04.03.1975
Sameinað þing: 46. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2121 í B-deild Alþingistíðinda. (1700)
135. mál, bifreiðatryggingar
Flm. (Benedikt Gröndal) :
Herra forseti. Ég vil þakka hv. síðasta ræðumanni fyrir það að hann er hlynntur því að þessi rannsókn fari fram, og ég vil lýsa ánægju minni yfir því að hann skuli hafa haft áhuga á þessu máli og sett sig jafnvel inn í það og hann virðist eftir ræðu hans þegar hafa gert.
Ég tók það fram í framsöguræðu minni, að við flm. hefðum vísvitandi aðeins stutta grg. og færum ekki djúpt í að lýsa þessum kerfum sem við viljum láta rannsaka. Ég tók fram að það væri fyrst og fremst af því að við litum á sjálfa okkur sem neytendur, en ekki sem sérfræðinga á þessu sviði. Hins vegar vil ég taka fram að þetta þýðir ekki að við höfum ekki reynt að afla okkur allítarlegra upplýsinga um þetta mál. Við höfum mikið af skýrslum og skjölum um það, sem við erum reiðubúnir að leggja fyrir þá n. sem fær málið til athugunar, ef hún kærir sig um. Við höfum haft samband við opinbera aðila í Washington, fengið þaðan bæði þskj. um málið, af því að það hefur verið fyrir öldungadeildinni, þar sem rætt er um hvort eigi að skylda öll ríkin til að taka upp eitthvert form af þessum tryggingum. Enn fremur höfum við fengið frá stofnun, sem fjallar um þessi mál, samanburð á því hvaða mismunur er á þessum nýju kerfum, í einum 8 eða 10 af þeim bandarísku fylkjum sem fyrst tóku þetta upp og hafa fengið af því nokkra reynslu.
Ég vil svara þeirri gagnrýni að það sé ókurteisi af okkur að geta þess að þessi nýju kerfi hafi reynst hafa í för með sér mun minni málaferli en áður tíðkuðust og lögfræðingar hafi því barist á móti þeim. E. t. v. er ókurteisi að selja þetta í grg. á Alþ. En ég vil taka fram að við höfum þetta beint upp úr víðfrægu amerísku fréttatímariti sem hefur milljóna eintaka útbreiðslu um allan heim, og þar er beinlínis tekið fram að sá hagsmunahópur, sem mest hefur barist gegn þessum kerfum, sé samtök lögfræðinga og sé áætlað að þeir tapi viðskiptum sem nemi 11/2 milljarði dollara á ári við að þessi kerfi séu tekin upp. Það kann að vera að við hefðum átt að geta heimildarinnar fyrir slíkri fullyrðingu, en ég leit ekki svo alvarlegum augum á þetta mál. Hins vegar finnst mér það geti varla verið ókurteisi að birta í grg. með lítilli þáltill. það sem er flutt sem staðreynd af fréttatímaritum í milljónum eintaka um alla veröldina.
Ég skal ekki segja, hvað veldur því að þessi kerfi hafa ekki verið tekin upp í Evrópulöndum, og játa að mér er það nokkur forvitni þó að ég hafi ekki haft tækifæri til að kynna mér það víða. Þess er að geta að það eru aðeins 5 ár síðan fyrstu kerfin voru tekin í notkun í takmörkuðum mæli í Norður-Ameríku, og þætti mér ekki ólíklegt að nágrannar okkar í Evrópu hinkruðu við og fylgdust vel með þessu og taki upp úr því ef þeir sjá þar eitthvað nýtilegt. Það er nákvæmlega þetta sem við höfum lagt til að gert yrði hér á landi.
