03.03.1975
Efri deild: 53. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2065 í B-deild Alþingistíðinda. (1642)

95. mál, vegalög

Oddur Ólafsson:

Herra forseti Ég get í stórum dráttum lýst mig samþykkan þeim brtt. sem hér eru komnar fram frá samgn. Mig langar aðeins að fara fáum orðum um sýsluvegaféð.

Það er ekki nokkur vafi á því, að það er rétt sem hér hefur komið fram, að þeir vegir, sem tilheyra sýsluvegum, eru afskiptir og þeir verða á ýmsan hátt afskiptir. Bæði er það með fjármagn í stórum stíl, sem þeir eru afskiptir, og í öðru lagi er eins og þeir vilji gjarnan sitja á hakanum með framkvæmdir. Það er Vegagerðin, sem á að sjá um framkvæmdir á sýsluvegum, og mér viðist, a. m. k. hér í mínu nágrenni, að það sé svo, að þegar allt annað sé búið, þá sé tekið til við að gera sýsluvegina. Þetta er ástand, sem er ekki nógu gott. Ég vil einnig taka það fram, að ég styð það, að það muni þurfa algera endurskoðun á þessum málum, ekki síst vegna þess að íbúar þéttbýliskjarna þurfa oft að tvígreiða þeir greiða í fyrsta lagi eins og aðrir íbúar landsins, þeir greiða með sinni bensínnotkun. þeir greiða afborganir lána sem ríkið stendur undir, en svo verða þeir líka að greiða fé til sýslusjóðs án þess þó að njóta þess síðar, því að þessir staðir hafa ekki sýsluvegi. Ég held því, að það sé full ástæða til þess að endurskoða þetta gagngert og að flestir þeir vegir, sem nú eru taldir sýsluvegir, verði landsbrautir. Þetta finnst mér eiga líka nokkra stoð í þeirri breyt., sem orðin er á okkar fjáröflun til vega, þar sem hún kemur fram að mestu leyti í bensíngjaldinu, sem auðvitað þeir sem búa í sýslunum greiða ekki síður en hinir, en þeir verða svo að auki að leggja á sig sérstakt gjald til þess að fá einhverja vegi lagða.

Ég viðurkenni að það geta verið miklir örðugleikar þar sem þjóðvegir liggja í gegnum þorp, og þessir örðugleikar eru tvenns konar: Í fyrsta lagi er þar sem gamall vegur í gegnum þorpið er nýttur sem þjóðvegur til næsta þorps eða áfram. Í öðru lagi þar sem þéttbýli myndast í kringum þjóðvegina. Því held ég, að jafnhliða því að séð væri fyrir því að íbúar þessara þorpa yrðu ekki allt of mikið fyrir ónæði frá keyrslunni um hraðbrautirnar, þá þyrfti líka að ganga frá því, þegar vegur er lagður utan við þorp, að tryggja að byggð myndist ekki þétt með honum á báða vegu, eins og hefur komið fyrir mjög oft og ekki bara við vegi, heldur einnig við flugvelli. Þetta hefur síðan orðið til þess að valda mjög miklum örðugleikum. Við höfum besta dæmið nú í okkar nágrenni, þar sem er nýi Keflavíkurvegurinn, þar sem ekki er sjáanlegt annað en að nú verði að flytja hann með mjög miklum kostnaði frá þeim stað þar sem hann var upphaflega ákveðinn og færa hann miklu sunnar. Þetta er atriði sem ég tel mjög ráðlegt að verði haft í huga, að Vegagerðin sjái til þess að á vissum svæðum umhverfis þjóðveg, þegar hann er færður úr stað, verði ekki byggt.

Ég vil leggja áherslu á það, að sýsluvegir eru nú í mjög slæmu ástandi víðast þar sem ég þekki og það er nauðsynlegt að stórauka fé til þeirra framkvæmda og helst að gera þar á gagngerða endurskoðun, hvort ekki sé hægt að flytja mest af þeim yfir í landsbrautirnar, þannig að þetta verði tekið úr einum og sama sjóði.