11.03.1975
Sameinað þing: 49. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2271 í B-deild Alþingistíðinda. (1828)

327. mál, vetrarvegur um Breiðdalsheiði og tenging Djúpvegar við þjóðvegakerfi landsins

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Lög um heilbrigðisþjónustu, sem tóku gildi 1. jan. 1974, gera ráð fyrir mjög víðtækum breytingum á heilbrigðisþjónustu landsmanna, og allir, sem að þeirri lagasetningu stóðu, voru sér meðvitandi um að mörg ár mundi taka að koma öllum ákvæðum l. í framkvæmd.

Af hálfu heilbr.- og trmrn. hefur verið unnið að því, að ákvæði l. um heilsugæslu gætu komið til framkvæmda sem allra fyrst við þær aðstæður sem fyrir hendi eru, og lögð megináhersla á að auka starfslið í heilbrigðisþjónustu utan Reykjavíkur og bæta aðstöðu til lækninga með bættum tækjabúnaði og aðstöðu. Til hliðsjónar við þetta starf var á árinu 1974 höfð könnun, sem gerð var á vegum landlæknis og heilbrmrn. á aðstöðu starfandi lækna utan Reykjavíkur, svo og till. Læknafélags Íslands um nauðsynlegan tækjabúnað við heilsugæslustörf. Í byrjun ársins tóku gildi tvær reglugerðir samkv. l., annars vegar reglugerð um landlækni og landlæknisembættið og hins vegar reglugerð um starfsmannaráð sjúkrahúsa. Samkv. þessari reglugerð er það hlutverk landlæknis að leitast við að fá lækna til að gegna störfum á þeim stöðum, þar sem erfitt hefur reynst að halda uppi læknisþjónustu, vera til ráðuneytis um það, hvernig best og öruggast verði séð um að læknar komist frá heilsugæslustöðvum til móttökustöðva innan starfssvæðis og um almennt sjúkraflug og neyðarþjónustu.

Í sambandi við áætlun þá, sem gert er ráð fyrir að rn, geri samkv. 42. gr. í samráði við samgrn. og dóms- og kirkjumrn. og landlækni um hvernig best og öruggast verði séð um að læknar komist frá heilsugæslustöðvum til móttökustaða innan starfssvæðis og um almennt sjúkraflug og neyðarþjónustu og þá áætlun um fjarskipta- og símaþjónustu sem gert er ráð fyrir að rn. geri í samráði við samgrn., þá óskaði heilbrrn. eftir því með bréfi til dómsmrn. annars vegar og samgrn. hins vegar í byrjun s. l. árs að rn. tilnefni af sinni hálfu aðila til að taka þátt í viðræðum um þetta samstarf. Sérstök áætlun fyrir landið í heild hefur ekki verið gerð, en landlæknir og rn. hafa reynt að leysa vandkvæði ákveðinna landssvæða eftir því sem við hefur verið komið. Þannig hefur verið tekin upp sú stefna að veita lán úr Læknishéraðssjóði til kaupa ferðabila fyrir lækna við heilsugæslustöðvar og lán og styrki til sveitarfélaga til kaupa sjúkrabifreiða og snjóbíla, þar sem nauðsynlegt hefur verið talið að slíkir bílar væru fyrir hendi. Á það má minna, að ráðstefna um sjúkraflutninga var haldin að tilhlutan Rauða kross Íslands og í samráði við heilbrrn. í nóv. 1973, og þar voru af hálfu rn. lögð fram sjónarmið þess um skipulag sjúkraflutninga. Bráðir sjúkraflutningar fara að sjálfsögðu bæði fram í sjúkrabifreiðum og í flugvélum, en ekki má gleymi þætti Landhelgisgæslunnar í bráðum sjúkraflutningum, því að samkomulag hefur verið um það við Landhelgisgæslu að leita mætti til hennar um sjúkraflutninga eða flutninga á læknum til sjúklinga þegar aðrar flutningaleiðir brygðust. Hefur þetta einkum átt við um Vestfjarðasvæðið og Austfjarðasvæðið um vetrartímann.

