20.11.1974
Efri deild: 8. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í B-deild Alþingistíðinda. (165)
11. mál, launajöfnunarbætur
Ingi Tryggvason:
Herra forseti. Hv. 1. landsk. þm. beindi til mín nokkrum fsp. áðan og bætti því við að ég ætti gerst að vita svör við þeim.
Ég vil reyndar taka það fram að ég tel að ég eigi ekkert að vita það ger en hver annar því að þetta er ekkert annað en upplýsingar sem hvarvetna liggja frammi. Þessar upplýsingar er hægt að fá í framleiðsluráði landbúnaðarins og þær liggja þar á borðunum hverjum sem vill hirða til þjónustu og ef þeir hringja þangað og spyrja, þá fá þeir greið svör við öllum þessum spurningum. En það vill reyndar svo til, að ég get svarað sumum þessum spurningum hér án þess að hringja í framleiðsluráðið.
Það var spurt um framleiðslukostnað. Því miður get ég ekki upplýst það í einstökum atriðum vegna þess að það er ekki reiknaður út sérstaklega grunnframleiðslukostnaður við framleiðslu á smjöri og ostum. Þar er framleiðslukostnaðurinn miðaður við mjólkurlítra, og því miður hef ég það ekki hér við höndina, en þeirra upplýsinga er hægt að afla. Þá hef ég ekki hér við höndina upplýsingar sem sýna hversu mikið af nýmjólk fer í hvert kg af þessum vörum.
En það var spurt um kindakjöt. Kostnaðurinn við framleiðslu á 1. flokks kindakjöti, þ.e.a.s. kostnaðurinn til bóndans á 1. verðflokki dilkakjöts er 270.29 kr. á kg. Þetta er það verð sem bóndinn fær. Það verð, sem neytandinn greiðir fyrir þetta sama kjöt í heilum skrokkum, skipt eftir ósk kaupanda, er 238 kr. Við það bætist svo niðurgreiðsla ríkissjóðs sem er 153.20 kr. á kg. Sá mismunur, sem þarna kemur fram, — ég hef ekki reiknað þetta, — mismunurinn á 391 kr., sem mér sýnist vera óniðurgreitt verð á 1. flokks dilkakjöti nú í dag, og því verði, sem bóndinn fær fyrir 1 kg af sams konar kjöti, er sá kostnaður sem leggst á 1 kg við slátrun fjárins, frystingu kjöts, geymslu og sölu alla, bæði í heildsölu og smásölu. Þetta er dýrasta kindakjötið. — Ég veit ekki hvort menn vilja heyra alla upptalninguna, hún er nokkuð löng.
Þá getum við tekið nautakjöt. Það er einfaldast að taka þar líka dýrasta kjötið. Þó gefur það miklu skakkari mynd en það sem ég gaf áðan vegna þess að meginhluti af íslensku dilkakjöti fer í 1. verðflokk, en aftur á móti mjög lítill hluti af íslensku nautakjöti sem fer í 1. verðflokk. En verð á 1. verðflokki, sem kallaður er úrvalsflokkur af íslensku nautakjöti og gert er ráð fyrir að hver bóndi framleiði 30 kg af, skýringin á því er einfaldlega sú að það er mjög lítið framleitt af þessu kjöti, eins og ég sagði, og aðeins örfáir bændur sem framleiða það, en verð á þessu kjöti er til bóndans 273.87 kr. á kg. Þetta kjöt er alveg óniðurgreitt eins og allt nautakjöt og heildsöluverð á þessu kjöti nú er 337 kr. á kg, en í smásölu er frjáls verðlagning á þessu kjöti. Framleiðsluráð eða 6 manna n. verðleggur ekki nautgripakjöt í smásölu og hefur aldrei gert.
Það er kannske réttara að ég taki annað dæmi hérna, það sem kallað er 1. flokkur af alikálfakjöti. Það er miklu algengara kjöt, talsvert magn framleitt af því og það kjöt kostar í framleiðslu 221.31 kr. á kg og heildsöluverð þess í heilum og hálfum skrokkum er 272 kr. á kg.
Fyrir hvern mjólkurlítra, sem bændur framleiða, fá þeir nú 37.87 kr. Til neytenda kostar þessi mjólk komin í umbúðir í tveggja lítra fernum 56.70 kr. eða 28.35 kr. hver lítri. Til viðbótar þessu verði greiðir ríkissjóður þessa mjólk niður um 27.05 kr. lítrann. Þá sýnist mér, ef ég hef reiknað þetta rétt, að heildarverð mjólkurlítrans sé 55.40 kr. Verð það, sem bóndinn fær, er 37.87 kr. og mismunurinn er þá kostnaður við vinnslu og dreifingu mjólkurinnar.
Smjörverðið byggist á þessu grundvallarverði mjólkurinnar sem ég gat um. Ég hef ekki hér, eins og ég sagði áðan, hvað mikið þarf af mjólk til að framleiða hvert kg af smjöri eða 45% osti, og þess vegna verður ekki samanburðurinn þar eins. En smjörkg. kostar nú til neytenda, 1. flokks mjólkurbússmjör kostar í smásölu 386 kr. á kg. Við það bætist niðurgreiðsla ríkissjóðs, sem er 337 kr. á kg. Samtals sýnist mér þetta vera 763 kr., heildarverð á smjöri í smásölu. Ostur 45% kostar í smásölu 395 kr. kg. Til viðbótar þessu verði eru 90 kr. niðurgreiðsla úr ríkissjóði.
Þá held ég hafi, eftir því sem ég get, svarað þessum spurningum og vona að það sé sæmilega glöggt. En ef óskað er eftir nákvæmari upplýsingum, þá er auðvelt að fá þær.
Ég vil ljúka þessum orðum með því að minnast aðeins á það að hér voru tveir hv. þm. að stimpast örlítið á um uppmælingar. Ég ætla ekki að fara að gera uppmælingartaxta hér að sérstöku umræðuefni, en ég veit ekki til þess að neinn hafi gert tilraun til þess að reikna út t.d. hversu stór líður í okkar heildarþjóðarbúskap kostnaður við húsbyggingar er. Það er ekkert undarlegt að þetta sé stór liður. Ég ætla ekki að fara að deila hér sérstaklega á uppmælingar, en ég vil benda á það að bændur vinna í uppmælingarvinnu raunverulega. En við hvað er grunntaxti þessara uppmælinga miðaður? Hann er miðaður við það að meðalafköst gefi tímavinnukaup í lægstu vinnuflokkum í þjóðfélaginu, hjá verkamönnum, sjómönnum í tímavinnu og iðnaðarmönnum í tímavinnu. Þetta er sá grundvöllur, sem bændum er ætlað að vinna eftir, og meðalkaup þeirra hefur samt aldrei, því miður, náð þessu meðaltímavinnukaupi viðmiðunarstéttanna. Væri ekki hugsanlegt að það væri ástæða til að endurskoða þann grundvöll sem uppmælingartaxtarnir byggjast á? Er það víst að hann sé eins sanngjarn og sá grundvöllur sem uppmælingartaxti bændanna er byggður á?