12.03.1975
Efri deild: 58. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2332 í B-deild Alþingistíðinda. (1852)

149. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði

Jón G. Sólnes:

Herra forseti. Ég vil byrja á því að gera grein fyrir því, að í iðnn., sem ég á sæti í, þar sem mál þetta var afgreitt, þá hafði ég á síðasta fundi n., þegar tekin var afstaða um álit meiri hl., látið bóka svo hljóðandi: „Jón G. Sólnes tók ekki þátt í afgreiðslu málsins og gerir grein fyrir afstöðu sinni.“ Ég hafði búist við því, að þessi bókun kæmi fram í nál. meiri hl. og skýrði þannig, að ég kæmi ekki með sérálit.

Ég vil byrja að taka það fram til þess að taka af allan vafa, að ég legg á það áherslu að ég er samþykkur þeirri stefnu, sem felst í frv. sem hér er til umr.., um erlenda fjárfestingu á Íslandi. Og ég vildi gjarnan stuðla að því, að mikil samskipti væru með fjármagnsflutning að og frá þessu landi og þá ekki hvað síst til þeirra aðila sem hér eiga aðild að, bandaríkjamanna. Ég ber mjög mikla virðingu fyrir dugnaði, hagsýni og áræðni bandarískra kaupsýslumanna eða kapítalista, og ég verð víst að leyfa mér að nota það orð hér. Þó að orðið sé kannske ekki gott, þá finnst mér það ná yfir breiðara svið en að segja kaupsýslumaður. Það hljómar betur í mínum eyrum eða er meira samfara mínu hugarfari að halda mig við kapítalista. Nú er það svo, að ég hef svolítið og þá kannske sérstaklega á seinni árum reynt að kynna mér starfsemi og starfsháttu kaupsýslumanna eða kapítalistanna einmitt í Bandaríkjunum. Og af þeim kynnum og þeirri skoðun, sem ég hef mótað mér af því litla sem ég hef getað pælt í gegnum og haft aðstöðu til, þá hef ég komist að þeirri niðurstöðu að amerískir kapítalistar líti fátt verri augum heldur en samskiptin við ríkið eða hið opinbera. Ég held, að þeim sé mjög gjarnt og það sé mjög ríkjandi skoðun meðal iðjuhölda, kaupsýslumanna og kapítalista, að yfirleitt sé allt illt, sem komi frá því opinbera, að því er þeir segja. Ríkið sé eiginlegra aðili sem hefur það að aðalmarkmiði að fara ofan í vasa þeirra og reyna að tæma þá eins og það frekast geti með sköttum og álögum. Ég hef aldrei orðið var við að það væri nein ríkjandi samstaða milli amerísks einkaframtaks og hins opinbera. Amerískum kaupsýslumönnum, kapítalistum, þykir gott að ná hagkvæmum samningum við hið opinbera og gera við það hagkvæm viðskipti. En ég held, að það sé yfirlýst skoðun, að það sé ekki líklegt til ávinnings að vera í samvinnu við það um verðmætasköpun. Og ef þetta er rétt niðurstaða hjá mér, að svona hugsi þeir í sínu heimalandi, þá held ég að engum geti skjátlast, að þeir muni síst vera betri viðureignar þegar þeir eru komnir út fyrir takmörk síns heimalands. Þessi sannindi mundi ég hafa haft að leiðarljósi, ef ég ætti að setjast að samningaborði við bandaríska kaupsýslumenn, að ég tali ekki um ef ég ætti að setjast að samningaborði við þá sem fulltrúi hins opinbera valds eða ríkisins.

Ég vil þá lítillega koma að því fyrirtæki, sem hér er verið að ræða um, járnblendifélaginu og uppbyggingu þess.

Samkv. ákvörðun þess frv., sem hér liggur fyrir, er áætlað, að íslenska ríkið verði eignaraðill að 55% hlutafjár í þessu fyrirtæki og Union Carbide að 45%. Stofnkostnaður er talinn 68 millj. dollara, hlutafé 24 millj. dollara. Okkar hlutur, 55%, mun nema 13.2 millj. Þetta er fé sem við þurfum að fá allt að láni og mun áreiðanlega kosta okkur mikið í sambandi við fjármagnskostnað vegna þeirrar lántöku. Hér er um að ræða stórkostlegar upphæðir á íslenskan mælikvarða, talað um tæpa 2 milljarða bara sem hlutafjárframlag, fyrir utan kostnað við hafnargerðir, vegalagningar og ýmis önnur þjónustufyrirtæki sem þarf að kosta af því opinbera, og sú upphæð nemur hundruðum millj. Hlutur Union Carbide, 45%, gerir 10.8 millj., dollara. Þar af eiga þessir aðilar að fá í hlutabréfum samkv. þeim samningi, sem hér liggur fyrir, sem þóknun fyrir tæknikunnáttu 3.2 millj. dollara.

