04.03.1975
Sameinað þing: 45. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2103 í B-deild Alþingistíðinda. (1670)

139. mál, lánveitingar úr Byggðasjóði

Fyrirspyrjandi (Jón Skaftason):

Herra forseti. Á þskj. 261 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. forsrh. um lánveitingar úr Byggðasjóði. Fsp. er í tveim líðum sem hljóða þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„a. Hverjar voru heildarlánveitingar úr Byggðasjóði árin 1972, 1973 og 1974?

b. Hvernig skiptust þær á kjördæmi?“