28.02.1975
Neðri deild: 50. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2028 í B-deild Alþingistíðinda. (1616)

162. mál, áhrif olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Virðulegi forseti. Hér liggur fyrir frv. sem er í allan stað veigamikið og mikilsvert fyrir mikinn hluta þjóðarinnar. Það fer ekkert á milli mála að hinar gífurlegu olíuverðhækkanir á undanförnum missirum eiga drjúgan þátt í efnahagsörðugleikum okkar í dag. Og það þarf engan skellinöðrumálflutning af því tagi, sem hv. 5. þm. Vestf. viðhafði hér í gærkvöld, til þess að sannfæra okkur Vestfjarðaþm. og aðra um það, að þegar verðhækkanir koma svo mjög þungt niður á öllum almenningi sem raun ber vitni vegna m.a. og fyrst og fremst kannske vegna aukins kostnaðar við olíuhitun, raunar til viðbótar við stöðugar verðhækkanir sem dynja yfir á hverjum degi nú, þá þarf ekkert að fara í grafgötur með það, að það eru þungar byrðar sem leggjast á þjóðina í heild, og það er verkefni stjórnvalda að leitast við til hins ítrasta að þær byrðar komi niður sem jafnast og réttlátlegast á landsmenn, hvar sem þeir eru búsettir, að þeim, sem erfiðast eiga, verði hlíft við áföllum og að þeim verst settu, sem erfiðast eiga með að bera af sér þau áföll sem okkar erfiðleikaástand leiðir yfir, verði gert eins hægt fyrir og mögulegt er.

Frv. það, sem hér liggur fyrir, er einn liður í þessari viðleitni. Það er ekki þar fyrir, — ég segi það hreinskilningslega, — að vissulega hefðum við viljað hafa niðurgreiðslu á olíu miklu hærri, 10 þús. kr. á einstakling í stað 8 200 kr. væri engin ofrausn, ef miðað er við þá þörf sem er fyrir hendi hjá mörgum. Eins og dæmið stendur nú koma 8 200 kr. á einstakling. Það þýðir að tæpar 50 þús. koma á ársgrundvelli á 6 manna fjölskyldu af 130–140 þús. sem haldið hefur verið fram hér og ég hygg að muni vera rétt tala, þ.e.a.s. 15–20 þús. kr. meðalhitunarkostnaður á meðalfjölskyldu fyrir þá sem búa við olíuhitunina.

Það hefur verið nokkuð talað um greiðslufyrirkomulagið á þessu, og ég hef verið í hópi þeirra sem hefðu talið eðlilegra að þetta höfðafyrirkomulag yrði afnumið og tekin upp almenn niðurgreiðsla. Ég viðurkenni þó, að hitt hefur ýmsa kosti í för með sér. Það er líklegt að þessar olíuniðurgreiðslur komi sem best við flestar fjölskyldur, komi helst að gagni fjölmenaum fjölskyldum sem búa í litlu húsnæði, en það kemur að sama skapi harðara niður á fámennum fjölskyldum sem búa í stóru húsnæði, og er ekkert við það að athuga þótt þær beri stærri hlut byrðarinnar en hinir. Að þessu leyti tel ég það fyrirkomulag, sem hér er gert ráð fyrir, rétt og sanngjarnt. Hins vegar hefur það einnig í för með sér óþarfa skriffinnsku, sem ekki hvað síst sveitarfélögum sem eiga að úthluta þessu, þykir óþægilegt og hvimleið. Ég ætla ekki frekar að gera fyrirkomulagið að umtalsefni.

Hér hafa komið fram ýmsar brtt. Ég tel til lítilla bóta, að ekki sé meira sagt, og ég er mótfallin þeirri breytingu sem varð í meðförum hv. fjh.- og viðskn., að draga af þeim tíma sem þeir, sem hitaveitu eiga í vændum, hefðu sem umþóttunartíma þangað til þeir fengju húshitun með hitaveitu. Ég hefði talið eðlilegt að það fólk, sem á svo mikinn hag í vændum, hefði verið undanskilið þessum olíuniðurgreiðslum í ár, þótt ég viðurkenni fúslega að stofnkostnaður hitaveitu fyrir íbúana er oft töluvert þungbær. Fólk þarf í sumum tilfellum að skipta um alla ofna í húsum sínum, innlagningargjaldíð er allhátt, þannig að þetta kæmi í bili nokkuð þungt niður á þessu fólki, bitnaði nokkuð þungt á því. En ég hefði talið réttlátara að því meira hefði komið í hlut hinna úti á landsbyggðinni sem ekki eygja í náinni framtíð neinn möguleika á þess konar hlunnindum sem hitaveita er.