S. l. vor sá ég einhverjar áætlanir í sambandi við fyrirhugaða verksmiðju og þá var þóknunin fyrir þessa tæknikunnáttu ekki áætluð nema 2.3 millj. dollara. Að mínu mati hefur ekki verið gefin viðunandi skýring á því, hvernig stendur á því að þessi upphæð hefur hækkað svo gífurlega. Ég tel þetta mikla hækkun á ekki lengri tíma, og mér dettur ekki í hug nema ein skýring í sambandi við það, að þegar þeir voru að semja um þessi málefni vorið 1974, þá sat hér kommúnístískur ráðherra að völdum og þessir herrar hafi metið það því verði, að það væri borgandi 900 þús. dollurum meira fyrir það að semja við þann ráðh. heldur en eftir stjórnarskiptin. Ég get ekki fengið neina skynsamlega skýringu á þessum mismun aðra. Og að mínum dómi og eftir minni þekkingu á hugsunarhætti þeirra manna, sem hér eiga hlut að máli, þá finnst mér þessi skýring alls ekki fjarstæðukennd.

Þá eru ekki eftir nema 7.6 millj. dollarar sem Union Carbide eiga að inna af hendi. Söluverðmæti framleiðslu þessa fyrirhugaða fyrirtækis er áætlað fyrstu 4 árin, 1978–1982, rúmlega 28 millj. 700 þús. dollarar. Samkv. samningum, sem hér liggja fyrir, á Union Carbide að fá fyrir tækniþóknun árlega greiðslu, sem nemur 3% af framleiðsluandvirðinu. Miðað við þessar tölur nemur sú þóknun 860 þús. dollurum á ári, en það er upphæð sem tryggir Union Carbide rúmlega 11% þóknun eða vexti af því fjármagni sem að raunverulega leggur í fyrirtækið. Að mínu mati má því segja, að þarna séu þessir bandarísku athafnamenn nokkurn veginn á þurru með það fjármagn sem þeir eru að leggja fram. En lítum svo á og berum aðstöðu þessara manna og þessara aðila saman við þá fjármagnsaðstöðu sem við erum í. Við tryggjum okkur ekki brot úr prósenti sem tekjur af því fjármagni sem við leggjum í þetta. Við höfum aðeins fram á að horfa kostnaðinn við endurnýjun víxilsins, a. m. k. meðan á byggingarframkvæmdum stendur.

Þá er hér samningur, sem gerir ráð fyrir því að Union Carbide fái söluþóknun. Þeir eiga að fá af fyrstu 10 þús. tonnunum 3%, af næstu 10 þús. tonnum eiga þeir að fá 3.5%, af þar næstu 10 þús. tonnum 4% og af sölu fram yfir 30 þús. tonn eiga þeir að fá 5% sölulaun. Þetta er að mínum dómi mikil upphæð og mjög há. Stærstu útflutningsfyrirtæki, sem við eigum og velta milljörðum kr., t. a. m. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og útflutningsfyrirtæki Sambandsins, mér vitanlega taka slík fyrirtæki ekki nema 2%. Og einhvern veginn kemur það einkennilega fyrir hjá jafn kapítalískt sinnuðum manni og undirrituðum, að sölulaunin skuli fara sívaxandi í hlutfalli við vaxandi magn, sem verið er að selja. Þetta er öfugt við allt það sem maður þekkir, því að magn gefur afslátt og mikið magn gefur meiri afslátt.

