28.02.1975
Efri deild: 51. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1987 í B-deild Alþingistíðinda. (1585)
168. mál, ráðstafanir vegna snjóflóða í Norðfirði
Jón Árnason:
Herra forseti. Það keppast allir við að lýsa því yfir, um leið og þeir taka til máls, að það séu eiginlega allir á sama máli um að það þurfi að bregða skjótt og vel við og það opinbera sé nú búið að lýsa yfir vilja sínum í þessu máli. En síðan koma ýmsar athugasemdir í sambandi við málsmeðferðina, og satt að segja furðar mig á ýmsu sem hér hefur komið fram í sambandi við þessar umr. Ef maður lítur t.d. til umr. um Viðlagasjóð, hlutverk hans og hvenær því eigi að ljúka, þá verð ég að segja í sambandi við það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að það er núna verið að koma með úrtölur í sambandi við Vestmannaeyjar og það megi fresta um lengri tíma uppbyggingunni þar, en Alþ. var búið að undirstrika að það væri nauðsynlegt að sú uppbygging, sem þyrfti að eiga sér stað í Vestmannaeyjum, ætti sér stað sem allra fyrst. Nú koma hér fram úrtöluraddir í þessu efni og segja: Það má gjarnan fresta uppbyggingunni í Vestmannaeyjum og láta þann söluskatt, sem á að vera til að standa undir framkvæmdum og tekjuöflun Viðlagasjóðs, bara bíða, hann á þá að verka í fleiri ár. — Sama virðist mér vera uppi á teningnum í sambandi við þá aðstoð sem var búið að gefa fyrirheit um varðandi Neskaupstað og tjónið út af snjóflóðunum, sem þar áttu sér stað. Þar virtust allir vera á einu máli um að hér væri um nauðsynjamál að ræða, en þegar á til þess að koma að fara að afgr. málið, þá á að gera það á allt annan hátt en að afla til þess tekna af almenningi. Það má láta ríkissjóð greiða 400 millj. kr. og það má láta söluskattsprósentuna, sem í gildi er, verka lengra fram í tímann til þess að standa undir því sem þar á að eiga sér stað í sambandi við uppbygginguna.
Í þessu sambandi vil ég vekja athygli á því, að það er talað um að það þurfi að skera niður fjárlög um svo og svo stórar upphæðir, marga milljarða kr., til að ná endum saman á þeim grundvelli sem nú liggur fyrir hjá þjóðarbúskapnum eða ríkinu eða ríkissjóði með því breytta viðhorfi sem skapast hefur nú á síðustu mánuðum. Samt sem áður leyfa hv. þm. sér að bera fram till. um að ríkissjóður sé fær um að láta 400 millj. til viðbótar til að mæta þessum kostnaði. Ég vil telja hér nokkra líði t.d. sem augljóst er að nú koma á ríkissjóð til viðbótar við það sem gert var ráð fyrir þegar gengið var frá fjárlagaafgreiðslu.
Það er talað um láglaunabætur, að þær þurfi að koma nú í sambandi við kjaramálin. Hvað kosta láglaunabæturnar ríkissjóð? Það fer eftir því hvað þær verða miklar, en enginn vafi er á því að það er stór hópur launamanna, sem er á launum hjá ríkissjóði og hlýtur að fá þess vegna allmikla fjárupphæð í sambandi við væntanlegar láglaunabætur.
Það hefur verið talað um að það þyrfti að vera einn þáttur í sambandi við lausn kjaramálanna að lækka tekjuskattinn. Ábyggilega kostar það ríkissjóð mörg hundruð millj. kr., ef út í það verður farið sem mjög er sótt á um af hálfu fulltrúa launþegafélaganna eða verkalýðsins. Það er farið fram á að lækka tekjuskattinn verulega og hefur ekki verið talað um neinar smáupphæðir. Mér skilst að það sé vilji fyrir hendi hjá hæstv. ríkisstj. um að koma þarna nokkuð á móti launafólkinu og lækka tekjuskattinn nokkuð, en það mun ábyggilega kosta mörg hundruð millj. kr., svo að ekki sé sagt meira.
Þá hefur verið talað um að það sé óhjákvæmilegt í sambandi við lausn þessara mála að hækka bætur til öryrkja og ellilífeyrisþega, og ég er þeirrar skoðunar að hjá því verði ekki komist að hækka þær verulega. En það kostar ábyggilega einnig stórar fjárupphæðir umfram það sem gert var ráð fyrir þegar fjárl. voru afgr.
Þegar maður tekur bara fram þessa fáu liði, sem ég hef hér minnst á, og stendur frammi fyrir því að gert er ráð fyrir því, að um samdrátt sé að ræða, þannig að það má gera ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs minnki, en aukist ekki, og þegar maður stendur einnig frammi fyrir því að ríkissjóður þurfi að taka á sig verulegar fjárgreiðslur í sambandi við þessa liði, sem ég hef hér minnst á, þá furðar mann á því að til viðbótar við það skuli koma hér fram till. um að til þess að Alþ. standi við fyrirheit í sambandi við snjóflóðatjónið í Neskaupstað séu fyrir hendi 400 millj. hjá ríkissjóði.
Þetta er að mínu viti algjörlega ábyrgðarlausar fullyrðingar og till. sem eru fluttar í þessu máli, ekki neitt annað en sýndartill. Það getur ekki verið nein alvara á bak við slíkan málflutning sem ég hef hér minnst á. Og það að láta sér koma til hugar að Alþ. fari að samþ. núna að koma aftan að vestmanneyingum og ákveða að það liggi ekkert á, það megi gjarnan bíða sú uppbygging sem var búið að lofa að ætti að eiga sér stað, ég álít fyrir neðan virðingu Alþ. að slíkt komi hér fram.