12.03.1975
Neðri deild: 55. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2362 í B-deild Alþingistíðinda. (1865)
179. mál, sveitarstjórnarlög
Friðjón Þórðarson:
Virðulegi forseti. Hér er til umr. frv. til l. um breyt. á sveitarstjórnarlögum, nr. 58 frá 29. mars 1961. Það er ekki nýtt af nálinni. Það hefur verið flutt á tveim síðustu þingum, en dagaði uppi í bæði skiptin. Frv. miðar að löggildingu hinna svokölluðu landshlutasamtaka sveitarfélaga. Það er áhugamál margra sveitarstjórnarmanna og flutt að beiðni stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga. Ég sé ástæðu til að segja nokkur orð um þetta frv. nú við 1. umr. þess.
Þess er getið í grg. sem rétt er, að landshlutasamtök sveitarfélaga hafi verið stofnuð og starfað í nokkur ár í öllum landshlutum utan Reykjavíkur. Þykir því tími til kominn að tilvera þeirra verði staðfest í lögum. Er því fyrirhuguð sú leið að skjóta ákvæðum um þau inn í sveitarstjórnarlög eða öllu heldur hnýta þeim aftan við þau lög.
Svo sem kunnugt er hafa sveitarstjórnarlögin að geyma almenn ákvæði um héraðsstjórn, sveitir og sýslur og hlutverk þeirra. Þetta er í samræmi við 76. gr. stjórnarskrárinnar, þar sem segir að rétti sveitarfélaganna til að ráða sjálf málefnum sínum með umsjón stjórnarinnar skuli skipað með lögum.
Skipting landsins í hreppa er ævaforn. Snemma á þjóðveldisöld er komin á hreppaskipan sú er haldist hefur lítt breytt fram á þennan dag. Lögbækurnar Járnsíða frá 1271 og Jónsbók frá 1281, sem leystu af hólmi löggjöf þjóðveldistímans um héraðsstjórn, hreyfðu ekki við hreppaskipaninni. Verkefni hreppsfélaga voru að vísu fábreytt í fyrstu, en þó harla merkileg á þeim tímum. Samkv. ákvæðum í Jónsbók er landinu skipt í sýslur í þágu umboðsstjórnar, en í raun og veru á sú umdæmaskipting rætur að rekja lengra aftur í aldir og fær jafnframt víðtækari þýðingu þegar tímar líða. Samkv. tilskipun frá 4. maí 1872 er héraðsstjórn lögð í hendur hreppsnefnda, sýslunefnda og amtsráða. Tilskipun þessi var undanfari sveitarstjórnarlaganna frá 1905, sem eru að stofni til svipuð lögum þeim sem nú gilda. Hreppsnefndir og sýslunefndir hafa starfað hér á landi með svipuðu sniði og nú er á aðra öld. En ömtin og amtsráðin eru fyrir löngu úr sögunni. Með myndun þéttbýlis hafa nokkrir staðir á landinu fengið kaupstaðarréttindi svo sem kunnugt er með sérstakri löggjöf og hefur þeim farið fjölgandi.
Á síðari árum hefur mikið verið bollalagt um sveitarfélög, hlutverk þeirra, verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og þar fram eftir götunum. Allir virðast sammála um að nauðsynlegt sé að stuðla að eflingu sveitarfélaga í hvívetna. Samband ísl. sveitarfélaga var stofnað 1945. Það er skilgreint sem frjáls hagsmunasamtök íslenskra sveitarfélaga. Sveitarfélögin eiga beina aðild að sambandinu. Nú munu öll sveitarfélög landsins, 224 að tölu, vera orðin aðilar að því sambandi. Ég hygg að Samband ísl. sveitarfélaga hafi unnið mjög gott og mikilvægt starf á undanförnum árum og það án nokkurrar sérstakrar löggildingar, enda margir nýtir og gagnmerkir menn lagt þar hönd að verki.
