12.03.1975
Efri deild: 56. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2282 í B-deild Alþingistíðinda. (1841)

149. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði

Frsm. meiri hl. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Hv. d. afgr. til iðnn. frv. til l. um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði 12. febr. s. l. Fundur var haldinn í iðnn. þegar daginn eftir og hefur n. því haft málið til meðferðar í réttan mánuð. Á þessum tíma hafa verið haldnir í n. 12 fundir. Á fyrsta fundi n. lagði ég til að málið fengi þá meðferð, að á nefndarfundi væru kvaddir sem flestir menn sem gætu frætt nm. um hina ýmsu þætti þessa stóra máls. Við því var engum mótmælum hreyft. Í nál., sem meiri hl. hefur gengið frá og dreift hefur verið, kemur fram að æðimargir forsvarsmenn opinberra stofnana og aðrir, sem um þetta mál hafa fjallað á einhverju stigi eða eru tengdir einhverjum þætti þess, hafa verið kvaddir á fund n. N. hefur haft með þessum mönnum langa og ítarlega fundi og hafa sumir þessir fundir verið sameiginlegir með iðnn. Nd.

Ég mun skipta ræðu minni fyrst og fremst í 4 þætti og eru þeir í samræmi við þá meðferð sem málið fékk hjá iðnn. Ég mun ræða um afstöðu heimamanna, þá mun ég ræða um landið og höfnina, síðan um raforkumálin, þá um heilbrigðismál og náttúruvernd og loks um fjármál og hagkvæmni fyrirtækisins. Áður en ég ræði þessa þætti mun ég lýsa nokkuð aðdraganda og helstu einkennum þessa fyrirtækis.

Rétt er í upphafi að geta þess, að n. var ekki sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. nm., 5 hv. þm., skilar sérstöku meirihlutaáliti og leggur til að frv. verði samþ. með nokkrum brtt. sem fram koma á sérstöku þskj. Einn nm., hv. þm. Jón G. Sólnes, bókaði sérálit og mun hann gera sérstaka grein fyrir því hér, en einn nm., hv. þm. Stefán Jónsson, leggur til í sérstöku nál. að frv. verði fellt eða til vara gerðar á því ýmsar breytingar, sem hann mun að sjálfsögðu gera grein fyrir.

Aðdragandi þessa máls er sá, að haustið 1971 skipaði þáv. iðnrh. viðræðunefnd um orkufrekan iðnað. Í þessari n. áttu þá sæti og eiga reyndar sæti enn Jóhannes Nordal seðlabankastjóri, sem er formaður n., Ragnar Ólafsson hrl., Ingi R. Helgason hrl. og Steingrímur Hermannsson. Þessari n. var falið að ræða við ýmsa erlenda aðila, sem höfðu sýnt áhuga á því, að kanna, hvort hér mætti koma upp því sem nefnt hefur verið stóriðja eða orkufrekum iðnaði í tengslum við okkar virkjanir, en mjög margar slíkar fyrirspurnir lágu þá fyrir. Þessari n. voru jafnframt sett nokkur meginsjónarmið eða skilyrði sem setja bæri slíkum iðnaði. Í fyrsta lagi vil ég nefna, að á það var lögð áhersla að slíkt fyrirtæki, ef úr yrði, yrði að meiri hl. í eigu íslenska ríkisins. Í öðru lagi, að slíkt fyrirtæki félli í einu og öllu undir íslenska dómstóla og íslensk lög. Í þriðja lagi, að raforka yrði seld til slíks fyrirtækis vel yfir kostnaðarverði og á því verði sem telja mætti sambærilegt við það sem íslenskir aðilar ættu kost á raforku við sömu aðstæður. Og í fjórða lagi, að gætt yrði hinna fullkomnustu mengunarvarna. Öllum þeim aðilum, sem við var rætt, voru þessi atriði kynnt og varð það til þess, að sumir þeirra hurfu frá og varð ekki meira úr umr. við þá

Eins og kemur fram í grg. með frv. til l. um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði var rætt við allmarga slíka aðila og ætla ég ekki að endurtaka það. En kostirnir urðu smám saman færri af ýmsum ástæðum og að lokum taldi viðræðunefndin eðlilegt að leggja áherslu á viðræður við fyrirtækið Union Garbide Corporation um byggingu sameiginlegrar ferrosilicium verksmiðju hér á landi. Ýmislegt, eins og ég sagði, leiddi til þessarar niðurstöðu, m. a. að viðræðunefndin taldi að slík verksmiðja hentaði þörfum okkar vegna virkjunar Sigöldu, til hennar færi aðeins um það bil fjórðungur af forgangsorku þeirrar virkjunar, en aftur á móti gæti sá iðnaður nýtt verulega afgangsorku, sem er mjög mikið af í okkar raforkukerfi og þarf að losna við til einhvers kaupanda. Einnig er slík verksmiðja af þeirri stærð, að þátttaka okkar íslendinga er sæmilega viðráðanleg. Samningar voru langt komnir haustið 1973, þegar olíukreppan svonefnda skall á, og var þeim frestað meðan breyttir hagsmunir okkar íslendinga af þessum ástæðum voru skoðaðir. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um það nú, mun koma að því nánar síðar.

Hins vegar vil ég vekja athygli á því, að Alþ. ákvað í framhaldi af áfangaskýrslu þeirri, sem þáv. iðnrh. fékk Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen til að vinna, að ráðast í virkjun Kröflu, sem mun verða um 60 mw., og koma þannig í veg fyrir að orkuskortur þyrfti af að verða, þótt ráðist yrði í umrædda járnblendiverksmiðju. Það kemur greinilega fram í lok þings 1974, vorið 1974, að þessi er ætlun ríkisstj. þeirrar sem þá sat. Kemur það greinilega fram í bréfi þáv. iðnrh. til Union Carbide, sem margoft hefur verið vísað í og skrifað var í maí 1974. Þar kemur fram, að þáv. ráðh. og ríkisstj. öll er samþykk þessu máli og væntir þess, að það fái framgang þegar þing kemur saman að nýju.

Núv. ríkisstj. tók því málið upp að nýju þegar hún kom til valda. Þá höfðu hins vegar orðið veigamiklar grundvallarbreytingar á ýmsum þeim atriðum, sem áður hafði verið gengið frá t. d. hafði byggingarkostnaður hækkað mjög verulega, einkum stál, og raforkuverð hafði hækkað, m. a. virkjunarkostnaður Sigöldu. Þetta hlaut að leiða til þess, að ýmsir þættir málsins voru endurskoðaðir. Veruleg hækkun fékkst á raforkuverði, samtals 40% af því sem áður hafði verið gert ráð fyrir, en jafnframt varð að samkomulagi að hækka nokkuð greiðslur til Union Carbide sem söluþóknun og sem þóknun fyrir tækniþekkingu sem fyrirtækið veitir hinni íslensku málmblendiverksmiðju. Það er rétt að geta þess einnig, að á þessum tíma, veturinn 1973–1974, starfaði að undirlagi þáv. iðnrh. nefnd þm., skipuð þm. úr öllum þingflokkum, og hafði hún tækifæri til að fylgjast mjög náið með öllum framgangi málsins. Hún hélt allmarga fundi, hafði einnig tækifæri til að hitta fulltrúa viðsemjenda og í lok þingsins var dreift til allra þm., sem þess óskuðu, öllum þeim skjölum sem þá voru tilbúin í þessu máli. Ég held að því verði ekki neitað, að hv. þm. hafa fengið góð tækifæri til að fylgjast með þróun þessa máls.

Þá þykir mér rétt að gera grein fyrir örfáum aðaleinkennum þessarar framleiðslu og jafnframt helstu einkennum þeirra samninga sem gert er ráð fyrir að gera við fyrirtækið Union Carbide Corporation. Það er gert ráð fyrir því að reisa hér málmblendiverksmiðju eða járnblendiverksmiðju sem framleiði um það bil 47 þús. tonn af 75% ferrosilicium, en það er blanda af járni og silicium eða silikon sem svo er nefnt á erlendu máli og hefur raunar ekki hlotið íslenskt heiti. Það er notað sem blanda í mjög smáum stíl í járn til að fá fram bætt gæði stáls og fleira. Gert er ráð fyrir því, að þessi framleiðsla fari fram í tveimur ofnum. Hún fer fram þannig, að þremur rafskautum er dýft í blöndu hráefna og þau brædd við mikinn hita. Við það myndast botnfall, sem er umrætt ferrosilicium. Jafnframt myndast ýmis úrgangsefni, fyrst og fremst ryk, við þá framleiðslu sem hér er um að ræða, um 21 þús. tonn af því sem nefnt hefur verið kísilryk. Einnig myndast nokkur föst úrgangsefni, um það bil 2 500 tonn, og mun ég koma nánar að því síðar.

Ef frv. þetta verður samþ. er gert ráð fyrir því að íslenska ríkisstj. og Union Carbide undirriti svonefndan aðalsamning, sem er birtur sem fskj. þessa frv. bæði á íslensku og á ensku. Aðalsamningur þessi dregur fram öll meginatriði í samkomulagi Union Carbide og íslensku ríkisstj. Þar kemur í fyrsta lagi fram vilji aðilanna til þess að stofna umrætt fyrirtæki til framleiðslu á 75% ferrosilicium. Þarna kemur fram á hvern máta hugsunin er að fjármagna þetta fyrirtæki. M. a. kemur þar fram, að hlutafé þess mun verða samtals 24 millj. bandaríkjadala eða jafnvirði þess, og þar kemur fram, að íslenska ríkið eigi 55% þess hlutafjár, en Union Carbide 45%. Einnig kemur þarna fram, að aðrir samningar muni verða gerðir á milli hins íslenska málmblendifélags og nokkurra annarra aðila, fyrst og fremst Union Carbide og Landsvirkjunar. M. a. er gert ráð fyrir því, að samningur um aðgang að tæknikunnáttu og þekkingu Union Carbide verði gerður, fái þar með hið íslenska málmblendifélag fullan aðgang að öllum einkaleyfum sem fyrirtækið á í dag, þau munu vera eitthvað um 500 á þessu sviði, og allri þeirri þekkingu, sem fyrirtækið kann að þróa á 15 ára samningatímanum.

Ég vil geta þess, að þetta atriði var mjög rætt í viðræðunefnd um orkufrekan iðnað. Upphæðin er há og voru fengnir sérstakir erlendir menn sérfróðir, á þessu sviði, til þess að meta arðsemi þessarar fjárfestingar. Skýrsla þeirra var mjög eindregið á þá lund, að þetta væri vel þessa fjár virði og raunar meira, en þar draga þeir m. a. fram það atriði, að fyrirtækið Union Carbide hefur eitt tök á mjög fullkominni tölvustýringu á þessari framleiðslu sem getur aukið afköst ofnanna um það bil um 4%, sem er ekki lítil upphæð í þessu sambandi. Þetta nefni ég sem dæmi af fjölmörgu sem fram mætti draga.

Þá er gert ráð fyrir því, að einkasölusamningur verði gerður við Union Carbide, þó innan vissra marka eða viss ramma. Fyrirtækið getur ekki selt framleiðsluna án samþykkis stjórnar verksmiðjunnar, og sömuleiðis er fyrirtækinu skylt að selja hverjum þeim aðila sem stjórn verksmiðjunnar kann að ákveða, og stjórn verksmiðjunnar getur í því sambandi tekið við pöntun í slíkt beint. Gert er ráð fyrir því, að söluþóknunin verði breytileg, frá 3% fyrir fyrstu 10 þús. tonnin og upp í 5% fyrir það sem er umfram 30 þús. tonn, en meðalsöluþóknun verður um 3.9%. Þetta atriði var einnig mjög vel skoðað, ekki síst í sambandi við hina erlendu tæknimenn. Staðreyndin er sú, að sala á þessari framleiðslu er venjulega tengd mikilli tækniaðstoð. Þetta efni er notað í mjög mismunandi mæli í járnblöndur, eins og ég hef áður skýrt frá,og fást fram allbreytileg einkenni með breytilegri notkun þessa efnis. Það hefur sannast, að fyrirtækið Union Carbide fær á erlendum mörkuðum töluvert hærra verð en það sem skráð er. M. a. kemur þetta fram í umsögn forstjóra Þjóðhagsstofnunar. Má rekja það fyrst og fremst til þessarar staðreyndar, að þetta fyrirtæki er tæknilega mjög sterkt á þessu sviði. Þá er gert ráð fyrir því, að hið íslenska málmblendifélag geri samning um kaup á raforku við Landsvirkjun og mun ég ræða það sérstaklega hér á eftir og því ekki fara út í það í smáatriðum nú. Sá samningur liggur fyrir í frumdrögum og hefur verið ræddur af landsvirkjunarstjórn og metinn, en að sjálfsögðu fyrst og fremst gerður í fullu samráði við Landsvirkjun og að tillögu Landsvirkjunar. Loks er gert ráð fyrir því, að gerður verði sérstakur samningur um afnot hafnar og landssvæðis, en fyrir þau mun fyrirtækið greiða ákveðið gjald. Er gert ráð fyrir því, að hafnargjöld verði þau sömu sem greidd eru á Reykjavíkursvæðinu. Þetta eru megineinkenni þessa fyrirtækis og þeirra samninga sem ráð er fyrir gert að gerðir verði.

Ég sé ekki ástæðu til þess, að fara hér í neinum smáatriðum út í hin tæknilegu einkenni framleiðslunnar sjálfrar. Það kemur allvel fram í skýrslunni, m. a. um hráefni og hver hráefnaþörfin er til þessarar verksmiðju, og sömuleiðis mun ég koma inn á ýmsa þætti þess máls þegar líður á mína framsöguræðu.

Eins og ég gat um í upphafi mun ég skipta því, sem ég segi hér á eftir, í nokkra meginþætti og mun þá fyrst ræða um afstöðu heimamanna.

N. var sammála um að kveðja á sinn fund oddvita sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar og norðan Hvalfjarðar og bæjarstjórann á Akranesi. Þeir mættu á öðrum fundi n. og var rætt við þá þar dágóða stund um afstöðu heimamanna til þessa máls. Jafnframt ákvað n. að leita skriflegra umsagna heimamanna um málið. Nm. voru allir sammála um það, að hér væri um grundvallaratriði að ræða í allri meðferð málsins og nauðsyn að hafa slíkt fyrirliggjandi þegar ákvörðun Alþ. yrði tekin. Umsagnir hafa borist frá öllum þessum aðilum öðrum en Leirár- og Melahreppi, en hins vegar gat oddviti þess hrepps þess að skiptar mundu vera skoðanir þar, eins og raunar viðast, um þetta stóra mál, þótt hann teldi að þar væri ekki andstaða meiri hl. gegn byggingu þessarar verksmiðju. Hreppsnefnd Skilmannahrepps skilaði álíti. Vil ég með leyfi forseta lesa þessar umsagnir. Ég tel þær það mikilvægar:

„Hreppsnefnd Skilmannahrepps hefur á fundi í dag fjallað um frv. til l. um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði. Hreppsnefndin gerir ekki athugasemd við frv. né staðsetningu verksmiðjunnar og treystir því, að reglum um mengunarvarnir verði fylgt út í æsar.“

Innri-Akraneshreppur skrifar svo:

„Á fundi hreppsnefndar Innri-Akraneshrepps 25. 2. 1975 var tekið fyrir bréf iðnn. Ed. Alþ., dags. 17. 2. 1975, þar sem beðið er um umsögn vegna járnblendiverksmiðju í Hvalfirði. Í því sambandi vill hreppsnefndin taka fram eftirfarandi :

1) Hreppsnefndin sér ekki ástæðu til að leggjast gegn frv.

