11.03.1975
Sameinað þing: 49. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2280 í B-deild Alþingistíðinda. (1837)
328. mál, málfrelsi opinberra starfsmanna og ritskoðunarréttur ráðuneyta
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. 11. málið á dagskránni er fsp. frá Jóni Baldvin Hannibalssyni til menntmrh. um málfrelsi opinberra starfsmanna og ritskoðunarrétt rn. á rannsóknarniðurstöðum sérfræðinga. Þar eð Jón B. Hannibalsson hefur vikið af þingi mun ég fylgja þessari fsp. úr hlaði með örfáum orðum.
Fsp. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„1. Er fyrirvaralaus brottvikning dr. Braga Jósepssonar úr starfi á vegum menntmrn, yfirlýsing af hálfu ráðh. og ríkisstj. um, að framvegis skuli í gildi teknar takmarkanir á málfrelsi opinberra starfsmanna, og þá hverjar?
2. Þar sem dr. Braga Jósepssyni er m. a. gefið að sök að hafa dreift skýrslu dr. Arnórs Hannibalssonar um „hjálparkennslu í skyldunámsskólum“ til skólastjóra, ber að skilja það svo, að ráðh., rn. og ríkisstj. áskilji sér framvegis rétt til að ritskoða rannsóknarniðurstöður sérfræðinga, sem taka að sér einstök sérfræðileg verkefni í þágu hins opinbera?“
Það er að vonum, að það veki mikla athygli þegar háttsettur embættismaður í ríkiskerfinu verður fyrir fyrirvaralausri brottvikningu, og þá ekki síður þegar ástæður eru til að ætla að brottvikningin standi í sambandi við málefnalegar deilur embættismannsins við yfirboðara sína í viðkomandi rn. Svo er að þessu sinni. En um brottvikningu dr. Braga Jósepssonar hefur raunar verið skrifað það mikið opinberlega og rætt, að ég tel ekki ástæðu og hef raunar ekki tíma til þess í fsp.-tíma hér á Alþ. að fara mjög ítarlega út í það. Hins vegar er um að ræða ákveðna fsp. að gefnu þessu tilefni, sem ég vænti, að hæstv. menntmrh. sjái sér fært að svara. Og munu vafalaust margir starfsmenn hins opinbera taka eftir því, með hvaða móti þau svör verða.
Í síðari liðnum er talað um eitt af þeim atriðum í máli dr. Braga Jósepssonar, sem þar var talið skipta miklu máli, en það var dreifing á rannsóknarniðurstöðum dr. Arnórs Hannibalssonar um hjálparkennslu í skyldunámsskólum. Það er allmikið um það og fer vaxandi að hið opinbera ráði sérfræðinga til að gera einstakar rannsóknir, og býst ég við að enginn deili um þá skoðun, að nauðsynlegt sé að slíkir sérfræðingar njóti hins fyllsta öryggis um að fá að gera rannsóknir sínar við frjálsar aðstæður og að ekki verði hindrað að rannsóknarniðurstöður þeirra komist á framfæri, sérstaklega til þeirra sem það mál, sem rannsakað er, varðar sérstaklega, eins og var í þessu tilfelli.
Síðari fsp. er einnig mjög skýr og fjallar um það, hvort draga megi þá ályktun af meðferð þessa máls að ætlunin sé að ritskoða slíkar rannsóknarniðurstöður sérfræðinga sem taka að sér verkefni þágu hins opinbera.