Ég tók það fram í framsöguræðu minni, að okkur væri ljóst að aðstæður væru hér að mörgu leyti mjög ólíkar því sem er vestan hafs, en það kynnu engu að síður að vera einhver atriði og það e. t, v. veigamikil atriði sem gætu orðið til þess að gefa okkur hugmyndir er gætu endurbætt bifreiðatryggingakerfi okkar. En hvað sem segja má um bifreiðatryggingar hér á Íslandi — og ég vil ekki hallmæla þeim félögum eða mönnum, sem annast þá starfsemi, á nokkurn hátt — þá verður ekki neitað, að bifreiðaeigendur hér una ekki vel við sinn hag. Þeim finnst að hækkanir á bifreiðatryggingaiðgjöldunum hafi verið geigvænlega miklar og örar, og það er útbreitt að menn séu óánægðir með þá afgreiðslu sem þeir fá hjá tryggingafélögunum. E. t. v. eru uppgjör á bifreiðatjónum þannig að það verður aldrei hægt að gera alla ánægða. Ég hef m. a. rætt þessi mál við Félag ísl. bifreiðaeigenda og þar höfðu menn fram að færa margvíslegar kvartanir um hvernig þessum málum væri hagað hér á landi, svo að það er fyllsta ástæða til þess að sérfræðileg og um leið hlutlaus athugun geti farið fram á því hvort hægt er að gera endurbætur á þessu kerfi.
Okkur kemur ekki saman um hvort kerfin, sem reynd hafa verið í Kanada, eru vinsæl eða ekki. Ég skal taka hreinlega fram, að um það að Manitoba-kerfið sé vinsælt hef ég fyrst og fremst umsögn íslendings sem býr þar og sagði mér frá þessu í bréfum. Það kann vel að vera, að þó að hann hafi reynst vera hlynntur því, þá sé hann í minni hl. þar. Hitt er augljóst mál að kanadísku kerfin, a. m. k. þessi tvö í Manitoba og Saskatehewan, eru þess eðlis að bifreiðatryggingar hafa verið teknar af tryggingafélögunum og sameinaðar undir eitt opinbert félag. Sjáum við í hendi okkar að það mál eitt er nóg til að gera þau miklu umdeildari en ella væri. Bandaríkjamenn hafa eftir því sem ég best veit — nema Puerto Rico — haldið áfram svipuðu kerfi og við búum við, að láta tryggingarnar vera í höndum einkafyrirtækja eða samvinnufyrirtækja. Ef rannsókn sú, sem við förum fram á, verður gerð, þá gefst tækifæri til að reyna að skoða bæði þessi kerfi, kosti og galla á þeim.
Það kann að vera nokkuð til í því að sú frásögn, sem er í grg., geri málið einfaldara en ástæða er til. Ég hef þegar gert grein fyrir því, hvers vegna við fórum ekki út í ítarlegri grg., en þó höfum við mikið efni til þess sem við höfum viðað að okkur. Og ég vil gjarnan taka undir þau ummæli hv. síðasta ræðumanns, að menn mega ekki halda, þótt grg. sé stutt, að hér sé um einfalt mál að ræða. Þeir, sem einhver kynni hafa af þeim, vita að það getur sennilega ekkert verið einfalt í sambandi við bifreiðatryggingar, þetta er það flókið verkefni og þessi nýju kerfi eru líka flókin, enda gat ég þess, sem síðasti ræðumaður nefndi líka, að í Bandaríkjunum eru þau mismunandi eftir aðstæðum í hverju fylki, einnig eftir því hve almennum tryggingum, sjúkratryggingum og slysatryggingum og öðru slíku, er langt komið, Engu að síður er hér um að ræða mál sem hefur vakið gífurlega mikla athygli og auðvitað deilur líka eins og öll þýðingarmikil nýmæli.
Ég tel að það sé fyllsta ástæða til þess að við látum rannsaka það, fáum samanburð kunnugra manna á því, hvort íslendingar geta eitthvað af þessum nýjungum lært. Ef við getum það ekki, þá skulum við ekki vera feimin við að viðurkenna það. Ég skal verða fyrsti maður til þess ef sérfróðir menn sannfæra mig um það. En hugmynd okkar flm. er sú, að ef till. yrði samþ. mundi viðkomandi rn. fela einum manni að gera þetta, en ekki skipa heila n. á frumstigi. Fyrsta atriðið er að afla ítarlegra og nákvæmra upplýsinga og fá sérfróða menn, sem þekkja íslenskar tryggingaaðstæður vel og eru lærðir í tryggingamálum almennt, til að gera samanburð. Svo skulum við hlýða á hvað þeir hafa um þetta mál að segja.