27.02.1975
Neðri deild: 48. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1934 í B-deild Alþingistíðinda. (1552)

168. mál, ráðstafanir vegna snjóflóða í Norðfirði

Frsm. 1. minni hl. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Þegar mál þetta var hér til 1. umr. sagði ég, að ég harmaði það að hæstv. ríkisstj. skyldi ekki hafa haft samráð við stjórnarandstöðuna hér á Alþ. um samningu og framlagningu þessa frv., sem hér liggur fyrir, og um það að velja tekjuöflunarleið í sambandi við þær bætur sem ráðgert er að greiða. Ég hef tekið eftir því síðan, að þessu hefur verið mótmælt, að ríkisstj. hafi ekki haft samráð við stjórnarandstöðuna í þessum efnum, svo að mér þykir rétt að greina hér fyllilega frá því, hvað í þessum efnum hefur gerst.

Hæstv. forsrh. ræddi við mig og form. Alþfl. í jan. og gat þess þá, að ríkisstj. mundi fara fram á framlengingu á söluskattsprósentustigi fyrir Vestmannaeyjadeild Viðlagasjóðs og einnig hefði hún nokkuð fjallað um hvernig ætti að afla fjár til að standa við gefin fyrirheit gagnvart norðfirðingum, og minntist á í því sambandi, að til greina kæmi að hækka söluskattinn eða fara sömu fjáröflunarleið og farið hefði verið í sambandi við Vestmannaeyjar. Á þessu stigi málsins lágu engar upplýsingar fyrir um það, sem heldur var ekki vonlegt, hvað tjónið í Neskaupstað væri talið mikið, og hér var ekki heldur um neinar fastmótaðar till. að ræða frá hálfu ríkisstj. Þá var málinn frestað og síðan heyrði ég ekkert frekar af þessu máli fyrr en ég sá þskj. á borði mínu hér á Alþ. Og það var ekki fyrr en rétt daginn áður, að form. flokks okkar var skýrt frá því, að frv. hefði verið samið, leið hefði verið valin og frv. yrði lagt fram á Alþ. Samráð á hliðstæðan hátt og gert hafði verið áður í sambandi við lausn á Vestmannaeyjavandanum var því ekki haft að þessu sinni. Hér voru leiðir ekki valdar, eins og áður hafði verið gert, og ekki leitað eftir samkomulagi við stjórnmálaflokkana á Alþ. um hvernig leysa skyldi málið. Það var þetta sem ég harmaði og ég harma það enn og tel að betur hefði tekist til með lausn á þessu vandamáli ef farið hefði verið að á svipaðan hátt nú og gert var áður þegar var verið að reyna að leysa hliðstæð vandamál.

Ég gat þess við 1. umr. málsins, að ég væri efnislega samþykkur því frv. sem fyrir lægi, því að ég teldi að loforð hefði verið gefið og það yrði að standa við gefin fyrirheit bæði gagnvart norðfirðingum og vestmanneyingum, í sambandi við það mikla tjón sem þar hefur gengið yfir, en gat þess um leið, að ég væri ekki ánægður með þá fjáröflunarleið sem valin hefði verið og einnig teldi ég að sú áætlun, sem birt er í fskj. með frv. varðandi tjónið í Neskaupstað, væri ótrúlega ónákvæm og lág, ég fyrir mitt leyti teldi að líklegt væri að tjónið reyndist miklum mun meira en þar er greint frá. Ég sagði enn fremur að ég mundi beita mér fyrir því í þeirri n., sem fengi málið til athugunar, að reynt yrði að ná víðtæku samkomulagi um fjáröflunarleið til þess að standa við þau loforð sem gefin hefðu verið í þessum efnum.

