06.03.1975
Sameinað þing: 47. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2179 í B-deild Alþingistíðinda. (1741)

141. mál, innheimta afnotagjalda hljóðvarps og sjónvarps

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Út af þessari fyrirspurn vil ég fyrst minna á að það hefur vafist töluvert fyrir okkur að gera mun á mismunandi þjónustu, þar sem t. d. veðrin grípa inn í. Við höfum ekki treyst okkur til að mismuna byggðarlögum, eftir því hversu snjóþung þau eru, með þá skatta sem þau greiða til veganna eftir ýmsum leiðum t. d. Slík mismunun sem ég var talsmaður fyrir hér á hv. Alþ. ásamt mörgum fleiri varðandi sérstakt gjald af umferð um malbikaða vegi og steypta, þegar fram í sótti, fékk ekki hljómgrunn hér á Alþ. og menn féllu frá innheimtu veggjaldsins. Þar var þó um að ræða hlut sem var stöðugur og ekki háður veðrum. En samt sem áður þá treysti Alþ. sér ekki til að framfylgja aðgerðum sem gerðu mönnum að greiða misjafnt fyrir mismunandi góða þjónustu. En þá fyrst fer þetta að verða erfitt, þegar slíkt er háð veðráttunni.

Beint svar mitt við fyrirspurn hv. fyrirspyrjanda yrði eitthvað á þessa leið: Ríkisútvarpið íslenska hefur nú starfað nálægt 45 ár. Allan þann tíma hafa menn ekki treyst sér til þess að meta truflanir og ákveða afnotagjöld með tilliti til mismunandi mikilla truflana við móttöku útvarpsefnis. Ég verð að segja það, að ég treysti mér ekki til þess heldur. Miðað við þann skilning, sem ég hef á þessum efnum og möguleikum til að gefa afslátt í þessu sambandi, þá treysti ég mér ekki til að beita mér fyrir breyt. á þessu.

Hv. fyrirspyrjandi minntist á að hér væru gerðar vissar undantekningar og það er rétt. En þær eru ekki tengdar mismunandi miklum truflunum, heldur er gefinn afsláttur á sjónvarpsgjöldum í því tilviki þegar sjónvarp sést yfirleitt mjög illa eða jafnvel þannig að það sé talið fráleitt á það að horfa, þó að menn eigi tækið. Þetta er til í nokkrum tilvikum. En þá er afslátturinn ekki háður mismunandi miklum truflunum eins og víða á sér stað við móttöku sjónvarps og raunar einnig útvarpsefnis hér á landi.

Ég vil hins vegar árétta það, sem ég sagði hér áðan í umr. um fyrirspurnina hér á undan, að ég vil fyrir mitt leyti stuðla að því og gera allt sem mér er unnt til þess að greiða fyrir því að bæta hlustunarskilyrði og sjónvarpsskilyrði þannig að menn um allt land geti notið þessara nú sjálfsögðu lífsgæða svo lítt truflaðir sem auðið er.