28.02.1975
Efri deild: 51. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2005 í B-deild Alþingistíðinda. (1600)
168. mál, ráðstafanir vegna snjóflóða í Norðfirði
Helgi F. Seljan:
Herra forseti: Ég þakka forseta fyrir. Það er aðeins ein setning. Þegar þeir sjálfstæðismenn eru að tala um tryggingamál og viðreisnarstj., þá vil ég taka það skýrt fram, að allan þann tíma var það annar flokkur í þeirri stjórn, Alþfl., sem eignaði sér allar umbætur í tryggingamálunum. Ég vona endilega hans vegna að hann megi eiga þetta, vegna þess að það var eina réttlætingin fyrir stjórnarsamstarfinu við íhaldið.