2) Þá vill n. leggja ríka áherslu á það, að þeim ákvæðum, er um fjallar í 7. gr. um umhverfisog öryggismál í fskj. 2, verði framfylgt að fullnustu.

fh. Hreppsnefndar Innri-Akraneshrepps,

Anton Ottesen,

Ytrahólmi.“

Ég gat þess ekki áðan, að undir bréfið frá Skilmannahreppi skrifuðu Sigurður Sigurðsson oddviti, Þorsteinn Stefánsson og Kristmundur Þorsteinsson.

Þá barst bréf frá hreppsnefnd Hvalfjarðarstrandarhrepps, þar segir svo:

„Hreppsnefnd Hvalfjarðarstrandahrepps hefur á fundi sínum í dag, laugardaginn 22. febr. 1975, fjallað um heiðrað bréf yðar, dags. 17. þ. m., þar sem beiðst er umsagnar um fram komið frv., til laga um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði. Hreppsnefndin vill af þessu tilefni taka eftirfarandi fram:

1) Á almennum hreppsfundi Hvalfjarðarstrandarhrepps, sem haldinn var í dag, var samþ. með samhljóða atkv. allra fundarmanna að lýsa fullum stuðningi við ályktun Búnaðarsambands Borgarfjarðar frá 21. f. m. um byggingu og hugsanleg áhrif væntanlegrar járnblendiverksmiðju. Ályktun þessi er birt í fjölmiðlum og mun vera yður kunn. Hreppsnefndin tekur fram, að hún er samþykk þeim sjónarmiðum og efnisatriðum, sem í ályktuninni felast.

2) Hreppsnefndin harmar, að ekki skyldi vera leitað álits hreppsnefnda í nágrenni við hið væntanlega verksmiðjusvæði svo og fleiri heimaaðila um mál þetta á frumstigi þess.

3) Hreppsnefndin leyfir sér að senda yður hér með afrit af bréfi, er hún ritaði samgrh. hinn 29. f. m. samkv. beiðni hans um álit á tilteknum þáttum málsins. Bréf þetta varpar nokkru ljósi á afstöðu hreppsnefndar.

Guðmundur Brynjólfsson, oddviti.“

Síðan fylgir hér með bréf til samgrh., sem ég sé ekki ástæðu til að lesa, en það fjallar um þátttöku Hvalfjarðarstrandarhrepps í væntanlegri höfn við Grundartanga. Þar er samþ. að taka þátt í slíkri hafnargerð, enda náist samkomulag um fjármögnum og skiptingu þeirrar aðildar sem þar er um að ræða.

Þá barst umsögn Akraneskaupsstaðar, sem er raunar frá 10. des. 1974:

„Ályktun um járnblendiverksmiðju. Bæjarstjórn Akraness lýsir yfir eindregnum stuðningi við þau áform, sem nú eru á döfinni um að reisa járnblendiverksmiðju hér á landi og kynnt voru fyrir fulltrúum bæjarstjórnarinnar á almennum fundi að Leirá 4. des. s. l. Sérstaklega fagnar bæjarstjórnin þeirri ákvörðun að velja verksmiðjunni stað við Grundartanga á norðurströnd Hvalfjarðar. Þar mun verksmiðjan og hafnargerð henni tengd verða til mikils framdráttar fyrir byggðirnar í Borgarfirði og á Akranesi, eins og reynsla varð af byggingu sementsverksmiðjunnar á sínum tíma. Bæjarstjórnin telur sjálfsagt að gætt verði ýtrustu varúðar gagnvart hugsanlegri hættu á mengun og spjöllum á umhverfi í samræmi við íslenskar reglur þar um, eins og ljóst er að gert hefur verið.

Í sambandi við byggingu verksmiðjunnar telur bæjarstjórnin nauðsynlegt að tekið verði fullt tillit til núv. atvinnulífs á þessu svæði og samráð haft við samtök þess. Enn fremur vill bæjarstjórnin benda á, að þess verði gætt að viðkomandi sveitarfélög njóti eðlilegs hluta af opinberum gjöldum verksmiðjunnar með tilliti til þeirrar þjónustu sem þau verða að veita rekstri hennar og starfsfólki.

Að lokum beinir bæjarstjórnin þeirri áskorun til ríkisstj. og Alþ. að hraða endanlegri afgreiðslu málsins og væntir þess að þm. Vesturl. fylgi vilja bæjarstjórnarinnar í þessu máli fast eftir, svo að hægt verði að hefja framkvæmdir við járnblendiverksmiðjuna hið fyrsta.“

Í sambandi við umsagnir þessar vil ég geta þess, að umsögn Búnaðarsambands Borgarfjarðar, sem birtist í dagblöðum, var efnislega á þá lund, að Búnaðarsambandið lagði ríka áherslu á að fram færi líffræðileg athugun á áhrifum verksmiðjunnar á umhverfi sitt áður en bygging hennar væri ákveðin. Þessar umsagnir, sem hafa borist, eru sumar að vísu ekki afgerandi, en eru engar andstæðar því að verksmiðjan verði byggð og raunar sumar, ekki síst Akranes, mjög ákveðið fylgjandi því að verksmiðjan verði byggð á þessum stað.

Á fyrsta fundi iðnn, kom fram ósk um að málið yrði sent Verkalýðsfélagi Akraness til umsagnar. Umsögn barst frá Verkalýðsfélagi Akraness. Þar segir svo, með leyfi forseta:

„Fundur í Verkalýðsfélagi Akraness, haldinn 2. mars 1975, samþ. að svara bréfi iðnn. Alþ., dags. 13. febr. 1975:

1) Þar sem málmblendiverksmiðjan verður væntanlega staðsett á félagssvæði Verkalýðsfélags Akraness vill fundurinn undirstrika og jafnframt lýsa stuðningi við byggingu hennar með eftirfarandi skilyrðum:

a) Að gerðar verði ýtrustu kröfur, eins og þær eru strangastar hjá þeim þjóðum sem lengst eru komnar í mengunarvörnum, í verksmiðjunni að Grundartanga, er tryggi að engin loftmengun eða önnur mengun frá henni verði á umhverfi hennar, og skorar jafnframt á Alþ. að beita sér fyrir að koma í veg fyrir mengun annarra fyrirtækja með auknum mengunarvörnum og verði sett sérstök lög um vinnuvernd er tryggi öryggi starfsmanna. Komið verði í veg fyrir, að upp komi atvinnusjúkdómar, með ströngu lækniseftirliti og reglubundinni læknisskoðun á starfsfólki.

b) Fundurinn krefst þess, að í lögin komi ákvæði um íhlutunarnefnd starfsfólks í gegnum starfsmannaráð eða í stjórn fyrirtækisins.

c) Að höfninni verði tryggð sérstök lán samhliða öðrum fjárútvegunum til verksmiðjunnar, þó ekki með því að skerða fé úr Hafnabótasjóði, og tryggt að hún standi undir sér fjárhagslega og verði ekki til að skerða á neinn hátt fjárhag viðkomandi sveitarfélaga.

d) Það virðist augljóst, að með tilkomu hennar muni tekju- og atvinnumöguleikar verkafólks stóraukast á Akranesi og í nágrenni þess.

Till. þessi var samþ. með 13:7 atkv. Till. frá Bjarnfríði Leósdóttur og Herdísi Ólafsdóttur um að vísa henni frá var fyrst borin upp og felld með 10:6 atkv.

F. h. Verkalýðsfélags Akraness,

Skúli Þórðarson.“

Í þessu sambandi vil ég geta þess, að mér hefur nú, rétt áður en þessi fundur hófst, borist bréf frá Óttari Yngvasyni hdl., sem skrifar f. h. Verkalýðsfélagsins Harðar í Hvalfirði. Ég ætla ekki að lesa þessi bréf, þau eru nokkuð löng, en efni þeirra er það, að Verkalýðsfélagið Hörður í Hvalfirði mótmælir þeirri fullyrðingu Verkalýðsfélags Akraness að umrædd verksmiðja sé á félagssvæði Verkalýðsfélags Akraness og fer um það nokkrum orðum. Ég vil taka það skýrt fram, að mér var ekki sem form. iðnn. kunnugt um Verkalýðsfélagið Hörð í Hvalfirði og hefði að sjálfsögðu talið rétt að senda þessu félagi einnig málið til umsagnar. Hins vegar kom engin ósk fram um það. Þótt málið væri sent Verkalýðsfélagi Akraness tekur að sjálfsögðu iðnn. Alþ. ekki, og því síður Alþ. nokkra afstöðu til þess á hvoru svæði þessi verksmiðja er. Þar ráða vitanlega þeir samningar sem þar um ríkja. Sú staðreynd að málið var sent Verkalýðsfélagi Akraness til umsagnar breytir vitanlega engu þar um. Nauðsynlegt er að þetta komi skýrt fram.

Ég hef nú lesið þær umsagnir, sem hafa borist frá heimamönnum, og niðurstaða er sú, að þar er vilji sums staðar sterkur, en mismunandi sterkur til þess að verksmiðjan verði byggð, en að sjálfsögðu viss hræðsla við mengun frá slíku fyrirtæki. Er það að mínu mati mjög eðlilegt og ég fagna því, að í öllum þessum ályktunum er lögð rík áhersla á það, að í því sambandi verði gætt hinnar fyllstu varúðar, en að því mun ég að sjálfsögðu koma síðar.

Þá vil ég næst geta um landið og höfnina. Þegar rætt var um byggingu slíkrar verksmiðju þegar á árinu 1971 kom fram sá vilji hjá ýmsum, sem um málið fjölluðu, að þessi verksmiðja yrði staðsett sem lengst utan þéttbýlissvæðisins hér á Suðvesturlandi. Gerð var athugun á nokkrum stöðum, m. a. Akureyri, auk nokkurra staða hér í nágrenninu og tveggja staða við norðanverðan Hvalfjörð. Aðstaða á Akureyri er mjög góð til slíks atvinnurekstrar. Hins vegar kom fljótlega í ljós að raforka yrði ekki fáanleg á því svæði fyrir þessa verksmiðju fyrr en töluvert siðar en verksmiðjan gæti verið komin á fót. Ég vil í þessu sambandi ekki síst leggja áherslu á það, að verksmiðjurekstur sem þessi verður aldrei reistur á einni langri linu, hvort sem hún er gerð um byggð eða óbyggð. Auk þess er burðargeta þeirrar línu, sem nú er ætlunin að leggja, hvergi nærri fullnægjandi fyrir þessa verksmiðju. Því hefði orðið nauðsynlegt að reisa mjög stóra varastöð fyrir norðan, ef verksmiðjan hefði átt að koma þar. Í fáum orðum sagt varð því niðurstaðan, að ekki reyndist unnt að koma verksmiðjunni fjær þessu svæði en norður fyrir Hvalfjörð og jafnframt að tryggja góða hafnaraðstöðu, sem þar er mjög góð fyrir hendi. Þessi varð því niðurstaðan, að gera ráð fyrir verksmiðjunni á Grundartanga og afla landssvæðis þar til þess að þar gæti með tíð og tíma komið upp myndarlegur kjarni iðnaðar við mjög góða höfn.

Iðnn. hefur verið skýrt frá því, að drög að kaupsamningi hafa verið gerð við eigendur jarðarinnar Klafastaða í Skilmannahreppi. Er í þeim kaupsamningi gert ráð fyrir því, að ríkið kaupi 80 ha. landsspildu úr þessu landi. Það land, sem í upphafi verður frá tekið fyrir umrædda járnblendiverksmiðju, ef samþ. verður, er hins vegar um 10 ha. lands og er því ljóst að þarna er mjög mikið ráðrúm til stækkunar eða til þess að koma á fót öðrum iðnaði síðar. Einnig er samið um rétt til hafnargerðar við eigendur Klafastaða, en hafnaraðstaða hefur verið mjög vandlega skoðuð á þessu svæði og hefur það gert Verkfræðistofa dr. Gunnars Sigurðssonar. Liggur fyrir frá þeirri verkfræðistofu ítarleg skýrsla um hafnargerð, þar sem bent er á fjölmarga möguleika í því sambandi.

Hafnarmálin voru sérstaklega rædd á fundum iðnn. og mættu á einum fundi n. Halldór E. Sigurðsson samgrh., ásamt skrifstofustjóra samgrn. og dr. Gunnari Sigurðssyni sem eins og ég sagði áðan hefur unnið að öllum undirbúningi hafnarmálsins. Í þessu sambandi var sérstaklega að því spurt hvernig ríkisstj. hyggst fjármagna þessa höfn og í hvaða formi hún verður byggð. Samgrh. upplýsti, að gert er ráð fyrir því að hún falli undir hafnalög og leggi heimamenn þar með fram 25% þess fjármagns sem til hafnarinnar er þörf. Sú höfn, sem líklegast er að verði þarna byggð, er áætluð af dr. Gunnari Sigurðssyni að kosta 293 millj. kr., en það er fyrir tvær gengisfellingar og sýnist mér ljóst að það má hækka upp í 450–500 millj. kr. nú. Hér er því um verulega fjárhæð að ræða fyrir heimamenn. Hins vegar hefur það komið margoft fram, m. a. hjá hæstv. samgrh., að það fjármagn mun verða útvegað með öðru fjármagni, sem opinberir aðilar þurfa á að halda í þessu sambandi. Sú fjárútvegun mun því ekki lögð á þátttakendur í hafnargerðinni heima fyrir.

Ég vil geta þess hér, að allmjög hefur verið um það rætt hvaða hafnargerð verði þarna fyrir valinu í upphafi. Unnt er að byggja þarna höfn sem er töluvert minni og mundi að sjálfsögðu kosta töluvert minna, líklega um 150 millj. kr. minna. Við þá höfn gæti hins vegar aðeins eitt skip athafnað sig. Flutningar til og frá þessu fyrirtæki eru hins vegar mjög miklir. Það eru um 160 þús. tonn til fyrirtækisins og 47 þús. tonn frá því eða vel yfir 200 þús. lestir. Að sjálfsögðu er okkur íslendingum það kappsmál að íslensk skip hljóti sem mest af þessum flutningum. En af því leiðir að flutningarnir mundu fara fram í tiltölulega litlum skipum, t. d. af stærðinni 2–4 þús. lestir, og af því leiðir aftur að skipakomur verða mjög tíðar á þennan stað. Því er það mat sérfræðinga að eðlilegast sé að byggja þar höfn, sem geti tekið við tveimur skipum í einu, en hún mundi skv. þeirri áætlun, sem lögð var fram s. l. sumar, kosta um 293 millj. kr., eins og ég nefndi áðan.