2. spurning. Á undanförnum árum hefur verið fjárveiting á fjárl. til sjúkraflugs og í fjárl. yfirstandandi árs er þessi upphæð 2.5 millj. kr. Undanfarin ár hefur þessari fjárveitingu verið skipt milli aðila, sem haldið hafa uppi flugþjónustu og þar með sjúkraflugi í Reykjavik, á Ísafirði, á Akureyri, í Vestmannaeyjum og á Egilsstöðum, og hefur Alþ. sjálft ákveðið hvernig fjárveitingunni skyldi skipt milli þessara aðila. Rn. óskaði eftir verulegri hækkun á þessari fjárveitingu í fjárlagatill. sínum fyrir árið 1975, en fékk ekki við því undirtektir, þannig að það hefur ekki haft tækifæri til þess að gera neina samninga við flugfélög eða gerast aðili að flugvélum eða þyrlum sérstaklega til nota fyrir heilbrigðisþjónustuna. Í þessu sambandi má á það minna, að sjúkraflug er mjög lítill þáttur af starfi þeirra flugfélaga, sem þessa þjónustu annast nú, sennilega innan við 5% af heildarverkefnum þeirra aðila sem styrks njóta frá Alþ. til sjúkraflugs.

Á árinu 1973 fékk rn. mjög miklar upplýsingar um notkun þyrlu til sjúkraflugs í því skyni að kanna hvort þyrlur mundu henta til slíks flugs hér á landi. Bendir margt til að svo sé. Hins vegar sýndu þessar upplýsingar að nægilega stórar þyrlur eru dýrar í innkaupi og þurfa að hafa mikil verkefni til þess að rekstur þeirra geti orðið hagkvæmur. Auk þess er ósennilegt að í náinni framtíð verði hægt að reka þyrlu frá öðrum stöðum en Reykjavík og Akureyri vegna þeirrar aðstöðu sem þarf að vera fyrir þessar flugvélar. Rn. hefur að sjálfsögðu mikinn hug á því að geta tryggt betur almennt sjúkraflug og neyðarþjónustu en hægt hefur verið með þeim fjárframlögum sem til þessa hafa verið ákveðin af Alþ., og mun rn. í næstu fjárlagatill. sínum leggja til að þessar fjárveitingar verði auknar, eins og það gerði á s. l. ári, og kemur þá til kasta alþm. hvernig þeir taka í þær till.

3. spurning. Í sambandi við fjarskipta- og símaþjónustu í héruðum landsins hafa viðræður farið fram milli landlæknis og póst- og símamálastjóra um það mál. En samkv. upplýsingum landlæknis liggja ekki ákveðnar till. fyrir, enda er hér að sumu leyti um að ræða till. hins almenna símakerfis fyrir landið sem heild. Á vissum landssvæðum mun því nokkuð á það skorta að hægt sé að ná til læknis tafarlaust eða á öllum tímum sólarhrings. Enda þótt hér sé um mjög lítinn hluta landsmanna að ræða verður reynt að gera ráðstafanir til að bæta úr þessu eins fljótt og auðið er. Oftlega hafa farið fram viðræður milli landlæknis og póst- og símamálastjóra um þessi mál. Samkv. upplýsingum póst- og símamálastjóra hefur Póstur og sími frá upphafi verið boðinn og búinn til að koma fyrir neyðarkerfi, svo sem bjöllum og tilheyrandi, við ósjálfvirkar símstöðvar að kostnaðarlausu. Oddvitum er síðan í sjálfsvald sett að semja við viðkomandi stöðvarstjóra um gegningu. Víða er þetta gert, t. d. á Vopnafirði og á Hvolsvelli og fleiri stöðum. Símstöðvarstjórum er kunnugt um þetta svo og oddvitum, að því er landlæknir telur. Erfitt er að tengja saman 34 sveitalinur eða fleiri, því að þá verða hlustunarskilyrði út í langlínukerfið mjög léleg.