Rétt er í þessu sambandi að staldra við, að þarna erum við að gera í annað skiptið samning við stórt bandarískt fyrirtæki og það kemur í ljós alveg það sama og í það fyrra, og þar á ég við John Manville secn við sömdum við sem meðeiganda að Kísiliðjunni, hvað þessi fyrirtæki leggja mikla áherslu á þóknunina fyrir það að selja vöruna sem þau ætla að framleiða í kompaníi við okkur. Þegar Kísiliðjan á sínum tíma var stofnuð, þá var samkomulag um að John Manville hf. og við skyldum eiga framleiðslufyrirtækið til helminga, íslendingar og ameríkanarnir. En ameríkanarnir komust upp með það að hafa stofnað fyrirtæki, sem hét John Manville Corporation, sölufyrirtæki, sem sér um alla söluna á framleiðslu Kísiliðjunnar, og það fyrirtæki á hið bandaríska að öllu leyti. Við eigum þar ekki 1%. Hvaða reynslu höfum við fengið af þessari starfsemi sem ég er þarna að lýsa? Jú, hún er sú, að frá upphafi vega hefur Kísiliðjan, framleiðslufyrirtækið, verið rekið með tapi og á íslenskan mælikvarða miklu tapi. Og ef ekki hefði verið þannig um hnútana búið, að þarna hefðu verið lagðar í stórkostlegar upphæðir og miklum mun stærri en venja er til með íslenskt fyrirtæki með dautt hlutafé sem ekki þarf að sinna neinni vaxtagreiðslu, þá væri hagur þessa fyrirtækis hörmulegur. En hvað hefur skeð í sambandi við sölufyrirtækið John Manville? Það hefur grætt vel og stundum tugmilljónir.

Atvikin hafa hagað því þannig, að ég hef sem fulltrúi Akureyrarkaupstaðar, af því að þeir eiga dálítinn hlut í þessu fyrirtæki, verið á aðalfundum Kísiliðjunnar, og þá hefur oft komið fram, að þessir ágætu meðeigendur okkar hafa verið vinsamlegir og skilningsgóðir og þeir hafa verið að hygla í okkur svona uppbótum af mildi sinni og gjafmildi, þannig að þeir hafa látið af hendi rakna stundum verulegar upphæðir. Þetta er að vissu leyti þakkarvert. En hefði ekki verið miklu betra, að þetta sölufélag hefði verið sameign okkar alveg eins og framleiðslan? Og hví er ég að minnast á þetta atriði? Hvað er eðlilegra en í sambandi við stofnsetningu slíkrar verksmiðju eins og hér er verið að ræða um sé stofnað annað dótturfyrirtæki, sem heiti Sölufélagið, og að eignarhlutföllin í því fyrirtæki séu þá jöfn eða svipuð og er í járnblendiverksmiðjunni, eða það séu þá a. m.k. helmingaskipti? Það gæfi okkur íslensku aðilunum vissa tryggingu fyrir því, að við hefðum einhverjar tekjur upp á að hlaupa til þess að standa straum af þeim mikla fjármagnskostnaði sem við hljótum að hafa í sambandi við þátttöku okkar í fyrirtæki eins og þessu.

Svo get ég ekki annað en staldrað svolítið við ákvæðið í sambandi við tækniþóknunina, þessi 3%, sem er samkv. þeim samningum, sem hér liggja fyrir, bindandi um langan tíma. Hér er unn mikla upphæð að ræða. Það er á annað hundrað millj., sem við greiðum fyrir þetta árlega. Ég fyrir mitt leyti segi það eins og er, að ég hef þann metnað fyrir hönd þess starfsfólks, þess íslensks starfsfólks og þeirra tæknifróðu manna, sem koma til með að vinna við þessa verksmiðju af okkar hálfu, að mér þykir það súrt í broti að mega ekki reikna með því, að innan tiltölulega skamms tíma, fárra ár, segjum 4–5–6 ára, þá væru komnir það þjálfaðir menn í þetta, að þeir væru fyllilega færir um að sinna þessari þjónustu að mestu leyti, þannig að ég hefði lagt áherslu á í slíkum samningum sem þessum, að þessi möguleiki væri a. m. k. opinn, svoleiðis að við gætum þarna minnkað þá greiðslu, sem við þurfum að inna af hendi til hins erlenda aðila.

Af því, sem ég hef hér sagt, finnst mér og ég held að það dyljist engum, að aðstaða hins erlenda meðeiganda okkar hlýtur að metast að vera miklu betri heldur en okkar og fjármagnskostnaður hjá þeim er nánast enginn á sama tíma sem við þurfum að standa straum af miklum fjármagnskostnaði, svo miklum að við erum með því frv., sem hér liggur fyrir, að að skuldbinda okkur fram í tímann að taka verulegar og það háar upphæðir á okkar mælikvarða inn á fjárlög um þó nokkuð mörg ár, sem er allóvenjulegt fyrirbrigði. Í ofanálag bætist svo það, sem gerir aðstöðu meðeigenda okkar enn þá betri, að ég hef rökstudda ástæðu til að ætla að samkv. bandarískum skattalögum megi þetta fyrirtæki afskrifa allt það framlag sem það leggur til þessarar verksmiðju. Ég held, að samkv. bandarískum skattalögum sé erlend fjárfesting heimiluð sem skattafrádráttur, svo að þeir eru þarna þegar í byrjun, um leið og þessi starfsemi hefst, að græða stórfé.