Á fundi með hæstv. samgrh. var sérstaklega að því spurt, hvort útvegun fjármagns til þessarar hafnar mundi skerða hafnarframkvæmdir í landinu að öðru leyti. Samgrh. tók skýrt fram að það væri ekki sín ætlun, þessi höfn yrði fjármögnuð alla vega fyrir utan það. Einnig hefur verið rætt töluvert um arðsemi af þessari höfn. Þetta hefur að sjálfsögðu verið reiknað, og eins og ég sagði áðan er gert ráð fyrir því að fyrirtækið greiði sömu hafnargjöld og greidd eru í Reykjavík. Með þeim hafnargjöldum munu tekjur af innflutningi til þessarar verksmiðju fara langleiðina í það að standa undir kostnaði og að sjálfsögðu miklu meira en kostnaði af lánum og fjármögnun heimamanna, en sú fjármögnun gengur fyrir í þeim tekjum sem fást af innflutningi. Hins vegar telja menn mjög líklegt, að við þessa höfn, góðu innflutningshöfn, skapist meiri umferð fljótlega og tekjur hennar aukist þannig. M. a. hefur sú skoðun komið mjög ríkt fram hjá fulltrúum Akraneskaupstaðar.

Þá var á einum fundi n. sérstaklega fjallað um raforkumálin enda eru þau raunar undirstaða þessarar hugmyndar um járnblendiverksmiðju. Við íslendingar höfum hingað til fylgt þeirri stefnu að reisa slíkan iðnað í tengslum við okkar stærri virkjanir til þess að gera þær okkur auðveldari og lækka raforkuverðið jafnframt. Þetta er að sjálfsögðu meginástæðan fyrir því, að fyrrv. ríkisstj. og fyrrv. iðnrh. ákváðu að kanna slíka leið. En að sjálfsögðu er slíkt háð því að orka sé fyrir hendi, að okkar eigin orkuþörf sé ekki það mikil að við þurfum á allri orku frá væntanlegri virkjun sjálfir að halda, og vitanlega verður að gæta þess, eins og skýrt kom fram í grundvallarsjónarmiðum fyrrv. ríkisstj., að verð til slíkrar verksmiðju sé að öllu leyti eðlilegt og sambærilegt við það sem almennt gerist.

Á fund iðnn. voru kvaddir orkumálastjóri, tveir sérfræðingar Landsvirkjunar og tveir verkfræðingar frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen. Þeir síðastnefndu voru m. a. og ekki síst kvaddir á nefndarfund með tilvísun til mjög fróðlegrar áfangaskýrslu sem fyrrv. iðnrh. lét dreifa á Alþ. vorið 1974 og fjallar um nýtingu innlendra orkugjafa í stað olíu. Þar er komið að því stóra máli að nýta innlenda raforku til upphitunar í stað olíunnar. Um það fjallar þessi skýrsla og þar koma fram mörg mikilvæg sjónarmið. M. a. kemur fram í þessari skýrslu, á bls. 3 og raunar einnig á bls. 2, að lausleg áætlun um kostnað við tengilínu milli landshluta og breytingar á dreifikerfum er að það muni kosta um 4 000 millj. kr. þegar þessi skýrsla er gerð, í byrjun ársins 1974. Þar segir jafnframt, að áætlað sé að unnt sé að tengja um 80% þessa rafhitunarmarkaðar fyrir árslok 1981. Ástæður eru taldar þær, að fjármagnið er ekki mikið og vinnuafl ekki fáanlegt innanlands til að hraða þessu verki meira en svo. Í þessari skýrslu koma einnig fram mjög athyglisverðar upplýsingar um þörf raforku í þessu skyni. Er áætlað að 34% af húsnæði landsmanna megi hita á þennan máta og orkuþörfin árið 1980 í þessu sambandi verði um 927 gwst., en af þeim verði 130 þegar tengdar. Þetta er því grundvallarskjal þegar við nú metum eigin orkuþörf og orkuframboð og lá mjög til grundvallar í umr. n. um þetta mál. Vil ég fara nokkrum orðum um það, sem fram kom á nefndarfundinum.

Um það var spurt sérstaklega hvort þessir sérfræðingar teldu ekki unnt að hraða styrkingu og endurbyggingu dreifikerfisins. Það kom mjög greinilega fram hjá þeim, að þeir töldu það ekki unnt með innlendu vinnuafli. Hins vegar að sjálfsögðu staðfestu þeir, að slíkt mætti gera með óþrjótandi fjármagni og erlendum vinnukrafti, og sjálfsagt er að viðurkenna að sá möguleiki er a. m. k. til að nafninu til. Aðalatriðið var hins vegar það, að þeir töldu, jafnvel með stóru átaki og með eðlilegum framgangsmáta, mjög ósennilegt að þessi markaður yrði meira en 80% mettaður í árslok 1981. Einnig kom greinilega fram, að fjölmargir þættir þessa stóra máls eru því miður — ég legg áherslu á það — því miður enn ókannaðir t. d. leiðir til upphitunar í þéttbýliskjörnum. Það kom fram að þar eru ýmsar leiðir:

1. Bein upphitun með rafofnum.

2. Upphitun með miðstöðvum eða kyndistöðvum og þaðan væri þá dreift heitu vatni til húsa. Þessar stöðvar hafa þann stóra kost, að þar má kynda með svartolíu á toppum og að sjálfsögðu fylgir þessu mjög mikið öryggi, ef raforka bregst.

3. Það kom einnig fram þriðji möguleikinn, þar sem jarðhiti er takmarkaður, en það er notkun á svonefndum hitadælum, sem geta úr lágum hita nýtt mjög mikið hitamagn til upphitunar, og þurfa þær ekki nema brot af þeirri raforku sem annars væri notuð. Það má segja að hitadæla sé eins konar sameiginleg notkun raforku og jarðhita til upphitunar. Ekkert af þessu hefur raunar verið skoðað kerfisbundið, og ég legg áherslu á að þetta þarf að gera og það fyrr en síðar.

Það kom einnig fram á þessum fundi, að kostnaður í heimahúsum við breytingu yfir í rafhitun er mjög mikil, ekki undir 100 þús. kr. að meðaltali og í mörgum tilfellum töluvert meiri, þannig að þessi kostnaður er lauslega reiknaður fyrir landsmenn líklega ekki undir 2 000 millj. kr. Hér er því um ákaflega stórar fjárupphæðir að ræða. Það kom einnig fram, að víða, þar sem afskekkt er, er sannarlega mjög vafasamt að leiða rafmagn eftir þeim kröftugu línum sem nauðsynlegar eru til upphitunar. Það getur verið þjóðhagslega betra að greiða jafnvel olíuna niður í sambærilegt verð og nota hana áfram, og raunar er alveg ljóst að í ýmsum tilfellum er það hentugra. Þetta hefur ekki heldur verið athugað.

Mér þótti sérstaklega fróðlegt svar orkumálastjóra þegar hann var spurður að því, hvernig á því stæði að athugun hefur ekki miðað meira áfram á 11/2 ári en raun ber vitni. Svar hans var ákaflega einfalt, þetta: Það er 21 rafveita í landinu, sem eiga að sjá um slíkt, og þær bíða kannske allar eftir því að ein hefjist handa, og raunar er þetta allt saman svo nátengt, að samstillt átak í þessu sambandi fæst ekki nema einum aðila sé gefið vald til þess að koma því áleiðis. Ég vil sérstaklega nota tækifærið, þar sem hæstv. iðnrh. er hér staddur, að koma þessum upplýsingum á framfæri og leggja ríka áherslu á þá skoðun mína, að þarna þurfi að skoða ofan í grunninn og þegar að hefjast handa um nauðsynlegan undirbúning.

Á þessum fundi kom einnig fram, að dreifikerfi okkar eru byggð upp með allt annað í huga en það öryggi, sem nauðsynlegt er til upphitunar. Dreifikerfi okkar er yfirleitt geislakerfi, þ. e. a. s. það er ein lína sem liggur út frá miðstöð. En dreifikerfi, þar sem öryggis er krafist, eru yfirleitt svonefnd möskvakerfi, þ. e. a. s. það koma línur saman og mynda eins konar hring. Ef bilun verður einhvers staðar má auðveldlega einangra hana á litlu svæði og fá raforku úr tveimur áttum. Allir sjá að sjálfsögðu hve öryggi er langtum meira í slíkum línum. Spurningin er því sú, hvort þessa 4 000 millj. séu jafnvel of lág áætlun með tilliti til þeirrar miklu endurbyggingar sem ég tel líklegt að landsmenn muni krefjast í sambandi við það öryggi sem þeir vilja hafa þegar raforka er notuð til upphitunar. Þetta mál er því mjög stórt og viðamikið.

Þrátt fyrir þá grundvallarskoðun sérfræðinganna, að vafasamt væri að unnt væri að hraða þessum málum meira en fram kemur í skýrslu Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen og ég hef nefnt hér áðan, bað n. þó um nýja athugun, þar sem gert væri ráð fyrir því að hitamarkaðnum væri fullnægt fyrir lok ársins 1980 annars vegar og hins vegar væri 80% fullnægt eða mettað fyrir þann tíma. Ég hef ekki getið þess, að önnur mikilvæg skjöl í þessu sambandi eru að sjálfsögðu þeir útreikningar sem Landsvirkjun hefur látið frá sér fara og birtast í fylgiskjali með frv. um orkuþörf og orkuframboð. Á þessum útreikningum er sá stóri annmarki, að þar er orkuþörf Vestfjarða og Austfjarða ekki tekin með. Nm. voru sammála um að þetta þyrfti að endurskoða og var því Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen beðin um að gera það á sama máta og fyrir aðra landshluta. Bréf barst frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, dags. 26. febr. 1975, ásamt töflu sem sýnir hvernig þessari orkuþörf verður mætt. Mér hefur þótt þetta mjög fróðlegt skjal og ég óskaði eftir því að því yrði dreift á borð dm. Vona ég að það hafi verið gert. Ég ætla því aðeins að lesa upp bréfið, en vísa jafnframt til töflunnar sem menn hafa þá aðgang að. Ég hygg að þessu hafi verið dreift til allra nema kannske nm. í iðnn., því að þeir eiga að hafa það. Í bréfinu segir:

„Hér með fylgir tafla um raforkuþörf alls landsins við mismunandi vöxt húsahitunar, annars vegar full húsahitun árið 1980 og hins vegar 80% af fullri húsahitun 1980. Eins og fram kemur af töflunni er ónotuð orka í kerfinu árið 1980 160 gwst. þegar um 80% hitun er að ræða, en þegar um 100% hitun er að ræða vantar 72 gwst. til þess að fullnægja þörfinni. Tilsvarandi er að segja um aflþörfina. Gert er ráð fyrir að 1977 séu 30 mw. í Kröflu, en 60 mw. árið 1978. Við útreikninga á orkuþörfinni er gert ráð fyrir að Akureyri sé öll rafhituð, eins og reiknað var með í skýrslu okkar til iðnrh. í mars 1974. Ef hins vegar er gert ráð fyrir, að Akureyri fái jarðvarmahitun, minnkar orkuþörfin til hitunar um ca. 90 gwst. og af þessu er ljóst að við þann rafhitunarvöxt, sem við teljum að geti orðið, útilokar sala raforku til málmblendiverksmiðjunnar ekki sölu raforku til húshitunar.“

Undir þetta skrifar, f. h. Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, Sigurður Þórðarson.

Þetta er að sjálfsögðu ákaflega mikilvægt gagn í þessu máli og að mínu viti fullnægir þeirri sjálfsögðu kröfu þm. að fá upplýst hvort bygging umræddrar verksmiðju verði til þess að seinka öðrum framkvæmdum eða til þess að orkuskortur hljótist af. Ég vona í einlægni að hv. þm. Stefán Jónsson ætli að þeir menn, sem þetta skrifa, séu sérfræðingaklíka embættismannakerfisins, eins og hann segir svo smekklega í nál. sínu.

Eins og ég sagði áðan hefur viðræðunefnd um orkufrekan iðnað, að sjálfsögðu í fullu samráði við Landsvirkjun, gengið frá drögum að rafmagnssamningi milli Landsvirkjunar og íslenska málmblendifélagsins hf., sem liggur þá fyrir ef og þegar stjórn slíks fyrirtækis hefur verið sett á fót.

Þessi samningur er að nokkru leyti rakinn í grg. með frv. og skal ég ekki fara í hann í neinum smáatriðum. Þó eru þarna nokkur atriði sem ég tel nauðsynlegt að vekja sérstaka athygli á.

Gert er ráð fyrir því, að til verksmiðjunnar fari samtals 68 mw. af afli og það skiptist þannig, að tryggður grundvöllur eða forgangsafl sé 31 mw., en ótryggður grundvöllur 37 mw. Uppsett afl Sigöldu verður hins vegar 150 mw. en það sem nefna mætti forgangsafl 100 mw. Jafnframt er upplýst, að gert er ráð fyrir því, að orka verði samtals 550 gwst., þar af 244 forgangsorka eða tryggður grundvöllur og 306 afgangsorka eða ótryggður grundvöllur. Með afgangsorku eða ótryggðum grundvelli er átt við að Landsvirkjun er heimilt að rjúfa þá orku eftir, að vísu með ákveðnum skýringum, sem hafa verið á því gefnar og reiknaðar út af Landsvirkjun, en henni er heimilt að rjúfa þessa orku ef hún þarf á henni að halda til annarra hluta.

Í þessum samningi og einnig að sjálfsögðu í grg. með frv. kemur fram með hvaða skilmálum þessi orka er seld. Þar kemur fram, að á fyrsta afhendingardegi er gert ráð fyrir 9.5/1000 úr Bandaríkjadollar eða 1.42 kr. á núv. gengi fyrir forgangsorku, en 0.5/1000 úr Bandaríkjadollar eða 7.5 aurar fyrir afgangsorku og meðalverð verði 75 aurar kwst. Síðan fer þetta hækkandi, fyrst á þriðja, síðan á fimmta, síðan á sjöunda ári. Forgangsorkan 10/1000 úr Bandaríkjadollar eða 1.50, en afgangsorkan hækkar meira eða upp í 16 aura kwst. en samtals 93 aurar kwst. Ég mun koma nánar síðar að samanburði á þessu við aðra notendur hér á landi.

