06.03.1975
Sameinað þing: 47. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2161 í B-deild Alþingistíðinda. (1723)

321. mál, bættar vetrarsamgöngur

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Á þskj. 261 eru tvær fsp. sem eru um mjög skyld efni og ég mun sennilega reyna að stytta grg. um seinni fsp. í svari mínu við þessari. En út af fsp. hv. 4. þm. Norðurl. e. vil ég gefa þessar upplýsingar, sem eru teknar saman af Vegagerð ríkisins.

Þál. um bættar vetrarsamgöngur í snjóþungum byggðarlögum frá 26. mars 1974 er tvíþætt. Fjallar fyrri hl. till. um að ríkisstj. skuli láta endurskoða gildandi reglur um snjóruðninga á vegum með það í huga að bæta vetrarsamgöngur í snjóþungum byggðarlögum, en síðari hl. till. fjallar um að láta kanna hagkvæmni þess að afla nýtískulegra tækja til snjómoksturs.

Varðandi fyrri lið till. skal þess getið, að till. um endurskoðun á snjómokstursreglum frá 1967 lágu fyrir snemma á s.l. ári. Í grg. með till. til þál. um vegáætlun fyrir árin 1974–1977, sem lögð var fram á Alþ. í apríl s. l., á bls. 42 í grg., er að því vikið að áætlaður kostnaður á árinu 1974 af hinum endurskoðuðu snjómokstursreglum muni nema 35 millj. kr. Vegáætlun fyrir 1974–1977 náði eigi að verða afgr. á Alþ. á s.l. ári, en í till. um endurskoðun vegáætlunar fyrir árin 1974–1977, sem lagðar verða fram á Alþ. innan skamms, er kostnaður við vetrarviðhald við það miðaður að endurskoðaðar snjómokstursreglur taki gildi á yfirstandandi ári. Er áætlað að kostnaður við vetrarviðhald á árinu 1975 muni aukast um 47 millj. kr. vegna endurskoðaðra snjómokstursreglna.

Varðandi síðari lið till. skal það upplýst, að Vegagerð ríkisins hefur um langt árabil haft mjög nána samvinnu við norsku vegagerðina um allt það er lýtur að bættri tækni við snjóruðning á vegum. Vísast í því sambandi til grg. Snæbjarnar Jónassonar forstöðumanns tæknideildar Vegagerðarinnar um tækjakost til snjómoksturs. Í niðurlagi grg. Snæbjarnar segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Af þeirri reynslu, sem fengist hefur hér á landi á undanförnum árum, bendir allt til þess að snjómokstur verði í æ ríkara mæli unninn af vegheflum og snjóblásurum, auk þess sem snjóplógar nýtast á vegum með bundnu slitlagi.“

Til fróðleiks skal þess getið, að í byrjun þessa mánaðar hafði Vegagerð ríkisins yfir að ráða eftirfarandi tækjum við snjómokstur: Vegheflar 52 stykki, jarðýtur 81 stykki, bílplógar 7 stykki, hjólaskóflur með tönn 3 stykki, blásarar 4 stykki. Alls 147 tæki. Enn fremur mun bætast við einn snjóblásari í þessum mánuði, sem pantaður var s. l. haust. — Ég vil taka það fram, að Vegagerðin á ekki þessi tæki öll þó að þau séu hér upp talin.

Að lokum skal þess getið, að Vegagerð ríkisins hefur sent mann á mjög stóra sýningu á vélum til vegagerðar og vegaviðhalds, sem haldin er í Chicago í Bandaríkjunum í þessum mánuði. Sýningar þessar eru haldnar á fimm ára fresti og eru þar sýndar nýjustu gerðir allra tækja við vegagerð og vegaviðhald. Var fulltrúa Vegagerðarinnar falið að kanna sérstaklega nýjustu tæki á þessari sýningu sem nota má við snjóruðning á vegum.

