28.02.1975
Neðri deild: 50. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2006 í B-deild Alþingistíðinda. (1608)
162. mál, áhrif olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða
Frsm. (Ólafur G. Einarsson):
Hæstv. forseti. Álit fjh.- og viðskn. er á þingskjali 332. N. ræddi málið á tveimur fundum sínum, en fyrri fundurinn var sameiginlegur með fjh.- og viðskn. Ed. Á þann fund komu starfsmenn viðskrn. og Þjóðhagsstofnunar og veittu nm. ýmsar upplýsingar.
Eins og fram kemur í nál. mælir n. með því að frv. verði samþ. eins og það er komið frá Ed., en einstakir nm. áskilja sér rétt til að flytja brtt. eða fylgja þeim.
Það er nú e.t.v. ekki ástæða fyrir mig að rekja þær breyt. sem gerðar hafa verið á frv. í Ed., það gerði hæstv. viðskrh. hér í gær. En í stuttu máli eru þær að olíustyrkurinn er hækkaður úr 7 200 kr. í 8 200 kr. og virðist það vera eðlileg ráðstöfun til þess að brúa hið mikla bil sem er á milli þeirra, sem njóta hitaveitna, og hinna, sem verða að kynda hús sín með olíu. Starfsmenn Þjóðhagsstofnunar létu nm. í té útreikninga á þessum mun, sem er milli hinna einstöku þátta, og samkv. því yfirliti er kostnaður á mann á ári 6 536 kr. hjá þeim, sem njóta jarðvarmaveitu. Hjá þeim, sem kynda hús sín með rafmagni, er það 14434 kr., og hjá þeim, sem nota olíu, er bað 23 028 kr. En miðað við þann olíustyrk, sem hér er gert ráð fyrir, 8 200 kr., færi kyndingarkostnaður á mann niður í 14 828 kr. og nálgast þá mjög kyndingarkostnað með rafmagni.
Aðrar breyt., sem gerðar voru í Ed., voru þær að styrkurinn, sem ekki átti að greiðast til þeirra sem fengju hitaveitu tengda fyrir 29. febrúar 1976, greiðist ekki til þeirra sem eiga kost á að tengja íbúðir sínar við hitaveitu á þeim ársfjórðungi sem styrkur kemur til greina. Virðist það vera mun eðlilegri regla. Það hvetur menn til þess að tengja strax og kostur er, en það munu hafa verið nokkur brögð að því að þegar svo vildi verkast, sem dæmi eru til um, þá sýndu menn ekki nægilegan áhuga á því að tengja strax og þeir áttu þess kost.
Þá er í þriðja lagi bætt við b-lið 2. gr., þar sem fjallað er u.m styrk til rafveitna, þar er kveðið á um að upphitun með rafmagni verði ekki að jafnaði óhagkvæmari en olíukynding og er það einnig sjálfsagt ákvæði. C-lið var einnig nokkuð breytt, þannig að til Orkusjóðs skal verja fé til að hraða hitaveitu- og raforkuframkvæmdum vegna hitunar íbúða að því leyti sem tekjunum er ekki ráðstafað samkv. a- og b-lið þessarar gr. en áður var orðalagið: „Til Orkusjóðs til jarðhitarannsókna og hitaveituframkvæmda.“
Hv. 4. þm. Vestf. boðaði í ræðu sinni í gær að hann mundi flytja brtt. við þennan lið gr. og hefur þeirri till. nú verið útbýtt á þskj. 331. Þessi till. er þess efnis að það fé, sem renna skyldi í Orkusjóð, skyldi þá renna eingöngu til raforkuframkvæmda á þeim svæðum sem jarðhiti er ekki. Þetta er út af fyrir sig skiljanlegt sjónarmið. En ég held að hér verði menn að hugsa um heildina og út fyrir sín kjördæmi. í frv., eins og það er núna, er gert ráð fyrir að þetta fé renni í sjóðinn til þess að hraða hitaveitu- og raforkuframkvæmdum, en flm. till. vill að orðið „hitaveitu-“ verði fellt þarna út. Það liggur ljóst fyrir að hitaveitur eru langhagkvæmastar til þess að hita íbúðir og þess vegna ber að gera allt sem unnt, er til þess að hraða hitaveituframkvæmdum. Það þarf ekki orðum að því að eyða að slíkt lækkar heildarframfærslukostnaðinn í landinu meira en annað á sviði þessa málaflokks. Ég vil einnig benda á í þessu sambandi að eins og gr. er nú orðuð, þá tekur hún að sjálfsögðu yfir það að af þessu fé má verja til jarðhitarannsókna, og það eru ýmsir aðilar, ýmis sveitarfélög, sem eru tilbúnir til þess að hefjast handa að öðru leyti en því að það skortir fé og á því verður að ráða bót. Ég bendi á í því sambandi að Lánasjóður sveitarfélaga, sem lánar stórfé á hverju ári til hitaveituframkvæmda, hefur ekki talið sér fært að lána til jarðhitarannsókna og vegna þessa eru ýmis sveitarfélög í miklum erfiðleikum. Aukið fé í Orkusjóð, eins og hér er gert ráð fyrir, mun þarna ráða verulega bót á.