Í þessu sambandi er jafnframt nauðsynlegt að vekja athygli á því, að þrátt fyrir þetta breytilega verð á raforkunni er gert ráð fyrir því, að það breytist með norsku raforkuverði sem er birt og veitt er nýjum kaupendum þar. Um þetta er nokkuð langur kafli, en í grundvallaratriðum er hann sá, að fyrst í lok fjórða starfsárs skal meðalverð, sem kaupanda er gert að greiða, leiðrétt um 100% þeirrar hlutfallslegu breytingar sem verða kann milli norska meðalverðsins, sem í gildi var 1. júlí 1972, margfaldað með 1.25, og þess norska meðalverðs, sem í gildi verður í lok þessa fjórða starfsárs, og síðan aftur í lok áttunda ársins fer fram svipuð endurskoðun og enn í lok tólfta og loks í lok þess sextánda. Um það má að sjálfsögðu deila, hvort rétt var að miða við norska verðið, en staðreyndin er sú, að norskt verð til slíks iðnaðar hefur verið fast frá 1962 og um það hafa verið mjög háværar raddir og raunar stjórnarfrv. eða ályktanir lagðar fyrir Stórþingið um mjög verulega hækkun á þessu raforkuverði. Vel hefði mátt hugsa sér að miða við önnur almenn kerfi, eins og t. d. í Bandaríkjunum. Þar er hins vegar sú staðreynd, að í kerfi eins og t. d. hjá Tennessee Valley Authority og Grand Colee í Norðvesturríkjum Bandaríkjanna, þar hefur nýlega hækkað mjög verulega. Því taldi viðræðunefndin líklegra að það hreyfðist minna á næstu árum. Auk þess er það staðreynd, að á þeim mörkuðum, sem þessi verksmiðja mun selja á, er það fyrst og fremst norðmenn sem eru okkar meginkeppinautar.

Ég vil loks geta þess, sem ég fyrir mitt leyti tel ákaflega mikilvægt ákvæði í þessum samningi. Það er gert ráð fyrir því í 21. gr. að endurskoða megi þennan samning, ef annar hvor aðili óskar þess, og vil ég — með leyfi forseta — lesa þá gr.:

„Ákvæði 11. gr. um verð eru sett með hliðsjón af ástandi því, sem búist er við á mörkuðum fyrir raforku og í samkeppni innan ferrosilikon-iðnaðarins á gildistíma samnings þessa. Ef verulegar breytingar verða á því ástandi eftir gildistöku samningsins, einkum að því er varðar hlutfallslega afstöðu milli orkuverðs á Íslandi og á erlendum mörkuðum, er þjóna orkufrekum iðnaði, eða á gengisskráningu þeirra gjaldmiðla, sem máli skipta starfsemi aðila eða samkeppnisaðstöðu bræðslunnar á erlendum mörkuðum hennar, að því er tekur til orkuverðs, og framangreind ákvæði verða bersýnilega ósanngjörn gagnvart öðrum hvorum aðilanum vegna þessara breytinga, getur sá aðilanna krafist þess að samningar verði teknir upp um breyt. á þessum ákvæðum. Sérhver slík breyt. skal gilda í minnst 5 almanaksár, nema um annað semjist þegar hún er gerð.“

Þarna er gert ráð fyrir því, að þetta íslenska fyrirtæki með íslenskan meiri hl. í stjórn geti samið við íslenska landsvirkjun um breyt. á raforkuverðinu, ef öðrum aðila þykir það nauðsynlegt. Hér tel ég einnig brotið blað og mjög mikilvægt, ekki síst þegar litið er á fastan samning við álbræðsluna í Straumsvík um raforkuverð.

Oft hefur verið rætt um afgangsorku og það kom fram töluvert á fundum n., að fjallað var um það hvort ekki mætti hugsa sér aðra notkun fyrir afgangsorku. Í því sambandi var m. a. minnst á heyþurrkun. Sérfræðingar þeir, sem þar voru mættir, upplýstu að orkunotkun t. d. til heyþurrkunar væri raunar hverfandi miðað við það, sem hér um ræðir, og þar að auki fellur hún á þeim tíma þegar afgangsorkan er mest og líklegt að það sé til meiri afgangsorka en hér um ræðir, þannig að vel megi þjóna þeim þörfum einnig. Afgangsorkan er að sjálfsögðu fyrst og fremst takmörkuð á veturna. En aðalatriðið er, að það á bæði töluvert í land og margt ókannað í þessu sambandi og markaðurinn tiltölulega mjög lítill.

Það kemur einnig fram í grg. Landsvirkjunar að það verð, sem sett er á afgangsorkuna, sé hátt og mjög vafasamt, segir þar nokkurn veginn orðrétt, að kostnaðarverð afgangsorkunnar sé jafnvel 7.5 aurar á kwst.

Í lögum um Landsvirkjun er svo hljóðandi gr., sem mér þykir rétt að lesa, með leyfi forseta :

„Landsvirkjun gerir orkusölusamninga við Rafmagnsveitur ríkisins, héraðsveitur og iðjuver innan þeirra marka sem segir í 2. gr. Til orkusölusamninga til langs tíma við iðjufyrirtæki, sem nota meira en 100 millj. kwst. á ári, þarf Landsvirkjun leyfi ráðh. þess er fer með raforkumál. Slíkir samningar mega ekki að dómi ráðh. valda hærra raforkuverði til almenningsrafveitna en ella hefði orðið.“

Með þessa gr. að leiðarljósi hefur Landsvirkjun metið þetta raforkuverð. Ég skal ekki lesa það upp, en vísa þm. á þá grg. sem fylgir hér með frá Landsvirkjun og gerir að mínu mati mjög glögga grein fyrir þessu máli. Hins vegar þótti iðnn. ekki koma nógu vel fram samanburður við aðra orkukaupendur í landinu. Því óskaði iðnn. eftir því við Landsvirkjun, að henni yrði látinn í té útreikningur á raforkuverði við sömu aðstæður og gert er ráð fyrir til járnblendiverksmiðjunnar. Iðnn. barst bréf, dags. 24. febr. 1975, sem undirskrifað er af Jóhanni Má Maríussyni aðstoðaryfirverkfræðingi, sem mættur var á fundi n. Þetta er einnig að mínu mati svo mikilvægt skjal í þessu sambandi, að ég hef jafnframt óskað þess, að því væri dreift á borð dm.

Þarna kemur fram í örfáum orðum, þegar reiknað er eftir núgildandi taxta gjaldskrá Landsvirkjunar, sem hver og einn stórkaupenda sem upp vorn taldir áðan á aðgang að, að einingarverð raforku við 220 kw. spennu er núna kr. 1.40 kwst. Verðið, sem málmbræðslunni í Hvalfirði er ætlað að greiða fyrir forgangsorkuna, miðað við nákvæmlega sömu aðstæðu, 8000 stunda nýtingartíma og 220 kw. spennu er 1.42 kr., en hækkar síðan upp í 1.50 kr. kwst. Er þarna að sjálfsögðu ekki tekin nein afstaða til hækkunar vegna viðmiðunar við norska verðið. Þetta sýnir, svo að ekki verður um villst, að ef t. d. Rafmagnsveitu Reykjavíkur eða Rafmagnsveitum ríkisins tekst að auka nýtingartíma sinn, t. d. með einhverjum iðnaði eða einhverri notkun sem nýtir afgangsorkuna, þannig að nýtingartíminn aukist upp í 8000 stundir, eigi þessi fyrirtæki kost á raforku með sambærilegu og raunar heldur lægra verði en járnblendiverksmiðjan á þegar um forgangsorkuna er rætt.

Þetta eru meginatriði þess, sem fram kom í viðræðum við þá raforkumenn, sem á fundi n. mættu. Ég held að það sé óumdeilanlegt og kemur greinilega fram í þeirra skjölum, að í fyrsta lagi mun þessi verksmiðja ekki takmarka orku til annarra þarfa hér á landi. Þetta er raunar undirstrikað í áliti Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, sem hún lét n. í té. Einnig kemur greinilega fram, að raforkuverðið er mjög sambærilegt við það sem gerist til innlendra aðila við svipaðar aðstæður.

Mjög mikill hluti af störfum iðnn. var á sviði umhverfis- og heilbrigðismála. Þau mál eru ofarlega á baugi, og þótt ég fagni því sannarlega, — þar þurfum við að gæta okkar mjög, íslendingar, að falla ekki í sömu gröf og margar aðrar þjóðir hafa fallið í, — þá hefur mér satt að segja stundum komið í hug að við þurfum einnig að gæta þess að skjóta þar ekki yfir markið. Við þurfum að gæta þess að rúm heimild verði fyrir okkur sjálf að lifa í okkar landi. Ég gat þess, að eitt af grundvallarskilyrðum fyrir slíkum iðnaði, sem sett voru af fyrrv. ríkisstj., var að gætt yrði fullkomnustu mengunarvarna. Á þetta var ávallt lögð mjög mikil áhersla. Ég get getið þess hér til fróðleiks um afstöðu í þessu sambandi, að sumir, sem við var rætt, töldu þetta mjög óþarft skilyrði af hendi svo fámennrar þjóðar sem ætti nægt landrými. Hins vegar erum við ekki á þessu máli og frá þessu var aldrei hvikað. Ég tek einnig undir það sem fram hefur komið, að ég held að í þessu sambandi megum við læra af reynslu t. d. álbræðslunnar og kísiliðjunnar. Þessi fyrirtæki voru reist á tíma þegar slíkar raddir um hreinsun voru ekki háværar og raunar litlar og þá voru þessi mál öll litin öðrum augum. Ég vil harma það og ég vænti þess, að úr því fáist bætt.

Ég gat þess lauslega áðan, að frá slíkri verksmiðju sem þessari berst töluvert af úrgangi. Fyrst og fremst er það kísilryk, sem er um 21 þús. tonn við framleiðslu á 47 þús. lestum af járnblendi. Þetta kísilryk er mjög fíngert, mikið innan við það sem nefnt er 1 míkrón. Það er álíka fíngert og vindlareykur og berst að sjálfsögðu auðveldlega út í andrúmsloftið. Allt fram á allra síðustu ár hefur þetta verið látið aðgerðarlaust, og raunar mun ég hér á eftir lesa úr ritum ýmissa manna sem staðfesta að þetta hefur ávallt verið talið skaðlaust, þó að ég sé ekki að taka undir þau orð út af fyrir sig, en fyrst og fremst verið talið til óþrifnaðar og leiðinda á þéttbýlisstöðum. Á þessu hefur hins vegar orðið mjög mikil breyting upp á síðkastið og gerðar strangar kröfur til þess að losna við þetta ryk. Einnig berst út frá verksmiðjunni — ofninum réttara sagt — mikið af kolsýrlingi, sem er að sjálfsögðu eitruð lofttegund, en hann er brenndur yfir ofninum með því að draga þar inn mikið af súrefni og fer þessi lofttegund síðan út sem koldioxyd eða tvísýringur og fer þannig upp í hin hærri lög andrúmsloftsins. Jafnframt er í slíkri verksmiðju nokkuð af föstum úrgangi, þó raunar lítið, það eru samtals um 2500 lestir. U. þ. b. helmingurinn af þessu er lélegt járnblendi eða úrgangsjárnblendi, sem myndast ofan á ofninum, og er það flutt úr landi, selt við lágu verði og notað í lakari blöndur af járni. Þá eru eftir u. þ. b. 1200–1500 lestir, sem eru fyrst og fremst brot úr steypukerum, brot úr ofninum og þess háttar úrgangur. Þessi úrgangur hefur aldrei verið talinn skaðlegur, hefur verið um það spurt og reyndar hef ég ekki séð neinar fullyrðingar um það.

Athyglin hefur fyrst og fremst beinst að rykinu. En áður en ég kem að því þykir mér nauðsynlegt að vekja athygli hv. d. á þeim ráðstöfunum sem við íslendingar höfum gert til þess að fást við slík mál.

Alþingi samþ. 6. mars 1969 lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit og 15. júní 1972 var sett reglugerð um varnir gegn mengun af völdum eiturefna og hættulegra efna. Þetta eru ítarleg lög og ítarleg reglugerð, og þar kemur greinilega fram, m. a. í 5. gr., þar sem segir svo: „Sá, er hefja vill starfrækslu, sbr. 3. gr., eða reisa verksmiðju eða iðjuver, sbr. 4. gr., skal senda Heilbrigðiseftirliti ríkisins umsókn um starfsleyfi.“ Við lestur þessarar greinar er það alveg ljóst að löggjafinn ætlast til þess að Heilbrigðiseftirlit ríkisins sé sú opinbera stofnun sem ber veg og vanda af því að rekstrarvarkárni og alls hins besta sé gætt við byggingu iðjuvera og verksmiðja. Á því leikur raunar enginn vafi. Hins vegar er fróðlegt með tilvísun til þess, sem ég las áðan úr 5. gr., að velta því fyrir sér hvenær á að sækja um slíkt leyfi og kem ég að því nokkru síðar. Einnig vil ég vekja athygli á lögum sem samþ. voru á Alþ. 3. apríl 1971, um náttúruvernd. Þar segir í 29. gr., með leyfi forseta:

„Valdi fyrirhuguð mannvirkjagerð eða jarðrask hættu á því, að landið breyti varanlega um svip, að merkum náttúruminjum verði spillt eða hætta á mengun lofts eða lagar, er skylt að leita álits Náttúruverndarráðs áður en framkvæmdir hefjast. Ef það er vanrækt, getur Náttúruverndarráð krafist atbeina lögreglustjóra til að varna því að verk verði hafið eða því fram haldið. Virkjanir, verksmiðjur og önnur stór mannvirki skulu hönnuð í samráði við Náttúruverndarráð. Sama gildir um vegalagnir til slíkra mannvirkja.“

Þarna er jafnframt ljóst og ég hygg raunar óumdeilanlegt, að Náttúruverndarráð er sá opinberi aðili sem á að gæta þess að rétt sé farið að í öllum atriðum sem varða náttúruvernd. Það er sú miðstöð sem leita ber til, og það er sú miðstöð sem ber að láta fara fram þær rannsóknir og athuganir sem það, þ. e. náttúruverndaráð, telur nauðsynlegar.

Ég sagði áðan, að það orkar e. t. v. nokkuð tvímælis hver á að sækja um, og á þeim fundum, þar sem rætt var við fulltrúa þessara stofnana, kom þetta mjög greinilega fram. Ekki er ljóst í þeirra huga að unnt sé formlega að sækja um leyfi eða jafnvel álit áður en á fót er kominn aðili sem hyggst byggja verksmiðju eða iðjuver. Þetta vil ég að komi hér fram, því að mínu viti er nauðsynlegt að þetta ákvæði, ef misskilningi veldur, verði lagfært. Þrátt fyrir þetta taldi viðræðunefnd um orkufrekan iðnað nauðsynlegt að leita álits Náttúruverndarráðs og hafa jafnframt samráð við Heilbrigðiseftirlit ríkisins strax og þetta mál fór að taka fastan svip. Því var Náttúruverndarráði skrifað 2, maí 1973, og vegna þess hvað það bréf hefur verið rangtúlkað tel ég nauðsynlegt að ég lesi það bréf, með leyfi forseta, það er skrifað 2. maí 1973 og hljóðar svo:

„Náttúruverndarráð, Laugavegi 13, Reykjavík.

