28.02.1975
Neðri deild: 50. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2009 í B-deild Alþingistíðinda. (1609)

162. mál, áhrif olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. fjh.- og viðskn. og hefur þegar verið gerð grein fyrir varð öll n. sammála um meginefni þessa frv., en í því felst fyrst og fremst að framlengja enn um eins árs skeið þá fjáröflun til niðurgreiðslu á kyndingarkostnaði með olíu, sem ákveðið var fyrir rúmu ári að skyldi nema 1% eða einu söluskattsstigi. Allir nm. voru sammála um að það bæri að halda þessari tekjuöflun áfram í þessu skyni. En 2 nm., ég og hv. 9. þm. Reykv., Gylfi Þ. Gíslason, töldum að það ætti að ráðstafa öllu þessu fé, eins og áður hafði verið gert ráð fyrir, í því skyni sem lögin voru sett til að leysa á sínum tíma og því bæri að miða greiðsluna til þeirra, sem hita upp íbúðarhús sín með olíu, við það að gjaldið færi svo að segja að öllu leyti til þessa. Því er það að við flytjum eina brtt., sem er á þskj. 337, en þar leggjum við til að sú breyting verði gerð á 2. gr. frv. að í staðinn fyrir að greiðsla á hvern einstakling nemi 8200 kr., þá komi 10 þús. kr. Það er skoðun okkar, eins og reyndar kom einnig fram hjá hv. frsm. meiri hl. n., að væri það ákveðið að greiðslan miðað við hvern einstakling væri 10 þús. kr., þá væri svo að segja öllum tekjunum varið til þess að lækka hitunarkostnað þeirra sem verða að hita upp íbúðir sínar með olíu.

Þegar lög um þetta efni voru sett fyrir rúmu ári var til þess ætlast, að þetta eina söluskattsstig rynni að öllu leyti til þess að lækka útgjöld þeirra aðila sem hér eiga hlut að máli. Þá var gert ráð fyrir að þetta eina söluskattsstig mundi nema á ársgrundvelli um 800 millj. kr. Þó þótti nauðsynlegt, þegar niðurgreiðsla fyrst hófst, að áætla þessar niðurgreiðslur á hvern einstakling fremur varlega, af því að það var alveg óvíst hvað þessi tekjustofn gæfi, og einnig lék nokkur óvissa á því hvað þeir aðilar yrðu í reyndinni margir sem nytu þessarar niðurgreiðslu. Því var ákveðið í upphafi að niðurgreiðslan næmi á hvern einstakling 7 200 kr. En að sjálfsögðu hefði verið eðlilegt að hækka þessa niðurgreiðslu eftir því sem á tímabilið leið, þegar bæði var sýnilegt að gjaldið gæfi meira en þessu næmi og fjármunirnir entust til þess, eins og löggjafinn hafði ætlast til, að gjaldið færi allt í þessu skyni og að gjaldstofninn entist til þess að greiða meira. En framkvæmdin hefur orðið sú að það hefur verið haldið sig við þessa niðurgreiðslu allt tímabilið. Af þeim ástæðum er nú talið að heildarútgjöld samkv. l. muni verða á þessu fyrra árs tímabili, þ.e.a.s. frá 1. mars 1974 til 1. mars 1975, í kringum 700 millj. kr. Þá talið bæði það sem rennur til rafveitna samkv. l. og eins til einstaklinga.

Ég tel því að allar líkur séu til þess að afgangur verði af tekjustofninum á því tímabili, sem liðið er, sem nemi um 100, jafnvel 150 millj. kr. Það sýnir aðeins að það hefði verið óhætt að hækka þetta upphaflega áætlaða gjald til niðurgreiðslu á þessu framkvæmdatímabili. Nú eru sem sagt allir sammála um það að framlengja þennan tekjustofn í eitt ár enn, frá 1. mars á þessu ári til 1. mars á næsta ári, og þá er áætlað að 1 söluskattsstig gefi um 960 millj. kr. Ég tel því að það sé réttmætt að áætla nú þessa niðurgreiðslu mun hærri en gert er ráð fyrir í frv. eða fara upp í 10 þús. kr. á einstakling. Ef það yrði gert, þá sýnist mér að ráðstafað sé að fullu væntanlegum tekjum þessa tímabils og sennilega heldur meira, en það væri þá gert í skjóli þess að eftirstöðvar eru frá fyrra tímabili sem áttu að renna til þessa.