Það hefur verið rakið hvaða upphæðir hér er um að ræða. Gert er ráð fyrir að þetta söluskattsstig gefi 960 millj. kr. Ýmsar aðrar upphæðir hafa reyndar verið nefndar, en ég held mig við þá upphæð meðan annað hefur ekki verið sannað. Samkv. töflu Þjóðhagsstofnunarinnar eru það 95 þús. manns sem nú búa í húsum sem kynt eru með olíu, og þannig kæmu 780 millj., ef þetta frv. verður að lögum, til greiðslu til þessara aðila. 25 millj. bætast við, að því er talið er, vegna ellilífeyrisþega og er þannig brúttóupphæðin 805 millj. kr. Vegna ákvæðisins um að þeir, sem fá hitaveitu tengda, fái ekki greiddan styrkinn á síðasta ársfjórðungi hefur verið áætlað, að vísu lauslega, að það gæti numið um 40 millj. kr., sem þannig kæmi ekki til greiðslu. Talið er að það séu a.m.k. 10 þús. manns sem tengjast hitaveitum á árinu, en það er að gerast á öllum tímum ársins og þannig er þessi tala fengin. Til rafveitna er áætlað að færu 50 millj. Eru þetta samtals um 815 millj. Miðað við að söluskattsstigið gefi 960 millj. yrðu 145 millj. eftir í Orkusjóð. Auk þess eru líkur á að einhver afgangur sé frá árinu 1974, en það hefur ekki verið gert upp að fullu vegna þess að síðasta greiðsla fer ekki fram fyrr en 1. apríl n.k. En giskað hefur verið á að þar gætu verið um 80 millj. kr., og ef svo væri, þá væri eðlilegt, að það kæmi í þennan sjóð einnig og gætu þetta þá orðið 225 millj. sem rynnu til Orkusjóðs.
Ég hef í sjálfu sér ekki miklu við þetta að bæta. Það liggja hér reyndar fyrir brtt. Á þskj. 337 er brtt. frá hv. þm. Lúðvík Jósepssyni og Gylfa Þ. Gíslasyni þar sem gert er ráð fyrir að styrkurinn hækki úr 8 200 í 10 000 kr. á mann. Ef þessar tölur, sem ég nefndi áðan, eru réttar, þá sýnist mér að hér sé verið að skipta fé sem varla er hæga að segja að sé til, þar sem allt söluskattsstigið færi í þennan styrk eða nálægt því, 950 millj., en 960 millj. gefur stigið, og þá yrði lítið eftir í Orkusjóð. Það kunna að vera skiptar skoðanir um hvort Orkusjóður eigi að fá nokkuð, en þeim skoðunum er ég ekki sammála.
Þá liggur hér einnig fyrir till. frá hv. þm. Karvel Pálmasyni, þar sem hann gerir ráð fyrir að tekinn verði upp skattur á þá sem njóta hitaveitna, 20% aukagjald á gjaldskrár hitaveitna, auk þess sem söluskattsstigið verði innheimt, og þessu fé verði síðan skipt á milli þeirra sem búa við olíukyndingu. Ég ætla ekki við þetta tækifæri að ræða um slíkan orkuskatt, hann á vafalaust ýmsa formælendur. En einhvern veginn sýnist mér skynsamlegra að velja aðra af tveimur leiðum, það er ekki nema um tvær leiðir að ræða ef menn ætla að jafna þetta mikla bil sem þarna er á milli, þ.e. annars vegar að styrkja þá sem búa við olíukyndingu, eins og hér er gert ráð fyrir, og hins vegar að skattleggja þá sem búa við hitaveitu. Sjálfsagt má nefna þriðju leiðina, eins og hér er gert, að blanda þessu hvoru veggja saman.
N. leggur sem sagt til að frv. verði samþ. óbreytt eins og það er komið frá Ed.