11.03.1975
Sameinað þing: 49. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2279 í B-deild Alþingistíðinda. (1835)
326. mál, heildarlöggjöf um vinnuvernd
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) :
Herra forseti. Með bréfi frá 10. júlí 1973 fól þáv. félmrh., Hannibal Valdimarsson, Hjálmari Vilhjálmssyni fyrrv. ráðuneytisstjóra að semja frv. til l. um alhliða vinnuvernd. Í skipunarbréfinu segir svo m. a.:
„Eins og yður er kunnugt heyra mál, sem snerta vinnuvernd, undir a. m. k. 5 rn. Bifreiðaeftirlit, öryggisgæsla á vinnustöðum og Öryggiseftirlit ríkisins heyra undir dóms- og kirkjumrn., vinnuvernd barna og unglinga heyrir undir menntmrn., eftirlit með hollustuháttum og öryggi á skipum heyrir undir samgrn., eftirlit með hollustuháttum og heilbrigði almennt heyrir undir heilbr.og trmrn., loks heyra atriði, er varða vinnulaun, uppsagnarfresti, vinnutíma og orlof undir félmrn. Þess er vænst, að þér hafið samband við téð rn., eftir því sem þér teljið nauðsynlegt í sambandi við undirbúning að samningu frv. um alhliða vinnuvernd.“
Þetta var úr skipunarbréfi ráðh. frá 10. júlí 1973. 9. nóv. sama ár afhenti Hjálmar Vilhjálmsson félmrn. frv. til l. um vinnuvernd. Í aths. við frv. gat hann þess m. a., að við samningu frv. hefði verið haft samráð við öryggismálastjóra og fulltrúa frá Alþýðusambandi Íslands og fulltrúa frá Vinnuveitendasambandi Íslands, en ekki megi þó líta svo á að þeir hafi lagt samþykki sitt á öll ákvæði frv.
Með bréfi 15. mars 1974 fór félmrn. þess á leit við Alþýðusamband Íslands, að það tilnefndi tvo menn til að yfirfara og endurskoða till. að umræddu frv. um vinnuvernd ásamt fulltrúum frá Vinnuveitendasambandi Íslands, sem þegar höfðu verið tilnefndir, þeir Valtýr Hákonarson og Barði Friðriksson hrl. Miðstjórn ASÍ tilnefndi þá Hermann Guðmundsson og Bolla B. Thoroddsen til að annast þessa yfirferð og endurskoðun. Rn. fór þess á leit í maí 1974, að Hjálmar Vilhjálmsson héldi fundi með framangreindum aðilum vinnumarkaðarins um vinnuverndarfrv. Hélt hann samtals 8 fundi með aðilum þeim sem að framan eru nefndir, og þar var farið yfir frv. grein fyrir grein. Við þá yfirferð kom í ljós að ágreiningur var um nokkur atriði. Um sum þeirra náðist að vísu samkomulag á þessum fundum, en önnur atriði, sem ágreiningur var um, hafa enn ekki verið fullrædd.
Síðasti fundur Hjálmars Vilhjálmssonar með fulltrúum ASÍ og Vinnuveitendasambandsins var haldinn 3. okt. s. l., en frá því í okt. hafa aðilar vinnumarkaðarins í þessari endurskoðunarnefnd rætt ágreiningsatriði þessi hvor í sínum hópi og sín á milli. Samkv. upplýsingum frá þeim má búast við að þeir telji sig tilbúna á næstunni að taka upp umr. um vinnuverndarfrv. þar sem frá var horfið í okt.
Ég vil til viðbótar þessari grg. um gang mála taka undir það með hv. fyrirspyrjanda, að brýn nauðsyn er að setja sem fyrst alhliða lög um vinnuvernd.