Á miðvikudagsmorgun í þessari viku var haldinn sameiginlegur fundur í fjh.- og viðskn. beggja þd., þar sem þessi mál voru rædd allítarlega. Á þeim fundi gerði ég grein fyrir hugmyndum mínum um fjáröflunarleið til þess að leysa vandann. Ég taldi að það væri hægt að komast hjá því að hækka söluskattsálagið, eins og frv. gerir ráð fyrir, en þess í stað mætti framlengja það söluskattsstig, sem í gildi hefur verið, um lengri tíma en í frv. greinir, og nefndi til til maíloka eða júníloka á næsta ári, auk þess teldi ég eðlilegt og það hlyti að vera viðráðanlegt að ríkissjóður legði fram nokkra fjárhæð til Viðlagasjóðs í þessum efnum nú á þessu ári. Þegar gert væri ráð fyrir því að skera niður útgjöld á fjárl. um 2500–3700 millj. kr. hlytu að verða möguleikar til að finna leiðir til að ríkissjóður legði fram 400–500 millj. kr. á þessu ári til Viðlagasjóðs vegna þessara verkefna. Það kom greinilega fram á þessum sameiginlega fundi fjh.- og viðskn. beggja d., að þm. úr öllum stjórnmálafl. sem þar áttu fulltrúa, — ég undirstrika: úr öllum stjórnmálaflokkum sem þar áttu fulltrúa, — tóku mjög vel í þessar till. mínar og það gaf sterkar vonir um að tekist gæti viðtæk samstaða á Alþ. um lausn á þessu máli. Vegna þessa var þannig að málunum staðið í gær, að þn. frestaði störfum sínum og fundir voru í þingfl. um það, hvort ekki væru tök á því að ná samstöðu um að breyta nokkuð til um tekjuöflunarleið. En þrátt fyrir þær góðu undirtektir sem komu fram hjá nm. úr öllum stjórnmálafl., þá fór svo að í morgun var tilkynnt á fundi í fjh.- og viðskn. þessarar d. að ríkisstj. teldi sér ekki fært að breyta frv. varðandi tekjuöflunarleið og hún yrði því að halda sig við það að hækka þyrfti söluskattsálagið um 1. stig. Ég greindi þá frá því, að ég mundi gera till. um að önnur leið yrði farin, og ég hef lagi fram brtt. sem því miður er ekki búið að útbýta hér enn, í þá átt. Ég get gert grein fyrir efni þeirrar till. þó að hún sé ekki fram komin því að hún er tiltölulega einföld.

Brtt. mín er í tveimur liðum og er við 5. gr. frv. Ég legg til, að 1. málsl. 5. gr. frv. taki þeim breyt. að ákveðið verði að viðlagagjaldið verði 1% í staðinn fyrir 2%, sem nefnd eru í frv., og að það skuli vera í gildi til loka júnímánaðar 1976, í staðinn fyrir að þessi 2 prósentustig eiga að gilda til ársloka 1975. Miðað við þá áætlun, sem byggt er á í frv. um tekjur af söluskatti, mundi þessi till. mín þýða að Viðlagasjóði væru tryggðar tekjur sem nema 1260 millj. kr. á þessu tímabili. Í öðru lagi legg ég til, að sú breyt. verði gerð á 5. gr., að á eftir 1. málsgr. komi ný málsgr. sem kveði á um að ríkissjóður leggi Viðlagasjóði á árinu 1975 400 millj. kr. Skv. þessum till. mínum væru því Viðlagasjóði tryggðar tekjur sem nema 1660 millj. kr. eða lítillega hærri upphæð en frv. gerir ráð fyrir að tryggja Viðlagasjóði með hækkun á söluskattsstiginu um 1 prósentustig. En sá er munurinn á, að það er hins vegar augljóst að Viðlagasjóður fengi þessar tekjur nokkru seinna eða á lengra tímabili en gert er ráð fyrir í frv. Mér er ljóst, að vegna þess fjárhagslega vanda, sem Viðlagasjóður stendur frammi fyrir, þyrfti hér til að koma fyrirgreiðsla af hálfu Seðlabankans, sem heimilaði Viðlagasjóði að skulda út á þennan nýja tekjustofn nokkru meira um næstu áramót, en frv. gerir ráð fyrir. Það er rétt, að það er ekki hægt að leysa aðsteðjandi vanda bæði Vestmannaeyja og Neskaupstaðar án þess að til þess arna komi, og ég geng út frá því, þegar ég legg fram till. mína, að þannig yrði á málum haldið að ríkisstj. beitti sér fyrir því að hægt yrði að standa við nauðsynlegar skuldbindingar gagnvart vestmanneyingum og norðfirðingum, þó að það þýddi að skuldin við Seðlabankann yrði nokkru hærri um næstu áramót en skv. þeirri leið sem ríkisstj. hafði valið, en það hins vegar greiddist upp á næstu mánuðum á eftir eða fram að miðju næsta ári.

Eins og ég hef sagt áður í umr. um þetta mál og í n., sem fjallaði um málið, þá tel ég að þetta væri miklu heppilegri leið, mundi valda minni árekstrum og væri ekki síst að mínum dómi hyggilegra fyrir ríkisstj. að velja þessa leið, fremur en þá leið sem hún hefur valið. En ég tel að hér sé ekki neinn verulegur munur á fyrir afkomu Viðlagasjóðs þegar á heildina er litið.

Það er líka þýðingarmikið nú alveg eins og áður, þegar þessi mál hafa verið til afgreiðslu hér á Alþ. varðandi Viðlagasjóð og Vestmannaeyjar, að reyna að skapa sem viðtækasta samstöðu um lausn þessara mála. Alþ. allt er samábyrgt í sambandi við þær yfirlýsingar sem gefnar hafa verið, og það á að standa við tiltekin fyrirheit. Af því leiðir að Alþ. þarf að koma sér saman um leiðir til þess að standa við þessi loforð. Mér er ljóst, að það er algjörlega haldlaust og ábyrgðarlaust að velja þá leið, sem talsmaður Alþfl. hefur valið í þessum umr. að segja einfaldlega að hann vilji standa við gefin loforð til vestmanneyinga og norðfirðinga og að hann bendi á leiðir, en hann leggur sig hins vegar ekki á neinn hátt fram um það að leita að sameiginlegri lausn á málinu.