Það hefur oft borið á góma á síðari árum að nauðsynlegt og æskilegt væri að fækka sveitarfélögum hér á landi og stækka þau. Það hefur reynst hægara sagt en gert að hrófla til muna við svo fornu og rótgrónu kerfi sem hreppaskipunin er. Þó eru í gildi lög um sameiningu sveitarfélaga, nr. 70 frá 1970. Þar segir m. a., að félmrn. skuli í samráði við Samband ísl. sveitarfélaga stuðla að eflingu sveitarfélaganna með því að koma á sameiningu tveggja eða fleiri sveitarfélaga í eitt sveitarfélag, eftir því sem nánar er fyrir mælt í lögum. Áreiðanlega gæti slík sameining viða orðið til bóta. Jafnframt er þó skylt að benda á að sveitar- og sýslufélög geta unnið saman með ýmsum hætti að veigamiklum málum án þess að sameinast. Mætti nefna mýmörg dæmi því til sönnunar.
Eins og áður segir og kunnugt er hafa nú verið stofnuð landshlutasamtök sveitarfélaga í öllum kjördæmum landsins utan Reykjavíkur. Það eru frjáls samtök sveitarfélaga og hafa sín eigin lög. Markmið þeirra er að eigin sögn að vinna að hagsmunamálum sveitarfélaganna í umdæmum þeirra, einkum í atvinnu-, efnahags-, heilbrigðis- og félagsmálum. Þetta er allt saman gott og blessað. Ég efast heldur ekki um að þetta samstarf sveitarfélaganna hefur haft eitt og annað jákvætt í för með sér, eins og dæmin sanna. Einlæg og traust samvinna í frjálsu formi er jafnan æskileg og árangursrík. Hitt er meira vafamál í mínum augum, hvort þörf sé á að binda slíkt samstarf við löggjöf né njörva samtök þessi við íslenskt stjórnkerfi og stjórnsýslu nú þegar. Það tel ég þurfa allmikillar athugunar við.
Sveitarstjórnarlöggjöf landsins er nú öll í almennri endurskoðun. Forsvarsmenn þessa frv. munu óttast að sú yfirgripsmikla endurskoðun taki of langan tíma, því sé knýjandi að fá samþykkta rammalöggjöf um landshlutasamtök á þessu þingi. Ég leyfi mér að draga þessa staðhæfingu í efa. Hingað til virðist ekki hafa háð þessari starfsemi, að lagaákvæði skorti. Hin frjálsu samtök hafa þegar tryggt sér álitlega tekjustofna úr opinberum sjóðum, svo sem Byggðasjóði og Jöfnunarsjóði. Hafa þeim þegar verið falin ákveðin verkefni í hinni nýju fræðslulöggjöf um grunnskóla, svo að dæmi séu nefnd. Ég álít að þessi samtök, landshlutasamtök sveitarfélaga, geti haft næg verkefni, verið ánægjuleg og látið margt gott af sér leiða hér eftir sem hingað til, þeim liggi ekki lífið á að fá útmældan löggiltan sess í stjórnkerfinu meðan þau mál eru öll í heildarendurskoðun.
Það er að sönnu ómetanlegt að eiga hugsjónamenn sem berjast fyrir hugðarefnum sínum og horfa fram á leið. En allt er breytingum háð og ákveðnum þróunarlögmálum. Lög, sem búið er að afnema, geta haft sögulegt gildi og frv., sem fjallað er um, eru meira og minna áhugaverð. En næst okkur standa þó vissulega þau lög sem í gildi eru á hverjum tíma. Samkv. sveitarstjórnarlögunum er sýslufélögum falin margþætt verkefni, nánast óteljandi. Þessi störf hafa sýslufélögin rækt í 100 ár sem lögboðin samtök sveitarfélaga og oft við mikil umsvif og með miklum ágætum, leyfi ég mér að segja, miðað við aðstæður. En það hefur alltaf gleymst að sjá þeim fyrir frumtekjustofni, sbr. orðalag 101. gr. sveitarstjórnarlaganna, en þar segir: „Því, sem á vantar að tekjur sýslusjóðs hrökkvi fyrir útgjöldum hans, skal jafna niður á hreppana“ o. s. frv.
Þál. var samþ. á Alþ. 5. maí 1965 um endurskoðun á gildandi reglum um tekjustofna sýslufélaga. Hún mun hafa verið samþ. shlj. Í fyrra var flutt þáltill. svipuð að efni til að minna á þetta mál, en sú till. varð ekki útrædd. Ég get ekki látið hjá líða að minna á þetta atriði varðandi gildandi sveitarstjórnarlög og framkvæmd þeirra, þegar nú er rætt um að auka nýjum þætti við þá löggjöf, — þætti sem vissulega þarfnast einhverra tekjustofna, svo sem þegar hefur verið að vikið.