Viðræðunefnd um orkufrekan iðnað hefur á undanförnu einu og hálfu ári unnið að athugun á hugsanlegri staðsetningu orkufreks iðnaðar. Síðustu mánuði hefur athyglin einkum beinst að fjórum stöðum: Straumsvík sunnan við Hafnarfjörð, Geldinganesi við Reykjavík og Grundartanga og Galtalæk norðan Hvalfjarðar. Á grundvelli skýrslu, sem Verkfræðiþjónusta dr. Gunnars Sigurðssonar gerði fyrir n. um umrædda fjóra staði, hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að Grundartangi við Hvalfjörð virðist bjóða upp á hagkvæmustu staðsetningu fyrir þann iðnað sem einkum er til umr. Sá iðnaður, sem líklegast er að rísi þarna, er málmblendibræðsla, annaðhvort til framleiðslu á ferrosilikón eða ferrokrómi. Í öllum viðræðum við erlenda aðila hefur viðræðunefndin lagt þunga áherslu á að mengun, af hvaða tagi sem nefnist, verði haldið eins lítilli eins og framast er kostur, og hafa hinir erlendu viðræðuaðilar n. fullkomlega fallist á þau sjónarmið.

Viðræðunefndin leyfir sér að fara fram á umsögn yðar með tilliti til staðsetningar iðnaðar af því tagi sem getur hér að ofan á svæðinu norðan Hvalfjarðar.

Meðfylgjandi er eintak af skýrslu Verkfræðiþjónustu dr. Gunnars Sigurðssonar um staðsetninguna. Enn fremur vill n. benda á, að dr. Vilhjálmur Lúðvíksson hjá Rannsóknaráði ríkisins hefur fylgst með viðræðum, einkum að því er varðar mengunarvandamál. Hann hefur með höndum allar þær upplýsingar sem n. hefur aflað um mengun af völdum iðjuvera af því tagi sem um ræðir svo og mögulegar mengunarvarnir.“

Undir þetta skrifar fyrir hönd n. Jóhannes Nordal, form. hennar. En ég vil jafnframt geta þess, að dr. Vilhjálmur Lúðvíksson var og er meðlimur í Náttúruverndarráði.

Þarna fer ekki á milli mála að Náttúruverndarráð er beðið um álit á staðsetningu verksmiðjunnar á Grundartanga, að sjálfsögðu með tilvísun til þeirrar 29. gr. sem ég las áðan, þar sem segir að Náttúruverndarráði sé skylt að gæta þess að ekki verði spjöll á umhverfi o. s. frv.

17. maí 1973 svarar Náttúruverndarráð þessu bréfi og tilkynnir viðræðunefndinni að þeir Eyþór Einarsson, Vilhjálmur Lúðvíksson, Sigurður Þórarinsson og Árni Reynisson hafi verið tilnefndir til að fjalla um það mál. Síðan, 4. júlí 1973, skrifar Náttúruverndarráð viðræðunefndinni svohljóðandi bréf:

„Efni: Staðsetning málmbræðslu í Hvalfirði. Náttúruverndarráð hefur móttekið bréf yðar dags. 2. maí 1973, þar sem óskað er umsagnar ráðsins um staðarval hugsanlegrar málmbræðslu á Grundartanga í Hvalfirði.

Ráðið hefur nú látið athuga og sendi fulltrúa sína á vettvang hinn 20. júní s. l. í fylgd með dr. Gunnari Sigurðssyni verkfræðingi, sem veitti upplýsingar um tilhögun mannvirkja.

Niðurstöður ráðsins eru eftirfarandi:

1. Náttúruvernd. Ráðið telur ekki að fyrirhuguð staðsetning við Grundartanga stefni í hættu neinum náttúruminjum eða öðrum hagsmunum náttúruverndar.

2. Mengun. Skv. upplýsingum frá Vilhjálmi Lúðvíkssyni um viðræður við hugsanlega erlenda þátttakendur í fyrirtækinu er gert ráð fyrir fullkomnustu aðferðum, sem völ er á, til hreinsunar á ryki í útblásturslofti og miðað við að standast kröfur hliðstæðar því sem gerðar eru til nýrra verksmiðja sömu gerðar í Bandaríkjunum. Náttúruverndarráð vísar nánari meðferð um það efni til Heilbrigðiseftirlits ríkisins sem fjallar um leyfisveitingar til mengandi iðnrekstrar skv. reglugerð um það efni.

3. Jarðrask. Óhjákvæmilegt er, að nokkurt jarðrask verði vegna jöfnunar verksmiðjusvæðis og efnistöku í næsta nágrenni. Vill Náttúruverndarráð leggja áherslu á að gengið verði vel frá öllum jarðvegssárum að framkvæmdum loknum og laus jarðvegur bundinn með sáningu.

4. Byggingar. Náttúruverndarráð beinir þeim tilmælum til viðræðunefndar að hlutast til um að tilhögun og útlit mannvirkja verði þannig að sem best fari í landslaginu.

Að öðru leyti hefur Náttúruverndarráð ekkert við fyrirhugaða staðsetningu málmbræðsluverksmiðju að athuga.

Með vinsemd og virðingu,

Árni Reynisson, framkvæmdastjóri.“

Hér fer að sjálfsögðu ekkert á milli mála, eins og form. Náttúruverndarráðs, Eysteinn Jónsson tók fram. Bréfið skýrir sig sjálft. Það getur hver og einn maður lesið. Ég harma það, hvað það hefur verið notað blekkjandi og mistúlkað á furðulegasta máta.

Náttúruverndarráð segir í 1. lið : „Ráðið telur ekki að fyrirhuguð staðsetning við Grundartanga stefni í hættu neinum náttúruminjum eða öðrum hagsmunum náttúruverndar.“ Og það segir í lok bréfsins: „Að öðru leyti hefur Náttúruverndarráð ekkert við fyrirhugaða staðsetningu málmbræðsluverksmiðjunnar að athuga.“

Síðan fara nokkur bréf milli Náttúruverndarráðs og iðnrn., m. a. þar sem Náttúruverndarráð leggur áherslu á í samræmi við 29. gr. að fá að fylgjast með hönnun verksmiðjunnar. Ég vil geta þess hér, að fulltrúa Náttúruverndarráðs hefur þegar verið veittur aðgangur að þeim frumgögnum sem nú liggja fyrir um þessa hönnun, og mun Náttúruverndarráð fá öll þau gögn sem það óskar í því sambandi. Sama hefur raunar verið gert gagnvart Heilbrigðiseftirliti ríkisins.

Ég kem nánar að öðrum þáttum þessa máls síðar.

Mér sýnist því, að viðræðunefnd um orkufrekan iðnað verði ekki áfelld fyrir að hafa ekki gætt löglegra leiða í þessu sambandi og réttra leiða. N. leitaði til Náttúruverndarráðs strax þegar mál þetta var að komast á nokkurt skrið, og svar Náttúruverndarráðs barst mjög fljótlega.

Það er rétt að geta þess jafnframt, að náttúruverndarnefnd Borgarfjarðarsýslu hefur haft málið til meðferðar og liggur álit hér fyrir. Þetta var tekið til meðferðar 16. jan. 1975 og í niðurlagsorðum þess álits segir, með leyfi forseta:

„Nefndin telur því skv. þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, með tilvísun til framangreindra atriða, að starfræksla málmblendiverksmiðju á umræddum stað muni ekki líkleg til þess að spilla náttúrufari landsins, en telur þó æskilegt að nákvæm rannsókn á lífríki Hvalfjarðar og umhverfis hans fari fram áður en byggingarframkvæmdir hefjast, ef af framkvæmdum verður við Hvalfjörð.“

Þetta er einnig sá aðili sem lögum skv. ber að fjalla um málið frá sjónarmiði náttúruverndar. Ég gat þess áðan, að viðræðunefndin hefði jafnframt samband við Heilbrigðiseftirlit ríkisins. Áður en ég kem að því þykir mér rétt að geta þess, að á þremur fundum iðnn. mættu fulltrúar Náttúruverndarráðs, Heilbrigðiseftirlits ríkisins, landlæknir og loks prófessor Agnar Ingólfsson frá líffræðiskor Háskóla Íslands. Þetta voru allt saman mjög fróðlegir fundir, og það, sem ég segi hér, er ekki síst byggt á þeim upplýsingum sem þar komu fram.

Forstjóri Heilbrigðiseftirlits ríkisins lagði fram skýrslu um afskipti Heilbrigðiseftirlitsins af þessu máli. Þar kemur fram að fyrstu afskipti Heilbrigðiseftirlits ríkisins af fyrirhugaðri málmblendiverksmiðju við Hvalfjörð voru á fundi sem hann og starfsmaður Heilbrigðiseftirlitsins mættu á síðla 1973 með verkfræðingum frá fyrirtækinu Union Carbide. Einnig var Heilbrigðiseftirlitinu gerð skrifleg grein fyrir öllum meginatriðum þessa máls með grg. frá viðræðunefnd um orkufrekan iðnað, dags. 22, maí 1974. Þá getur forstjóri Heilbrigðiseftirlitsins þess, að hann hafi fengið í hendurnar á árinu 1973 gögn frá Noregi. Það eru gögn, sem fengust frá norska svokallaða Rökskaderådet sem hefur með slík mál að gera þar. Þeirra gagna aflaði Rannsóknaráð ríkisins af sérstökum ástæðum, og var þeim strax komið á framfæri við Heilbrigðiseftirlit ríkisins. Einnig skýrði forstjóri Heilbrigðiseftirlitsins frá því, að hann fór til Bandaríkjanna s. l. haust og heimsótti þar verksmiðjur Union Carbide og ræddi við lækna og aðra sérfræðinga fyrirtækisins á þessum sviðum. Þá kom jafnframt fram, og lögð var fram skýrsla frá starfsmanni Heilbrigðiseftirlitsins, Eyjólfi Sæmundssyni, þar sem hann gerir grein fyrir heimsókn sinni í jan. s. l. til Union Carbide og til umhverfisverndarráðs Bandaríkjanna — Environmental Protection Agency — og einnig til heilbrigðisyfirvalda í Washington D. C.

Á þessum fundum með heilbrigðiseftirlitinu kom m. a. fram, að á fundi Eyjólfs Sæmundssonar með sérfræðingum umhverfisverndarráðs Bandaríkjanna fengust mikil gögn og raunar þau gögn öll, sem sú stofnun kvaðst hafa undir höndum um rannsóknir sínar á úrgangsefnum frá þessum iðnaði. Þar fékkst m. a. mjög mikil skýrsla um járnblendiiðnaðinn, þar sem fram koma efnagreiningar á ryki eða úrgangsefni úr reykháfum slíkra verksmiðja. Í þessum efnagreiningum, sem ég hef hér við höndina, eru efnagreind 26 frumefni og með hinum ólíkustu og nákvæmustu aðferðum. Það er rétt að geta þess, að þessar efnagreiningar eru mjög á sama veg og efnagreiningar sem áður höfðu fengist frá vísindamönnum Union Carbide Corporation. Á grundvelli þessara upplýsinga lagði Heilbrigðiseftirlit ríkisins fram grg. um hugsanlega mengun og mengunarvarnir vegna fyrirhugaðrar járnblendiverksmiðju í Hvalfirði. Grg. þessi er að mínu mati mjög fróðleg. Hún er 10 síður og mun ég að sjálfsögðu ekki lesa hana hér, en ég vil þó leyfa mér að lesa lokaorð þessarar grg. Þar segir:

„Helstu niðurstöður eru sem hér segir:

1. Telja verður að mengun frá fyrirhugaðri verksmiðju verði ekki í þeim mæli að lífríki umhverfis hennar stafi teljandi hætta af.

2. Staðreynd er, að heilsu starfsfólks í slíkum iðnaði var nokkur hætta búin og ekki er útilokað að kísilveikitilfelli hafi komið upp. Með hliðsjón af þeim öryggis- og eftirlitsaðgerðum, sem fyrirhugaðar eru, er þó ljóst að heilsu starfsfólks verði ekki stefnt í voða umfram það sem almennt gerist í iðnaði hérlendis.

3. Gert er ráð fyrir að fyrirhuguð verksmiðja verði í meginatriðum eins vel úr garði gerð með tilliti til verndunar umhverfis og heilsu starfsfólks og tæknilega er mögulega. Bent hefur þó verið á nokkur atriði sem betur mættu fara, t. d. uppskipun hráefnis og gerð útblástursbúnaðar. Munu heilbrigðisyfirvöld beita sér fyrir því að þau verði færð í betra horf þegar formleg umsókn um byggingar- og rekstrarleyfi hefur borist frá þeim aðila sem ábyrgur verður fyrir byggingu og rekstri fyrirtækisins.

4. Hafa þarf náið eftirlit með heilsu starfsfólks og byggingu og rekstri verksmiðjunnar ef af framkvæmdum verður. Einnig er nauðsynlegt að gerð verði könnun á lífríki Hvalfjarðarsvæðisins áður en rekstur hefst, t. d. á vegum líffræðistofnunar Háskóla Íslands, til þess að unnt verði að fylgjast með hugsanlegum breytingum. Hér ber sérstaklega að hafa í huga að líklegt er að rætt verði um frekari útþenslu iðnaðar á svæðinu í framtíðinni. Til greina kemur að heilbrigðisyfirvöld leiti til erlendra stofnana, t. d. World Health Organisation, um aðstoð við skipulagningu alls eftirlits varðandi fyrirhugaða verksmiðju.

5. Ljóst er af framangreindu, að Heilbrigðiseftirlit ríkisins mælir á þessu stigi málsins ekki gegn því, að fyrirhugaðri verksmiðju verði veitt starfsleyfi með venjulegum skilyrðum.“

Venjuleg skilyrði í umsögn frá Heilbrigðiseftirliti ríkisins með hliðsjón af umsögn annarra aðila má sjá af dæmigerðri afgreiðslu slíkra verksmiðjumála frá hendi heilbr.- og trmrn. sem hér fylgir með.

Þetta dregur í fáum atriðum saman margar mjög fróðlegar og ítarlegar upplýsingar sem fram komu í þessu skjali og að sjálfsögðu eru öllum aðgengilegar og ég ráðlegg þeim að skoða sem á því hafa áhuga. Í mínum huga er það einna ríkast að þarna kemur fram að Heilbrigðiseftirlitið og sérfræðingar þess hafa sinnt þessu máli af mikilli alúð. Þeir hafa kynnt sér mikið magn af gögnum og þeir ætla sér að gera þær kröfur til þessarar verksmiðju sem tryggi að hún verði til fyrirmyndar með tilliti til öryggis og umhverfisverndar. Hins vegar hafa þeir komist að þeirri mikilvægu niðurstöðu að verksmiðjan geti, miðað við þá staðla sem gert er ráð fyrir að þarna ríki, fullnægt þeim kröfum sem Heilbrigðiseftirlitið kann að gera á síðara stigi málsins.

Ég vil geta þess hér, að verkfræðingur Heilbrigðiseftirlitsins hefur í framhaldi af þessu gert viðvart um þær kröfur sem þeir kunni einna mestar að gera og fyrst og fremst eru varðandi hráefnismeðferð, eins og þarna kom fram.