Fáist ekki lausn á þeim grundvelli, sem ég óska eftir og hef talað fyrir, mun ég greiða frv. atkv., af því að ég ætla mér að standa við þau fyrirheit sem gefin hafa verið, en vil ekki svíkja þau. Þeir, sem hafa orðið fyrir miklu tjóni í Neskaupstað og í Vestmannaeyjum, bjarga sér ekki út úr þeim vanda, sem þeir hafa orðið fyrir, með því að flokkarnir á Alþ. haldi áfram þrotlausum deilum, einn leggur þetta til og annar hitt. Það hvílir á okkur sú skylda, að við verðum að ná samkomulagi um að greiða reikninginn.

Ég lít á þetta mál þannig frá minni hálfu, að í þessum efnum nær aðstaða mín og vald ekki lengra en svo að berjast fyrir því, að farin verði sú leið sem ég tel hyggilegasta og sanngjarnasta, en síðan verð ég þá að leita annarra ráða til þess að ná meginmarkinu, sem ég tel að skipti hér höfuðmáli.

Því miður hefur ríkisstj. valið þá leið að halda sig alveg fast við sínar upphaflegu uppástungur í þessum efnum, sem ég tel óheppilegar. En hún ræður yfir meirihlutavaldi á Alþ. og getur að sjálfsögðu þannig ráðið um leiðina. En hún gat líka valið þá leið að leita eftir samstöðu eins og áður hafði verið gert.

Afstaða mín er því skýr í þessu máli og hefur verið það frá upphafi. Ég beiti mér fyrir því, að lausn verði fengin á málinu, og legg fram till. um það. Fáist þær ekki fram mun ég þó láta það ráða úrslitum, að hægt verði að standa við gefin loðorð, og læt það ekki hafa mikil áhrif á mig þó að þeir, sem augljóslega hafa ekki ábyrgðartilfinningu til standa við gefin loforð, beri mér á brýn að ég hafi valið þá leið, sem ég hef lýst yfir allan tímann að ég sé út af fyrir sig óánægður með.

Ég vil taka það fram, að ég hef gert mér grein fyrir því að fjárhagsvandi Viðlagasjóðs er mikill. Það er ekki um það að deila, að skuldbindingar hans gagnvart vestmanneyingum eru þær, að sjóðurinn þarf að greiða á yfirstandandi ári vegna tjónanna í Vestmannaeyjum a.m.k. 1100 millj. kr. Þar hafa ýmsar greiðslur dregist úr hófi fram vegna fjárskorts sjóðsins, enda skuldaði hann um áramót í Seðlabankanum nærri 1600 millj. kr.

Eins og ég hef sagt hér, það eru miklu meiri líkur til þess, að tjónið í Neskaupstað verði meira en 500 millj. kr. í reynd. Sú lauslega áætlun, sem gerð hefur verið um tjónið þar og var miðuð við allt annað verðlag en nú er, þegar greiða þarf bæturnar, það er ekkert um það að villast, að hún er fremur of lág en of há. Það er því alveg ljóst, að Viðlagasjóð skortir hér fjármuni, og það verður að tryggja honum þessa fjármuni ef menn ætla að standa við þau loforð sem gefin hafa verið. Hitt er, eins og ég hef sagt, aðeins eðlilegt, að menn og flokka gelur greint á um það hvernig eigi að afla fjár til að standa við vandann.

Ég hygg að það, sem ég hef nú sagt og er í fullu samræmi við það sem ég hef sagt hér áður, sýni best hver hefur verið og er afstaða mín til þessa máls. Þeir, sem óska eftir að túlka hana á þann hátt, eins og Alþýðublaðið hefur gert og forustumaður Alþfl., að ég standi fyrir því að hækka söluskattinn og það sé mín leið, það eru hins vegar þeir sem hafa ekki mikla löngun til að segja rétt frá eða mikinn áhuga á því að reyna að standa við loforð sem þeir hafa þóst standa að.

Ég skal svo ekki orðlengja frekar um þetta. Brtt. mín verður senn útbýtt og kemur til atkv. Ég vona enn, að þær góðu undirtektir, sem fram komu í báðum fjhn. þingsins um þessa till., eigi eftir að koma fram við atkvgr. um málið. En fari svo að þessar till. mínar verði felldar og þar sem ekki hefur fengist til þessa neitt samkomulag um aðra leið, þá liggur ljóst fyrir að ég mun styðja lokaafgreiðslu frv. í þeim búningi sem það kemur nú frá n., því að ég tel það vera einu hugsanlegu leiðina til að standa við þau loforð sem gefin hafa verið þeim aðilum, sem hér eiga hlut að máli.