Í framhaldi af þessu vil ég leyfa mér að lesa hér upp skýrslu Snæbjarnar yfirverkfræðings, sem vikið er að og skýrir þetta mál allrækilega:

„Að undanförnu hefur orðið veruleg breyting á tækjakosti, sem notaður hefur verið við snjóruðning á þjóðvegum landsins. Fyrir um það bil tveim áratugum var snjómokstur ekki meiri en svo, að ekki þótti ástæða til að kaupa tæki sem sérstaklega voru til þess gerð. Með aukinni viðleitni til að halda uppi samgöngum á landi að vetrarlagi hefur þurft að taka tillit til snjómoksturs þegar keyptar hafa verið vinnuvélar til Vegagerðarinnar, þar sem vetrarviðhald hefur aukist mjög og er orðið verulegur þáttur í viðhaldi veganna.

Tæki þau sem hingað til hafa verið notuð við snjóruðning, eru:

1. Jarðýtur, sem löngum hafa verið uppistaðan í tækjakosti til snjóruðnings. Þegar færð fer verulega að þyngjast hafa þær þá ókosti helsta, að þær eru hægfara og dýrar í flutningi og skilja eftir sig miklar beðjur meðfram vegunum sem skeflir yfir þegar skefur á ný.

2. Vegheflar. Þáttur þeirra hefur farið mjög vaxandi, enda hefur verið tekið tillit til þess við endurnýjun með því að kaupa hefla með framdrifi sem henta vel til snjóruðnings. Vegagerðin á nú 16 slíka hefla, sem staðsettir eru með tilliti til ytra viðhalds.

3. Snjóplógar. Gerðar voru fyrir allmörgum árum ítarlegar tilraunir með snjóplóga, sem bornir voru framan á vörubifreiðum. Vegna brota, sem urðu á bifreiðum þegar plógar rákust í frosnar misfellur á veginum eða steina, varð að leggja þessar tilraunir á hilluna. Með tilkomu vega með bundnu slitlagi hefur notkun þeirra verið hafin aftur með mjög góðum árangri.

4. Snjóblásarar. Vegagerðin keypti fyrst snjóblásara árið 1969 og hefur síðan eignast 3 og á nú einn til viðbótar á leið til landsins. Það tók nokkurn tíma fyrir þá, sem stjórna snjómokstri að læra að nýta þá rétt, bæði vegna hefðbundinnar mokstursaðferðar með jarðýtum og heflum, vegna óheppilegra snjólaga og vegna þess hve hátt tímagjald varð að taka fyrir þá svo að þeir bæru sig. Í vetur hefur þó sannast að snjóblásarar eru afkastamestu tækin þegar snjór er mikill, auk þess sem þeir skilja ekki eftir garða við veginn sem fennir að. Snjóblásurunum má skipta í flokka á marga vegu. Hér verður þeim skipt í tvo eftir byggingarmætti:

a. Snjóblásari og ökutæki sambyggð. Slíkir blásarar eru dýrir bæði í innkaupi og rekstri, þar sem ökutæki nýtist ekki til annarra verka yfir sumartímann. Má til dæmis nefna að minnstu blásarar af þessari gerð kosta um 30 millj. kr. Þó er ekki nema 230 ha. aflvél við blásarann sjálfan.

b. Snjóblásarar sem byggðir eru þannig, að hjólskófla, dráttarvél eða bifreið getur borið þá. Þessir blásarar eru mun ódýrari í innkaupi og rekstri þar sem nýta má ökutækið, sem ber þá, til annarra verka á sumrin. Þeir snjóblásarar, sem Vegagerðin á, eru af þessari gerð og eru bornir af hjólaskóflum. Þeir eru norskir og hafa 350 ha. aflvél og kosta um 6.5 millj. kr. Blásarar af þessari gerð frá sama framleiðanda eru algengustu snjóblásarar á þjóðvegum í Noregi. Á árunum 1967 og 1968 lét norska vegagerðin byggja fjóra stærri blásara, með 500 ha. vél, en hefur ekki séð ástæðu til að byggja fleiri slíka. Má því segja, að við notum sömu tæki hér og í Noregi, nema hvað þau eru fá hér.

Af þeirri reynslu, sem fengist hefur hér á landi á undanförnum árum, bendir allt til þess að snjómokstur verði í æ ríkari mæli unninn af vegheflum og snjóblásurum, auk þess sem snjóplógar nýtast á vegum sem bundnir eru slitlagi. Mun því hlutur jarðýtnanna fara minnkandi eftir því sem annar vélakostur til snjóruðnings eykst.

Þetta vona ég að nægi sem svar við fsp. hv. þm.