20.11.1974
Neðri deild: 9. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í B-deild Alþingistíðinda. (177)

15. mál, happdrættislán ríkissjóðs vegna Norðurvegar og Austurvegar

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þetta mál var dálítið rætt á síðasta þingi. Ég tók þá þátt í umr. um þær hugmyndir sem felast í þessu frv. og vil láta koma fram hér við 1. umr. þessa máls að ég hef alveg óbreytta skoðun í þessu efni. Ég tel rétt að beita áfram þeirri aðferð við öflun lánsfjár til vegagerðar, sem frv. fjallar um. Mér finnst stundum gæta svolítils misskilnings þegar talað er fyrir þessari fjáröflunaraðferð. Menn hljóta auðvitað að gera sér grein fyrir því að hér er aðeins um lánsfé að ræða og raunveruleg fjáröflun til þess að standa endanlega undir kostnaðinum verður því miður að koma annars staðar.

Nú hefur sú breyting á orðið frá því í fyrra að samþ. hafa verið sérstök lög um fjáröflun Vegasjóðs og í þeim l. er að finna heimildarákvæði um fjáröflun til Vegasjóðs með happdrættisaðferðinni. Ég var meðmæltur þessu ákvæði í frv. því sem lagt var fyrir síðasta reglulegt Alþ. Lögin voru aftur afgreidd á sumarþinginu. Ég flutti þá brtt. um að taka inn í frv. ákveðin fyrirmæli um það að ákvarða skyldi í vegáætlun hverju sinni til hvers lánsfénu yrði varið í næsta áfanga. Þetta var ekki sett inn í l. eins og þau voru afgr. á sumarþinginu. Í sjálfu sér skiptir það ekki neinu meginmáli, því að það geta menn eftir sem áður, skilst mér, sett inn í vegáætlun þegar hún er afgr. hverju sinni.

Meginhugsun mín í þessu sambandi er í fyrsta lagi að það verði ekki sett lög um sérstakar fjáraflanir til einstakra vegaparta, eins og gert er ráð fyrir með þessu frv., heldur verði notuð þau heildarákvæði sem nú eru í vegalögum en á hinu leitinu verði ákveðið markað í vegáætlun á tveggja ára fresti, til hvaða framkvæmda happdrættisfénu skuli varið. Ég álít það hafi töluvert áróðursgildi og sé líka til þess að örva sölu happdrættisbréfanna að væntanlegir kaupendur viti alveg ákveðið til hvers fénu er ætlað að ganga.

Ég get tekið undir það, sem hér hefur verið sagt, að mér finnst eðlilegt að þessu fé, sem kynni að vera aflað í framhaldi af happdrætti Skeiðarársandsvega og happdrættinu vegna Vestfjarðavegarins, verði varið til hringvegarins svokallaða. Ég er því alveg sammála og ég tel eðlilegt að menn hugi nú jöfnum höndum að því að ljúka þeim köflum, sem algerlega eru óuppbyggðir á suðaustursvæðinu, og að samhliða verði hafist handa með myndarskap við að byggja upp leiðina Reykjavík–Akureyri.

Mér fannst rétt vegna þess, sem ég áður hef sagt í sambandi við þessi mál, að láta þessa afstöðu koma fram við 1. umr. málsins.