Í þessu sambandi öllu hefur verið ákaflega mikið um það rætt að amerískir staðlar verði teknir til fyrirmyndar. Ég tel því rétt að fara um það örfáum orðum, enda kemur þetta töluvert fram í skýrslu Heilbrigðiseftirlits ríkisins.

Stofnunin Environmental Protection Agency — eða umhverfisverndarráð Bandaríkjanna — var sett á fót fyrir einum 4 eða 5 árum. Sú stofnun hefur síðan látið æði mikið að sér kveða í umhverfismálum í Bandaríkjunum og hefur hlotið viðurkenningu um heim allan fyrir skelegga framkomu í þeim málum. Þó er það staðreynd, að allt á þessum sviðum er ákaflega nýtt. T. d. eru staðlar þessarar stofnunar fyrir gæði lofts frá 30. apríl 1971. Þessir staðlar eru ákaflega fróðlegir og liggja fyrir að sjálfsögðu, en eru vitanlega um almenn loftgæði, en ekki um þennan iðnað sem slíkan. Hins vegar eru staðlar þessarar stofnunar um þennan iðnað frá 21. okt. 1974. Þar eru meginþættirnir þeir, að ákveðið er að ekki megi föst efni vera meiri í útblæstri frá slíkri verksmiðju en 0,45 kg fyrir hvern mw.tíma. Hefur verið reiknað hvað þetta yrði hér., og þá yrðu það um 200 tonn á ári. Það er að sjálfsögðu ákaflega mikil lækkun frá 21 þús. tonnum af ryki sem þarna myndast. Hér eru jafnframt settar ákveðnar reglur um það, hvernig fylgjast eigi með slíku. Gert er ráð fyrir því að rykið verði ekki sýnilegt, en eftir miklar athuganir er sú aðferð talin ábyggilegust í mati á ryki frá þessum verksmiðjum.

Það kemur einnig fram í þessari skýrslu, að umhverfisverndarráð Bandaríkjanna telur pokasíur eins og þær, sem gert er ráð fyrir að nota hér, þær fullkomnustu sem völ er á í þessu skyni. Þessar pokasíur eru í 12 deildum og 144 pokar, u. þ. b.. 10 m langar slöngur í hverri deild. Þær endast í 2–4 ár, eftir því hvaða efni er notað. Það hefur verið dálítið gagnrýnt, sérstaklega af einum hv. nm., að gert er ráð fyrir því að fara eftir stöðlun þessarar stofnunar í Bandaríkjunum, og í því sambandi er fullyrt að þessi stofnun setji sína staðla óeðlilega væga. Þessu vil ég andmæla. Þetta kom m. a. greinilega fram í viðræðum sem ég átti við fulltrúa þessarar stofnunar, þar kom fram að rykmagn og óhreinindi í lofti yfir stórborgun í Bandaríkjunum er nú þegar svo mikið að gera verður mjög strangar kröfur til einstakra iðngreina. Menn verða í þessu sambandi að gæta þess, að í kringum stórar borgir á þessum stöðum eru fjölmargar iðngreinar og því magnið, sem frá þeim kemur, margfalt það sem koma mundi frá einni verksmiðju í Hvalfirði. Þetta hefur m. a. orðið til þess, að aðrar þjóðir, sem eru reyndar skemmra á veg komnar í þessu efni, eins og norðmenn og svíar, hafa sett sínar kröfur töluvert vægari. T. d. hafa svíar allt fram á síðustu stund leyft meira en tvöfalt meira magn af ryki eða föstum efnum í útblæstri járnblendiverksmiðja. Ég átti þess kost fyrir réttum tveimur vikum að heimsækja stofnun þá í Noregi, sem nýlega hefur verið mjög efld og á að fylgjast með slíkum málefnum þar og nefndist Statens forureningstilsyn. Þar var mér tjáð, að norðmenn hafa ekki enn gefið út sína staðla, þeir eru væntanlegir fljótlega. Hins vegar fékk ég í hendurnar afrit af bréfi, sem sú stofnun hefur skrifað einu norsku fyrirtæki í þessu sambandi, og þótt ég sjái ekki ástæðu til að lesa það upp hér, vil ég þó geta þess að kröfurnar, sem þar eru settar eru langtum vægari en þær, sem fram koma frá umhverfisverndarráði Bandaríkjanna. Hér er t. d. sett fram sú krafa að rykinnihaldið megi aldrei verða meira en 100 mg á rúmmetra lofts. Þetta er a. m. k. að mínu mati í tvöfalt meira en bandaríkjamenn leyfa. Hér er einnig sett fram sú heimild að reka megi þessa verksmiðju í samtals 4% af rekstrartímanum á ári hverju án þess að nokkur hreinsitæki séu notuð. Slíkt er ekki heimilt í Bandaríkjunum og ég geri varla ráð fyrir því að það verði heimilt hér. Ég vil einnig geta þess, að ég spurði þessa n. sérstaklega að því, hvort þeir gætu vísað mér á líffræðilegar athuganir á þessum málum. Þeir svöruðu því þannig, að þeirra líffræðingar hefðu ekki bent á nein úrgangsefni frá þessum verksmiðjum sem þeir hefðu talið ástæðu til að óttast og því væru slíkar athuganir ekki fyrir hendi.

Eins og ég gat um áðan voru á þessum þremur fundum mættir margir ágætir forustumenn þessara stofnana. Ég vil í þessu sambandi nefna það, að landlæknir skýrði þar mjög vel frá sínum afskiptum af þessum málum og gerði grein fyrir því að hann hefur kynnt sér fjölmörg gögn sem hann hefur haft undir höndum um málið, og hann skýrði frá þeirri meginniðurstöðu sinni að þessi verksmiðja ætti að geta orðið til fyrirmyndar að þessu leyti og til eftirbreytni fyrir aðrar slíkar verksmiðjur sem hér á landi kynnu að verða byggðar. Hann lýsti hins vegar þeim ákveðna ásetningi sínum að gera strangar kröfur til verksmiðjunnar og m. a. að fá hingað til lands sérfræðing frá heilbrigðismálastofnun Sameinuðu þjóðanna til þess að aðstoða við gerð slíkra starfsskilyrða. Ég fagna því, sem einnig kom fram hjá forstjóra Heilbrigðiseftirlitsins að þarna er ákveðinn vilji til þess að tryggja að allt öryggi og umhverfi í sambandi við þessa verksmiðju verði til fyrirmyndar. Og ég fagna því einnig að þessir aðilar, sem vonandi eru ekki í þeirri sérfræðingaklíku embættismannakerfisins sem hv. þm. Stefán Jónsson skrifar um, — ég fagna því að þessir menn hafa komist að þeirri niðurstöðu að þessi verksmiðja geti fullnægt þessum ströngu kröfum sem þeir hyggjast setja.

Í þessu sambandi hefur sérstaklega verið rætt um kísilveiki og ýmis gögn hafa verið skoðuð.

Fram kemur í skýrslu Heilbrigðiseftirlitsins, eins og fram kom hjá landlækni, að í gömlum skýrslum frá Karolinska Institutet í Stokkhólmi, mjög ítarlegu verki tveggja vísindamanna þar, sem skoðuðu fjölmörg tilfelli sem skráð höfðu verið með þessu nafni á fyrri árum hjá norskum og sænskum iðnaði, að þeir töldu að 8 tilfelli gætu talist af þessu tagi, en komust að þeirri meginniðurstöðu að mjög lítil ástæða sé til að óttast kísilveiki í slíkum iðnaði. Ástæðan er einfaldlega sú að rykið í þessum verksmiðjum er ekki kristallerað, en það er fyrst og fremst slíkt ryk, sem veldur lungnaveiki. Það kemur einnig fram í þessum skýrslum, að ef ástæða er til að óttast eitthvað, þá er það fyrst og fremst meðferð kvartsins, sem er hráefnið í þessum iðnaði og er kristallerað, enda kom fram hjá landlækni og heilbrigðisyfirvöldum að á því sviði hyggjast þau gera einna strangastar kröfur.

Ég vil einnig taka það fram, að í skýrslu Heilbrigðiseftirlitsins er greint frá því, að í viðræðum við heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum tókst ekki að fá upplýsingar um nein tilfelli slíkrar veiki í þessum iðnaði. Sérstaklega hefur verið gert að umræðuefni frumefnið kadmíum, og var þar, eins og fram kom við 1. umr. þessa máls, pantað skeyti af hv. þm. Stefáni Jónssyni frá námsmanni einum í London. (StJ: Hann er ekki námsmaður, hann er læknir sem vinnur að gerð doktorsritgerðar.) Hann er við framhaldsnám, það heitir Postdoctoral study. Um þetta er sérstaklega fjallað af forstjóra Heilbrigðiseftirlits ríkisins, Baldri Johnsen, í grg sem hann hefur um það skrifað og gerði grein fyrir á fundi nefndarinnar. Hann hrekur það hér að hætta geti stafað af þessu efni, því að það sé í ákaflega litlu magni í úrgangsefnum þessarar verksmiðju. Það er rétt að geta bréfs, sem borist hefur frá eiturefnanefnd. Heilbrigðiseftirlit ríkisins sendi eiturefnanefnd þetta mál til umsagnar og fór fram á umsögn n. fyrir fundinn sem ákveðinn var með iðnn. Alþ. Ég vil taka það fram, að ég tel að það hafi raunar verið allt of skammur tími fyrir eiturefnanefndina að fjalla um þetta mál, enda kemur það greinilega fram í bréfi forstjóra eiturefnanefndar, að hann hefur ekki haft tíma til að fjalla um það. Þó er rétt að geta þess, að hann tjáir sig sammála þessu mikilvæga atriði um kadmíum og er það út af fyrir sig töluvert framlag í málið frá þeim varkára manni, sem þetta skrifar, prófessor Þorkeli Jóhannessyni.

Á fundi n. var einnig rætt um blý og upplýsti verkfræðingur Heilbrigðiseftirlitsins, Eyjólfur Sæmundsson, að hann hafi gert sérstaka útreikninga á því og væri blý frá þessum útblæstri hverfandi, satt að segja langtum minna en ég hafði þorað að vona og ekki nema örlítið brot af blýmagni frá bifreiðum okkar reykvíkinga á ári hverju.

Kvikasilfur hefur oft borið á góma og töluvert verið um það rætt. Í efnagreiningu frá umhverfisverndarráði Bandaríkjanna kemur ekki fram að neitt kvikasilfur sé. Því tók ég þann kostinn að skrifa sérstaklega þessu umhverfisverndarráði og spyrja um kvikasilfur. Svar barst mér 22. jan. 1975, þar sem greint er frá því, að í 10 sýnum sem tekin voru af slíkum ofnum, fannst hvergi mælanlegt kvikasilfur þrátt fyrir það að hinum nákvæmustu leiðum var beitt til athugunar, m. a. sem nefnt er á ensku Electron beam microanalysis, sem er ákaflega nákvæm efnagreiningaraðferð. Einnig kemur þar fram að gefnu tilefni, því að ég spurði um það og hefur komið fram áður, að við endurnotkun á rykinu, sem ég mun nefna aðeins síðar, eru ekki notuð nein efni sem tjóni geta valdið.

Öll þessi frumefni, sem sérstaklega hafa verið nefnd, hafa því verið sérstaklega afgreidd.

Ég nefndi það, að sérstakar ráðstafanir hafi verið gerðar í þessari verksmiðju — og var töluvert um það rætt — til þess að endurnota rykið. Gerðar hafa verið tilraunir innan tækniaðstoðarsamnings við Union Carbide til þess að búa til mola úr þessu ryki sem endurnota má í ofninum. Þær tilraunir hafa nú staðið í 2 mánuði í sams konar ofni í Kanada og gefið mjög. góða raun. Yfirverkfræðingur Union Carbide telur, að tryggt sé að nota megi að nýju um 90% af þessu ryki þannig. Jafnframt hefur komið fram, að Sementsverksmiðja ríkisins hefur tjáð sig hafa áhuga á því að nota nokkuð af þessu ryki til þess að endurbæta sína sementsframleiðslu. Með þetta hefur verið gerð tilraun og gefist mjög vel. Þannig er raunar ljóst, að rykið, sem safnast og er víða vandamál að losna við því að þetta er mikið magn og létt í sér, verður endurnotað að mestu. Það vandamál mun ekki verða til staðar í þessu sambandi.

Mikið hefur verið um það rætt og margoft til þess vísað á fundum n., að í skýrslu viðræðunefndar um orkufrekan iðnað segir um hættu af þessu ryki, að rykið er hættulaust dýrum og gróðri. Ég vil fyrir mitt leyti ekki taka sérstaklega undir þessa fullyrðingu, því að þetta er mikið matsatriði hverju sinni, hvað er hættulaust og hvað er ekki hættulaust. Það er ekki hættulaust að ganga yfir götu hér í Reykjavík og fáir þó sem hugsa til þess, og síður en svo er hættulaust að sækja okkar aðalatvinnuveg, sjávarútveginn. Ég vil þó geta þess, að sú fullyrðing, sem þarna kemur fram í skýrslunni, er ekki einsdæmi. M. a. segir svo í skýrslu frá umhverfisverndarráði Bandaríkjanna í lauslegri þýðingu minni, með leyfi forseta:

„Athuganir á föstum úrgangsefnum sýna ekkert umtalsvert magn af þungum málmum, eins og t. d. kvikasilfri, berillíum, kadmium eða arseniki.“

Þetta eru þau fjögur efni sem umhverfisverndarráð Bandaríkjanna hefur talið sérstaklega hættulegt, og ef þau fara yfir ákveðið magn er þar með úrgangurinn talinn hættulegur. Í þessu felst því, að umhverfisverndarráð hefur komist að þeirri niðurstöðu, að þessi úrgangur er ekki hættulegur.

Í riti, sem Háskólinn í Osló hefur gefið út og fjallar um hreinsunarvandamál við rekstur málmbræðslna og er gefið út fyrir framhaldsnám eða fullorðinsfræðslu um þessi atriði, segir svo á bls. 11 — með leyfi forseta — í lauslegri þýðingu minni:

„Þótt ekki hafi tekist að sýna, að ryk frá ferrosilicium-framleiðslu sé skaðlegt umhverfinu, dýrum eða mönnum, þá eru reykskýin frá slíkum iðjuverum í nágrenni þéttbýlisstaða til óþæginda og menn munu því leggja áherslu á að losna við rykið.“

Þarna kemur enn einu sinni fram, að þessir aðilar telja að þetta ryk sé hættulaust umhverfinu, dýrum og mönnum.

