05.03.1975
Neðri deild: 53. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2142 í B-deild Alþingistíðinda. (1714)

33. mál, samræmd vinnsla sjávarafla

Sverrir Hermannsson:

Virðulegi forseti. Það er mikið rétt sem fram kom hjá hv. 11. þm. Reykv., að það er sem mest undir því komið að athuga þetta mál með rósemi, en sú aths. er kannske fullseint fram komin. Mín afstaða til þessa máls hafði áður komið fram í umr. sem urðu um þetta mál, við fyrri hluta umr. fyrir jól, en þó fyrst og fremst við afgreiðslu þingflokks Sjálfstfl. á málinu á fyrstu dögum þingsins, í nóvemberbyrjun, þar sem þetta mál var lagt fyrir og samþ. af þingflokknum að flutt skyldi. Og þetta er ekki frv. hæstv. sjútvrh. eða hæstv. ríkisstj., heldur fyrst og fremst þingflokks Sjálfstfl. Það kom enda fram í ræðu hv. 2. þm. Norðurl. v. þegar hann var um þetta spurður, að hann gekkst undir það að svo mundi vera, en sagði sem rétt er, að menn hefðu auðvitað rétt á að endurskoða afstöðu sína. En ég get ekki tekið undir það með honum að það sýni málefnalegan bakfisk að breyta þannig afstöðu sinni. Sé mikill bakfiskur þarna, þá er hann a. m. k. laus í roðinu.

Ég kveð mér aðallega hljóðs af því að frsm. sjútvn. d. er sjúkur, en ég á sæti í n. og hef ásamt með 4 öðrum hv. nm. afgr. þetta mál frá n. með till. um að frv. verði samþ. með smávægilegum breyt. sem ekki skipta máli efnisins vegna, og vil þess vegna fara nokkrum orðum um þetta mál einnig nú.

Það hefur verið mikið rætt hér um frelsið og hv. 6. landsk. fór mörgum fjálgum orðum um það og vitnaði í samþykktir Sjálfstfl. í því efni. (GHG: Fyrrv. formann flokksins.) Já, ég á eftir að koma að fyrrv. formanni flokksins hér á eftir og vitna sérstaklega í hann, þar sem hann fór nokkuð hörðum höndum um frelsið þegar hann var ráðh. árið 1933. En að þessu kem ég síðar. Það, sem við erum oft og oftast kannske að gera á hinu háa Alþ., er að skerða þetta fullkomna athafnafrelsi, sem hv. 6. landsk. þm. var að krefjast okkur til handa, með alls kyns takmörkunum vegna þess að við viljum hafa þetta skipulagt þjóðfélag, en ekki skrælingja. Gamall kennari minn, Vernharður Þorsteinsson, var fjölfróður maður og sigldur, hafði m. a. verið fréttaritari danskra avisa í Frakklandi á sinni tíð, var við Verdun meðan hæst stóð í stönginni þar. Hann hélt því fram að hann mundi hafa hlustað á fegurstu ræðu sem flutt hefði verið. Hún var flutt yfir honum og tveimur drukknum dönskum rónum á Kaupmannahafnarstræti og ræðumaður var Jóhann Sigurjónsson skáld frá Laxamýri og ræða hans fjallaði um frelsið. Ég geri nú kannske ráð fyrir því að hans viðhorf til frelsisins hafi verið eitthvað ólíkt hv. 6. landsk. þm., enda ræðurnar sjálfsagt ólíkar. En þegar krafist er fullkomins athafnafrelsis og vitnað er í samþykktir Sjálfstfl., þá fór það a. m. k. fram hjá mér ef í þeim samþykktum hefði staðið eitthvað um að það ætti að vera svo fullkomið að okkur gæfist leyfi til þess að klóra augun hver úr öðrum.

Ég vil benda á það í framhaldi af þessu um takmarkanir á frelsinu, sem við erum stöðugt að gera til þess að hafa skipulag á hlutunum, að árið 1932 eru sett svofelld brbl. Ég held nú, að ég sleppi því að lesa innganginn að þeim, þegar Christian hinn Tíundi af guðs náð konungur Íslands og Danmerkur, Vinda og Gauta, hertogi í Slésvík, Holtsetalandi, Stórmæri, Þéttmerski, Láenborg og Aldinburg gerir kunnugt. En innihald þessara laga er svo hljóðandi, með leyfi virðulegs forseta:

„1. gr. Ráðh. er heimilt að skipa svo fyrir að á tímabilinu frá 1. jan. til 1. apríl 1933 megi ekki, nema með samþykki Sölusambands ísl. fiskframleiðenda, flytja eða selja til útlanda saltaðan fisk, hvort sem hann er verkaður eða óverkaður, ef hann hefur verið lagður á land eftir 1. jan. 1933.“