Þessar brtt., m.a. sú frá Karvel Pálmasyni, gera ráð fyrir 20% álagi á gjaldskrá hitaveitna. Það væri náttúrulega ágætt að fá þarna drjúgan skilding í sjóðinn okkar til að greiða niður olíuna úti á landsbyggðinni Þó tel ég að við verðum að líta á þetta mál í nokkuð víðu samhengi, hversu vel sem við viljum gera til umbjóðenda okkar í okkar kjördæmum, hvort sem það er nú fyrir vestan, austan eða norðan. Það er staðreynd t.d., að hvergi mun húsaleiga neitt í nánd jafnhá og hér í Reykjavík. Þess munu mörg dæmi, að fjölskylda með meðaltekjur þarf að greiða allt upp í 25 þús. á mánuði í húsaleigu. Það veit ég, að er viðurkennd staðreynd. Og með tilliti til þess að þessa dagana sennilega er um það bil að koma fram 60% hækkun á Hitaveitu Reykjavíkur, þ.e.a.s. ef við miðum við 41% hækkun, sem varð í okt., og væntanleg er að mér skilst 20–25% hækkun þar ofan á, — mér skilst, að það sé í deiglunni, það verði á næstunni, — þá er þetta fyrir allmargar fjölskyldur hér í Reykjavík orðið mjög þungbært. Ég get ekki heldur séð, að þeir hafi rétt fyrir sér sem staðhæfa, að hús úti á landsbyggðinni séu svo miklu lakari en á hitaveitusvæði. Ég held, að þetta sé ekki rétt athugað, ef ég miða við mitt kjördæmi. Ég sé hvergi á landinu jafnvel byggt og myndarlega, enda vestfirðingar myndarmenn miklir í hvívetna, og ég hugsa að þeir séu ekki eins kulvísir og reykvíkingar heldur, þannig að þeir mundu kveinka sér minna við að spara ofurlítið frá því sem nú er. Og ég er sannfærð um það, að olíuhitunarfólk mun spara og hitaveitumenn hér í Reykjavík mættu líka spara, við mættum spara alls staðar í öllum kjördæmum. Það kemur ekki kjördæmum við. Ýmislegt af þeim rökum, sem hér hafa verið færð fram af talsmönnum dreifbýlisins, sem ég vil ekki gera lítið úr að séu á heilindum byggð, mér finnst þau í sannleika sagt nokkuð hæpin.

Hvað varðar síðustu liði 2. gr., sem nokkuð hefur verið rætt um, þá hef ég frá upphafi verið fylgjandi því að þarna væri, eins og það hefur verið orðað, klipið dálítið af söluskattsstiginu og það geri ég með framtíðina í huga. Ég veit að það hefði verið gott að fá söluskattsstigið allt í að greiða niður olíuna og það hefði ekkert veitt af því. En með tilliti til þess að við ítrekum það æðioft með réttu, að orkuframkvæmdir og hitaveituframkvæmdir eigi að vera forgangsframkvæmdir, þá tel ég þessa ráðstöfun fyllilega eðlilega og réttlætanlega og ég greiði þessum líðum atkv. mitt í trausti þess, að þeir hlutar, þau byggðarlög, sem tengjast við hitaveitu, aftengist olíunni með þeim afleiðingum að það renni að sama skapi meira til olíugreiðslna úti á landsbyggðinni, þar sem engar hitaveitur eru, en að það verði ekki tekið til annarra framkvæmda, nema þá eins og nú er gert til áframhaldandi rannsókna, undirbúningsframkvæmda og áframhaldandi framkvæmda í þessum málum, sem eru hitaveitu- og orkuframkvæmdir.

Ég dreg enga dul á það, að þegar ég studdi þá ákvörðun að taka þessar 100–150 millj. af 960 millj., sem mér skilst að nemi söluskattsstigi, þá hef ég mitt kjördæmi, Vestfirði, í huga, sem margoft hefur verið bent á og með réttu að var mjög svo umdeilanlega afskipt í fjárveitingum til orkurannsókna. Ég tel, að okkur ætti að vera kleift með því að Orkusjóður verji þessum fjármunum til þess sem til er ætlast, að fá svo sem 10 millj. í viðbót til orkurannsókna á Vestfjörðum, sem eru ákaflega aðkallandi, og þá munu vera eftir eitthvað á 2. hundrað millj. fyrir aðra landshluta í sama tilgangi.

