11.03.1975
Sameinað þing: 49. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2280 í B-deild Alþingistíðinda. (1836)

326. mál, heildarlöggjöf um vinnuvernd

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans. Ég skal ekki ræða hér efnislega frekar um þetta mál, en ég ítreka það, að ég tel að hér sé um brýnt nauðsynjamál að ræða og ég vænti þess að hæstv. ráðh. beiti sér fyrir því að slík löggjöf sjái dagsins ljós hér á þingi fyrr en seinna.