Svo eru sektarákvæði við þessu banni. Þessi lög gefur Ólafur Thors út. Þetta eru einkasölulög til handa Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda á útflutningi á saltfiski. Og af hverju skyldi hann hafa gefið þessi lög út? Af því, sem fram kemur í grg. fyrir þessu, að þá voru svo fjölmargir aðilar sem stunduðu atvinnuveginn að þeir voru að slátra hver öðrum, allir á hvínandi hausnum og þeir voru að kroppa augun hver úr öðrum og það varð að grípa til þessara ráða vegna þeirra ástæðna sem fyrir hendi voru. Það varð að grípa til skipulags í þessu efni.

Þegar við lítum á þær fjölþættu reglur sem gilda t. d. um nýtingu landhelginnar, fiskveiðilögsögunnar, þá er það auðvitað gríðarleg skerðing á athafnafrelsi manna. Má ég minna á það, að árið 1964 varð stórkostleg nótaveiði á Selvogsbanka og í kringum Vestmannaeyjar. Þar var veiddur í stórum stíl stórþorskur og mest allur óhrygndur. Fyrir þá, sem ekki eru því kunnugir, þá er þorskfiskur ekki botnhrygningarfiskur, heldur miðsjávar eða þar fyrir ofan eftir hitastigi og straumum. Og hann hefur þá náttúru að ganga í torfur þegar hann gengur á riðin. Þetta notfærðu sjómenn sér og útgerðarmenn og veiddu hann í stórum stíl í nót. Ég kom nokkrum sinnum — af því að ég stóð að útgerð þriggja báta þá á þessar veiðar — til Þorlákshafnar t. d. og sá hvar var verið að landa hundruðum tonna. Ég man eftir að í vélskipinu Ögra voru 99 tonn af þessum stórþorski, öllum óhrygndum. Menn kannske álíta að ég hefði átt að fagna þessari miklu veiði og þessari sjón sem þarna var að sjá. En því var öðruvísi farið. Og ég vænti þess að slíkt og þvílíkt þurfi ég ekki að horfa upp á oftar. Það var brugðið á það ráð að banna þessar veiðar og það var að mínum dómi rétt ákvörðun. En skerðing var þetta á athafnafrelsinu. Ég og þeir, sem að útvegi þessum stóðu, höfðum stofnað til stórkostlegrar fjárfestingar í nótum sem voru einskis nýtar eftir þetta. Hvar var SUS þá með samþykktir sínar að skora nú á stjórnvöld að vera ekki að beita okkur þessum þvingunum, af hverju fengum við ekki að græða áfram á þessu? Ég er að vísu ekki lögfræðingur, en við hv. 6. landsk. erum viðskiptafræðingar og viljum nú fá olnbogarými líka í Sjálfstfl. Engar samþykktir gerði SUS þegar ég og mínir bræður vorum rændir þessum möguleika og höfðum þénað vel og urðum að fleygja þessum veiðarfærum.

Ég er aðeins meira til gamans að rifja þetta upp, ekki af því að ég hefði átt von á því að SUS hlypi undir baggann né heldur að því yrði ansað í þessu, heldur aðeins til þess að benda á að í svo fjölmörgu þykir bera brýnustu nauðsyn til að setja á hvers lags hömlur, hvernig við nýtum okkar fiskstofna, hvernig við nýtum fiskveiðilögsöguna. Og þessum mönnum, sem mest tala um athafnafrelsið, er fullkunnugt um það að þeir hafa staðið að lagasetningu, mjög margbrotinni og þröngri að mörgu leyti, um nýtingu þessarar fiskveiðilögsögu til að varna því að ofveiði verði. Ég veit að það er alveg tilgangslaust þótt t. d. ég brygði á það ráð að mælast til þess við skipstjóra, sem eru á skipum sem ég kem nærri, að þeir krefjist fulls athafnafrelsis og fylgi því eftir með því að brjóta landhelgislöggjöfina. Ég á eftir að sjá það að SUS hlaupi upp til handa og fóta þá og samþykki að þessir menn skuli vera í friði látnir og athafnafrelsi fullt verði að vera, eins og fulltrúi einokunarhringsins, Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, var að tala um hér áðan.

