11.03.1975
Sameinað þing: 49. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2281 í B-deild Alþingistíðinda. (1839)

328. mál, málfrelsi opinberra starfsmanna og ritskoðunarréttur ráðuneyta

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir stutt, en þó skýr svör við þeim spurningum sem fram eru lagðar. Það voru raunverulega fyrstu tvær setningarnar, er hann sagði, sem afgreiddu þær spurningar sem felast í tveim liðum fsp.

Ég tel ástæðu til þess að fagna því, að ráðh. gefur afdráttarlausa yfirlýsingu um að það sé ekki ætlunin að takmarka málfrelsi opinberra starfsmanna, og er að sjálfsögðu gott til þess að vita, enda þótt gefist hafi allgróft tilefni til þess, að slík fsp. er lögð fram á Alþ.

Á sama hátt er gott til þess að vita, að hæstv. ráðh. gefur afdráttarlaust og hiklaust neitandi svar við því, að það sé ætlun hans, rn. hans eða ríkisstj. að ritskoða rannsóknarniðurstöður sérfræðinga. Er einnig gott fyrir þá að vita það, vegna þess að þeir munu sjálfsagt ekki hafa mikinn áhuga á því að taka að sér rannsóknarstörf, ef þeir geta átt von á því að með niðurstöðurnar verði farið eins og var í þessu tilviki.

Ég er að því leyti til sammála hæstv. ráðh., að það er í fsp.-tíma ógerningur að fara út í frekari umr. um efnisatriðin, sem eru tilefni þessara spurninga, og þá því síður sem brottvikning dr. Braga Jósepssonar er þegar orðin að máli fyrir dómstólum. En það var gott að fá grundvallaratriðin tvö í þessu sambandi skýrt fram, og ég vænti þess, að ekki verði fleiri slík mál, sem gefi tilefni til þess, að spurt sé um þá hluti sem þetta mál hefur svo vissulega gefið tilefni til að væri borið fram hér á Alþ.