06.03.1975
Sameinað þing: 47. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2175 í B-deild Alþingistíðinda. (1736)
323. mál, sjónvarpsmál á Austurlandi
Tómas Árnason:
Herra forseti. Það er ástæða til að þakka fyrir það að þessu máli er hreyft hér, vegna þess að sjónvarpsmál eru áreiðanlega eitt af stærri byggðamálum, sem um er að tefla, sérstaklega þegar litið er á hina félagslegu og menningarlegu hlið málanna úti á landsbyggðinni fremur en beinlínis atvinnustarfsemi og ýmislegt fleira í sambandi við það. En fyrirspyrjandi, hv. 2. þm. Austurl., sagði áðan að það þyrfti talsvert verulegar framkvæmdir til úrbóta. Ég er honum alveg sammála í þessu efni. Ég er að vísu ekki sérfróður í þessum málum, en ég er sannfærður um að það er talsvert átak, sem hlýtur að kosta verulegt fjármagn, að koma þessum málum í viðunandi horf. Og ég hef ekki trú á því, að málið sé svo einfalt, að það séu nógir peningar til, eins og nú standa sakir, til þess að kippa þessum málum í lag, þó að það kunni vel að vera satt og er sjálfsagt rétt, að þeir eyða talsvert í sjónvarpinu í ýmsa hluti sem um má deila.
En þegar núv. menntmrh. settist í stólinn, hverju tók hann þá við? Hann tók við 150 millj. kr. yfirdráttarskuld hjá útvarpinu við Landsbankann. Tekjumöguleikar sjónvarpsins og útvarpsins byggjast á þrennu: 1) aðflutningsgjöldum af sjónvörpum, 2) auglýsingum og 3) afnotagjöldum. Og afnotagjöldin eru kannske drýgsti þátturinn í þessu efni. Ég hygg, að hv. 2. þm. Austurl., sem var viðskrh. í 3 ár, hafi verið tregur, þegar til hans var leitað um að hækka afnotagjöldin og þar með tekjur sjónvarpsins, og þetta sé nú ein af ástæðunum fyrir því, að þessi mál eru í því ástandi sem þau eru nú, að það hafi ekki verið til fjármagn til þess að gera nauðsynlegar framkvæmdir, sem hv. 2. þm. Austurl. telur að séu verulegar, til þess að kippa þessum málum í lag. Það hygg ég að sé aðalástæðan. Fyrsta verkefni hæstv. menntmrh. er e. t. v. að kippa fjármálum Ríkisútvarpsins í lag og fylgja svo eftir með að gera nauðsynlegar og verulegar framkvæmdir í þessum málum, sem duga til þess að menn geti notið sæmilega sjónvarps um alla landsbyggð.