04.03.1975
Sameinað þing: 45. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2102 í B-deild Alþingistíðinda. (1668)
320. mál, staðarval ríkisstofnana
Jón Skaftason:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin. Þau bera með sér að n. þessi hefur unnið talsvert undirbúningsstarf í sambandi við það verkefni sem henni var falið. En á hitt ber að líta, að nú eru nærri því 3 ár liðin frá því að þessi n. var skipuð, á tímum vinstri stjórnarinnar svokölluðu. Ef ég man rétt mun eitthvað hafa verið í málefnasamningi þeirrar stjórnar um að dreifa ríkisstofnunum meira um landið en verið hefur til þessa. Að sjálfsögðu skil ég það að n. þurfi nokkuð mikinn tíma til þess að athuga þetta flókna mál, og e. t. v. má afsaka þann langa drátt á því að hún skili áliti með eðli verkefnisins. Ég veit ekki hvort það er óviðurkvæmilegt að spyrja um það hvort hæstv. núv. ríkisstj. sé svipaðrar skoðunar og ég tel að ég muni rétt að hafi komið fram í málefnasamningi fyrrv. ríkisstj., að ástæða sé til að athuga um staðsetningu ýmissa opinberra stofnana og æskilegt sé, út frá þjóðfélagslegum hagsmunum, að dreifa þeim um landið meira en gert hefur verið til þessa.