Þegar við lítum á þetta sérstaka mál, þá hef ég ekki í hyggju að blanda Blönduósi sérstaklega inn í það. Samkv. þessu frv. á sjútvrn. að eignast heimild til þess að setja reglur um samræmingu veiða og vinnslu. Þetta frv. er ekki fyrst og fremst til þess að skerða athafnafrelsi, ekki frekar en frv. Ólafs Thors varð til þess þá á sínum tíma, heldur til þess að forða mönnum frá því að fara út í ófæru, að samkeppnin verði með þeim hætti að leiði til þess að enginn kemst af í atvinnugreininni, hvorki byggðarlög né einstaklingar. Til þess er þetta fyrst og fremst gert. Þegar við tölum um vinnsluna er að sínu leyti aðalmálið það, hvernig megi vernda þennan sjávarafla í kringum landið frá ofveiði. Aðalmálið er þetta. Það er augljóst mál og óhrekjandi: Verði mönnum gefinn kostur á því hömlulaust að reisa verksmiðjur á einhverju svæði, sér í lagi sem byggja á vinnslu sjávarafurða sem sóttar eru á afmarkað svæði, þá eykst sóknin á það, og Blönduósverksmiðjan sannar auðvitað þetta dæmi. Það er sótt svo fast í hráefnið að ekki er einu sinni skoðaður hugur um það að brjóta lög til þess. Stórkostleg fjárfesting á sér stað og óhjákvæmilega hlýtur það að auka sóknina í hráefnið — alveg óhjákvæmilega. Og við getum vel hugsað okkur það í næstu sveiflu upp á við í afurðaverði rækju, sem er sá stofn sem nú er í Húnaflóa helst, að menn brygðu á það ráð, einkaframtaksmenn t. d., að reisa verksmiðju á Borðeyri. Það er hægt að segja sem svo að hægt sé að banna þeim að fá hráefnið til vinnslu. En það er alveg þýðingarlaust að halda því fram að svo mundi ekki verða, enda höfum við skýrt dæmi um það nú á Blönduósi hvernig til tókst. Þeir áttu ekki að fá eftir ákvörðun yfirvalda leyfi til þess að fá rækju til vinnslu. Sú ákvörðun var brotin á bak aftur eins og hv. þm. allir vita.

Ég minni á það að því hefur verið haldið fram, að hér væri um eitthvert skref að ræða til þess að um eitthvert nýtt drottnunarvald ríkisins væri að tefla. Ég endurtek það, að vitanlega verður agi að vera á fjölmörgum sviðum ef við eigum að halda áfram að búa hér við skipulagt þjóðfélag. Við skerðum athafnafrelsið í ótal greinum og það er einn þáttur í því, teljum við okkur trú um, að skipuleggja þetta þjóðfélag á eðlilega og sem lýðræðislegastan máta líka.

Þegar sagt er að andstaða gegn þessu frv. þingflokks Sjálfstfl. sé prófsteinn á þm. Sjálfstfl. og stefnu þeirra í frjálsræðisátt, þá get ég ekki fallist á þá skoðun. Ég tel þvert á móti að hér sé um eðlilega aðgerð að ræða til verndar mjög mikilvægum sjávardýrum, nauðsynleg lög til þess að hægt verði að hafa hemil á því að sóknin stórvaxi með þeim afleiðingum sem augljósar eru. Ég vil enn fremur benda á það, að þessi sjávarafli er alger undirstaða þorpanna í Strandasýslu, Hólmavíkur og Drangsness, alger, og þetta er þegar orðinn mikilvægur þáttur í atvinnu á Hvammstanga og Skagaströnd.

Ég leyfi mér að fullyrða að ástæðurnar fyrir því, að brugðið var á það ráð að reisa rækjuverksmiðju á Blönduósi, hafi ekki verið upprunalega atvinnuspursmál, frumkvæðið að henni hafi komið af allt öðrum ástæðum úr allt annarri átt. Það er út af fyrir sig ekkert við því að segja og sjálfsagt mál að ungir framtaksmenn leiti á þau mið sem geta gefið þeim atvinnu og afrakstur. En það vill svo til að á þessu svæði er það ekki fyrir hendi. Það vill svo til, að ef á að verða hömlulaus uppbygging vinnslustöðva á þessu svæði, þá leiðir það óhjákvæmilega til þess að þessi stofn rækjunnar t. d. verður ofveiddur og þá verður hann engum að gagni. Ég bið menn að athuga það sérstaklega og líta á öll þau gífurlega þröngu takmörk sem við höfum neyðst til þess að setja okkar fiskveiðiflota — þau geysilega þröngu takmörk sem við höfum neyðst til að setja honum. Þetta er ekki í neinu frábrugðið því að öðru leyti en því, að við þurfum að setja undir lekann einnig í vinnslustöðvunum af því, sem augljóst er, að þær takmarkanir sem við ella mundum setja um sókn í fiskstofnana halda ekki nema þetta haldist í hendur hvort tveggja.