Enn segir í norsku riti, sem verkfræðingurinn Helge Fredriksen hefur skrifað og er í sérprentun, með leyfi forseta og aftur í minni þýðingu: „Við fyrri læknisfræðilegar athuganir í Noregi er sýnt, að ókristalleraða sillcium-rykið eða kísilrykið veldur ekki cilicoses eða kísilsjúkdómi í mönnum eða dýrum.“ Eða í réttari þýðingu: „Hættan á því, að þetta valdi sjúkdómi, er í algjöru lágmarki.“ Einnig segir: „Reykurinn er ekki heldur hættulegur skógi eða landbúnaði.“

Það má geta þess um leið, að af viðtölum mínum við forstöðumann Statens forureningstilsyn kom fram, að í Noregi eru gerðar tilraunir með að nota þetta ryk til jarðvegsbóta. Ég vil því segja það, að það er kannske ekkert undarlegt, þó að í þessari skýrslu viðræðunefndarinnar hafi komið þetta orðalag. Mér sýnist það raunar vera á töluverðum rökum reist með tilvísun til þess sem ég hef nú rakið.

Í þessu máli öllu hefur komið fram hjá ýmsum aðilum, að gera ætti líffræðilegar athuganir. Prófessor Agnar Ingólfsson skýrði ágætlega á fundi hjá iðnn. í hverju þessar líffræðilegu athuganir eru fólgnar. Hann taldi slíkar athuganir vera þríþættar.

Í fyrsta lagi taldi hann að safna bæri öllum fáanlegum upplýsingum um slíkan iðnað áður en ákveðið er að ráðast í framkvæmdir. Hann upplýsti aðspurður, að 4 menn gætu hugsanlega unnið þetta verk á 5 vikum. Hins vegar kom greinilega fram hjá honum, þegar hann var aðspurður, að hvorki hann sjálfur né að því er hann best vissi aðrir prófessorar eða sérfræðingar hjá líffræðiskor Háskólans væru fáanlegir eða lausir nú til þess að vinna að slíkri athugun. Þessu hefur verið sleppt í tilvitnun í ummæli prófessors Agnars Ingólfssonar. Hins vegar vantaði ekki ráðin. Það átti að fara til Noregs og ráða þar sérstaka sérfræðinga í þessu skyni. Ekki skal ég fullyrða neitt um það, að þeir séu lausir eða ekki lausir frá önnum sínum í skólum þar nú með litlum fyrirvara. Allar fullyrðingar um að slíkt mætti gerast á 5 vikum, eru algjörlega út í loftið.

Annar þáttur slíkra líffræðilegra rannsókna samkv. upplýsingum prófessorsins væri athugun á stöðunum — athugun á því hvort ætla mætti að einhverjar lífverur þar hlytu skaða af þeim úrgangsefnum sem sannast hefur að frá slíkum iðnaði mundu koma. Hann taldi líklegt að slíka athugun mætti gera á nokkrum mánuðum, og hann upplýsti, að verið gæti að fyrsti þátturinn leiddi í ljós, að ekki væri þörf á þessari athugun.

Þriðji þátturinn samkv. upplýsingum prófessorsins yrði svo ítarleg kortlagning á lífríki umhverfis verksmiðjunnar, þannig að grundvöllur fáist til þess að fylgjast með allri þróun þar á síðari árum.

Ég vil taka það fram, að ég er heils hugar á því að slíkan framgangsmáta beri að hafa sem aðalreglu þegar meiri háttar iðjuver eru reist. Ég legg hins vegar ríka áherslu á þá skoðun mín, að það sé verkefni Náttúruverndarráðs að ákveða hvenær og hvernig slíka athugun beri að framkvæma. Ég vil vekja athygli á því, að þegar leitað var til Náttúruverndarráðs í sambandi við þaraverksmiðju að Reykhólum, þá ákvað Náttúruverndarráð að láta fara fram slíka líffræðilega athugun áður en ákvörðun yrði tekin og fékk til þess sérfræðinga frá líffræðiskor Háskóla Íslands. Af einhverjum ástæðum hefur Náttúruverndarráð í svarbréfi sínu til viðræðunefndar, sem ég las áðan, ekki talið nauðsynlegt að vekja athygli eða óska eftir því að slík líffræðileg athugun fari fram. Ég vil einnig vekja athygli á því, að í þeim gögnum, sem safnað hefur verið, kemur hvergi fram ein einasta ástæða til að ætla að frá þessari verksmiðju komi efni sem gera nauðsynlega slíka athugun. Þessum gögnum hefur að vísu ekki verið safnað af líffræðingum, en þó hafa um þessi gögn fjallað menn sem eru þaulkunnugir þessum málefnum, eins og dr. Vilhjálmur Lúðvíksson. Aðspurður á fundi n. svaraði Vilhjálmur Lúðvíksson þessari spurningu um líffræðileg atriði með annarri spurningu: Hvað á að athuga? Áhrif hvaða úrgangsefnis á að athuga? Ég spyr: Á að athuga áhrif kvikasilfurs? Á að athuga áhrif kadmiums? Á að athuga áhrif blýs? Allt eru þetta efni sem væru skaðleg, en allt eru þetta efni sem upplýst er að eru ekki til staðar frá þessari verksmiðju í neinu því magni sem nokkur maður hefur með nokkrum sannindum getað talið skaðleg. Ég skal taka undir það, að vel má vera að við séum ekki nógu langt komnir á þessu sviði og vel má vera að minna magn af þessum efnum valdi einhverjum skaða á umhverfinu. Satt að segja er líklegt, að öll efni og allar aðgerðir manna valdi einhverri röskun á sínu umhverfi. En ég vil leyfa mér að fullyrða, að sjálfstæð rannsókn á því stigi sé það viðamikil að hún sé ekki á okkar færi, ef þar á að ganga langt umfram það sem hingað til hefur verið kannað og skoðað. Mér sýnist því að það hafi verið ákaflega eðlileg niðurstaða, að í sambandi við þessa verksmiðju væri slík athugun líffræðinga ekki nauðsynleg. Hins vegar hefur komið fram, t. d. í umsögn Heilbrigðiseftirlits ríkisins sem ég las áðan og raunar frá fjölmörgum öðrum aðilum, einnig frá prófessor Agnari Ingólfssyni, að nauðsynlegt væri að kortleggja þetta svæði eða áhrifin á þetta svæði, áður en verksmiðjan er reist, og er sérstaklega tekið tillit til þess í brtt. sem n. flytur og ég mun fara lauslega yfir hér á eftir.

Niðurstaða mín af þessari ítarlegu yfirferð n. á mengunar- og heilbrigðismálum er því sú, að á þessu sviði hafi verið gætt ýtrustu varkárni, að á þessu sviði sé ekki ástæða til að óttast skaðleg áhrif á umhverfið og á þessu sviði hafi þegar verið leitað til þeirra opinberu aðila og umsagnir þeirra liggi fyrir sem fullnægi þeim sjálfsögðu kröfum, sem hv. Alþ. hlýtur að setja í þessu sambandi.

Að lokum er rétt að fara nokkrum orðum um fjármál og hagkvæmni þessa fyrirtækis, þó að mér hafi virst sumir, sem hafa sannarlega sýnt öðrum þáttum þess mikinn áhuga, hafa þar heldur lítinn áhuga. Í þessu sambandi vil ég fyrst geta þess, að dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri og formaður viðræðunefndar um orkufrekan iðnað mætti á tveim fundum n. ásamt ritara og gerði grein fyrir þeim ýmsu útreikningum sem koma fram í grg. með frv. og ég ætla ekki að lengja mál mitt með því að endurtaka hér. Ég geri ráð fyrir því að menn hafi kynnt sér þá þætti. Hins vegar óskaði n. eftir því, að stofnkostnaður yrði endurskoðaður með tilliti til gengisfellingar og sömuleiðis rekstrarkostnaður. Þetta var gert og var iðnn. látið það í té með grg. frá viðræðunefnd um orkufrekan iðnað, dags. 1. maí s. l. Þar er áætlað að stofnkostnaður lækki um það bil um 3%, þannig að lækkun er ákaflega lítil, enda er tekið þar tillit til þess að líklegt er að laun muni hækka, og það er sá eini meginsparnaður sem fram kemur af þessum stofnkostnaði við gengisbreytinguna. Stofnkostnaður verður því enn eftir sem áður nálægt 70 millj. dollara eða um 10 þús. millj. ísl. kr. Einnig var rekstrarkostnaður endurskoðaður, en komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé ástæða til að endurskoða þær tölur, þær séu allar frekar á varlegu hliðina og breytist ekki það mikið við gengisfellinguna, að ástæða sé til að draga úr því.

Viðræðunefnd um orkufrekan iðnað hafði farið fram á umsögn Þjóðhagsstofnunar um þetta mál með bréfi 10. jan. 1975. Reyndar hélt n. tvo fundi með forstjóra Þjóðhagsstofnunar, Jóni Sigurðssyni, Hallgrími Snorrasyni, starfsmanni Þjóðhagsstofnunar, og þar var einnig mættur Garðar Ingvarsson, ritari viðræðunefndar um orkufrekan iðnað. Á þessum fundum kom fram, að Þjóðhagsstofnunin hefur fyrr haft nokkur afskipti eða kynni af þessu máli, en hins vegar ekki gert ítarlega athugun á því fyrr en nú. Ég sé mér nú ekki fært að lesa þessa skýrslu, en ráðlegg mönnum að kynna sér hana, hún liggur frammi í skjölum n., en vil fara yfir örfáa þætti.

Í fyrsta lagi fjallar stofnunin um stofnkostnaðaráætlun og kemst að þeirri niðurstöðu, að stofnkostnaðaráætlunin sé varleg, en vísar þar til þeirra íslensku verkfræðinga, sem um þetta hafa fjallað, og staðfestir, sem ég vil taka undir, að íslenskir aðilar hafa ekki haft eins góða aðstöðu og æskilegt væri til að meta þennan stofnkostnað, því að þarna er um nýja tækni og nýjar vélar að ræða sem við höfum lítinn aðgang að. Hins vegar taka þeir undir þá niðurstöðu verkfræðinganna, að stofnkostnaðaráætlunin sé há og þannig varleg, og ákveða að gera hana að sinni í þessari athugun. Hins vegar ákveða þeir að bæta við kostnaði við höfnina og önnur mannvirki þarna í kring til að fá út heildararðsemi fyrirtækisins.

Þeir fjalla um hráefnisliði og sérstaklega flutningskostnað og komast að þeirri niðurstöðu eftir viðræður við Eimskipafélag Íslands og aðrar upplýsingar sem þeir hafa, að flutningskostnaður sé eðlilegur í áætlunum viðræðunefndar. Þeir fjalla nokkuð ítarlega um orkukostnað og sérstaklega fjalla þeir þar um mjög athyglisverð tengsl þess orkuverðs, sem vera má, og hækkaðs framleiðslukostnaðar vegna flutningsgjalda, sem eru bæði hærri hingað á hráefni og héðan á framleiðslu heldur en hjá aðalkeppinautum okkar, t. d. norðmönnum. Þeir komast að þeirri niðurstöðu, að ef aðflutningsfragt til Noregs er 75% af því sem hún er hingað, en útflutningsfragt sú sama hér og í Noregi, þá jafngildir það 1.9 þúsundasta úr Bandaríkjadollar í raforkuverði sem við stöndum lakar að vígi. Þeir gera samanburð með 75% lægri útflutnings- og aðflutningsfragt til Noregs heldur en til Íslands og komast að þeirri niðurstöðu, að það nemi 2.4/1000 úr Bandaríkjadollar. Þetta er út af fyrir sig ákaflega athyglisverður samanburður og gefur til kynna að aðstaða hér til þessa iðnaðar sé ekki að öllu leyti eins hagkvæm og ýmsir hafa viljað telja, þarna sé sem sagt þröskuldur sem komast þarf yfir. Að öðru leyti tekur Þjóðhagsstofnun ekki afstöðu til raforkusamningsins.

Þjóðhagsstofnunin fjallar einnig um rekstrartekjur og sérstaklega söluverðið og kemst að þeirri niðurstöðu að það söluverð, sem notað er í rekstraráætlun, sé um það bil 100 dollurum lægra fyrir hvert tonn en heimsmarkaðsverð nú upp á siðkastið. Einnig birtir stofnunin töflu yfir breytingu á heimsmarkaðsverði allt frá 1971 og hefur það verið nokkuð jafnt stigandi, nema á árinu 1972 þegar það féll lítillega, en heimsmarkaðsverð hefur hækkað frá 1971 úr 103 pundum tonnið upp í 289 pund tonnið. Er það nokkru hærra verð en notað er í rekstraráætluninni og eins og ég sagði áðan, þegar frá er dreginn útflutningskostnaður og fleira, nemur það um 100 dollurum á lestina. Hins vegar telur Þjóðhagsstofnunin, að varkárni að þessu leyti sé ekki óeðlileg, og tekur þar undir þá ákvörðun viðræðunefndarinnar að nota þessa lægri tölu og vera þannig viðbúinn einhverjum sveiflum sem geta átt sér stað á þessum markaði eins og öðrum. Þjóðhagsstofnunin metur þennan 15% verðmismun, sem þarna er leyfður, og leggur að sjálfsögðu áherslu á að það gefi rekstraráætluninni aukinn styrk.

Fjallað er um markaðsforsendur og getið um það, að meginmarkaðssvæðið sé Bretland, þar hafi fyrirtækið Union Carbide Corporation mikil ítök eða töluverða sölu, selji þeir um 20% af því sem selt er á þeim markaði, einkum til British Steel Corporation. Einnig er um það getið, að það fyrirtæki hafi tjáð sig hafa áhuga á því að gera fastan samning um kaup héðan, og er getið um það hér, að ekki sé ólíklegt að til greina gæti komið og kannske æskilegt að gera fastan samning við það fyrirtæki til langs tíma um kaup á framleiðslunni og líklegt að sú krafa komi fram við útvegun fjármagns til fyrirtækisins. Að sjálfsögðu er vakin athygli á því, að þetta útflutningsverð geti lækkað og sé því sú varkárni, sem ég nefndi áðan, eðlileg og æskileg.

Að þessu athuguðu kemst Þjóðhagsstofnunin að þeirri niðurstöðu, að afkastavextir eða innri arðgjöf fyrirtækisins sé rétt metin af viðræðunefndinni 13.6%, ef höfnin er ekki tekin með, hins vegar ef höfnin er tekin með lækki þetta í 12.8%.

Eins og ég hef nú rakið eru allar niðurstöður Þjóðhagsstofnunar á þann veg, að þær styðja niðurstöður viðræðunefndar um orkufrekan iðnað sem fram kemur í frv. Þetta var að sjálfsögðu meginástæðan fyrir því, að ég fyrir mitt leyti taldi ekki þörf á að fresta afgreiðslu þessa máls hjá iðnn. d. Ég hefði viljað skoða þetta mál betur ef fram hefði komið frá Þjóðhagsstofnun eitthvað sem stríddi mjög gegn þeim fullyrðingum og þeim niðurstöðum sem fyrir lágu í frv.

