10.03.1975
Efri deild: 55. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2222 í B-deild Alþingistíðinda. (1777)

Umræður utan dagskrár

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Það er alveg rétt, það liggur fyrir í grg. með frv., sem við fjöllum nú um, staðfest af iðnn. Nd., staðfest trú þeirra nm. í viðræðunefnd um orkufrekan iðnað á því að hér sé ekki um hættulegan rekstur að ræða. Það segir á 17. bls. hérna í grg.:

„Frá upphafi viðræðnanna hefur verið lögð rík áhersla á að mengun frá verksmiðjunni yrði í algeru lágmarki,“ þ. e. viðræðunum við Union Carbide. „Hefur því ætið verið heitið og er ljóst, að hugur fylgir þar máli.“

Þar kemur líka þessi fullyrðing um mengunina frá verksmiðjunni að reykurinn, sem út sleppi, sé hættulaus dýrum og gróðri. Við fórum aftur á móti fram á það og ég hef farið fram á það að líffræðistofnun Háskólans verði falið að í fjalla um þetta mál, gefinn tími til þess að fjalla um þetta mál, kynna sér gögn sem fyrir liggja hér í landinu um þetta mál, m. a. þau gögn sem hv. þm. Steingrímur Hermannsson, formaður iðnn. Ed. hefur fjallað um og kynnt sér sem verkfræðingur, en ekki líffræðingur. Ég vil að líffræðistofnun Háskóla Íslands fái þessi gögn í hendurnar og þann tíma sem til þarf að kynna sér þau og athuga þetta mál og fella sinn úrskurð um það, hvort nokkur hætta stafi af verksmiðju þessari, skila því áliti til iðnn. Ed. svo að hún geti dregið ályktanir af einhverju öðru en fullyrðingum og trú hv. þm. Steingríms Hermannssonar. Ég tek það fram enn einu sinni, ég hef gert það áður í þessari hv. d., að ég efast ekki um góðan vilja hans, ég hef fullkomna ástæðu til þess að trúa á góðan vilja hans í þessu máli. En ég vil samt óska þess að við fáum fyrir utan hans góða vilja álit líffræðistofnunar Háskóla Íslands á því hvort lífríki Hvalfjarðar er stefnt í hættu með tilkomu þessarar verksmiðju. Ég hef hér með höndum, herra forseti, gögn upp á heiðarleika Union Carbide í upplýsingum, gögn varðandi það, hversu trúverðugir bæklingarnir frá Union Carbide eru um það hversu gott það fyrirtæki er í mengunarmálum. Ég hef líka í höndunum plagg frá forstöðumanni eiturefnanefndar upp á það hversu ítarlega heilbrigðismálastofnunin hefur fjallað um þessi mál og hversu mikið er að leggja upp úr áliti þeirrar stofnunar varðandi mengunarhættuna af þessari verksmiðju.

Ég hef hér í höndunum bréf frá forstöðumanni eiturefnanefndar þar sem hann segist alls ekki hafa fengið þau gögn eða þann tíma sem þarf til þess að fjalla um þetta mál, þótt leitað verði álits n. frá Heilbrigðiseftirlitinu og þó að forstöðumaður Heilbrigðiseftirlitsins notaði síðan svarbréfið, sem hér um ræðir, sem sönnun þess eða vísbendingu um það, að eiturefnanefnd styddi það álit Heilbrigðiseftirlitsins að ekkert væri við þessa fyrirhuguðu verksmiðju að athuga. Þau gögn munu koma til umr. þegar við ræðum nál. En ég ítreka það að engin sú stofnun, sem fjallað hefur um þetta mál að beiðni iðnn. Ed., hefur skilað okkur neinum þeim gögnum í hendur sem afsaki bað að við leitum ekki til líffræðistofnunar Háskólans um athugun og álit á þessu máli. Ég ítreka það.

Ég vil beina því til hæstv. iðnrh. að það, sem hér um ræðir af minni hálfu, er ósk um frest, helst nógu langan til þess að hægt sé að gera athuganir á lífríki Hvalfjarðar, annars stigs athuganir á lífríki Hvalfjarðar og athuganir á hugsanlegum áhrifum á búsetuform í landinu af völdum þessa fyrirtækis. Til vara fer ég fram á frest, sem nægi til þess að hægt sé að fá álit líffræðistofnunar í fyrsta stigs athugun, þ. e. a. s. fram á 5 vikna frest, að því tilskildu að líffræðistofnun vilji nota hann til þess að fara í gegnum prentaðar heimildir og skila iðnn. áliti sínu og þá einnig um hvort þessi fyrsta stigs athugun kunni að nægja ein saman til þess að stofnunin geti sagt til um það hvort hér sé hætta á ferðum eða ekki. Og í þriðja lagi — til vara — fer ég fram á frest til þess að athuga skýrsluna frá Þjóðhagsstofnun ítarlega, áður en mér er gert að semja nál., og til þess að fá svör við spurningum sem ég bar fram á fundinum í morgun í sambandi við þetta plagg Þjóðhagsstofnunar.