04.03.1975
Sameinað þing: 45. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2113 í B-deild Alþingistíðinda. (1687)
139. mál, lánveitingar úr Byggðasjóði
Gunnlaugur Finnsson:
Herra forseti. Það kom fram í ræðu hv. þm. Ólafs G. Einarssonar áðan að hann skildi ekki það orðalag í lögum um Byggðasjóð, að lífvænlegar byggðir gætu farið í eyði. Það er kannske vegna þess að hv. þm. hefur lítið ferðast um Vestfirðina, en þar man ég lífvænlegar byggðir sem nú þegar eru komnar í eyði. Og það er einmitt tilgangur sjóðsins að koma í veg fyrir það að byggðir, sem með vissum aðgerðum geta verið lífvænlegar, leggist í eyði, og það var einmitt vegna þess að það hafði verið sparað að gefa mjólkurkúnni sem hv. 2. þm. Reykn. minntist á hér í umr. áðan. Með þeirri stefnu sem Byggðasjóður hefur rekið hefur einmitt mjólkurkýrin verið grædd aftur. Og ég tel að ef sú stefna heldur ekki áfram og ef sú stefna hefði ekki verið uppi að veita þessu tiltölulega mest í þau héruð sem mest hafa átt í vök að verjast, þá hefðum við aðra þjóðfélagsmynd í dag heldur en þá sem við höfum núna. Ég tel að sú þjóðfélagsmynd og sú uppbygging, sem hefur orðið úti um land á liðnum árum, sé að verulegu leyti að þakka þeirri stefnu og þeim lánveitingum sem hafa farið fram í gegnum Byggðasjóð, og ég vænti þess að þeirri stefnu verði í meginatriðum haldið áfram.