10.03.1975
Efri deild: 55. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2222 í B-deild Alþingistíðinda. (1776)

Umræður utan dagskrár

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Aðeins örstutt aths. Orð mín hafa e. t. v. misskilist svo að ég teldi að Náttúruverndarráð hafi ekki haldið vel á þessu máli. Það er rangt. Náttúruverndarráð hefur fjallað um þetta mál á a. m. k. tveimur eða þremur fundum og hefur látið frá sér fara álit. Ég sagði aðeins að það sá af einhverjum ástæðum ekki ástæðu til þess að láta fara fram þá líffræðilegu athugun sem hér hefur verið rætt um og ég er raunar því sammála í þessu tilfelli. Ég hef kynnt mér eins og ég hef frekast getað — og ég held að það sé nokkuð ítarlega — öll gögn varðandi áhrif slíkrar verksmiðju á lífríki. Ég hef sannfærst um að þessi áhrif eru ákaflega lítil og raunar hverfandi eins og ég mun ræða í framsöguræðu fyrir áliti meiri hl. n. Meðlimir Náttúruverndarráðs höfðu einnig aðgang að þessum upplýsingum og hafa að sjálfsögðu — ég efast ekki um það — byggt sinn úrskurð á slíku.

Þetta vil ég aðeins að komi hér fram. Ég vil hins vegar ítreka það sem ég sagði áðan, að ég tel að þessar opinberu stofnanir hafi allar sinnt þessu máli mjög vel.