Ef brtt. okkar hv. þm. Gylfa Þ. Gíslasonar yrði samþ., tel ég að í aðalatriðum sé þessum tekjustofni ráðstafað til þess sem til var ætlast og um var samið í upphafi, þegar gjaldið var lagt á. En það, sem hefur síðan gerst, er að núv. hæstv. ríkisstj. leggur fram frv. um framlengingu á þessum tekjustofni og að halda áfram þessari niðurgreiðslu, en gerir á þá breytingu að hún vill klípa ákveðinn hluta af þessum tekjustofni og ráðstafa honum á annan hátt. Hún ætlar sér að taka þann afgang, sem verður af tekjustofninum frá fyrra tímabilinu, sem nemur 100–150 millj. kr. að mínu álíti, og ráðstafa þeirri upphæð til Orkusjóðs, þótt hann hafi verið lagður á í allt öðru skyni. Síðan gerir hún till. um að halda niðurgreiðslunni til einstaklinga óbreyttri frá því sem áður var og þar með er hún með till. um það að taka verulegan hluta af þessu 1% á næsta gjaldtökutímabili, sem mundi, ef hefði verið farið að þeirri till., hafa numið 300 millj. kr., og ráðstafa því einnig í Orkusjóð.

Nú hefur hv. Ed. gert hér á nokkra breytingu og hækkað niðurgreiðslu á einstakling frá því sem hæstv. ríkisstj. hafði gert till. um, og nú er gert ráð fyrir í frv. að niðurgreiðslan á einstakling verði 8 200 kr. yfir árið í staðinn fyrir 7 200 kr., sem hún var í framkvæmd á fyrra tímabili. Að sjálfsögðu hefur að mínum dómi verið gerð breyting í rétta átt af hv. Ed., en eftir sem áður stendur málið þannig að það er verið að gera ráð fyrir því að klípa af þessum olíuniðurgreiðslupeningum að dómi hv. frsm. fjh.- og viðskn., sem nemur með eftirstöðvunum frá fyrra ári 225 millj. kr. Ég tel, að allar líkur bendi til að verið sé að klípa af þessari niðurgreiðslu ekki undir 300–350 millj. kr. og ráðstafa í þessu skyni.

Ég verð að lýsa yfir undrun minni að hæstv. ríkisstj. skuli fara inn á þessa braut og þó í rauninni enn þá meiri undrun á því að hæstv. viðskrh., form. Framsfl., skuli hafa fallist á að flytja frv. í þessa átt. Ég er alveg sannfærður um að þeir fjölmörgu aðilar í landinu, sem stutt hafa Framsfl. og styðja hann kannske enn sem komið er og búa við það að verða að hita upp húsnæði sitt með olíu, verða alveg gáttaðir á því að Framsfl. skuli leggja til að skerða þessa takmörkuðu niðurgreiðslu á þeim ofsalega kostnaði sem menn búa þarna við, skerða hana, taka af þeim peningum, sem Alþ. hefur beinlínis ákveðið að skyldi varið í þessu skyni, og ráðstafa því til annarra þarfa. Hér skiptir ekki máli þó að þær þarfir, sem hér er um að ræða, séu út af fyrir sig góðra gjalda verðar. Það er enginn vafi á því að þörf er á að afla fjár til að hraða meira en verið hefur hitaveituframkvæmdum í landinu eða rafhitun húsa. Það þarf að afla fjári þessu skyni. Og það þarf að hraða þessum framkvæmdum miklu meira en verið hefur. Ég er alveg sannfærður um að það mundi ekki standa á hv. Alþ. að finna leiðir til þess að fjár yrði aflað til þessara framkvæmda, án þess að menn færu að taka þessa peninga þeirra, sem harðast hafa orðið úti. Það tel ég mjög ómaklegt og í rauninni alveg furðulegt að upp skuli koma till. um það.

