28.02.1975
Neðri deild: 50. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2026 í B-deild Alþingistíðinda. (1615)

162. mál, áhrif olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Hv. 3. þm. Reykv., Magnús Kjartansson, lýsti því áðan, að ríkisstj. væri hreinlega að tefja framkvæmdir á sviði orkumála varðandi nýtingu innlendra orkugjafa og þyrfti að koma í veg fyrir þau skemmdarverk, eins og hann komst að orði. Hann virtist þá eiga við hitaveituframkvæmdir Hitaveitu Reykjavíkur varðandi Hafnarfjörð, Kópavog og Garðahrepp.

Þessi ummæli hv. þm. eru byggð á algerum misskilningi. Í fyrsta lagi hafa engar beiðnir komið til ríkisstj. um lánsfjáröflun vegna þessara framkvæmda. Því eru engar lánsbeiðnir, sem ríkisstj. hefur synjað eða ekki sinnt, þar sem þær hafa ekki legið fyrir. Það eina, sem komið hefur í þessu sambandi til ríkisstj., er beiðni um gjaldskrárhækkun. Ég veit ekki hvort hv. þm. á við það, að of lengi hafi dregist að hækka gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur. Það er ekki gott að skilja orð hans á annan veg, því að um aðeins tvennt er að ræða: annars vegar lánsfé til þessara framkvæmda eða aukna fjáröflun með gjaldskrá. Eins og ég tók fram hafa engar beiðnir um aðstoð við lánsfjárútvegun komið fram. Hins vegar varðandi gjaldskrárbeiðni, þá var það í sept., nokkru eftir að núv. ríkisstj. tók við; að leyfð var 41% hækkun á gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur sem kom til framkvæmda 1. okt. Sú hækkun var fyrst og fremst gerð til leiðréttingar sem Hitaveitan hafði lengi beðið um og beðið eftir, en hafði verið frestað, Nú hefur borist á ný beiðni frá Hitaveitunni um hækkum gjaldskrár, fyrst um allt að 30%a, sem síðan var nokkuð lækkuð og hefur sú beiðni verið til athugunar að undanförnu hjá ríkisstj. Í morgun var hún afgreidd þannig, að samþ. var 23% hækkun á gjaldskrá Reykjavíkur. Það eru því gersamlega tilhæfulausar fullyrðingar hjá hv. þm. að ríkisstj. verði á nokkurn hátt sökuð um að hafa tafið framkvæmdir á þessu sviði. Það er hugarburður.

Ég vil svo í öðru lagi taka fram, að mér er ekki kunnugt um að tafir verði á þessum framkvæmdum. Það var á árunum 1973 og 1974 sem Hitaveita Reykjavíkur gerði samning við þessi þrjú sveitarfélög, sem ég nefndi, um að leggja aðveituæðar og dreifikerfi um þessi þrjú sveitarfélög, og var gert ráð fyrir að því verki yrði lokið á árinu 1977. Horfir svo nú að þessu verki verði lokið í árslok 1976 eða nokkru fyrr en áætlað hafði verið.

Í öðru lagi minntist hv. þm. á Hitaveitu Suðurnesja frá Svartsengi sem hefði tafist óeðlilega. Mér er ekki kunnugt um þær tafir sem hv. þm. á við, nema þær tafir málsins sem áttu sér stað meðan hann var iðnrh. Svo er nefnilega mál með vexti, að í ársbyrjun 1973 lágu fyrir skýrslur um rannsóknir og boranir eftir heitu vatni og gufu á Svartsengi. Þá lá fyrir það álit Orkustofnunar að ágætur grundvöllur væri fyrir þessu fyrirtæki. Frá því að þessar skýrslur lágu fyrir og rannsóknum var að þessu leyti lokið liðu þrjú missiri án þess að hv. þm., sem þá var iðnrh., kæmi málinu áleiðis. Eftir að stjórnarskiptin urðu var málið strax tekið upp, og það liðu ekki 3 missiri, heldur var innan þriggja mánaða búið að leggja málið fram á Alþ. og það var afgreitt fyrir jól.

Ásakanir hv. þm. í sambandi við hitaveituframkvæmdir í nágrannahéruðunum og varðandi Hitaveitu Suðurnesja eru því gersamlega tilhæfulausar.

Hins vegar verður manni að hugleiða hvernig stendur á þessum endurteknu ásökunum og fullyrðingum hv. þm., bæði hér á Alþ. og eins í forustugreinum Þjóðviljans sem hann hefur skrifað og fengið að sjálfsögðu eins og venja er til, lesnar upp í morgunútvarpinu. Megnið af þessari gagnrýni er ástæðulaus og tilhæfulaus.

Hv. þm. talar um nauðsyn á því að áætlanagerð haldi áfram og nauðsyn að marka stefnu. Nú efa ég ekki að hv. þm. Magnús Kjartansson hefur haft einlægan áhuga, meðan hann var ráðh., á því að þoka þessum málum sem mest áleiðis og láta gott af sér leiða. Það hefur mér aldrei dottið í hug að draga í efa. Hitt er svo annað mál, að þegar litið er yfir þennan tíma, þá er því miður of fátt sem eftir liggur. Það hafa að vísu verið gerðar áætlanir og skýrslur. Hv. þm., þáv. ráðh., lagði fram till á Alþ. um stefnumörkun í raforkumálum, en sú till. náði ekki fram að ganga, dagaði uppi, og var hún þó lögð fram allsnemma á kjörtímabilinu. Hv. þm. lagði einnig fram skýrslu og till. varðandi nýtingu innlendra orkugjafa. Hún var aldrei afgreidd, dagaði einnig uppi. Þannig var það, að í ráðherratíð þessa hv. þm., sem vafalaust hefur haft góðan vilja í þessum efnum, voru fluttar till., voru gerðar skýrslur, en allt of lítið um framkvæmdir.