4. spurning. Lög um heilbrigðisþjónustu segja ekki nákvæmlega til um hve mikill læknafjöldi á að vera í heilsugæsluumdæmum. Lögin tiltaka aðeins ákveðið lágmark, þ. e. a. s. að ekki séu færri en tveir læknar á heilsugæslustöð 2 og ekki minna en einn læknir á heilsugæslustöð 1. Sé gert ráð fyrir þessu lágmarki utan Reykjavíkur og Akureyrar, þá þarf 60 lækna til þess að lágmarkinu sé náð. Í lok nóv. s. l. árs voru 58 starfandi læknar og læknakandídatar í þessum heilsugæsluumdæmum, þar af 50 læknar samkv. l. um heilbrigðisþjónustu, en 8 læknar starfandi samkv. bráðabirgðaákvæðum um lækna í læknishéruðum á Suðurlandi. Þessi læknafjöldi dreifðist þó ekki jafnt um landið, þannig að enn eru staðir þar sem l. gera ráð fyrir að sé heilsugæslustöð 2, þar sem enn er aðeins einn læknir, svo sem í Stykkishólmi, á Hvammstanga, á Dalvík, á Þórshöfn og á Höfn í Hornafirði, og einnig eru staðir þar sem ekki hefur fengist læknir til starfa á heilsugæslustöð 1, svo sem á Flateyri og á Kópaskeri, en báðum þessum stöðum er þjónað af nágrannalækni, þ. e. a. s. frá Þingeyri og Húsavík. Heimildir eru í fjárl. til þess að hafa 65 lækna við heilsugæslustöðvar og eru þá Akureyri og Reykjavík að sjálfsögðu meðtaldar, svo að auðsætt er að þessar heimildir eru of fáar, þegar heilsugæslukerfið verður komið á um landið allt. Hins vegar má segja, að með l. um heilbrigðisþjónustu og þeim breytingum, sem hafa orðið á um heimildir til ráðningar starfsliðs samkv. þeim l., þá hefur mjög víða orðið veruleg breyting til bóta. Þannig eru nú starfandi frá 1. mars 26 hjúkrunarkonur við heilsugæslustöðvar á jafnmörgum stöðum og 10 ljósmæður, sem ráðnar eru samkv. l. um heilbrigðisþjónustu. Stöðuheimildir fyrir ljósmæður eru ekki fleiri en ráðið er í nú, en á fjárl. þessa árs fengust heimildir fyrir allt að 35 hjúkrunarkonum, og verða ráðnar fleiri hjúkrunarkonur við heilsugæslustöðvar á þessu ári, enda liggja fyrir margar umsóknir þar að lútandi.

Eins og þær upplýsingar, sem hér hafa verið gefnar, bera með sér vantar enn mikið á að lög um heilbrigðisþjónustu hafi komist í fulla framkvæmd, enda hefur enginn gert ráð fyrir því, að þau kæmust til fullra framkvæmda nema á margra ára tímabili, eins og ég sagði í upphafi. Hins vegar verður að telja að byrjun framkvæmdar l. lofi góðu um að það takist að bæta heilbrigðisþjónustuna í dreifbýli, en það var eitt af markmiðum l. Er ekki annað fyrirsjáanlegt en að á þessu ári verði nægjanlegt framboð á læknum til starfa, hvort heldur er í dreifbýli eða þéttbýli. Hins vegar verður að minna á, að nauðsynlegt er að vinna kappsamlega að uppbyggingu heilsugæslustöðvakerfisins, og mun rn. kappkosta að gera framkvæmdaáætlun þar að lútandi, eins og 31, gr. l. gerir ráð fyrir, því að þá fyrst er hægt að gera sér grein fyrir hvað uppbygging kerfisins samkv. lögunum kostar og hve langan tíma tekur að koma því til fullra framkvæmda.