Þjóðhagsstofnun fer einnig út í mjög fróðlegan samanburð á þjóðhagsstærðum eða þjóðhagsgildi þessa iðnaðar, en þeir lögðu jafnframt á það áherslu, fulltrúar Þjóðhagsstofnunar, að slíkur samanburður væri ákaflega erfiður og raunar væri þekking þeirra og vitneskja á þessu sviði svo skammt komin að ekki mætti taka hana of áreiðanlega. Ef til vill er þetta utanlegsfóstrið, sem hv. þm. Stefán Jónsson var að tala um. (StJ: Það var forstöðumaður stofnunarinnar sem kallaði það sjálfur utanlegsfóstur.) Það er rétt, en hv. þm. notaði það hér í þingræðu. Engu að síður vil ég geta nokkurra atriða, sem hér koma fram.

Hérna kemur fram að útflutningsverðmæti verksmiðjunnar yrði um 2372 millj. kr., útflutningstekjur um 2 212 millj. kr. Og það kemur fram að hlutfall útflutningstekna af heildarvöruútflutningi landsmanna yrði um 6.7%, en af heildarútflutningsframleiðslu um 6.3%. Þá er gerður samanburður á vinnsluvirði þessarar verksmiðju, álbræðslunnar og sjávarútvegs. Að hlutfalli af vergri þjóðarframleiðslu yrði þessi verksmiðja með 1.1%, álbræðslan með 2.1%, en sjávarútvegurinn með 12.3% sem er eðlilegt og skiljanlegt þar sem um meginatvinnuveg okkar er að ræða. Ég fyrir mitt leyti fagna þessari niðurstöðu. Ég teldi varhugavert að slíkur iðnaður yrði óeðlilega stór hluti af vergri þjóðarframleiðslu.

Vinnsluvirði sem hlutfall af heildartekjum er um 54% hjá þessari verksmiðju, 38% hjá álverksmiðju, en um 60–65% hjá sjávarútvegi. Vinnsluvirði á mannár er um 12.4 millj. kr. í þessari verksmiðju, um 4.5 millj. kr. í álverksmiðjunni, en 1.4 millj. kr. í sjávarútvegi, þannig að vinnsluvirði þarna er ákaflega mikið fyrir hverja stund sem unnin er. Hins vegar er vinnsluvirði á orkueiningu 2.6 millj. kr. á gwst. í ferrosilicium, 2.4 í álverksmiðjunni, en 7.7 í sjávarútvegi. Rétt er að taka það fram, að forstjóri Þjóðhagsstofnunar var raunar ófús að láta þá tölu fara frá sér án þess að taka fram að þar væri um mjög erfiðan samanburð að ræða, því að þarna þarf að meta þá olíu, sem sjávarútvegurinn notar, sem ígildi raforku og það er ekki auðvelt dæmi. En hann áætlar að sjávarútvegurinn noti 2130 gwst. á ári. Einnig tekur hann fram, að í þeim samanburði, sem hér kemur á eftir um hlutfall af heildarfjárfestingu með og án hafnar, er að sjálfsögðu nálægt því útilokað að gera svipaðan samanburð fyrir sjávarútveginn. Ég hygg, að það yrðu um það miklar deilur hvaða hafnarkostnað á þar að reikna. En án hafnar er vinnsluvirði 17% sem hlutfall af heildarfjárfestingu, 20% í álverksmiðjunni og 35% í sjávarútvegi, en nokkru minna með höfninni, þ. e. a. s. 16% fyrir ferrosilicium, 18% í álverksmiðjunni en ekki reiknað fyrir sjávarútveginn.

Þetta eru fróðlegar tölur og getur hver metið þær eins og honum sýnist raunar, ef metið er mikilvægi þessarar verksmiðju frá þjóðhagslegu sjónarmiði. Þær segja sitt. En mig grunar að menn geti nokkuð lesið sitt hvað úr þessum niðurstöðum.

Þá er hér einnig yfirlit yfir gjaldeyrisöflun frá málmblendiverksmiðjunni og raunar tekin þrjú mismunandi dæmi. Í fyrsta dæmi er reiknað eins og viðræðunefndin gerir, byggt á rekstraráætlun, en dæmið, sem Þjóðhagsstofnunin tekur, er byggt á innlendu verðmætishlutfalli sem ég las áðan. Þarna kemur fram, að útflutningsverðmæti eru 24462 millj. kr. Svo kemur sölu- og tækniþóknun, sem dregst frá, og útflutningsfragt, en útflutningsverðmæti fob. er 22153 millj. kr. Síðan er farið í gegnum gjöld í þessum báðum dæmum, ég sé ekki ástæðu til að lesa það hér, en kemur svo að lokum fram, að innlendur hluti gjalda af cif-verði er 44% í reikningi viðræðunefndarinnar, en 34% þegar byggt er á innlendu verðmætishlutfalli. Þarna kemur einnig fram, að innlendur hluti gjalda sem hundraðshluti af fob.verðmæti, þegar útflutningsfragt er sleppt, er 45%, en 36% þegar reiknað er eins og Þjóðhagsstofnun gerir, — 49% með útflutningsfragt, en 38% í dæmi Þjóðhagsstofnunar. Ég sé ekki að það sé tími til að fara ítarlega í þetta hér, en aðalatriðið í mínum huga er að hér er stuðningur við þetta mál í því formi sem það er lagt hér fram og að því leyti er þessi umsögn mjög mikilvæg.

Töluvert hefur verið rætt um skatta þessa fyrirtækis og sé ég ástæðu til að fara sérstaklega nokkrum orðum um þá.

Í frv. er sérstök grein, 7. gr., sem fjallar um skattana. Í grundvallaratriðum er þar gert ráð fyrir því, að þetta fyrirtæki greiði sömu tekjuskatta og eignarskatta og önnur opinber gjöld og önnur íslensk fyrirtæki. Hins vegar segir í 2. málsgr.: „Verði lagareglum um tekjuskatt og eignarskatt eða önnur opinber gjöld breytt frá því sem nú er, skal hlutafélagið jafnan eiga sama rétt og aðrir íslenskir aðilar, sem hafa hliðstæð rekstrarform eða stunda hliðstæða starfsemi, þ. e. framleiðsluiðnað fyrir erlendan markað, til að njóta þeirra hlunninda, sem um er að ræða eftir hinum breyttu reglum, og því ekki íþyngt með álögum umfram þessa aðila.“ Við þetta gerir n. að vísu nokkrar brtt., en í aðalatriðum er hér að sjálfsögðu gert ráð fyrir því að þessi verksmiðja njóti sömu kjara. Ég vil halda því fram og sú er skoðun meiri hl. n., að það sé ekki óeðlilegt að erlendur aðili, sem semur við íslenska ríkið, reyni með slíkri grein að tryggja sig gegn því að honum verði mismunað. Í þeim anda ber að sjálfsögðu að skoða þessa grein.

Jafnframt eru í þessari grein, ef svo má segja, „frystir“ nokkrir þættir íslenskra skattalaga og ákveðið að þeir skuli gilda áfram ef skattalögum verður breytt. Það er í fyrsta lagi um það, að félaginu skuli jafnan heimilt að halda varasjóð myndaðan af skattfrjálsum framlögum að því marki, sem um ræðir í 2. málsgr. 17. gr. gildandi laga um tekjuskatt og eignarskatt. Í öðru lagi verður breytt. Það er í fyrsta lagi um það, að er tekið fram eða í 3. lið, að félaginu skuli jafnan heimilt að auka hlutafé sitt með útgáfu jöfnunarhlutabréfa, og í fjórða lið, að félagið skuli greiða árlegt landsútsvar er nemi 0.5% hið mesta af rekstrarútgjöldum. Um þetta má að sjálfsögðu deila, hvort hér hefði átt að „frysta“, en sú var niðurstaðan í löngum viðræðum við Union Carbide um skattamálin, þar sem höfuðáhersla var lögð á að íslensk skattalög giltu. Jafnframt er félaginu í 2. lið heimilað að draga frá hreinum tekjum sínum á ári hverju sem svarar allt að 10% af nafnverði hlutafjár þess, með sama hætti og um getur í þeirri málsgr. sem ég las áðan. Má sá frádráttur vera fyrir fjárhæðum er félagið borgar út jafnóðum sem arð á því ári eða fjárhæðum er félagið leggur til hliðar á árinu í sjóð til fjárfestingar og rekstrarþarfa. Úr sjóði þeim, sem lagður er til hliðar samkv. ákvæði þessu, má síðar úthluta arði og greiða hann án þess að slíkt skerði rétt félagsins til frádráttar vegna útborgaðs arðs á því ári er greiðsla fer fram. Hér er um nokkur nýmæli að ræða, og er það fyrst og fremst til komið vegna þess að viðræðunefnd um orkufrekan iðnað taldi, eins og fram hefur komið hjá formanni n., að það væri til hagsbóta fyrir okkur íslendinga að halda þessum útborgaða arði sem lengst innanlands og þá í fyrirtækinu sjálfu með þessu móti.

Ég vil taka það fram, að sú till. var gerð til fyrrv. ríkisstj. að þetta ákvæði yrði tekið inn í skattalög almennt. Því var vel tekið, en hins vegar ákveðið að það yrði skoðað með almennri endurskoðun skattalaga. Ég fyrir mitt leyti vil leggja áherslu á að svo verði gert.

Og að lokum, herra forseti, vil ég geta þess, að viðræðunefnd um orkufrekan iðnað lagði fram við iðnn. yfirlit yfir fjárþörf ríkissjóðs í þessu sambandi vegna hlutafjár og annars kostnaðar, fyrst og fremst hafnarinnar. Ég hef einnig fengið í dag töflu sem greinir nokkru nánar frá þessu.

Heildarfjárþörf ríkissjóðs vegna hlutafjárins er um 1980 millj. kr. Vegna hafnarinnar að meðtöldum kostnaði sveitarfélaganna mun þörfin verða líklega um 500 millj. kr. Vegur að verksmiðjunni er áætlaður 20 millj. samkv. nýlegri áætlun vegamálastjóra. Áætlun hefur ekki verið gerð fyrir vatnsveitu, en ráðlegt er að eigendur landsins og hafnarinnar selji vatn, eins og venja er, en vatnsból er fáanlegt þarna nálægt. Sömuleiðis er ljóst, að Póstur og sími þarf að flytja kapla sem liggja um svæðið og því mun fylgja nokkur kostnaður. Samtals er áætlað að fjárþörf verði um 2 600 millj. kr. Hins vegar verður sú fjárþörf ekki öll á þessu fyrsta ári eða því næsta. Er í þessu skjali viðræðunefndarinnar áætlað að fjárþörfin vegna hlutafjárins verði á þessu ári 297 millj. kr., 1976 990 millj., árið 1977 653 millj. og 1978 40 millj. kr. Viðræðunefndin leggur til við ríkisstj., að þetta fé verði að verulegu leyti tekið að láni, en þó er gert ráð fyrir fjárveitingum á fjárlögum á árunum 1976–1979 í þessu skyni. Fjárþörf vegna hafnarinnar verður ekki heldur strax og raunar mjög lítil á þessu ári.

Herra forseti. Ræða mín er nú orðin æðilöng, enda má segja að málið sé viðamikið og hefur fengið að mínu mati mikla yfirferð hjá iðnn. sem mér þótti nauðsynlegt að gera hér grein fyrir. Að lokum vil ég fara yfir þær brtt., sem meiri hl. n. leggur fram. (Forseti: Ég vil spyrja hv. þm., hvað hann eigi langt mál eftir.) Það verða 5–10 mínútur. Ég verð enga stund með þetta. (Forseti: Hv. þm. hefur nú talað í hartnær 21/2 tíma. Við reiknuðum ekki með því. Það er gert ráð fyrir að fresta fundi núna kl. hálf fimm, en við reiknuðum með því að geta tekið fyrir annað mál fyrir kl. 4.30, þannig að ég vil spyrja hv. þm., hvort hann vilji gera hlé á ræðu sinni eða geti lokið henni á 5 mínútum.) Ég get lokið henni á 5 mínútum, það er enginn vafi.

Á þskj. 364 flytur meiri hl. n. brtt. sem ég skal þá ekki lengja mál mitt mjög með því að fara yfir, enda eru þær flestar ljósar.

1. brtt. er að dómi meiri hl., þar sem breytt er úr „skyldum atvinnurekstri“ í „tengdan atvinnurekstur“, raunar aðeins nákvæmari en það orðalag sem fram kemur í frv.

Sömuleiðis taldi n. í sambandi við greiðslu stimpilgjalda af hlutabréfum óeðlilegt að undanþiggja þetta fyrirtæki slíkum greiðslum og leggur til, að það verði fellt niður.

Í 7. gr. 2. málsgr. gerir n. nokkrar breytingar, sem eru fyrst og fremst til að tryggja að viðmiðun við skattareglur, sem gilda um önnur fyrirtæki, eigi aðeins við sambærileg fyrirtæki, þ. e. a. s. fyrirtæki á iðnaðarsviðinu. N. telur ekki eðlilegt, að viðmiðun t. d. við sjávarútveg og ýmis fyrirtæki á því sviði sé þarna ætluð.

Í 11. gr., sem fjallar um mengunarvarnir, eru mikilvægustu breytingarnar þær, að bætt er inn í upptalningu orðinu „náttúruvernd“ og jafnframt tekin inn sú breyt., að „áður en framleiðsla hefst skal á kostnað fyrirtækisins og samkv. till. Náttúruverndarráðs gerð líffræðileg athugun á umhverfi verksmiðjunnar, þannig að fylgjast megi með áhrifum hennar á lífríkið.

Loks leggur n. til, að á eftir 11. gr. komi ný gr., sem er í samræmi við óskir Verkalýðsfélags Akraness og er svohljóðandi:

„Við járnblendiverksmiðjuna starfi samstarfsnefnd skipuð 3 fulltrúum frá hvorum, stjórn verksmiðjunnar og starfsliði hennar, ásamt jafnmörgum varamönnum. Hlutverk samstarfsnefndar er að efla samvinnu fyrirtækisins og starfsliðs þess, vera báðum til ráðuneytis og gera till. um bættan aðbúnað, heilbrigði og öryggi starfsliða og hagkvæmni í rekstri fyrirtækisins.“

Þetta teljum við ákaflega mikilvæga brtt. Við teljum að með henni sé mjög gengið til móts við óskir heimamanna.

Ég hef nú gert í alllöngu máli grein fyrir þessu viðamikla máli og þeim miklu og löngu fundum, sem farið hafa fram á vegum iðnn. Sannfæring mín er sú, að hér sé fyrirtæki sem henti vel þeirri virkjun sem nú er ráðgerð, og hef ég reynt að færa fyrir því rök.

Ég vil að lokum taka það fram, að ég er ekki þeirrar skoðunar að virkja eigi íslensk fallvötn til þess að byggja stóriðjufyrirtæki. Ég álít öllu fremur að leita eigi að slíkum iðnaði þegar og ef þörf er í sambandi við stærri og meiri háttar átak á sviði okkar virkjana. Það tel ég að tekist hafi í þessu sambandi og það telur meiri hl. iðnn. og mælir því með því, að frv. verði samþ. með þeim brtt. sem ég hef rætt.