Það er alveg rétt, sem komið hefur fram, að við þurfum að jafna aðstöðu dreifbýlisins miðað við suðvestursvæðið, og ég vil taka eindregið undir það og ég vil neita því, sem stundum kemur fram af miklum misskilningi, að það sé ódýrara að lifa úti á landi. Sannleikurinn er sá, að það er á margan hátt miklu dýrara, þótt ekki væri annað en flutningsgjöldin, sem leggjast með álagi á alla landsbyggðina miðað við Reykjavík. Þarna væri verkefni sem ætti að komast í framkvæmd, að koma á jöfnun á flutningsgjaldi, Hér er ein leið sem við dreifbýlisþm. gætum unnið okkar kjördæmum og landsbyggðinni allri gagn með, að einhver skriður komist á þetta mál. En mér vitanlega liggur það enn í n. og er búið að vera lengi til meðferðar. Ég lýsi mig hlynnta hvers konar jöfnunaraðgerðum frekar en að í þessu tilliti væru tekin erlend lán til viðbótar ofan á alla þá skuldasöfnum hjá erlendum lánastofnunum sem við búum við núna. þannig að við liggur að íslenska ríkið sé orðið ómerkingur á alþjóðlegum lánamörkuðum. Þar megum við sannarlega gæta okkar og reyna að vera sjálfum okkur nóg, að svo miklu leyti sem mögulegt er, og fara varlega í auknar erlendar lántökur, þótt sífellt sé vitnað í að það sé eina sjálfsagða leiðin.

Það var eitt, sem kom líka fram hjá mínum ágætu samþm., hv. 8. landsk, og hv. 5. þm. Vestf., að þeir tala um 5–6 sinnum meiri hitunarkostnað h,já mönnum, sem greiða 15–20 þús. í hitakostnað, heldur en hjá hitaveituneytendum á hitaveitusvæðum. Ég heyrði ekki betur en hv. þm. Karvel Pálmason talaði um, í hinu orðinu raunar, að hítaveitukostnaðurinn væri aðeins þriðjungur af kostnaði olíuhitunar eftir ákveðna hækkun sem er að komast í framkvæmd nú, þannig að ég sé ekki að það samrýmist, þótt ég sé léleg reikningsmanneskja, að 1/3 nemi 5–6 sinnum mismun. Ég held, að þetta sé á misskilningi byggt og hann þurfi að athuga betur sínar tölur. En enda þótt það væri þrisvar sinnum ódýrara, þá er það of mikið samt, því er ég sammála. En það er ekki um að ræða um neinn 5–6 sinnum mismun, ekki eftir því sem ég fæ best séð.

Ég legg áherslu á það, að þeim hluta söluskattsstigsins, sem verður tekinn úr olíugreiðslunum, þeim tel ég ekki betur varið til annars en að hyggja til framtíðarinnar og búa okkur sem best undir stórátök í raforkumálum.

Hvað varðar till. Gunnlaugs Finnssonar, þá fyrri, því að hann hefur lagt hér fram tvær, þá sýnist mér hans fyrri brtt. það lík þeirri sem fyrir liggur frá hendi Ed. og hv. fjh.- og viðskn. hefur samþykkt, að ég tel hana naumast eiga rétt á sér. Ég treysti Orkusjóði til að verja þeim fjármunum, sem hann þannig fengi, á sem skynsamlegastan og réttlátastan hátt. Og það stendur í e-lið 2. gr. skýrum stöfum: „Til Orkusjóðs til að hraða hitaveitu- og raforkuframkvæmdum“. Það er ekki bundið við hitaveitu-, heldur og raforkuframkvæmdir Ég hefði gjarnan viljað, að orkurannsóknir kæmu þarna inn í líka, en ég tel ekki ástæðu til að gera brtt. við það. Mér finnst það liggja í augum uppi, að raforkuframkvæmdum tilheyra að sjálfsögðu undirbúningsrannsóknir.

Ég skal ekki orðlengja þetta öllu frekar. Ég get alveg eins búist við því, eftir því sem tilefni hefur gefið mér til að halda, að ég verði talin hér vinna á móti hagsmunum míns kjördæmis. Hæstv. 8. landsk. lét sig hafa það að lýsa því yfir í málgagni sínu, Skutli á Ísafirði, að við afgreiðslu fjárl. hefðu þm. stjórnarliðsins á Alþ. unnið gegn hagsmunum vestfirðinga, og þetta var endurtekið í stóru og veglegu viðtali við hana oftar en einu sinni, þannig að ég er við öllu búin úr þeirri átt. Það er hans mál hvernig hann túlkar mína afstöðu. Ég tel það skyldu okkar þm. að reyna að líta á málin í sem víðustu samhengi, og þótt okkur liggi mest á hjarta að bregðast ekki trúnaði og trausti okkar umbjóðenda, þá hljótum við að greiða atkv. með till., sem fram koma, .sem íslendingar, en ekki sem vestfirðingar, norðlendingar, austfirðingar eða reykvíkingar.