04.03.1975
Sameinað þing: 45. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2108 í B-deild Alþingistíðinda. (1678)
139. mál, lánveitingar úr Byggðasjóði
Ólafur G. Einarsson:
Herra forseti. Af svari hæstv. forsrh. við þessari fsp. verður náttúrlega ekki ráðið annað en það að Reykjaneskjördæmi hefur verið afskipt í lánveitingum Byggðasjóðs. Ég get ekki séð að það sé rétt, sem kom fram hjá hv. þm. Tómasi Árnasyni, að það þurfi að breyta lögum til þess að reglum um úthlutun lána úr Byggðasjóði verði breytt. 29. gr. í l. um Framkvæmdastofnun ríkisins, sem vitnað var hér til, bannar alls ekki að lánveitingar úr Byggðasjóði renni til Reykjaneskjördæmis eða Reykjavíkur. Hins vegar er það sérstæða ákvæði í lok gr. sem segir, að það eigi að taka tillit til þess að lífvænlegar byggðir fari ekki í eyði. Ég skil að vísu ekki það orðalag, að lífvænleg byggð geti farið í eyði. En það er rétt að það komi fram, að stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins hefur þegar breytt þessum reglum og hún gerir það einfaldlega vegna þess að menn sjá nú að það hefur ekki verið gætt réttlætis í úthlutun úr Byggðasjóði. Þar hefur hreinlega verið mismunað, eins og ég hef reyndar heyrt suma segja, að hafi verið tilgangurinn með stofnun Byggðasjóðs, það var að mismuna. En reglunum hefur verið breytt núna. Það hefur verið fallið frá þeirri reglu, sem fylgt hefur verið, að lána ekki á svæðið frá Þorlákshöfn til Akraness, þar eð lán til nýsmíði fiskiskipa nær til allra landshluta og eins lán til endurbóta á fiskiskipum. Þetta er breyting sem þegar hefur verið gerð og hún var sjálfsögð.