06.03.1975
Sameinað þing: 48. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2197 í B-deild Alþingistíðinda. (1754)

67. mál, eignarráð þjóðarinnnar á landinu

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þessa till. að þessu sinni. Fyrir nokkrum árum, þegar hún var flutt, ræddi ég um hana úr þessum ræðustól og ég þarf ekki að endurtaka neitt af því sem ég sagði þá.

Þá fjallaði ég fyrst og fremst um það, hver ætti landið og hvaða tilhögun á eignarréttinum ég teldi farsælasta. Það, sem kemur mér til þess að taka til máls að þessu sinni um till., er í raun og veru aðeins tvennt sem kom fram í máli flm., hv. 2. landsk. þm., og það voru vangaveitur hans um það, á hvern hátt ætti að tryggja þéttbýlisfólki aðgang að landinu, og í öðru lagi sú fullyrðing hans, að í eignarlöndum væru uppi skilti sem bönnuðu vegfarendum eitt og annað, umferð með skotvopn og annað því líkt.

Ég verð þó að segja, áður en ég sný mér að þessum tveimur þáttum, að ég sé ekki, að eins og þessi till. er upp byggð geri hún ráð fyrir í raun og veru neinum breytingum frá því sem er um eignarráðin, því að eins og kom fram í máli hv. þm. Pálma Jónssonar áðan, þá er gert ráð fyrir því að það sé kölluð alþjóðareign ef sveitarfélag á land og ríkið, því að það mun rétt vera, þau eiga megnið af hinu óbyggða landi, þó að ein og ein bújörð sé talin ná inn á hið óbyggilega land. „En bújarðir verði í eigu bænda þegar þeir kjósa þann hátt,“ segir hér, svo að mér er ekki alveg ljóst til hvers þessi till. er flutt, ef þetta er efni till., nema það komi þá í ljós, sem lítilsháttar var ýjað að áðan, að í síðari hlutanum væri verið að gera ráð fyrir allt öðru en í fyrri hlutanum. En mig langaði aðeins til að koma nánar að þessu með þéttbýlisfólkið og aðganginn að landinu.

Í grg. með till. er sagt svo: „Hinn landlausi meiri hluti þjóðarinnar, sem í þéttbýli býr, hefur mikilla hagsmuna að gæta. Á þetta minna sífelldar auglýsingar í haust á banni við rjúpnaveiðum á stórum svæðum landsins.“ Eins og kom fram í máli hv. 3. þm. Norðurl. v. er í raun og veru ekkert undarlegt þótt þeir, sem hafa not af rjúpnaveiðilöndum, vilji vita af því þegar skotmaður er á ferð og óski þess vegna eftir því að menn, sem ætla sér til rjúpnaveiða, fari ekki um löndin til þess að skjóta rjúpur nema þeir biðji um leyfi. Það er ekki óskað eftir því að menn biðji um leyfi til þess að neita þeim, heldur til þess að vita um það að menn eru á ferð með skotvopn, til þess að þeir eyðileggi ekki bæði búfénað og mannfólkið, sem allt getur komið fyrir eins og menn hafa farið kæruleysislega með þessi áhöld. Ég hef af því reynslu heima á minni jörð, að þar er mikið sótt eftir því að skjóta grágæs þegar veiðitíminn er, og ég fer hiklaust til og aðvara þá menn sem koma með byssur, ef þeir hafa ekki komið heim á bæinn og beðið um leyfi. Þá er farið að athuga hverjir þar eru á ferð. En ég man ekki til þess, að ég hafi nokkurn tíma neitað manni um leyfi til þess að skjóta gæsir, nema ég hef mátt til að aðvara þá þegar á sömu svæðum hefur verið svo þétt af sauðfé að það hefur ekki verið hættandi á að skjóta á þeim landssvæðum. Það eru þess vegna engin undur þó að þessi bönn eða þessar auglýsingar um veiðibann séu settar fram. Þær eru, eins og ég segi, ekki settar fram í því skyni að það skuli alls ekki vera stundað að neinu leyti, heldur einungis til þess að maður geti haft veður af því þegar slíkir skotmenn eru á ferð.

Ég vil benda á það, að þegar hefur verið gert nokkuð að því að tryggja fólki aðgang að landinu. Það má minna á þjóðgarða og fólkvanga sem þegar hafa verið settir upp. Ég þarf ekki að fara að telja þá upp. En hér í næsta nágrenninu hafa nokkur sveitarfélög, sem eiga sameiginlegt land hér uppi í heiðinni, bundist samtökum um að koma upp fólkvangi til þess að fólk hefði þar land að ferðast um. Það er þetta sem ég held að fari mjög í vöxt, vegna þess að fólkið sem býr í landinu, dreifbýlinu, og á landið, finnur það ekki síður en þeir, sem eru inni í þéttbýlissvæðunum, hvers virði það er að geta gengið um og komist í snertingu við náttúruna. Ég kvíði því þess vegna ekki að til þess að fólkið geti notið landsins þurfi að breyta um eignarráð á því.

Hv. flm. sagði áðan, að í eignarlöndum væru uppi skilti sem bönnuðu vegfarendum hvaðeina. Ég verð að segja það, að ég kannast ekki við að hafa orðið þessa var. Það eru að vísu til eignarlönd sem ég sé að eru afgirt og þar stendur á hliðinu: „Einkavegur. Óviðkomandi bannaður aðgangur.“ Og svo er hengilás. En það eru ekki bændur sem hafa gengið svona frá. Það eru þeir sem hafa fengið sér sumarbústaðaland úti í dreifbýlinu, sem hafa þóst þurfa að hafa þessa aðferð til þess að vernda eign sína. Ég held að þetta sé óheppilegt og við þyrftum að hafa önnur ráð til þess að varðveita eignir okkar heldur en þær sem þarna er lýst. En ég vísa því á bug, að það sé algengt í eignarlöndum manna að setja upp bönn með skiltum svo að vegfarendur komist ekki um löndin. Hins vegar verður því ekki á móti mælt, að á þeim stöðum, sem ríkið hefur tekið til sinna afskipta í þjóðgörðum og skógræktarlöndum og fólkvöngum, þar hafa umráðamenn þessara staða neyðst til að setja upp skilti til þess að segja fólki til um það hvað því er leyfilegt og hvað ekki, svo að ég er alveg sannfærður um að þó að allt land yrði eign ríkisins, þá mundi ekki fækka þeim skiltum sem tilkynntu bann við einu og öðru, þeim mundi stórfjölga.

Ég ætla ekki að lengja umr. meir en þetta um málið að þessu sinni. Ég vildi gjarnan, að afgreiðslu þess yrði hagað svo að þessu sinni að maður fengi tækifæri til að taka það betur til meðferðar við framhaldsumr.