Ég hef verið að lýsa þessari aðstöðu, og að mínum dómi finnst mér að hjá þeim mönnum, sem hafa farið með þessa samninga, komi fram mikið vanmat á þeirri aðstöðu sem við erum í. Og nú langar mig þessu máli mínu til stuðnings — með leyfi forseta — að lesa nokkuð úr grg. þeirri sem fylgir frv., og hefst nú lesturinn. Það er að finna á bls. 7. Ég er að rekja upp ástæðurnar, sem eru fyrir því að fara út í þessa starfsemi, og þá stendur hér:

„Í öðru lagi eru nú margar járnblendiverksmiðjur orðnar mjög gamlar og úreltar tæknilega séð. Kemur þar fyrst til að ofnar hafa stöðugt orðið stærri. Einnig eru margar af þessum gömlu verksmiðjum illa staðsettar miðað við hráefnisog orkuöflun, þar sem þær hafa upphaflega verið byggðar við stáliðjuverin, sem staðsett eru á hinum gömlu kolanámusvæðum, eins og t. d. í Ruhr-héraði í Þýskalandi. Staðsetningarhagkvæmni slíkra verksmiðja hefur breyst mjög til hins verra á síðustu áratugum, m. a. vegna hækkandi orkuverðs og nýrra hráefnalinda.

Í þriðja dagi er fyrirsjáanlegt, að margar gamlar verksmiðjur þarf að leggja niður vegna mengunar. Á þetta við um verksmiðjur, sem byggðar voru án nokkurra mengunarvarna, en erfitt er að koma þeim við á hagkvæman hátt í slíkum verksmiðjum, og kostnaðurinn við breytingarnar svo hár, að hann er ekki réttlætanlegur. Er þá hagkvæmara að reisa alveg nýja verksmiðju, þar sem gert er ráð fyrir nútíma mengunarvörnum strax frá upphafi, og flytja framleiðsluna til um leið í samræmi við breytta staðsetningarhagkvæmni. Um kostnað við breytingar, sem hér um ræðir, má nefna dæmi frá járnblendiráðstefnu í Lillehammer í Noregi í okt. s. l. Þar var upplýst af hálfu sambands járnblendiframleiðenda í Noregi, að lögfesting nýrra reglna um mengunarvarnir, sem á döfinni eru í Noregi, mundi kosta norska járnblendiiðnaðinn 400 millj. norskra kr. í fjárfestingu. Samsvarar þetta um 8.5 milljörðum ísl. kr.“

Þegar slíkar aðstæður blasa við eins og hér hefur verið lýst, finnst mér það mikið vanmat hjá okkur á okkar aðstöðu. Við bjóðum ósnortið land með þeirri aðstöðu, að hér er hægt að kaupa ótakmarkaða orku með hagstæðu verði um alla framtíð. Að slík aðstaða sé einskis metin, ekki eitt cent, ber ekki vott um mikla samningshörku af okkar hálfu. Ég hefði talið, að vel hefði verið hugsanlegt, að þessi aðstaða, sem við höfum fram að bjóða, staðsetningarhagkvæmnin, sem talað er um, hefði a. m. k. verið metin jafnmikil tæknikunnáttunni. og tel þar ekkert of mikið í lagt. Ég er sannfærður um að það hafa áreiðanlega verið ánægðir menn, fulltrúar Union Carbide, þegar þeir gengu frá samningaborðinu eftir að hafa komist hjá því að slík aðstaða væri metin til nokkurs verðs. Og er það nokkur furða?

