur þess og ljós, að einnig þar þarf að tryggja sem mest og best öryggi og sjá til þess að sem fyrst megi bregða við til lagfæringar og viðgerða svo að allt megi komast í eðlilegan farveg á nýjan leik.

Eitt verkefni til viðbótar, sem sannarlega væri ekki aðeins íbúunum og atvinnulífi einstakra staða mikilvægt, heldur og þjóðhagslega hagkvæmt, eins og það er oft svo fagurlega orðað, skilaði beinum arði, sem við erum vist alltaf að stefna að, þótt ég vilji síður en svo gera það að neinu aðalatriði. Mér flýgur reyndar í hug sjónvarpssendirinn okkar á Gagnheiði eystra, veðra- og vindasamri. Ekki er þangað auðhlaupið oft og tíðum og sjónvarpið er þó alltént afþreyingartæki og í besta falli menningartæki í bland, og auðvitað eigum við austfirðingar, sem greiðum fullt afnotagjald þessa fjölmiðils, heimtingu á því að sitja við sama borð og aðrir landsmenn, þó að við verðum að eiga allt undir þessum sendi okkar í mörg hundruð metra hæð í vetrarbyljum og norðanroki. Þetta væri viðbótarþáttur í verkefnaskrá þyrlu ef ekki þarf að sinna öðrum verkefnum, brýnni verkefnum í svipinn. Þannig mætti lengi telja. En á hitt skal þó lögð megináhersla í lokin, sem er aðaltilgangur okkar flm., að hér er um dýrmætt öryggistæki að ræða sem getur verið ómetanlegt þegar um er að tefla líf annars vegar eða dauða og örkuml hins vegar. Of mikið verður aldrei á sig lagt af samfélagsins hálfu til að tryggja sem best öryggi þegnanna í harðri lífsbaráttu þeirra, þeirra þegna, sem leggja samfélaginu til dýrmætt framlag, en fá oft í staðinn minnstan skerf þeirra samfélagsgæða sem allir keppa að, en allir eiga að njóta jafnt.

Með þetta sjónarmið í huga er till. flutt í þágu þess fólks, sem fjærst er þeirri sjálfsögðu þjónustu sem í þéttbýlinu er talin ómissandi og á einnig og ekki síður að vera það þessu fólki.

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að mælast til þess að að lokinni þessari umr. verði till. okkar vísað til hv. allshn. frekar en fjvn. Ég er ekki alveg viss hvort er réttara.