28.02.1975
Neðri deild: 50. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2044 í B-deild Alþingistíðinda. (1624)

162. mál, áhrif olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Á s.l. vetri þegar hliðstætt frv. var hér til umr. á hinu háa Alþ. kom fram mjög almennur vilji hjá þm. til þess að mæta með einhverjum hætti þeim olíuhækkunum sem yfir okkur höfðu dunið. Sá vilji hefur enn komið fram hér á þingi við umr. um þetta frv. En í fyrra voru gerðar aths. við það, hvernig tekjum sjóðsins, sem hér er stofnaður, yrði varið. M.a. tók ég mjög undir þá gagnrýni og hélt því fram að það fyrirkomulag, sem var þá lagt til og er nú lagt til að verði á greiðslum úr sjóðnum, sé óheppilegt og ákaflega ógeðfellt. Ég er enn sömu skoðunar. Ég tel að það úthlutunarkerfi, sem miðast við að styrkir séu greiddir miðað við fjölda fjölskyldumeðlima, bjóði upp á mismunun og misnotkun og valdi gríðarlegum erfiðleikum í allri meðferð hjá þeim sem sjá um greiðslu styrkjanna. Ég hygg að þessar ábendingar, sem fram komu hér á s.l. vetri, hafi haft við rök að styðjast og reynslan hafi sýnt þeim, sem með þessi mál hafa farið, að hér er viss hætta á mismunun og misnotkun sem aldrei er eftirsóknarverð. Ég benti á það að æskilegri leið væri að greiða niður olíuna í heild sinni í stað þess að úthluta styrkjunum með svo einstaklingsbundnum hætti, og ég ítreka þá skoðun mína að það yrði langtum heppilegri leið og tel, að þetta frv. hefði átt að vera þannig úr garði gert. Það er skemmst frá því að segja, að þetta sjónarmið hefur ekki orðið ofan á, og mun ég sætta mig við það svo langt sem það nær, en geri þessar aths. og vil láta það koma fram að ég er algerlega andvígur því fyrirkomulagi sem um getur í 2. gr. frv. Læt ég svo útrætt um það.

Ýmsar till. hafa komið hér fram varðandi þetta frv., m.a. frá hv. þm. Karvel Pálmasyni till. sem kemur fram á þskj. 330. Þessi till. ásamt mörgum fleiri hefur gefið hv. þm. tilefni til þess að skattyrðast hver út í annan og hin einstöku kjördæmi og landsmenn með hliðsjón af því hvaða hitunarkerfi þeir búa við. Þess hefur orðið vart í þessum umr. eins og því miður stundum áður, að reykvíkingar njóta ekki sannmælis þegar landsbyggðarmenn tjá sig um þessi mál, og forsjálni reykvíkinga og annarra þeirra, sem hafa komið sér upp hitaveitum, og fyrirhyggja er lögð út með þeim hætti að það liggur við að reykvíkingar þurfi að fyllast sektarkennd yfir því að búa við lægra hitagjald en aðrir landsmenn. Það hefur verið minnt á það hér af hv. þm. Ólafi G. Einarssyni, að reykvíkingar og aðrir þeir, sem búa við hitaveitu, kosta að sjálfsögðu þessa uppbyggingu og þessa veitu sjálfir. Stofnkostnað hafa þeir greitt sjálfir og staðið undir rekstrarkostnaði þessara fyrirtækja og hafa auðvitað þurft að leggja út sín gjöld á sínum tíma fyrir því.

Ég tel, að allur metingur milli kjördæma um þetta mál og reyndar önnur sé til óþurftar, og vil ekki fara að gera meira úr því en efni standa til. Ég get þó ekki orða bundist um þetta vegna þess að ég tel að það sé fullkomlega rétt hjá mér að fullyrða að reykvíkingar og fólk hér á þéttbýlissvæðinu hefur viljað jafna aðstöðu landsmanna með hliðsjón af því hvar þeir búa á landinu og hafa gert það af réttsýni og sanngirni, En allur málflutningur, sem er með þeim hætti að ýfa upp deilur á milli landsbyggðar og þéttbýlis, er til óþurftar og getur orðið til þess að reykvíkingar láti ekki bjóða sér slíkt til lengdar og telji að nóg sé af slíku komið. Ég minni á að Reykjavík, sem auðvitað nýtur margra hlunninda fram yfir aðrar byggðir landsins, hefur sinnt margvíslegri þjónustu fyrir landsbyggðina, og einmitt vegna mjög öflugs byggðarlags í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu hefur landsbyggðinni tekist að rétta hlut sinn og fengið fé til margvíslegra hluta sem bæta félagslega, menningarlega og efnahagslega aðstöðu fólks á viðkomandi stöðum.

Það er óþarfi að taka fram, að ég er andvígur till. hv. þm. Karvels Pálmasonar sem felur í sér að leggja skuli „20% aukagjald á gjaldskrá hitaveitna“, eins og segir í till., „og skal því á sama hátt varið til að draga úr áhrifum verðhækkunar olíu til hitunar íbúðarhúsnæðis“. Ég er í fyrsta lagi andvígur þessari till. vegna þess að ég er ekki hrifinn af slíkum sérsköttum eftir því hvar menn búa á landinu, auk þess er ég líka andvigur till. vegna þess að hún bætir ekki þennan vanda með varanlegum hætti. Ég þarf ekki að gera mikið veður út af till., því að ég geri ekki ráð fyrir að hún nái samþykki hér á hinu háa Alþ., en vil þó að þessi skoðun mín komi fram. Ég hygg að hún sé í samræmi við skoðanir flestra reykvíkinga, sem sé sú skoðun og sú stefna að það sé rétt að reyna að bæta aðstöðuna, ekki með því að vera sífellt að styrkja einstaka hluti, heldur að leggja til fé þannig að hægt sé að bæta úr ástandinu með varanlegum hætti. Ef á að leggja sérstök gjöld á það fólk sem býr á hitaveitusvæðum, þá finnst mér að það gjald og það fé eigi að renna til varanlegra framkvæmda, þannig að það verði hægt að koma á öðru hitunarkerfi en áframhaldandi olíukyndingu á hinum ýmsu stöðum úti á landi. Þess vegna hef ég viljað muna fremur og styð þá stefnu að meiri hl. þess fjár, sem er innheimt í framhaldi af þessu frv., verði varið til jarðhitarannsókna og hítaveituframkvæmda. Ef svo er ekki gert og einfaldlega innheimt þetta fé og greitt út í formi styrkja, þá slævir það áhuga fólks á því að breyta frá olíukyndingunni til annars fyrirkomulags og dregur úr þeim þrýstingi sem ella á að vera fyrir hendi um að breyta þar um.

Þessa skoðun vildi ég láta koma fram. Hún er miklu geðþekkari fyrir þá sem búa á hitaveitusvæðunum og fyrir þá sem þurfa nú eða síðar að greiða verðjöfnunargjald, orkuskatt eða hvað það er kallað. Ég efast um að fólk mundi til lengdar sætta sig við það að greiða slíkt verðjöfnunargjald ef það væri eingöngu til þess að greiða niður — í þessu tilfelli olíuna — án þess að nokkuð sé gert til þess að bæta aðstöðuna til frambúðar.