Þá vil ég fara nokkrum orðum um orkuverðið. Það verður að viðurkennast, að ég er ekki dómbær á þá hlið málsins. Hins vegar verður ekki hjá því komist, að maður hnýtur um að verðið er bundið alllangan tíma eða 4 ár á þessum viðsjárverðu tímum, þegar ekki er hægt að fá fast olíuverð hjá olíuframleiðslulöndum nema til fárra mánaða í einu. Ákvæði eru að vísu í samningunum um endurskoðum orkuverðs á fjögurra ára fresti, en þó er svigrúmið takmarkað við norskt orkuverð. Ég er ekki viss um að það sé að öllu leyti sambærilegt við okkar aðstæður. Norðmenn eru í þeirri aðstöðu, að þeir eru með fullafskrifuð orkuver, en við verðum með nýleg orkuver sem þurfa að standa undir geysimiklum fjármagnskostnaði. Hver tryggir, að aðstæður gætu ekki verið þannig hjá norðmönnum að þeir sæju sér hag í að halda orkuverði niðri? Það gæti jafnvel verið þáttur í byggðastefnu hjá þeim og vert að athuga að norðmenn verða innan tíðar ráðandi yfir geysimiklu fjármagni, þannig að þeir geta nánast sagt og gert hvað sem þeim sýnist í slíkum málum. Við getum þegar séð, að það er farið að valda stórkostlegum fólksflutningum olíuævintýrið í Stavanger, þannig að sú staða gæti myndast í Noregi, að til þess að viðhalda byggð og starfsemi gætu þeir leyft sér þann munað að fara með orkuna ofan í gjörsamlega ekki neitt, svo að það getur verið út af fyrir sig vafamál og nokkuð til efs, hversu hagkvæmt er að binda sig við slíkar viðmiðanir.

Mér fyndist, að það hefði verið miklu eðlilegra, að hlutlaus gerðardómur hefði verið miklu ákjósanlegri í þessu sambandi. Og sem sjálfstæðir aðilar, sjálfstæð þjóð, þá hef ég þann metnað að við eigum að reyna að byggja alla okkar samninga, jafnvel þótt að það sé við vinsamlega aðila eins og bandaríkjamenn, þannig að miðað sé við íslenskar aðstæður. Það er því skoðun mín, að þessi mál þurfi áreiðanlega mikillar og nákvæmrar athugunar við, ekki síst þar sem orkusalan sjálf virðist forsendan fyrir þessu öllu saman. Og þá er vert að hafa í huga, að samningur eins og þessi gerir óbeinlínis kröfu til þess að við flýtum orkuframkvæmdum. Það kemur hreinlega fram, að þetta er ekki nægilegt, Sigaldan. Það er beinlínis forsendan fyrir samningum að Hrauneyjarfossvirkjun verði flýtt. Því finnst mér, að það hafi ekki verið gert nóg að því í málum eins og þessu að reyna að ota fleiri aðilum, sem áhuga hafa á þessum málum um orkukaup, saman, og reyna að skapa einhverja valkosti, þannig að við værum ekki settir upp við vegg af einum aðila. Við skulum athuga það, að við erum að semja við harðsvíraða, duglega, ófyrirleitna viðskiptakapítalista. Þess vegna verðum við að tala við þá á sama máli og máli, sem þeir skilja. Þar eru ekki góðir og gegnir embættismenn, hversu mikilhæfir sem þeir eru, líklegir til þess að ná bestum árangri.

