11.03.1975
Sameinað þing: 49. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2269 í B-deild Alþingistíðinda. (1827)
327. mál, vetrarvegur um Breiðdalsheiði og tenging Djúpvegar við þjóðvegakerfi landsins
Fyrirspyrjandi (Sigurlaug Bjarnadóttir):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera hér fram á þskj. 287 fsp. til hæstv. heilbrrh. um framkvæmd ákveðinnar greinar heilbrigðislaga. Fsp. er í 4 liðum og hljóðar þannig:
„1. Hvað líður gerð áætlunar þeirrar, sem gert er ráð fyrir í 42. gr. l. nr. 56 frá 1973, um heilbrigðisþjónustu, að heilbrrn. geri í samráði við vegamálastjóra, landhelgisgæslu, flugmálastjóra og landlækni um hvernig best og öruggast verði séð um að læknar komist frá heilsugæslustöðvum til móttökustaða innan starfssvæðis, svo og um almennt sjúkraflug og neyðarþjónustu?
2. Hefur rn. leitað samninga við flugfélög um slíkar ferðir eða gerst aðili að rekstri flugvélar eða þyrlu til þessara nota?
3. Hefur rn. í samráði við póst- og símamálastjórn, þegar hafið eða undirbúið áætlun um fjarskipta- og símaþjónustu í héruðum landsins, svo að tryggt sé að landsmenn geti náð til læknis án tafar?“
Síðasti liður fsp. nær út fyrir tilvitnaða lagagr., ég spyr: „Hve mikið vantar í dag upp á tilskilinn læknafjölda, samkv. tilvitnuðum lögum, í heilsugæsluumdæmum landsins?“
42, gr. heilbrigðislaga, sem er efnislega svo til shlj. þremur fyrstu liðum fsp. minnar, er athyglisverð og greinilega er hún samin af skilningi á þeim erfiðleikum sem afskekktar byggðir á Íslandi eiga enn í dag við að búa hvað varðar almenna læknisþjónustu. Væri henni framfylgt, svo sem lögin gera ráð fyrir, þyrftum við ekki að vera mjög áhyggjufull yfir því að neyðarástand geti skapast hvenær sem er í læknislausum héruðum sem eru tímum saman einangruð að vetrinum vegna samgönguerfiðleika? En bæði er að þessi lög eru það ný að ekki er von að öll ákvæði þeirra séu komin til framkvæmda, og í annan stað mun framkvæmd þeirra alfarið kosta feiknalega fjármuni. Ég vil þó álíta að umrædd 42. gr. kosti, alla vega á fyrsta stigi málsins, fyrst og fremst könnunar- og skipulagningarstarf og það er fyrst og fremst það sem vakir fyrir mér með þessari fsp., að þessi öryggisþáttur heilbrigðisþjónustunnar sé nú þegar tekinn til gaumgæfilegrar og skipulegrar athugunar svo sem lögin gera á mjög svo skilmerkilegan hátt ráð fyrir.
Á undanförnum þingum og einnig á því þingi sem nú situr hafa komið fram fleiri og færri till. frá einstökum þm. um nauðsynlegar úrbætur á þessu sviði. Ég nefni þar till. frá Helga F. Seljan og Karvel Pálmasyni um kaup á þyrlum sem staðsettar yrðu á Austurlandi og Vestfjörðum til slysa- og neyðarþjónustu og till. frá Gunnlaugi Finnssyni o. fl. um öryggisþjónustu Landssímans. Báðar þessar till. falla beint undir tilvitnaða lagagr. sem fsp. mín er byggð á. Eðlilegt virðist og sjálfsagt að leitað sé skipulegrar samvinnu bæði við Flugfélag Íslands og einkafélög, sem halda uppi almennu farþega- og póstflugl. og þeim veitt jafnvel allriflegur fjárstyrkur, fremur en að efna til kaupa og rekstrar á sérstökum sjúkraflugvélum sem yrði vafalaust feikikostnaðarsamt og lítið hagkvæmt vegna stopullar nýtingar. Ég vil þó alls ekki gera lítið úr þeim möguleika, en sýnist hann fjær undan en önnur úrræði sem til greina koma nú með minni kostnaði og minni undirbúningi. Snjóbílar til vetrarferða hafa þegar sannað ágæti sitt víða um landið, ekki hvað síst með tilliti til læknisþjónustu, og þyrfti að athuga nánar möguleika á því sviði með aukið öryggi fyrir augum. Það fer auðvitað ekkert á milli mála, að öruggar og góðar samgöngur eru forsenda þess að hægt sé að halda uppi sæmilega öruggri læknisþjónustu úti um byggðir landsins.
Að því er varðar hlut Landssímans í þessum málum, þá er mér kunnugt um að forráðamenn hans viðurkenna þörf aukinnar öryggisþjónustu og eru reiðubúnir til aðgerða í þá átt í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld og símnotendur sjálfa. Stytting á almennum afgreiðslutíma ýmissa símstöðva s. l. sumar úti um land miðar þó engan veginn í þessa átt, enda hefur sú ráðstöfun verið gagnrýnd harðlega. Ég komst að rann um það í samtali við landlækni nú fyrir skömmu að varðandi símaþjónustuna mun þegar alllengi hafa verið í gildi heimild og ákvörðun um ákveðna öryggisþjónustu úti um byggðir landsins, en hefur farið það lágt að fólki er alls ekki kunnugt um hana. Vænti ég að svar hæstv. ráðh. upplýsi frekar þetta atriði.
Í síðasta lið fsp. minnar er spurt hve mikið vanti í dag upp á tilskilinn læknafjölda samkv. tilvitnuðum lögum í heilsugæsluumdæmum landsins. Kunnugt er að mjög hefur fjölgað í íslenskri læknastétt nú á síðustu árum. Samkv. nýlegri grein skrifaðri af landlækni í Læknablaðinu íslenska er nú fjöldi starfandi lækna á Íslandi með lækningaleyfi, auk kandídata, einn læknir fyrir hverja 600 íbúa, eða fleiri en í flestum nágrannalöndum okkar öðrum en Danmörku. En almennum læknum hefur fækkað hlutfallslega úr 77% í 35.5% á árunum 1941–1971. 64.7% allra lækna á Íslandi eru sérfræðingar. Í Reykjavik var í árslok 1972 einn læknir fyrir 371 íbúa, en í dreifbýli, þ. e. miðað við svæði með íbúafjölda minni en 4 000, einn læknir fyrir hverja 1 335 íbúa. Á tímabilinu 1968–1972 fjölgaði læknum með lækningaleyfi um 50, en öll sú aukning er á Reykjavíkursvæðinu. Misræmið er hér augljóst.
Það er óvefengjanleg og ofureðlileg staðreynd, að ástand í læknamálum á hverjum stað ræður mjög miklu um það hvort fólk vill búa þar eða ekki. Því hljótum við að leggja áherslu á og krefjast þess að framfylgt verði ákvæði í hinum nýju lögum um heilbrigðisþjónustu í þá átt að þeir landshlutar, sem verst eru settir á þessu sviði skuli njóta forgangs um nauðsynlegar úrbætur.