Auk þess vil ég segja það, að hitaveituframkvæmdir og reyndar einnig framkvæmdir í raforkumálum, sem miða að því að nýta orkuna til húshitunar, eru svo góðar framkvæmdir að það á að verða auðvelt að afla lánsfjár til slíkra framkvæmda. Það er talað um að það eigi að vera létt verk fyrir ríkissjóð að leggja fram milljarða kr. í hreinan stofnkostnað til þess að koma upp ákveðinni verksmiðju við Hvalfjörð. Og síðan á að afla margra annarra milljarða þar til viðbótar í sambandi við þær framkvæmdir beint að láni. Þetta er allt saman framkvæmanlegt. En svo vex mönnum í augum sá vandi að útvega nokkurt lánsfé til hitaveituframkvæmda eða raforkuframkvæmda til þess að leysa okkar hitunarvandamál. Til að komast út úr þessum vandræðum hneigjast menn að því ráði að klípa af þessum olíuniðurgreiðslupeningum. Þetta finnst mér alveg fráleitt. Af því er það, að ég stend að till. sem miðar að því að verja þessu gjaldi eins og til var ætlast, öllu gjaldinu, til þess að lækka þann gífurlega aukna kostnað sem þeir hafa orðið fyrir sem þurfa að hita upp hús sín með olíu.

Það var skýrt frá því af hv. formanni fjh.- og viðskn. að n. hefði fengið nokkrar upplýsingar frá Þjóðhagsstofnun um kostnað í sambandi við íbúðarhúsahitun eftir ýmsum leiðum. Ég vil bæta aðeins litlu við þessar upplýsingar.

Samkv. upplýsingum Þjóðhagsstofnunar var það svo að fyrir ári, þegar þessi niðurgreiðsla var ákveðin, var talið að hitunarkostnaður á hvern einstakling þar sem um jarðvarma var að ræða væri 4 095 kr., en væri nú ári síðar 6 536 kr. Þarna er sem sagt um það að ræða að hitunarkostnaðurinn, miðað við hvern einstakling, þar sem um hitaveitu er að ræða, hefur hækkað um 2 500 kr. En samkv. upplýsingum frá sama aðila, Þjóðhagsstofnun, var þetta þannig varðandi þá, sem verða að hita upp íbúðir sínar með olíu, að í upphafi tímabilsins eða fyrir ári var hitunarkostnaðurinn talinn, miðað við hvern einstakling, 13 110 kr., en nú ári síðar er hann talinn 23 028 kr. eða hefur hækkað á sama tímabili um tæpar 10 þús. kr. á einstakling. Hækkunin er fjórum sinnum meiri en hjá þeim sem búa við hitaveitu. Nú kom það fram hjá forstöðumanni Þjóðhagsstofnunar að það væri fundið að þessum útreikningi að því leyti til, að hann reiknaði með of lítilli olíunotkun hjá þeim sem hita upp íbúðir sínar með olíu. Ég hef kynnt mér það nokkuð síðan og fengið upplýsingar um það að Þjóðhagsstofnunin gangi í þessu tilfelli út frá allt of litlu magni af olíu, þetta sé ekki í neinu samræmi við þá reynslu sem menn yfirleitt búa við. Ég hygg því að sá skakki, sem hér kann að vera á, sé allur í þá átt að kostnaðarhækkun þeirra, sem búa við olíukyndingu, sé miklu meiri en þessar tölur benda til. Enda er það sannast sagna að ástandið er þannig viða úti á landi, þar sem menn verða að hita upp hús sín með olíu, að það er komið í algert öngþveiti að ráða fram úr þeim vanda hvernig á að hjálpa mönnum til þess að greiða olíureikninginn hverju sinni. Þetta er eitt af meiri háttar vandamálum viða orðið í byggðalögum, hvernig á að hjálpa mönnum með miðlungstekjur til þess að borga þessa olíureikninga. Hækkunin hefur orðið svo mikil. Af þeim ástæðum segi ég, að það er í rauninni alveg furðulegt að láta sér koma til hugar að fara að klípa af þessum peningum og ráðstafa þeim í annað.

Ég dreg það ekki í efa að það er þörf á því að afla fjár til hitaveituframkvæmda, það er þörf á því að reyna að koma fleiri húsum í landinu í samband við raforku, þannig að þau geti notið upphitunar með raforku. Þetta er mjög brýnt verkefni. Það á að stuðla að þessu með því að afla lánsfjár til nytsamra framkvæmda og þá að afla fjár með öðrum hætti en þeim að ætla að ráðast á þennan garð, eins og hann er nú.

Hér hafa verið lagðar fram nokkrar aðrar till., sem ég vildi nota tækifærið til að víkja örlítið að.