Þá langar mig til þess að fara örfáum orðum um þátttöku ríkisins í þessu mikla fyrirtæki. Mín skoðun er sú, að þegar allar aðstæður eru metnar, þá gæti verið hér um geysimikið áhættufyrirtæki að ræða. Í rekstri fyrirtækis sem þess, sem hér er um að ræða, geta orðið svo stórkostlegar verðsveiflur og fjármagnssveiflur að þar getur verið um stjarnfræðilega háar tölur að ræða. Við erum ekki alveg reynslulausir í þessum efnum. Nokkrar staðreyndir eru okkur þekktar í svipuðum málum. Fróðir menn hafa sagt mér í sambandi við álverksmiðjuna í Straumsvík, að ef við hefðum átt hana að öllu leyti og jafnvel þótt ekki væri nema að svipuðu leyti og ráð er fyrir gert í þessu frv., þá væri það fyrirtæki komið á syngjandi hausinn og kannske íslenska ríkið líka, ég veit það ekki. Ég hefði talið, að það hefði verið réttara að taka til alvarlegrar athugunar í sambandi við þessi mál í fyrsta lagi, að slík verksmiðja sem þessi væri algerlega eign hins erlenda aðila, en að hagsmunir okkar væru tryggðir með sölu orku og öðrum hagnaði í sambandi við starfsemi slíks fyrirtækis. Enn fremur gæti komið til mála eignaraðild og ég tek fram ekki endilega ríkisins, — eignaraðild innlendra aðila sem myndaðist á lengri tíma, smátt og smátt. Og í öðru lagi hefði ég talið, að það hefði ekki verið frágangssök, að staðið hefði verið að því að stofnað hefði verið fyrirtæki einstaklinga án þátttöku ríkisins, sem komið hefði fram sem viðsemjandi og þá jafnvel verið meirihlutaaðili, eins og ráð er fyrir gert hér, og þá jafnvel með einhverjum tilstyrk ríkisins. Ég er ekki í nokkrum vafa um að slíkt fyrirtæki hefði að mörgu leyti verið í betri samningsaðstöðu við fyrirtæki eins og Union Carbide. Ég held, að slíku fyrirtæki, ef valist hefðu til forustu hæfir og gegnir menn — og við eigum slíka menn til í þessu landi sem betur fer — að þeim aðilum hefði tekist betur að tala því máli, sem viðsemjendur okkar í þessu máli, Union Garbide, skilja, heldur er málið sem þessir opinberu embættismenn, sem eru útsendarar okkar og viðsemjendur, og er ég þó ekki með þessum orðum á neinn hátt að kasta minnstu rýrð á hæfni slíkra manna. Þeir eru bara í allt annarri aðstöðu. Það er það, sem gerir gæfumuninn í þessum málum. Og þó að slíkt fyrirtæki hefði að einhverju leyti þurft að fá fyrirgreiðslu af hendi hins opinbera, var það ekkert einsdæmi og við höfum mörg dæmi fyrir slíkum, sbr. stórar ábyrgðir sem hafa verið veittar slíkum stórfyrirtækjum hér, eins og t. d. fyrir flugvélum o. fl. og ég veit ekki annað en fram undan séu stórar ábyrgðir í sambandi við rekstur Flugleiða hf. En með því að hafa þennan háttinn á hefði samt verið hægt að minnka verulega áhættu ríkisins og jafnvel útiloka hana að fullu. Ég spyr: Af hverju er þessi opinbera forsjá og opinbera ofstjórn á öllum sviðum? Er ekki kominn tími til þess að endurskoða þessa afstöðu og losa um þau höft sem eru á því að einstaklingar og fyrirtæki geti í stórum mæli beitt sér að stórum verkefnum sem hér er um að ræða?

Með þessu frv. er verið að staðfesta einkarétt ríkisins á því að fá aðgang að erlendu fjármagni til fjárfestingar og framkvæmda í landinu. Það virðist vera meiningin að þessi staðfesting eigi að liggja fyrir og þetta sé stefnan sem hér eigi að ríkja um aldur og ævi. Mér er spurn: Væri hægt að fá yfirlýsingu ábyrgra aðila — og á ég þá t. d. við ráðh. úr báðum stjórnarflokkum við umr. þessa máls, að breytingar yrðu gerðar á ákvæðum núgildandi laga um meðferð og vegferð fjármagns að og frá landinu, að einstaklingar og fyrirtæki, sem hefðu til þess aðstöðu, fengju sama rétt og ríkinu er gefinn með því frv., sem hér liggur fyrir? Ég vona, að það misvirði enginn við mig, þó að sjálfstæðisþm. Jón G. Sólnes leggi fram slíka fsp. eins og þessa. Sjálfstfl. hefur frá upphafi vega haft það á stefnuskrá sinni að vinna að því að draga úr ríkisrekstri, en efla að sama skapi einstaklingsframtakið. Þetta grundvallaratriði í stefnu flokksins hefur alla tíð heillað mig og lífsskoðun mín er mótuð af þessu stefnuskráratriði fyrst og fremst. En á sama tíma og verið er að herða á öllum sviðum frelsi einstaklingsins til athafna og framkvæmda í þjóðfélaginu er með þessu frv. með stuðningi ráðh. Sjálfstfl., ef að lögum verður, verið að stofna til stórkostlegs ríkiskapítalisma, sem gæti orðið upphafið að því að kyrkja allt frjálst framtak í þessu landi.

„Ung var ég gefin Njáli,“ sagði mikil hetja, þegar hún fylgdi manni sínum á bálið. Ég hef frá unga aldri verið hrifinn af stefnu Sjálfstfl. og reynt að vinna honum allt það gagn sem ég hef getað. En á þessu fyrsta aðalþingi sem ég sit sem kjörinn fulltrúi fyrir Sjálfstfl., er mér boðið að styðja frv. sem stuðlar að meiri eflingu ríkisrekstrar í þjóðfélaginu en nokkru sinni hefur átt sér stað fyrr. Þetta finnst mér erfiður biti að gleypa. Og ég hef ekki hetjulund hinnar merku konu, Bergþóru. Ég held, að ég láti það ógert. Ég lýsi andstöðu minni við þetta frv., eins og það liggur hér fyrir, og mun greiða atkv. gegn samþykkt þess.