19.11.1974
Sameinað þing: 11. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í B-deild Alþingistíðinda. (155)
Umræður utan dagskrár
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Hv. 2. þm. Reykn. hefur beint til mín fsp. sem hv. þm. hafa nú heyrt. Ég vil út af þessari fsp. taka það fram að mér finnst ákaflega eðlilegt að nokkur uggur sé með ýmsum sveitarstjórnarmönnum vegna þess málefnis, sem hv. þm. hreyfði, því að það er vissulega alvarlegt fyrir ýmis sveitarfélög ef svo fer að stórar og mikilvægar jarðir úr þeim eru keyptar af öðrum sveitarfélögum og í kjölfar þess kemur til breytingar á lögsagnarumdæmum.
Varðandi þetta mál vil ég fyrst taka það fram að samkv. l. frá 1948 um kauprétt á jörðum er ákveðið að sveitarstjórn skuli hafa forkaupsrétt á jörðum innan hreppsins sem ætlunin sé að selja. Sá forkaupsréttur er ótvíræður, að vísu eru undanþágur sem væntanlega skipta hér ekki máli. Það er sú undantekning ef jarðeigandi vill selja börnum sínum, systkinum eða foreldri. En þarna er forkaupsréttur sveitarfélagsins, sem ekki er hægt að ganga fram hjá.
Um leið og minnst er á þetta lagaákvæði er sjálfsagt að geta þess, að verðlag á jörðum sums staðar hefur hækkað svo stórkostlega á hinum síðari árum að í mörgum tilvikum mun sveitarstjórnunum þrátt fyrir skýlausan lagalegan forkaupsrétt gersamlega um megn að notfæra sér forkaupsréttinn vegna þess hve jarðarverðið er hátt. Nú kemur það auðvitað til athugunar í þessu sambandi að til eru lög um aðstoð ríkisins til handa sveitarfélögum við landakaup. Þau lög hafa verið í gildi í allmörg ár, nokkuð á annan áratug, og í núgildandi lögum er ákveðið árlegt fjárframlag úr ríkissjóði í sjóð sem hefur þetta verkefni. Það framlag mun nú vera 10 millj. kr. á ári. Það er svo ákveðið í þessum lögum — þau munu vera frá 1963 — að þessa aðstoð má veita kaupstöðum og kauptúnum. Orðalagið er þannig, bæði í fyrirsögn og efnisgreinum laganna. Hins vegar hafa þessi lög verið túlkuð þannig að þau næðu til allra skipulagsskyldra staða og þeim verið beitt þannig að þótt ekki væri um kaupstað eða kauptún að ræða, heldur önnur sveitarfélög, þá væri heimilt skv. þessum lögum að veita aðstoð. Nú er hér um tiltölulega lágar upphæðir að ræða, sem veittar hafa verið í þessu skyni, enda fjárveitingar ekki háar, og sýnilegt að söluverð þeirrar jarðar, sem hv. þm. gerði hér að umtalsefni vegna sjónvarpsþáttarins á föstudaginn var, er sú fjárhæð að þessi framlög gera lítið gagn og hafa litla þýðingu í því sambandi. Ég vil þó í þessu sambandi minnast á það að í þessum landakaupalögum er einnig heimild fyrir félmrn. eða fyrir ríkissjóð skulum við segja til að ábyrgjast lántöku sveitarfélagsins vegna jarðakaupa. Það er gert almennt ráð fyrir annars vegar lánum og hins vegar ríkisábyrgð. Ef hins vegar sveitarfélagið greiðir kaupverðið með skuldabréfum er í þessum lögum heimild fyrir ríkissjóð til að ábyrgjast allt að 100% af kaupverði.
Ég vildi aðeins minnast á þessi lagaákvæði, sem eru í gildi, þó að trúlegt sé að þau kæmu ekki að raunhæfu gagni í sambandi við slík stórmál eins og hv. þm. nefndi. Til skýringar á þessum málum er þó rétt að bæta tvennu við. Annað er það að á skipulagsskyldum stöðum, eins og þarna er um að ræða, er ekki heimilt að skipta löndum og lóðum nema samþykki sveitarstjórnar komi til. Þó að t.d. Reykjavíkurborg keypti umrædda jörð og vildi skipta henni í byggingarlóðir, eru engar slíkar ráðstafanir heimilar nema með samþykki sveitarstjórnar, þ.e.a.s. Mosfellshrepps í þessu tilfelli.
Þá komum við að hinu atriðinu hvort mundi í kjölfar slíkra kaupa verða farið fram á breytingu á lögsagnarumdæmum. Eins og hv. þm. nefndi hefur það oft farið saman eða komið í kjölfar slíkra jarðakaupa að farið hefur verið fram á stækkun lögsagnarumdæmis. Nú er skýrt tekið fram í sveitarstjórnarlögunum, að mörkum kaupstaða verði ekki breytt nema með lögum, svo að það mál yrði að koma til kasta Alþingis.
Þessi atriði vildi ég aðeins rifja upp í þessu sambandi hv. þm. til íhugunar. Það er ljóst, eins og hv. 2. þm. Reykn. gerði hér glögga grein fyrir, að um mikið alvörumál er að ræða ef kaupstaður eins og höfuðborgin í þessu tilviki hefur hug á eða gerir alvöru úr því að kaupa eina stærstu og dýrustu jörð í þessu sveitarfélagi og síðan yrði farið fram á breytingu eða stækkun lögsagnarumdæmisins. Ég vil vegna fsp. hans taka sérstaklega fram að ef til þess kæmi mundi félmrn. að sjálfsögðu reiðubúið til þess að veita viðkomandi sveitarfélagi, Mosfellshreppi, og þá e.t.v. sýslunni, ef hún kæmi í málið líka, þá aðstoð sem í rn. valdi stæði. Í hvaða formi það yrði er erfitt að segja. Spurning er hvort fyrirgreiðsla um lánsútvegun mundi þar geta orðið að raunveruleika eða ríkisábyrgð eða önnur aðstoð. En mér er ljóst að hér er um mikið vandamál að ræða og vil því ljúka þessum orðum út af fyrirspurn hv. þm. með því að undirstrika að félmrn. mun að sjálfsögðu vera reiðubúið að veita þann atbeina sem það getur.