Hv. þm. Karvel Pálmason leggur fram brtt. á þskj. 330, þar sem hann gerir ráð fyrir því að á næsta árstímabili eða til 1. mars 1976 verði auk þeirrar tekjuöflunar, sem frv. byggir á, lagt sérstakt orkugjald á öll hitaveitugjöld. Ég segi hiklaust, að vissulega teldi ég að ekki veitti af að afla þessa fjár til þess að reyna að jafna nokkuð þennan mun. En ég efast ekkert um að þeim, sem búa við hitaveitu, hefur þótt hækkunin hjá sér í útgjöldum alveg fyllilega nógu mikil, því að t.d. Hitaveita Reykjavíkur hefur hækkað sín gjöld feiknalega mikið og er með kröfur um miklar hækkanir. Ég dreg því nokkuð í efa nú eins og fyrir ári, þegar þessi mál voru rædd, hvernig ætti að leysa vandamál þeirra sem verða að hita upp hús sín með olíu, — ég dreg því nokkuð í efa réttmæti þess að leysa þetta vandamál með þessum sérstaka skatti á hitaveitugjöld og hefði kosið að reyna að fara aðrar leiðir. Hins vegar tek ég undir það, sem kemur fram í þessari till., að það er þörf á því að afla meira fjár. En ég hugsa að þrátt fyrir allt, eins og málin standa, þá mættu menn hrósa happi ef þessi tekjustofn fengi að vera óáreittur og ganga til þess sem ætlað var.

Að öðru leyti er þessi till. í rauninni miðuð við það sama sjónarmið sem kemur fram í till. okkar hv. 9. þm. Reykv. að öllum tekjunum skv. þessu gjaldi verði varið til þess að aðstoða þá, sem búa við olíuhitun. En að fenginni reynslu tel ég hagkvæmara að ákveða beint í l., hvað niðurgreiðslan eigi að vera mikil, og vil því heldur nefna 10 þús. kr. á einstakling á þessu tímabili heldur en hafa það óákveðið, því að mér sýnist að framkvæmdin hafi orðið þannig að þar hafi menn haldið sér við of lága áætlun allt tímabilið út.

Hér er á öðru þskj., þskj. 331, brtt. frá hv. þm. Gunnlaugi Finnssyni, þar sem hann leggur til að þeim hluta þessa tekjustofns, sem hér er um að ræða, sem ekki verður varið til beinnar niðurgreiðslu og áætlað er að renni í Orkusjóð, verði varið af Orkusjóði til raforkuframkvæmda. Ég get líka sagt það, að ég tel út af fyrir sig, ef þarf að fara að gera upp á milli þess hvort eigi að njóta meiri stuðnings, raforkuframkvæmdir til húsahitunar eða jarðhitaframkvæmdir, þá tel ég eðlilegra út af fyrir sig að láta fé ganga til raforkuframkvæmdanna, því að þar þarf meira fé til, ekki vegna þess að ég telji ekki sjálfsagt að ráðist verði fyrst og fremst í hitaveituframkvæmdir, því að þær eru enn þá hagkvæmari, en það er meiri þörf á því að veita viðbótarfjármagn til framkvæmda í raforkumálum, En ég er alveg á móti þeirri hugsun að fara að klípa nokkuð af þessu fé og ráðstafa því til annarra hluta, jafnt til raforkuframkvæmda sem hitaveituframkvæmda, því að þetta gjald var lagt á með víðtæku samkomulagi, einnig við launþegasamtökin í landinu, í þessu skyni og það átti að renna til þess arna. Það á ekki að klípa þar neitt af að mínum dómi.

Ég þarf svo ekki að lengja þessar umr. meira. i:g hef gert grein fyrir þeirri brtt., sem ég stend að ásamt hv. 9. þm. Reykv., og gert grein fyrir afstöðu minni og okkar þm. Alþb. til þessa gjaldstofns í heild, að við álítum að það eigi að ráðstafa öllum þessum tekjustofni á sama hátt og upphaflega var áætlað, til.þess að létta undir með þeim sem verða þarna harðast úti og verða að hita upp hús sín með olíukyndingu, það sé ekki rétt að klípa neitt af þessu fé og ráðstafa því á annan veg. Við erum reiðubúnir til að taka þátt í því að ná samkomulagi um fjáröflun til þeirra brýnu framkvæmda sem snúa að auknum hitaveituframkvæmdum og raforkuframkvæmdum til húsahitunar í landinu.