04.03.1975
Sameinað þing: 45. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2104 í B-deild Alþingistíðinda. (1672)
139. mál, lánveitingar úr Byggðasjóði
Fyrirspyrjandi (Jón Skaftason) :
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. mjög vel fyrir þá skýrslu, sem hann hefur flutt um lánveitingar úr Byggðasjóði á árunum 1972, 1973 og 1974.
Ég reikna með því að fleiri alþm. en ég hafi orðið þess varir að nokkuð mikið umtal hefur verið manna á meðal, a. m. k. víða um land um lánveitingar úr þessum sjóði sem er tiltölulega fjársterkur og verður væntanlega fjársterkari í framtíðinni en hann er nú, og ekki sýnist öllum það sama um réttmæti lánveitinganna, þ. e. a. s. hvert þær hafa gengið. Ég tel því mikils virði að hið sanna um þessar lánveitingar komi í ljós og allur almenningur eigi þess kost að sjá umrædda skýrslu, sem hæstv. ráðh. las hér upp áðan, svo að hann geti sjálfur dæmt um á hvað miklum réttlætisgrundvelli þessar lánveitingar hafa verið framkvæmdar á undanförnum árum.
Ég er að vísu í þessum stól ekki í neinni aðstöðu til þess að fara í þetta í smáatriðum, en þó þarf ekki mjög kunnáttusaman mann, sem hefur þekkingu á starfsreglum stjórnar Byggðasjóðs, til þess að sjá að við þessar lánveitingar hefur að verulegu marki gætt kjördæmaáhrifa þeirra manna sem stjórnað hafa þessum sjóði, auk þess sem reglur sjóðsins í sumum atriðum eru þess eðlis að þær hljóta að leiða til svipaðrar niðurstöðu og hér er upplýst að hafi orðið um þessar lánveitingar.
Ég er þm. þess kjördæmis þar sem einna mest hefur verið talað um lánveitingar úr Byggðasjóði, og það hefur brunnið á mönnum þar að á því svæði landsins, sem e. t. v. hvað best hefur verið að gera út á undanförnum árum, hefur verið harðbannað eða svo til alveg bannað að lána nokkuð til endurnýjunar bátaflota suðurnesjamanna, þeirra gömlu og fræknu sjósóknara, með þeim afleiðingum að bátaflotinn á Suðurnesjum er nú sá elsti sem til er í landinu. Þetta hafa menn átt erfitt með að sætta sig við, og ég tel að svo mikil rök sé hægt að færa fyrir því, að breyting verði að verða á þessari stefnu hjá stjórn Byggðasjóðs, að um það þurfi ekki að fara löngu máli, enda hef ég fregnað að nú sé komin fram till. í stjórn Byggðasjóðs um að breyta til í þessum efnum. Fagna ég henni þó að hún sé nokkuð seint fram komin.
Það er ekki tími til þess að fara nákvæmlega út í þessi mál, eins og ég sagði, í fsp.- tíma.
En ég er þakklátur hæstv. ráðh. fyrir að gefa hv. Alþ. þessa skýrslu, og ég vænti þess að hún verði til þess að upplýsa ýmsar spurningar sem uppi hafa verið um þessi mál manna á meðal, svo að menn viti nú hið rétta og sanna í þessum efnum.